Morgunblaðið - 02.11.1974, Blaðsíða 5
MOIÍBUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1974
5
Sýning Jónasar
Guðmundssonar
Myndiist
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
JÓNAS Guðmundsson, stýrimað-
ur, rithöfundur, listmálari m.m.,
hefur undanfarna daga haldið
sýningu á málverkum og vatns-
litamyndum að Hamragörðum við
Hávallagötu og lýkur henni nú
um helgina.
Jónas er litríkur persónuleiki
og margt til lista lagt, enda löngu
landskunnur og þá einkum fyrir
ritstörf. Hann virðist eirðarlaus
sál, sem vill hafa líf og hávaða í
kringum sig og andhverfur allri
lognmollu. Slíku fylgir einnig
sjálfkrafa, að sjaldnast vinnst
tími til að þaulvinna hlutina, hug-
leiða hin dýpri rök tilverunnar
ellegar velta vöngum yfir hinum
dýpri iífæðum myndflatarins. í
óstýrilátum pataldri hlymja orð
og litir um sviðið, — skyndilega
er orustunni lokið, vopnin lögð
niður og þetta er allt búið og gert
og verður ekki umbreytt.
Það er víst enginn öfundsverð-
ur, sem hemja þarf slíkan Iifs-
blossa hið innra með sér, og þessu
eðli fylgir auk annars að víxlspor-
in og vindhöggin hljóta
óhjákvæiriilega að verða mörg og
þeir, sem þekkja til aðstæðna, bú-
ast sjaldnast við átakamiklum
hlutum frá hendi slíkra persónu-
leika.
Jónas Guðmundsson, sem hér
er til umræðu, kemur ýmislegt
mjög á óvart i sambandi við sýn-
ingu sína að Hamragörðum, og
hann staðfestir nú i fyrsta skipti,
að hann er ekki eingöngu hæfi-
leikum gæddur varðandi meðferð
pentskúfsins, heldur kann hann
einnig að vinna úr þeim, og það er
einmitt hæfileiki hæfileikanna
varðandi allar sjónmenntir.
I stuttu máli þá hefur honum
farið mikið fram, frá því að hann
hélt síðast sýningu, form mynda
hans eru til muna heillegri og
hann virðist vera farinn að brjóta
heilann um sálfræðilegt innsæi I
litanna, því að yfir þeim er stund-
um viss dulúð, sem ég hefi ekki
orðið var við i myndum þessa
manns áður. Ég vil nefna í í þessu
sambandi myndir eins og nr. 8
„Frá Reykjanesi" nr. 19 „Vor- I
nótt“ og nr. 24 „Tröllahnúkar", —
sterk og sannfærandi burðar-
grind einkennir og mynd nr. 7
„Kaupstaðarferð, sem er máski
kröftugasta mynd sýningarinnar.
Allt eru þetta vatnslitamyndir
unnar á sérkennilegan hátt og eru
Jónas Guðmundsson við eina af
myndum sfnum að Hamragörð-
um.
málverkunum langtum fremri að
mínum dómi og þykir mér ein-
sýnt, að hann hafi hag af því að
kanna sviðið nánar, geri eitthvað
meira en að tylla þar tá og snúa
sér svo að öðru, er hugann gripa
kann. Ég tel ástæðu til að sam-
gleðjast Jónasi með landvinning-
inn og hvet sem flesta og eink-
um Vesturbæinga til að fjöl-
menna í þennan sýningarsal, því
það er ekki vansalaust, hve mikið
tómlæti þeir sýna þessari ágætu
menningarviðleitni í borgarhluta
sínum.
Bragi Ásgeirsson.
Sannleikurinn um Krist
KRISTILEGT stúdentafélag
hefur nýlega gefið út bók, sem á
fslenzku nefnist: Sannleikurinn
um Krist. Bók þessi er eftir
sænskan prest, John R. W. Stott,
og nefnist hún á frummálinu
Basic Christianity.
