Morgunblaðið - 01.11.1974, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ 1. NÖVEMBER 1974
Fjárlagafrumvarp 1975:
Opinberum framkvæmdum
stillt í hóf
Spornað gegn
útþenslu í
ríkisbúskapnum
Fjárlagafrumvarpið fyr-
ir árið 1975 var lagt fram á
Alþingi í gær. Niðurstöðu-
tölur frumvarpsins eru
45,2 milljarðar kr. Útgjöld
eru 44,7 milljarðar kr. og
tekjur umfram gjöld eru
því 512,7 milljónir kr.
Greiðsluafgangur er áætl-
aður 71,6 millj. kr. Hækk-
unin frá fjárlögum 1974
nemur 52,2%, en sé miðað
við væntanlega útkomu
ársins 1974 nemur hækk-
unin 21%. í athugasemd-
um með frumvarpinu seg-
ir, að sú hækkun, sem fram
komi í krónutölu, sé fyrst
og fremst afleiðing
almennrar þróunar í efna-
hagsmálum og sérstakra
ráðstafana í ríkisfjármál-
um, sem gerðar hafa verið
á þessu ári.
1 athugasemdunum segir
ennfremur, að við gerð
frumvarpsins hafi verið
lögð áhersla á þrjú megin-
atriði:
0 í fyrsta lagi að sporna
við útþenslu ríkisbúskap-
arins miðað við önnur svið
Afleiðing efnahagsþróun-
ar
1 athugasemdum meö frum-
varpinu segir m.a.:
Fjármál ríkisins eru samofin
efnahagsmálum þjóðarinnar, og
hin almenna hagþróun endur-
speglast einatt í þeim áætlunum
um ríkisbúskapinn, sem settar
eru fram í fjárlagafrumvarpi. Það
frumvarp, sem hér liggur fyrir, er
engin undantekning þeirrar
reglu. Sú öra verðbólguþróun,
sem ríkt hefur hér á landi að
fundanförnu, ásamt ýmsum
félagslegum og efnahagslegum
aðgerðum, sem gripið hefur verið
til á árinu, koma í ríkum mæli
fram i þessu frumvarpi og eru
reyndar höfuðorsök þeirrar
hækkunar, sem fram kemur i
samanburði við fjárlagatölur yfir-
standandi árs. Við slíkar aðstæð-
ur er þess vart að vænta að gefizt
hafi ráðrúm til að marka djúp
spor í fjármálastefnu ríkisins á
þeim skamma tíma, sem hefur
verið til að móta fjárlagafrum-
varpið. Fjárlagafrumvarpið ber
það með sér engu að síður, að
Framhald á bls. 16
1 gær heiðraði Morgunblaðið fjóra íþróttamenn fyrir frammistöðu þeirra í Islandsmótunum f
handknattleik og knattspyrnu 1974. Nánar ersagt frá verðlaunaveitingunni á bls. 39, en myndin er af
gestum blaðsins við verðlaunaveitinguna: Frá vinstri: Hans Guðmundsson, formaður knattspyrnu-
deildar Vals; Jóhannes Eðvaldsson, „Leikmaður lslandsmótsins f knattspyrnu 1974“, Þórður
Þorkelsson, formaður Vals; Axel Kristjánsson, formaður FH; Viðar Sfmonarson, „Leikmaður
tslandsmótsins f handknattleik 1974“; Ingvar Viktorsson, formaður handknattleiksdeildar FH;
Haraldur Sveinsson, framkvæmdastjóri Morgunblaðsins; Olafur A. Jónsson, formaður handknatt-
leiksdeildar Fram með verðlaun Axels Axelssonar, Ellert B. Schram, formaður KSÍ; Teitur
Þórðarson, „Markakóngur Islandsmótsins f knattspyrnu 1974“, Haraldur Sturlaugsson, formaður
knattspyrnuráðs Akraness og Sigurður Jónsson, formaður HSt. (Ljósm. Mbl. Sveinn Þormóðsson).
Kaupum olíu af Rússum
fyrir um 6 milliarða ’75
efnahagsstarfseminnar í
landinu.
0 í öðru lagi að stilla
opinberum framkvæmdum
svo í hóf, að ekki leiði til
óeðlilegrar samkeppni um
vinnuafl án þess að at-
vinnuöryggi sé stefnt í
hættu eða það komi niður á
þjóðhagslega mikilvæg-
ustu framkvæmdum.
