Morgunblaðið - 01.11.1974, Side 4

Morgunblaðið - 01.11.1974, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÖVEMBER 1974 Fa /7 ni n \ v 4 FFIl" LOFTLEIÐIR BILALEIGA CAR RENTAL T2 21190 21188 BILALEIGA Car Rental SENDUM 41660-42902 Ferðabílar hf. BilaleigaS—81260 5 manna Citroen G.S fólks og stationbilar 1 1 manna Chervolet 8—22 manna Mercedes-Benz hópferðabílar (með bilstjórn) í sparaksturskeppninni sönnuðu neistaspýtarnir ágæti sitt umfram önnur kerti. Við bjóðum upp á 30 DAGA reynslu án skuldbindinga . HABERG ht Skeitunni 3€‘Simi 13J45 Litið um öxl Það er bæði lærdómsrfkt og eilítið skemmtilegt að skyggn- ast um ( stjórnaraðgerðum Alþýðubandalagsmanna. Sé ferill þeirra í vinstri stjórninni og viðræðum um myndun nýrr- ar slfkrar, eftir alþingiskosn- ingarnar, athugaður, kemur f Ijós, að þeir áttu ýmist beina stjórnaraðild að, eða höfðu efnislega fallizt á allar þær að- gerðir f efnahagsmálum og til stuðnings atvinnuvegunum, sem núverandi ríkisstjórn hefur framkvæmt. Þeir stóðu að bráðabirgða- lögum, sem stöðvuðu vfsitöluskrúfuna og skertu almenn laun um 15.5 vfsitölu- stig. Ráðherra þeirra samdi lagafrumvarpið um verð- jöfnunargjald á rafmagn. Þeir buðu 15% gengislækkun f vinstri stjórnar umræðum og féllust fúslega á hækkun bensfngjalds. Lúðvfk Jósepsson talaði um það á Alþingi, að ótækt væri, að kaupgjald elti hverja verðlagshækkun, enda þýddi slfkt stöðvun atvinnuveg- anna. Og hann var ekki efnis- lega andsnúinn þeirri ráð- stöfun gengishagnaðar og til- færslu tekna f sjávarútvegi og fiskvinnslu, sem kom f veg fyrir rekstrarstöðvun útgerðar- innar. Þetta var á þeim tfma, er Alþýðubandalagið átti aðild að rfkisstjórn eða stóð f umræðum um myndun nýrrar. Tvisvar vinstri stjórn Tvisvar sinnum f seinni tfma sögu fslenzkra stjórnmála hef ur Alþýðubandalagið staðið að myndun vinstri stjórnar f land- inu. t bæði skiptin var það „heilagt“ vegarnesti flokksins inn f rfkisstjórn að umbylta rfkjandi viðhorfum f öryggis- málum þjóðarinnar, koma varnarliðinu úr landi og tslandi úr varnarsamtökum vestrænna þjóða. Þetta „heilaga" vegarnesti er jafnan framreitt úr kokkhúsi Alþýðu- bandalagsins á borð almenn- ings við suðumark, þegar það er utan rfkisstjórnar. Þegar f ráðherrastóla er komið er þessu hugðarefni að vfsu haldið volgu, eins og hentugum út- göngudyrum, ef flokkurinn þyrfti á ágreiningsefni að halda til að hlaupast úr stjórnarsessi af öðrum ástæð- um, sem ekki væri æskilegt að halda á loft. Málamyndayfir- lýsingar eru gefnar til að friða þá, sem „trúa á“ málstaðinn: herinn skal fara f áföngum á kjörtfmabilinu — en land- helgismálið hefur algjöran for- gang“. En f reynd er málstaður- inn soðinn niður til geymslu, unz f stjórnarandstöðu er kom- ið. Og nú fara háleitar hugsjón- ir að nálgast suðumarkið á nýj- an leik, ef að Ifkum lætur. Þar rauður loginn brennur á ný Alþingi tslendinga er komið saman eftir sumarhléið. Fyrsta þingið eftir sfðara vinstri- stjórnar ævintýrið. Það endaði úti f sömu mýri og hið fyrra. Aðeins lengra út f henni. Og hvert mannsbarn getur séð fyrir sér hvert og eitt viðbragð Alþýðubandalagsins