Höfundurinn er þekktur fyrir-
lesari og hefur skrifað fjölda
bóka. Hann hefur einnig tekið
virkan þátt i brezku kristilegu
stúdentahreyfingunni I.V.F. Um
bókina segir höfundur, að hún sé
ætluð öllum þeim, sem lifa í hinni
vestrænu menningu, sem ekki er
lengur kristin, þar sem flestir
hafa komizt í kynni við kristni i
einhveri mynd, en hafnað henni
síðan. Bókin býður lesendum að
endurmeta hin kristnu grund-
vallaratriði, sem hafnað var á
röngum forsendum.
Bók þessi, Sannleikurinn um
Krist, hefur verið þýdd á fjölmörg
tungumál og nálgast fjöldi seldra
eintaka nú eina milljón. Islenzka
þýðingu bókarinnar annaðist sira
Jónas Gíslason lektor. Bókin er
pappírskilja, 176 bls. að stærð og
prentuð í ísafoldarprentsmiðju
hf. Káputeikningu gerði Þröstur
Magnússon.
Karl Kvaran opnar sýningu
KARL Kvaran heldur málverka-
sýningu í Norræna húsinu núna
fyrst í növember. Sýningin
verður opnuð í dag, laugardag, kl.
2 e.h.
Þetta er tiunda einkasýning
Karls, en auk þess hefur hann
tekið þátt i mörgum samsýn-
ingum, var m.a. einn af hinum
svonefndu septembermönnum.
Á sýningunni eru 37 olíumál-
verk, sem öll eru máluð á 2—3
siðustu árum. — Sýningin verður
opin til 10. nóvember.
Karl Kvaran á sýningu sinni
Hátíðarsamkoma
í tilefni 75 ára afmælis Ásmundar Eiríksson
ar, sem er í dag 2.1 1. Þá heldur Fíladelfíusöfn
uðurinn í Reykjavík, hátíðarsamkomu afmælis-
barninu til heiðurs. Söngkraftar Fíladelfíu munu
syngja og leika sálma Ásmundar. Boðið er upp
á fjölbreyttan söng. Ávörp verða fluttaf vinum
Ásmundar. Samkomustjóri verður Einar J.
Gíslason.
Allir eru velkomnir.
Fíladelfía.
Ný bók
Ásmundur Eiríksson sjötíu og fimm ára.
Sjálfsæfisaga „Skyggnzt um af Skapabrún".
Verð með söluskatti 1450,oo kr.
Lesið um Skagfirska bóndasoninn er gerðist
brautryðjandi landsþekktrar trúmálahreyfingar.
Fæst hjá bóksölum og útgefanda.
Blaða og Bókaútgáfan, Hátúni 2,
Sími 20735, Box 5135, Reykjavik.
Öpiö
laugardag
Herrabúðin við
Lækjartorg
er opin laugardag frá
kl. 10—12.
VI Ð LÆKJARTORG /T
a
ORYGGI
VETRARAKSTRI
GOODfÝEAR
GOODpYEAR
HJÓLBARÐA ^ ÞJÓNUSTUDEILD
í rúmgóðu húsnæði að Laugavegi 172
FELGUM — AFFELGUM — NEGLUM
650 X 16
700 x 16
1000 x 20
1 100x20
Vorum að fá sendingu af
Amerískum snjóhjólbörðum
í stærðunum:
A 78 — 13 H 78 — 14
C 78— 13 G 78— 15
E78— 14 H 78— 15
F 78 —14 J 78 — 15
G 78 — 14 L 78 — 1 5
Eigum einnig fyrirliggjandi ýmsar
stærðir fyrir Evrópubíla.
Opið til kl. 6 í dag
— Sími 21245 —
HEKLAH.F.
LAUGAVEGI 170—172 — SÍMI 21240
LÍTILL BÍLL ER LAUSNIN
SÍMAHAPPDRÆTTI jrSTSXw™