Morgunblaðið - 02.11.1974, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.11.1974, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1974 10 ÁRGERÐ 1975 flestra bíltegunda, a.m.k. evrópskra, er lltið eða ekk- ert breytt frá því I fyrra. Ein und- antekninganna er þó hinn sænski Volvo. Það er semsagt kominn nýr Volvo. Sá, sem áður hét 142, 144 o.s.frv., heitir nú 242, 244 o.s.frv. Heildarútlitsbreytingar eru kannski ekki svo ýkja miklar, mest hefur fremsti hlutinn breyst. Grillið hallar nokkuð, kemur út að neðan, þannig að öryggisstuðar- inn lengist enn. Tvær nýjar vélar hafa verið smíðaðar. Önnur er B21. sem er í 240 gerðunum. Hún er. eins og margar vélar eru í dag, með yfirliggjandi knastás og er fáanleg bæði með blöndung og beinni innspýtingu (þ.e. auðvitað einungis annað í einu). Með blöndung er krafturinn 97 hestöfl (DIN) en með beinni innspýtingu er hann 1 23 hestöfl (DIN). Framfjarðirnar eru nýjar gorma- fjaðrir og er Volvoinn mun betri í akstri, sérstaklega á slæmum hol- óttum vegum. Nýr stýrisbúnaður. „rack and pinion", hefur verið tekinn upp. Sllkur stýrisbúnaður er notaður í kappakstursbflum, enda sá fullkomnasti, sem völ er á I dag. Öryggið hefur enn verið Þetta er kannski ekki liprasti bHI, sem völ erá innanbæjar, en ef menn leita að öryggi, sem er orð- ið eitt stærsta atriði I bílaiðnaðar- ins I dag, þá eru fáir, a.m.k. frá Evrópu, sem eru Volvo fremri. Vol- voinn er með rúllubelti bæði fram I og aftur. Volvo 244 deluxe, 4ra dyra, 4ra gíra með 97 hestafla vélinni, eins og fyrsti bfllinn, sem kom til landsins af þessari nýju gerð, kostar kr. 1.266.500.— Umboðið hefur Veltir h.f„ Suðurlandsbraut 16. br.h. NOKKRAR LÍNURUM NÝJAR LÍN- UR 2 4 4 Nýi framendinn. aukið, þó sumir velti kannski fyrir sér hvernig það sé hægt. Bremsu- kerfið, sem er tvöfalt, er nú þann- ig úr garði gert, að þó aðalkerfið bili þarf ekki fastara ástig á bremsupedalann til að öryggis- kerfið taki við sér. Áklæði á sæt- um er nú neistafrftt. Ökumanns- sætið er upphitað, sem var raunar einnig á árg. '74. Framsætin eru að f lestu leyti ágæt en setan er þó ekki svo slétt sem skyldi. Nýir áfastir höfuðpúðar, rimblapúðar. sem sést á milli eru f framsætum. Þeir eru hinsvegar nokkuð harðir en það er vfst hluti af viðleitni Svfanna til að maður sofni ekki við stýrið. Bfllinn er léttari f stýri en fyrirrennarar hans, þó enn finni maður vel, að maður hefur eitt- hvað á milli handanna. Gfrskipt- ingar eru ekki mjög liprar a.m.k. ekki meðan bfllinn er glænýr. Ann- ars virðist manni einhver öryggis- tilfinning samfara þvf að aka í Volvo og vinnslan er talsvert betri nú en áður og éstæða er til að ætla. að hámarkshraðinn sé mun meiri. Volvoinn liggur mjög vel á vegi, bæði sléttum og ósléttum en á nýja bflnum er einmitt aukin „balansering" á afturhjólunum. Bremsurnar eru örugglega ein- hverjar albestu, sem boðið er upp á ffólksbílum. Með öryggisstuður- unum er Volvoinn nú 489,8 sm langur og 171 sm breiður. Hann vegur næstum 1200 kg óhlaðinn. Volvo 244 deluxe Hér má m.a. sjá hvernig hinir nýju hnakkapúðar eru. Skák eftir JÓN Þ. ÞÓR SKAKKEPPNUM kvenna hef- ur ekki verið sýndur mikill sómi hér f þættinum fram til þessa og fara þó árlega fram mörg mót, sem öflugar skák- konur taka þátt f. Nú er nýlokið Ólympfumóti kvenna f skák og tóku 25 þjóðir þátt f keppninni. Úrslitin urðu þau, að Sovétrfk- in og Rúmenfa sigruðu og hlaut hvor sveit 13,5 v. 1 3.—4. sæti urðu sveitir frá Búlgarfu og Ungverjalandi. Önnur úrslit f A-riðli urðu sem hér segir: 5. Holland 9,5 v., 6. Tékkósló- vakfa 9 v., 7. Júgóslavfa 7,5 v., 8.—9. England og V.-Þýzkaland 4 v. og 10. Kanada 3 v. Hver sveit var skipuð tveim aðal- keppendum og einum til vara. 1 sovézku sveitinni voru þær Nana Gaprindaschvili, heims- meistari kvenna, I. Levitina og N. Alexandrina. Við skulum nú líta á tvær skemmtilegar skákir frá keppn- inni: Hvftt: N. Gaprindaschvili Svart: I. de Karo (Kólumbía) Petroffsvörn 1. e4 —e5, 2. Rf3 — Rf 6, 3. Rxe5 — d6, 4. Rf3 — Rxe4, 5. d4 — d5, 6. Bd3 — Rf6, 7. 