í þeirri endursýningu, sem sett verður á sviði f þingsölum. Nú verður Alþýðubandalagið aftur flokk- ur hinna einu sönnu hernáms- andstæðinga. Og gengislækkun hefur aldrei komið í hug þess. Vfsitölubinding verður nú aftur bein árás á hagsmuni launafólks. Rekstrarerfiðleikar útgerðarinnar óþarfa barlóm- ur. Og verðjöfnunargjald á raf- magn og bensfnskattur eign- aðir nýrri rfkisstjórn, einvörð- ungu. Verðbólguarfurinn, sem við verður að fást, sömu- leiðis. Hinn rauði logi verður tendraður á arni Alþýðubanda- lagsins, eins og þeir hafi aldrei f rfkisstjórn komið Magnús Kjartansson og Lúðvík Jóseps- son. Og senuvanir sjónhverfinga- menn munu ganga fram f hlut- verkum sfnum af endurvakinni snilld. Um það efast enginn, sem man þeirra fyrri feril. Og það verður enn sem áður hress- andi tilbreyting f skammdegi vetrar þegar þessir boðendur stórra hluta ganga fram f „nýju fötunum keisarans". Sr. Ih rnhan) (iudrnundsson skrifar frá Xígeriu: Fáum árum síð- ar — I Biafra Við ökum eftir breiðum, mal- bikuðum vegi. Gróskumikil banana- tré varna útsýnar á báða bóga. Hópur fólks er að skera niður risa- stóra bananabrúska og rogast með þá upp á þjóðveginn. Af og til ökum við framhjá spildum vöxnum pálma- trjám. Hressir strákar hafa klifrað þau upp og veifa fjörlega til okkar, þar sem þeir kasta niður hnetunum. Ég hef á orði, að þetta sé blómleg byggð Samferðamaður minn, sem heitir þvl ágæta nafni Sunday, enda Sunday fæddist hann á sunnudegi, játar þvl, en bætir síðan við: — Hér hef ég lifað erfiðustu stundir lifs mlns. — Það kemur I Ijós, að við erum staddir þar sem borgarastyrjöld I Nigerlu geisaði sem hatramlegast — I Bíafra. Hundruð þúsunda, að- framkomin af hungri, leituðu hjálpar við þjóðveginn þennan. Sunday horfði á börn sin tvö deyja hér á þessum slóðum og kona hans hefur aldrei náð fullri heilsu síðan. — Þetta var viti, segir Sunday — við ræðum aldrei um þann tíma. Það dugar ekki að koðna I fortiðinni. Við höfum svo margt að stefna að I framtíð. — Það er erfitt að gera sér í hugar- lund þá mannlegu þjáningu, sem rikt hefur á þessum slóðum, fyrir örfáum árum, þar sem við erum meðal þessa glaðværa, hraustlega fólks Þjóðvegurinn er ákaflega fjöl- farinn, öll hugsanleg farartæki eru f notkun. Flestir eru þó gangandi, greinilega á leið til markaðarins og bera miklar klyfjar á höfði sér. Við veginn standa skólar og kirkjur, ótrúlega þétt, enda þéttbýlt. Alls staðar er fólk, hvert sem litið er. Er ég hafði dvalið I Bíafra I nokkra daga fór ég að finna til undarlegrar tilfinningar, sem ég gat ekki greint hver var, — einhver undarleg til- finning, mitt I þessu mannhafi. Þangað til einn daginn, að ég mætti Hraust og glöð börn f Bfafra 1974 ungum manni á götunni, — hvltum manni. Þá rann það upp fyrir mér, að þetta var fyrsta, hvita andlitið, sem ég hafði séð I heila viku. Ég fann til léttis, sterkrar samkenndar, en um leið var það óþægilegt að uppgötva, hversu meðvitandi maður er um húðlit sinn. Nígerla er stærsta þjóð Afríku. Nýlega hefur manntal farið fram þar og þeir telja sig nú um 80 milljónir, en viðurkenna þó, að það