Morgunblaðið - 01.11.1974, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÖVEMBER 1974
Launajöfnunarbætur
í framkvæmd
1 septembermánuði sl. gaf
ríkisstjórnin út bráðabirgðalög
um launajöfnunarbætur, sem
koma eiga f stað verðlagsbóta á
laun fram til 31. maf 1975. Fyrr f
þessum mánuði var síðan gefin út
regiugerð, þar sem mælt er fyrir
um framkvæmd laganna um
launajöfnunarbætur. Launajöfn-
unarbætur verða greiddar frá 1.
október 1974 til 31. maí 1975. Þær
nema 3500 kr. á laun, sem eru
50.000 kr.og lægri. Verðlagsupp-
bót verður ekki greidd fyrir utan
þá kaupgreiðsluvfsitölu, sem er f
gildi og svarar til 106,18 stiga.
Grunnkaup að viðbættri þessari
vfsitöluuppbót er viðmiðun
launajöfnunarbóta.
Hverjir fá bætur?
Allir þeir, sem hafa 50.000 kr.
mánaðarlaun eða lægri miðað við
kaupgreiðsluvísitölu 106,18, fá
3500 kr, launájöfnunarbætur á
mánuði fyrir fulla dagvinnu.
Mánaðarlaun að upphæð 50.000
kr. samsvara 11.538 kr. vikukaupi
og 288,50 kr. tímakaupi. Launa-
jöfnunarbætur á vikukaup verða
því 808 kr. en 20,20 kr. á klukku-
stund.
Þeir, sem hafa laun á milli
50.000 kr. og 53.500, fá hlutfalls-
lega hækkun, þannig að öll laun á
þessu bili verða kr. 53.500. Á
sama hátt verður vikukaup á
bilinu kr. 11.538 til kr. 12.346 allt
12.346 kr. og tímakaup á bilinu
288,50 til kr. 308,70 verður allt kr.
308,70.
Bætur á yfirvinnukaup
Bætur á yfirvinnukaup greiðast
hlutfallslega þannig, að gildandi
tengsl yfirvinnu- og dagvinnu-
kauptaxta haldist. Eftirvinnu-
kaup á með öðrum orðum að mið-
ast við dagvinnukaup eins og það
er eftir að launajöfnunarbótum
hefur verið bætt við. Ef tímakaup
í dagvinnu hefur t.d. hækkað
vegna launajöfnunarbóta úr kr.
288,50 í kr. 308,70 og næturvinna
hefur verið greidd með 80%
álagi, á að miða það við kr. 308,70.
Grunnkaupsbreytingar
Grunnkaupshækkanir á gildis-
tíma laganna, sem samið var um
fyrir 1. október sl. og koma til
framkvæmda á tímabilinu, valda
ekki missi launajöfnunarbóta. Af
því leiðir, að mánaðarlaun, eftir
3% grunnkaupshækkun 1. desem-
ber n.k., á bilinu 51.500 til 55.000
verða öll kr. 55.000. Þau laun, sem
eftir 3% grunnkaupshækkunina
verða kr. 51.500 eða lægri hækka
eftir sem áður um 3.500 kr. Á
sama hátt verður vikukaup á
bilinu 11.884 kr. til 12.692 kr. allt
kr. 12.692 og tímakaup á bilinu
297,20 til kr. 317,40 allt kr. 317,40.
Gildandi verðiagsuppbót,
6,18%, reiknast á laun eftir að
grunnkaupshækkunin hefur ver-
ið bætt við. Launajöfnunarbætur
bætast síðan við þá upphæð, en
grunnkaupshækkunin á ekki að
valda missi launajöfnunarbóta.
Afleiddir kauptaxtar
Þegar um er að ræða afleidda
kauptaxta, sem eru ákveðið hlut-
fall af grunntaxta, á að miða þá
við grunntaxtann eins og hann er
án launajöfnunarbóta. Siðan fer
það eftir upphæð afleidda taxt-
ans, hvort við hann skuli lagðar
launajöfnunarbætur. Þá fer það
eftir þeim reglum, sem að framan
greinir.
Álög og kaupaukar
Þegar launajöfnunarbætur eru
ákveðnar á að miða við kaup eins
og það er að viðbættum hvers
kyns álögum og kaupaukum. Ef
álög og kaupaukar svara með
beinum og ótviræðum hætti til
útlagðs kostnaðar launþega við
öflun launatekna, ber ekki að
telja þessa liði með við ákvörðun
launajöfnunarbótanna.
Sem dæmi um álög, er leggja
ber við kaupið áður en til álita
kemur, hvort greiða skuli launa-
jöfnunarbætur, eru: Aldurs-
hækkanir, starfsþjálfunarhækk-
anir, löggildingarálag, námskeiðs-
álag, verkstjóraálag, flokksstjóra-
álag, óþrifaálag, yfirborgun, við-
gerða- og breytingaálag, þunga-
álag, tengivagnaálag, hæðarálag,
erfiðisáiag svo að nokkur dæmi
séu nefnd.
Sem dæmi um greiðslur, sem
svara til beins og ótvíræðs
kostnaðar launþega við tekjuöfl-
un má nefna: verkfærapeninga,
flutningapeninga, fæðispeninga,
fatapeninga og fataþvottapen-
inga.
Launajöfnunarbætur valda
hins vegar ekki hækkun á
framangreindum álögum eða
kaupaukum í krónutölu. Sé yfir-
borgun t.a.m. ákveðið hlutfall
grunnkaups ber að reikna hana
áður en launajöfnunarbótum er
bætt við.
Vaktaálag
Vaktaálag á ekki að teljast með
taxta við ákvörðun launajöfn-
unarbóta, nema að því leyti sem
það kann að vera hærra en svarar
til yfirvinnu, næturvinnu- og
helgidagaálags. Að því er varðar
vaktaálagið sjálft ber að miða það
við taxtann eins og hann er orð-
inn að launajöfnunarbótum með-
töldum. Undantekning er þó gerð
varðandi þann hluta vaktaálags-
ins, sem er hærri en svarar til
yfirvinnu eða helgidagaálags.
Þessi hluti skal talinn með taxta
og launajöfnunarbætur eiga ekki
Framhald á bls. 29.
£ó
LFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓ
Q.
Q.
UJ
'O
O
Q.
Q.
UJ
O
o
Q.
Q.
UJ
Seljum í dag og næstu daga nokkrar
rúllur á mjög lágu verði
af Acrylteppum og nylonteppum.
Verð frá kr. 1.200.- pr. fermeter
einning nokkrar rúllur af ullarteppum.
Q.
Q.
o
o
GÓLFTEPPI
Við sníðum, tökum mál og önnumst ásetningu
Teppaverzlunin
Friðrik Bértelsen,
Lágmúla 7 — Sími 86266
GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI
LFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPPI GÓLFTEPo