% 1 þriðja lagi að styrkja
fjárhag ríkissjóðs og stuðla
jafnframt að efnahagslegu
jafnvægi í víðara skilningi.
„Við getum sagt, að þetta séu
viðunandi samningar, ellegar
væri þess ekki að vænta að við
hefðum gengið að þeim,“ sagði
Vilhjálmur Jónsson, forstjóri
Olfufélagsins, um nýju olfusamn-
ingana við Sovétmenn. „En á hitt
er einnig að Ifta að þegar gerður
er samningur fyrir svo langan
tfma og f ljósi þeirra miklu breyt-
inga sem orðið hafa á olfuverðinu
á nokkrum sfðustu mánuðum, þá
er ákaflega erfitt að segja til um
það hvort samningur gerður f dag
muni reynast hagstæður út árið
sem samið er fyrir.“
1 fréttatilkynningu viðskipta-
ráðuneytisins um þennan samn-
ing segir svo: „Hinn 25. október
sl. var undirritaður í Moskvu
samningur milli viðskíptaráðu-
neytisins og Sojusnefteexport um
kaup á brennsluolíum og bensíni
á árinu 1975. Samið var um 300
þúsund tonn af gasoliu, 100 þús-
und tonn af fuelolíu og 80 þúsund
tonn af bensíni. Verðmæti þessa
magns er um 50 milljón dollarar
eða rétt tæplega sex milljarðar
íslenzkra króna.
Verð á öllum olíutegundum er
miðað við skráningar á heims-
markaðinum án yfirgreiðslu og
fellur þvi niður lA% yfirgreiðsla á
gasoliu og bensíni, sem i gildi var
í ár. Hér er þó um mjög óverulega
upphæð að ræða eða um 50 cent
af hverju tonni gasolíu, eftir þeim
upplýsingum er Mbl. aflaði sér.
I samningagerðinni tóku þátt af
Islands hálfu þeir Þórhallur Ás-
geirsson ráðuneytisstjóri, Hannes
Jónsson sendiherra og fulltrúar
olíufélaganna þeir Indriði Páls-
son, Vilhjálmur Jónsson, önund-
ur Ásgeirsson og Árni Þorsteins-
son.
Hart deilt um Glæsibæjarsamninginn:
Sláturfélagsmönnum
varnað inngöngu?
I nótt var ráðgert, að SS tæki yfir
rekstur matvörubúðar Silla og Valda
SAMKVÆMT samningi, sem
Sláturfélag Suðurlands hefur
gert við fyrirtækið Silla og Valda
og undirritað var af Valdimar
Þórðarsyni, en dánarbú Sigurliða
Kristjánssonar lftur á sem vilja-
Hér sést hvernig starfs-
menn matvöruverzlunar-
innar höfðu f gærkvöldi
bundið saman handföng á
vængjahurð að innanverðu
með vírspottum til að
meina Sláturfélagsmönn-
um inngöngu. Ljósm Mbl.
SS.
yfirlýsingu af Valdimars hálfu,
átti Sláturfélagið að yfirtaka mat-
vöruverzlunina f Glæsibæ á mið-
nætti f nótt. Þegar Morgunblaðiö
fór f prentun í gærkvöldi hafði
starfsfólk Silla og Valda búið um
sig f verzluninni og var þess við-
búið að verja sláturfélagsmönn-
um inngöngu, en talið var að þeir
myndu koma f verzlunina strax
eftir miðnætti til þess að gera
Framhald á bls. 24.
Kommisörun-
um sagt upp
FRAMKVÆMDASTJÓRUM
Framkvæmdastofnunar rfkis-
ins eða kommisörunum, eins og
þeir hafa stundum verið nefnd-
ir, hafa verið leystir frá störf-
um og munu þeir láta af störf-
um hinn 1. desember nk.
Að sögn Guðmundar Vigfús-
sonar, eins framkvæmdastjór-
anna, hafa þeir nú fengið bréf
frá ríkisstjórninni með tilkynn-
ingu um að þeir væru leystir
frá störfum og þá með þeim
fyrirvara er kveðið væri á f
lögum, sem er einn mánuður.
Það þýddi því að þeir létu af
störfum 1. desember nk.