Morgunblaðið - 01.11.1974, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.11.1974, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1974 3 Ragnhildur Helgadóttir var í gær kjörinn forseti Neðri deildar Alþingis og var þessi mynd tekin er hún tók við störfum forseta. Til vinstri situr Pálmi Jónsson og til hægri Þórarinn Sigurjónsson. Skattvísitalan hækkar um 45 % í fjárlagafrumvarpinu, sem lagt var fram á Al- þingi í gær, kemur fram, að gert er ráð fyrir, að skatt- vísitalan hækki um 45% eða í samræmi við hækkun meðaltekna til skatts. Auk þess eru áætlaðar tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti einstaklinga lækkaðar um 500 milljónir króna. Með lækkun tekjuskatts- ins er greitt fyrir samræm- ingu algengustu bóta al- mannatrygginga og tekju- skattsins eins og segir i at- hugasemdum með frum- varpinu. Bein skattbyrði, reiknuð sem álagðir beinir skattar í hlutfalli við tekj- ur fyrra árs lækka því úr 16,6% í 16,3%. „Þetta er þitt líf” — ljóðabók eftir Sigurð A. Magnússon SIGURÐUR A. Magnússon rithöf- undur hefur sent frá sér ljöða- bókina „Þetta er þitt lff“. Þetta er þriðja ljóðabók Sigurðar, en fyrri bækurnar eru „Krotað í sand“, sem kom út 1958 og „Hafið og kletturinn", sem út kom 1961. Bókaútgáfan Iðunn gefur út bók- ina og er hún prentuð f Hafnar- prenti. Ljóðabók Sigurðar skiptist í þrjá kafla. Hinn fyrsti fjallar um ljóðlistina og eru í honum þrjú ljóð. Miðkaflinn ber. nafnið „mikrokosmos" og fjallar að sögn höfundar um persónuheim hans. I miðkaflanum eru 16 ljóð. Siðasti kaflinn ber nafnið „Makro- kosmos" og er að sögn Sigurðar uppgjör við ýmsa atburði sam- tímans. 1 kaflanum eru 16 ljóð og má þar nefna Ijóð í minningu Jan Palach, ljóð um Allende, Soltsé- nitsín, Nixon, Varið land, blaða- Sigurður A. Magnússon. mennsku og sitthvað fleira. í viðtali við Morgunblaðið í gær sagði Sigurður A. Magnússon, að ástæðan fyrir því að svo langt leið milli annarrar og þriðju ljóðabók- arinnar væri sá að hann hefði verið upptekinn við blaða- mennsku síðustu 7 ár eða frá þvi er hann tók við ritstjórn Samvinn- unnar. „Nú hefur svolítið hægzt um og eru flest ljóðin samin á síðasta ári, þótt einnig séu i bók- Vegna greinar hr. Ævars Kvaran, leikara, i Morgunblaðinu í gær er rétt að taka fram eftirfar- andi: 1. Rithöfundaráð hefur aldrei haft til meðferðar mál, sem varð- ar skerðingu á prentfrelsi og æru- meiðingar. 2. Rithöfundaráð hefur aldrei gerst dómari í neinu máli, og þess er ekki að vænta að það gerist það. 3. Rithöfundaráði bar að kjósa sér stjórn samkvæmt samþykktum Rithöfundaþings, en í áiyktun þingsins um Rithöfundaráð var sérstaklega tekið fram, að ráðið skipti sjálft með sér verkum, og því of seint að halda þvi fram að svo hafi ekki átt að gera. 4. Varðandi það atriði, hvað Félagi íslenskra rithöfunda eða Rithöfundaráði komi við hvernig „við frændur" gæta heiðurs Einar H. Kvaran, er því til að svara, hvað Rithöfundaráð snertir, aó málskot Félags íslenskra rithöf- inni ljóð, sem alllangt er síðan að samin voru.“ Að lokum skal hér birt ljóð úr bókinni, ljóð, sem ber heitið „Jan Palach": Eldstólpi sem lýsir lýðnum gegnum svartnættið yfir eyðimörkina og ófæru Rauðahafs inní fyrirheitið land- unda hefur alls ekki verið til um- ræðu i ráðinu. Hins vegar hlýtur ráðið að fjalla um þau erindi sem því berast þegar því henta þykir. Það þýðir ekki sama og ráðið hafi beðið um erindi af þessu tæi. 5. Sú fullyrðing greinarhöfund- ar, að Rithöfundaráð hafi gripið þetta mál til að hafa eitthvað fyrir stafni fær því ekki staðist. Mál þetta hefur borist ráðinu en ekki verið tekið til umræðu. Rithöf- undaráð hefur alveg nóg fyrir stafni innan Rithöfundasam- bands Islands við að gæta réttar og hagsmuna íslenskra rithöf- unda í heild. Vonandi njóta frændur Einars H. Kvaran ein- hvers góðs af því starfi á meðan höfundarréttur gildir. Hitt er fá- sinna að ætla Rithöfundaráði þau verk, sem það hefur ekki nálægt komið, og öll hótfyndni þar um fellur um sjálfa sig. Indriði G. Þorsteinsson Einar Bragi Matthías Johannessen ANDMÆLI Fann þjófinn sjálfur I BYRJUN vikunnar kom 14 ára piltur til rannsóknarlög- reglunnar og tilkynnti, að stolið hefði verið skellinöðru sem hann átti. Þetta var nýtt hjól, Honda árgerð 1974. Þar eð pilturinn var enn undir lög- aldri, var hjólið geymt undir segldúk heima hjá honum. Pilturirin kom til rannsóknar- lögreglunnar að morgni, og eftir hádegi sama dag fannst