0-0 — Be7, 8. Re5 — 0-0, 9. Hel — He8, 10. Bf4 — Rbd7,11. Rd2 — Bd6,12. c4 — He7, 13. c5 — Bxe5, 14. dxe5 — Rxc5, 15. Bc2 — Re8, 16. Dh5 — g6, 17. Dh6 — Re6, 18. Bg3 — Rd4, 19. Bd3 — Bf5, 20. De3 — Rc2, 21. Bxc2 — Bxc2, 22. Dc5 — Bf5, 23. Bh4 — f 6, 24. exf 6 — Hxel, 25. Hxel — Dd6, 26. Dc3 — Be6, 27. Rf3 — c5, 28. Rg5 — Bf7, 29. Rxf7 — Kxf7, 30. He7 — Kf8, 31. Bg5 og svarturgaf. Hvftt: K. Jovanovic (Júgóslavfa) Svart: N. Alexandrina Aljekinsvörn 1. e4—Rf 6, 2. e5 — Rd5, 3. d4 — d6, 4. Rf3 — g6, 5. Rg5 — c6, 6. Bc4 — Bg7, 7. De2 — h6, 8. Rf3 — Bg4, 9. Bxd5 — cxdð, 10. Db5 — Rc6, 11. Dxb7 — Dc8, 12. D'b3, — Bxf3, 13. gxf3 — 0-0,14. De3 — dxe5, 15. dxe5 — Rxe5, 16. c3 — d4, 17. De2 — Dh3, 18. Rd2 — dxc3, 19. bxd3 — Had8, 20. De4 — Rd3+ 21. Ke2 — Bxc3 og hvítur gaf. UM þessar mundir er Bridge- samband íslands að senda aðildarfélögum sínum um allt land skjalamöppur með ýmsum fróðleik. Ber þar fyrst að nefna keppnisreglur BSl fyrir Is- landsmót í sveitakeppni, opinni tvimenningskeppni, tvímenn- ingskeppni kvenna og tvenndarkeppni. Einnig er skýrsla um þing BSÍ, sem hald- ið var i Domus Medica 5. okt sl. Þá má nefna lög fyrir Bridgesambandið og ýtarlega skrá yfir stjórn, dómnefndir og endurskoðendur sambandsins með nöfnum, heimilisföngum og simanúmerum viðkomandi aðila. Um 30 manns sátu þing BSl, sem haldið var I byrjun okt. sl. Hófst þingið með þingsetningu Jóns Ásbjörnssonar, sem bauð þingfulltrúa velkomna. Þá var Tryggvi Gfslason kjörinn þing- forseti. Síðan hófst dagskrá með kosningu kjörbréfanefnd- ar og uppstillingarnef ndar. Síð- an flutti Jón Asbjörnsson ýtar- lega skýrslu stjórnar frá tveim- ur sl. árum. Reikningar sambandsins lágu ekki fyrir á þinginu þar sem gjaldkeri sambandsins var staddur í Afríku og verður haldið framhaldsþing fljótlega. Um stjórn Bridgesambands islands kom aðeins ein tillaga fram og var hún samþykkt sam- hljóða nema að Guðriður Guð- mundsdóttir gaf ekki kost á sér í starf gjaldkera, en í hennar stað var haft samband við Steinunni Snorradóttur, sem kvaðst vilja taka að sér starfið. Er stjórnin þannig skipuð nú: Forseti Hjalti Elíasson, vara- forseti Jón Hjaltason, ritari Al- freð Alfreðsson, gjaldkeri Steinunn Snorradóttir, með- stjórnendur Tryggvi Gislason, Ragnar Björnsson, Örn Vigfúss- on. Varastjórn: Ríkharður Steinbergsson, Björn Eysteins- son, Guðjón Guðmundsson. Endurskoðendur: Sigvaldi Þor- steinsson, Ingi R. Jóhannsson. Til vara Stefán Guðjóhnsen. í dómnefnd voru kosnir: Axel Einarsson, Oddur Sigur- jónsson, Ragnar Þorsteinsson. Til vara: Júlíus Guðmundsson og Margrét Ásgeirsdóttir. 1 liðnum „önnur mál“ komu fram breytingartillögur frá Hinn nýkjörni forseti Bridge- sambands tslands Hjalti Elfas- son. Bridgefélagi Reykjavíkur um breytingar á sveita- og tvímenn- ingskeppni íslandsmóts, sem voru samþykktar með breyting- um. Rétt þykir að benda á síðustu grein tillagna B-manna en hún er athyglisverð og hljóðar svo: Ölvun er stranglega bönnuð i allri keppni og varðar tafar- lausri brottvísun. Síðasta mál var skýrsla siða- reglunefndar og gaf þingfor- seti, Tryggvi Gíslason, Friðriki Karlssyni orðið og upplýsti hanrt þingheimum, að nefndin hefði ekki lokið störfum en kvaðst vona, að hún gæti skilað till. sfnum fljótlega. Að lokum, tók nýkjörinn for- seti sambartdsins, Hjalti Elías- son, til máls. Hvatti menn til dáða og vonaðist til að geta haft gott samstarf við öll félög og félagsmenn bridgeíþróttarinn- ar. Þá þakkaði þingforseti mönn- um góða fundarsetu og óskaði þeim góðrar heimferðar, og frestaði síðan þinginu. A.G.R.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.