geti skeik- að 5— 1 0 milljónum af eða á. Taln- ingin sýnir, að meirihlutinn býr í norðurhluta landsins. Kann það að hafa mikla pólitíska þýðingu, þvi að ættflokkarnir I suðri hafa verið valdamestir I þessu samsetta þjóð- félagi, þar sem þeir hafa verið taldir fjölmennastir. Eftir borgarastyrjöld- ina var Nigeriu skipt upp i 12 fylki. Var það viturleg ráðstöfun, því að nú geta helztu ættbálkarnir verið hver á slnu landssvæði og einbeitt sér að uppbyggingunni, í stað þess að berja á öðrum ættbálkum. Herinn hefur stjórn landsins með höndum, en næsta ár eiga að fara fram lýð- ræðislegar kosningar. Nigerla er rfkt land Moldin er gjöful, málmar I jörðu og nýverið fannst þar olia i stórum stíl. Þjóðin er lika þess meðvitandi, að hún er I forystu Afrikjuríkjanna og á I fullu tré við aðrar stórþjóðir heims, enda eru blöðin full af afrekssögum um Nígeriu og Nigeríumenn. Gagnrýni Framhald á bls. 24. Lækning kvefs á næstu grösum LÍKUR til að sigrast verði á kvefinu hafa mjakast í áttina, með árangri sem vísindamenn hafa náð á þann hátt að nota mótefni gegn veirum, sem myndast á eðlilegan hátt fyrir áhrif þeirra í mannslíkaman- um. En dýrt er það drottins orð. Hópur sjálfboðaliða gaf sig fram við kvefrannsóknadeild- ina í London. Reynt var að smita þá með kvefveirum eftir að búið var að gefa öllum interferon: efni, sem myndast að eðlidlegum hætti í líkaman- um eftir kvef. Venjulega tekst að smita yfirgnæfandimeiri- hluta fólks, með þeim aðferð- um, semþarna voru viðhafðar, en í þetta skipti smitaðist að- eins einn úr stórum hóp. Tómas Hall, forstjóri rannsóknardeildarinnar segir: Þetta er í fyrsta sinn, sem nokkrum hefur tekizt að hafa áhrif á kvefveirur. Interferon hefur verið þekkt sem eðlilegt mótefni í meira en 20 ár, en það myndast aðeins í mjög smáum stfl. Samstarfshópurinn við Stan- fordlæknaháskólann í Kalí- forníu notaði interferonbirgðir til rannsóknanna, sem voru margra tugþúsunda sterlings- punda virði. Samanburðartil- raun var gerð í 'Salisbury. Hún er alveg einstæð — hefur hvergi verið gerð annars staðar í heiminum. Enska læknatíma- ritið Lancet skýrir frá henni. Sjálfboðaliðarnir skiptust í 2 hópa. öðrum helmingnum var gefiðí interferon, sem úði i nef- ið, hinn hópurinn fékk óvirkt efni, sem leit alveg eins út, Reynt var að smita báða hópana með sömu veirutegund daginn eftir. Hall læknir bar læknis- fræðilega ábyrgð á rannsókn- unum. Arangur tilraunanna varð sá, að 15 af 16 „tilrauna- dýrum“ sem voru úðuð með óvirka efninu fengu einkertni kvefs en aðeins eitt af þeim sem fengu interferon. Öheyrilegt verð á interferon veldur því, að það kemur ekki til greina sem almennt varnar- lyf. En lyfjafirmun sýna efninu mikinn áhuga, og efnafræðing- urinn, sem framleiddi efnið til rannsóknanna og Hall læknir, eru bjártsýnir á, að t^kast megi að gera það svo ódýrt, að það verði markaðshíjeft til al- mennra nota semsérlyf. Þegar það skeður, verður sennilega rannsóknarstöðinni lokað, en Halllæknir býst ekki við að honum verði ofaukið þar í náinni framtíð. V Bj. Bj.þýddi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.