hjólið í Armúla. Hafði mótornum verið stólið úr því. Pilturinn þekkti vel til í þessu Ríkissjóður varð af 8-900 hverfi, og stakk lögreglan upp á þvi, að hann svipaðist sjálfur um I hverfinu. Leið ekki á löngu uns piltur hafði fundið grunsamlegan náunga. Var sá að bauka við að skipta um mótor I skellinöðru í ösku- tunnuporti við Siðumúla. Var hann tekinn tali og viður- kenndi fljótlega að hafa stolið mótornum úr skellinöðrunni. Pilturinn, sem er 18 ára gamall, setti mótorinn á sinn stað. Var þetta daginn eftir að hvarf skellinöðrunnar uppgötvaðist. Voru rannsóknarlögreglumenn mjög hrifnir af frammistöðu skellinöðrueigandans og sögðu að hann væri sérlega efnilegur leynilögreglumaður. þúsund krónum J6n ræðir um í tolltekjum Magnús prúða I SUMAR uppgötvaðist, að búið var að afhenda 5 hjólhýsi úr geymslu Eimskipafélags Is- lands f Reykjavfk, án þess að tollur hefði verið af þeim greiddur, en slfkt er að sjálf- sögðu óheimilt. Höfðu ein- hverjir starfsmenn geymslunn- ar gerst brotlegir. Varð rfkis- sjóður af 800—900 þúsund króna tolltekjum af þessum sökum, og hefur hann nú farið fram á það við farmflytjand- ann, Eimskip, að félagið greiði þessa upphæð, enda skýrt laga- ákvæði að sögn Björns Hermannssonar tollstjóra. Hjólhýsi þessi voru flutt inn í marz 1973. Þegar þau höfðu staðið óhreyfð í geymslum Eim- skips i rúmt ár, var ákveðið að setja þau á uppboð svo hægt væri að fá upp í tolla og annan kostnað. Gripu starfsmenn toll- stjóraembættisins þá í tómt. Hafði innflytjandinn fengið hjólhýsin afgreidd hjá ein- hverjum starfsmönnum geymslunnar. Hefur mál þetta verið í rannsókn hjá Sakadómi Reykjavíkur. Sjálfvirk sím- stöð 1 Borgar- firði eystra 1 GÆR var opnuð ný sjálfvirk sfmstöð á Borgarfirði eystra. 1 þessari nýju stöð eru 60 númer. Þar með eru Borgfirðingar komnir f samband við sjálf- virka sfmakerfið f landinu, og er það að sjálfsögðu mikil bót frá þvf sent áður var. PRÓFESSOR Jón Helgason flytur fyrirlestur i boði heim- spekideildar Háskóla Islands, kl. 5.15 i hátíðasal Háskólans. Fyrirlesturinn nefnist: Hitt og annað um Magnús prúða. Öll- um er himill aðgangur. Ekið á bíl NfJ í vikunni var ekið á bifreið- ina Y-4788 og vinstra fram- bretti dældað. Sá sem skemmd- unum olli stakk af. Þetta mun hafa gerzt á bilinu frá klukkan 19 þriðjudaginn 29. október til kl. 8 morguninn eftir við Litlu Grund, eða á Smiðjustfg á mið vikudaginn. Bifreiðin er mosa- græn Moskwitch. Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar, eru beðnir að hafa samband við rannsóknarlögregluna. Brennuvarg- arnir ófundnir EKKI hefur tekizt að hafa hendur í hári brennuvarganna, sem voru á ferð í Smáíbúða- hverfinu um siðustu helgi og lögðu þar eld að fjórum bílum. Lögreglan hefur lagt mikla vinnu i málið, og rannsókn þess verður haldið áfram af fullum krafti. Kona fyrir bíl SL. miðvikudag varð sjötug kona fyrir bfl á mótum Vita- stfgs og Njálsgötu. Hún var strax flutt á slysadeildina, og reyndist hún vera handleggs- brotin, auk þess sem hún hlaut smærri áverka. Nýjungar í skólamálum ræddar á helgarráðstefnu FRÆÐSLUMÁL og nýsköpun f skólamálum eru mjög á oddin- um um þeggar mundir og ut- an grunnskólalaganna nýju, margir aðrir nýir þættir f deigl- unni og um það bil að færast inn f skólakerfið. Svo er m.a. um þá þrjá þætti, sem sjálf- stæðiskonur taka til meðferðar á helgarráðstefnu sinni um helgina, þ.e. endurmenntun og fullorðinnafræðsla, skipan sér- kennsluþjónustu og fjöl- brautarskólinn og atvinnulffið. Til þessarar ráðstefnu efna Landsamband sjálfstæðis- kvenna og Hvöt f Reykjavfk, og er allt sjálfstæðisfólk vel- komið. Ráðstefnan hefst á laugar- dagsmorgun á Hótel Sögu (inn- gangur hótelmegin) og bjóða félögin upp á sameiginlegt morgunkaffi kl. 9. Kl. 10 setur Geir Hallgrímsson, forsætisráð- herra, ráðstefnuna með ávarpi Þá verða fyrir hádegi flutt framsöguerindi. Elín Pálma- dóttir, borgarfulltrúi, talar um endurmenntun og fullorðinna- fræðslu, Þorsteinn Sigurðsson sérkennslufulltrúi, um skipan sérkennsluþjónustu og Krist- ján J. Gunnarsson, fræðslu- stjóri, um fjölbrautarskólann og atvinnulifið. Eftir matarhlé, kl. 2, taka um ræðuhópar til starfa, en hægt er að fá mat á staðnum. Á sunnudag hefst ráðstefnan aftur kl. 2 e.h. í Átthagasal Sögu og skila þá umræðuhópar áliti og verða almennar um- ræður um viðfangsefni ráð- stefnunnar, sem slitið verður kl. 17.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.