Morgunblaðið - 01.11.1974, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1974
BANKASTRÆTI
®-14275
LAUGAVEGUR
®-21599
'Wl/M/kfu/f/Mftk
Gallabuxur — Gaberdine
buxur — Rúllukragabolir
Rúllukragapeysur —
Jakkapeysur — Tweed-
peysur — O.fl o.fl. o.fl.
Kennedy greiddi
ekki grænan eyri
Boston 30. október — AP
BIFREIÐATRYGGING Edward
Kennedys, öldungadeildarþing-
manns, greiddi fjölskyldu Mary
Jo Kopechne 140,923 dollara eftir
að hún fórst er bifreið Kennedys
ók fram af brú á Chappaquiddick
árið 1969, að því er blaðið Boston
Globe hefur eftir lögfræðingi for-
eldra stúlknanna í dag. Fyrri
bollaleggingar fjölmiðla hljóð-
uðu upp á allt að 500.000 dollara
greiðslu. Þá segir lögfræðingur-
inn, að foreldrarnir hafi ekkert
fengið úr vasa þingmannsins
sjálfs. „Þetta er allt og sumt, sem
þau fengu beint eða óbeint frá
öldungadeildarþingmanninum."
Boston Globe segir ennfremur,
að foreldrarnir séu miður sín og
reiðir vegna „eyðanna i sögu
Kennedys“ af atburðinum. „Það
væri gott ef einhver leysti frá
skjóðunni,“ er haft eftir frú Kop-
echne.
50 tunnur
1 reknetin
Höfn í Hornafirði
30. október
NOKKRIR reknetabátar lönduðu
hér síld í morgun og var Akurey
með mestan afla, 50 tunnur, hinir
voru með nokkru minna. Þokka-
legur afli hefur verið hjá línu-
bátunum og hafa þeir fengið á 12.
tonn í róðri, en róið er með rétt
um 40 bjóð. Hinsvegar hefur afli
trollbáta verið lélegur.
Elfas.
Leigia Cargolux þotu
Flugleiðir H.F. hafa gert samn-
ing við vöruflutningaflugfélagið
Cargolux f Luxemborg um leigu
— með áhöfnum — á þotu af
sömu gerð og þær, er halda uppi
áætlunarflugi Loftleiða. Þotan er
af gerðinni DC-8 Super 63 og var
hún afhent í Luxemborg s.l.
föstudag. Annast hún vöruflutn-
ingaCargolux milli Luxemborgar
og Hong Kong fram f miðjan
desember n.k. og verða farnar
þrjár ferðir f viku.
Fyrstu fjórar áhafnirnar, þ.e.
fjórir flugstjórar, fjórir aðstoðar-
flugmenn og fjórir flugvélstjórar,
fóru utan á fimmtudag og föstu-
dag í síðustu viku. Fór hin fyrsta
langleiðina til Hong Kong, tvær
til Dubai við Persafíóa, en þar
fara fram áhafnaskipti, elds-
neytistaka o.fl„ og hin fjórða til
Luxemborgar. Tók sú við þotunni
í Luxemborg við komuna þangað
og lagði upp í austurförina síðla
dags s.l. laugardag. Flugleiðin
austur til Hong Kong er um
Beirut, Dubai og Bangkok í
Thailandi og er flugtíminn sam-
tals allt að 17 klst.
Rekstur Cargolux gengur til-
tölulega vel, þótt félagið hafi ekki
farið varhluta af örðugleikum
vegna mikiilar hækkunar á elds-
neyti — og tímabundins skorts á
því. Flugliðar eru nú samtals 63,
flestir Islendingar. Af þeim starfa
18 á annarri leiguþotu af gerðinni
DC-8-55. I vetur verður sú þota í
vöruflutningum milli Evrópu og
borgarinnar Lubumbashi í Zaire í
Afríku skv. sér^tökum samningi
og verða flognar tvær ferðir í
viku. Auk þess starfrækir Cargo-
lux fimm vöruflutningavélar af
gerðinni CL-44.
Wilson til USA
London 30. okt. Reuter.
HAROLD Wilson, forsætisráð-
herra Bretlands, fer fljótlega til
Bandaríkjanna að eiga viðræður
við Gerald Ford, forseta. Upplýsti
Callaghan, utanríkisráðherra,
þetta á fundi I Neðri málstofunni
I dag. Ekki var tilkynnt um dag-
setningu. Hann sagði, að Wilson
hefði einnig Moskvuferð I huga,
áður en langt um liði og Gromyko,
utanríkisráðherra, hefur verið
boðið að koma til Bretlands.
Verkefnin eru mörg og marg-
breytileg. Nú er t.d. flogið viku-
lega með vörur milli Evrópu og
Lagos I Nigeriu og þrisvar í viku
til Lusaka í Zambiu. Og fyrir
nokkru stigu flugliðar Cargolux á
sovéska grund, er þeir fóru fjórar
leiguferðir fyrir Air India milli
Moskvu og Nýju Delhi. Fraktin
var rússneskt kynbótafé — alls
1.600 sauðkindur.
Sölukerfi Cargolux nær til fjar-
lægra landa viða um heim og hafa
dótturfyrirtæki verið stofnuð í
Hong Kong og Tokyo. Sölumann
eða söluskrifstofu hefur félagið
og í Seoul i Suður Kóreu, Singa-
pore og Bangkok. Starfsmenn eru
nú rúmlega 240, þar af 100 I við-
gerða- og viðhaldsdeildinni á
Luxemborgarflugvelli og allt að
80 á skrifstofum félagsins. Aðal-
skrifstofan er á Luxemborgar-
flugvelli og þar er félagið nú að
byggja stórt og mikið flugskýli,
sem verður tilbúið I janúar næsta
ár. Verður það 9.405 fermetrar að
stærð og getur rúmað tvær stórar
DC-8 þotur. Þar verður viðhalds-
deildin til húsa og önnur starf-
semi félagsins á annarri og þriðju
hæð byggingarinnar.
Cr leikritinu „Prinsessan, sem gat ekki sofnað“, sem Leikklúbbur
Laxdæla ætlar að sýna f Kópavogi og á Seltjarnarnesi um helgina.
Leikklúbbur Laxdæla
sýnir barnaleikrit
Leikklúbbur Laxdæla I Búðar-
dal sýnir barnaleikritið
„Prinsessan sem gat ekki sofnað“
í félagsheimilinu i Kópavogi
laugardaginn 2. nóv. og félags-
heimilinu á Seltjarnarnesi,
sunnudaginn 3. nóv. kl. 3 s.d.
Höfundur og leikstjóri er
Kristján Jónsson og söngtexta-
höfundur er Anna Kristjánsdótt-
ir. Leikendur eru 11, og 2 hljóð-
færaleikarar. Leikritið hefur
fengið frábærar undirtektir i
Búðardal, var það sýnt fyrir troð-
fullu húsi á 17. júní. Það og
Skugga Sveýin, sem var sýndur 6
sinnum í vor við mjög góðar
undirtektir, voru enduræfð nú i
haust og sýnd þrisvar sinnum.
Leikstjóri Skugga Sveins er einn-
ig Kristján Jónsson. Starfsemi
Leikklúbbs Laxdæla hefur staðið
með miklum blóma frá stofnun
hans, sem var fyrir rúmum þrem
árum. Átta verk hafa verið tekin
fyrir. Aðstæða i Dalbúð er mjög
góð og hefur Leikklúbburinn
bætt allan sviðsútbúnað. Formað-
ur er Rósa Sigtryggsdóttir.