Morgunblaðið - 02.11.1974, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.11.1974, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1974 25 þing- spiall „Hver verða helztu viðfangs- efni þingsins, sem er að hefja störf,“ spyr Tíminn sl. miðviku- dag, og birtir svör fimm for- ystumanna þingflokkanna. Fjórir af fimm svarendum setja efnahagsmálin í fyrsta sæti og allir nefna þau sem eitt helzta viðfangsefnið. Formaður Al- þýðubandalagsins sagði þó „ekki útséð um, hver yrðu aðal- mál þingsins" og nefnir „her- stöðvarmálið" á undan efna- hagsvandanum. „Herstöðvar- málið“ hefur í tvígang verið „höfuðerindi" Alþýðubanda- lagsins inn í ríkisstjórn. Jafnoft hafa þeir horfið úr stjórn með „höfuðerindið" geymt og óspjallað, enda virðist það flokknum ekki síður nauðsyn- legt haldreipi i stjórnarand- stöðu. GEIR HALLGRIMSSON, for- maður Sjálfstæðisflokksins, sagði efnahagsmálin verða aðal- mál þessa þings. Staðfesta þyrfti tvenn bráðabirgðalög þeim tengd: annarsvegar verð- jöfnunarbætur til láglauna- fólks og hinsvegar lögin um ráðstafanir i sjávarútvegi. Því næst kæmu fjárlög ársins 1975 og ýmis frumvörp í framhaldi af þeim efnahagsráðstöfunum, sem þegar hefðu verið gerðar. Hömlun gegn verðbólgu, rekstraröryggi atvinnuveganna og útfærsla landhelginnar myndu móta höfuðdrætti þing- starfanna. Efnahags- vandinn höfuðvið- fangsefni þingsins EINAR AGÚSTSSON, vara- formaður Framsóknarflokks- ins, sagði og efnahagsmálin verða höfuðviðfangsefni þings- ins, a.m.k. fyrri hluta þess. Auk staðfestingar bráðabirgðalaga „geri ég ráð fyrir, að lagt verði fram frumvarp um frekari verðbólgustöðvun, en bráða- birgðalögin gilda ekki nema Brosað umhverfis gamla ræðustólinn, sem prýðir þingsal á ný eftir 15 ára fjarveru: Guðlaugur Gfslason, Gunnar Thoroddsen, Sighvatur Björgvinsson og Gylfi Þ. Gíslason. Ekki er vfst, að gatnli stóllinn mæti ætfð jafn brosmildum andlitum á þessu þingi. Ljósm. Mbl. Olafur Magnússon. stuttan tíma, og ríkisstjórnin verður þá að hafa tiltækar ráð- stafanir, áður en þau falla úr gildi.“ Utfærsla landhelginnar mun og setja svip á þingstörfin að dómi utanríkisráðherra. Varnarmál munu og bera á góma og „ég hygg, að þing- mönnum liggi ýmislegt á hjarta, og að þeir verði frjóir til málatilbúnaðar, og verður þing- ið því ekki verkefnalaust.“ GYLFI Þ. GlSLASON, for- maður Alþýðuflokksins, sagði efnahagsmálin verða efst á baugi og þann vanda, sem við væri að glíma í dýrtíðarvexti og rekstri útflutningsatvinnuveg- anna. „Þá geri ég ráð fyrir, að miklir erfiðleikar verði á því að koma í gegn slysalausum fjár- lögum." „Þegar atvinnuvegirn- ir eiga í slíkum erfiðleikum, sem raun ber nú vitni, er ein- mitt erfitt að haga samningu fjárlaga skynsamlega.“ Þá lagði Gylfi áherzlu á nauðsynlegar breytingar á kosningalögum. „Þessu kjörtímabili má ekki ljúka án þess að drög verði lögð á endurskoðun stjórnarskrár- innar, sem hefur dregizt alltof lengi.“ RAGNAR ARNALDS, for- maður Alþýðubandalagsins, nefndi fyrst „herstöðvarmálið". „Við tókum það trúanlegt, að Einar Agústsson myndi ekkert aðhafast í því máli nema leggja það fyrst fyrir Alþingi, en nú standa þingmenn frammi fyrir því, að þetta hefur verið gert.“ Þar næst nefndi Ragnar efna- hagsmálin og útfærslu land- helginnar sem viðfangsefni, er móta myndu þingstörfin. KARVEL PALMASON, for- maður þingflokka SFV, sagði: „Ætli efnahagsmálin verði ekki aðalmál þessa þings. Það sjá allir, að þetta getur ekki gengið eins og ástandið er, og rétt er að minna á, að ýmsar þær ráð- stafanir, sem gerðar hafa verið, hafa ekki fengið elilega með- ferð Alþingis." Þessi svör benda öll i þá átt, að glímann við verðbólguna og margþætt vandamál efnahags- lifsins og atvinnuveganna verði rauði þráðurinn f þingstörfun- um, a.m.k. fyrstu mánuðina. Stefnuræða forsætisráðherra, sem væntanlega verður flutt n.k. þriðjudag og fjárlagaræða fjármálaráðherra, sem flutt verður skömmu þar á eftir, munu að líkum skýra drættina í störfum þingsins næstu vikurn- ar. Að auki munu umræður um öryggismál koma inn i myndina sem og málatilbúnaður ein- stakra þingmanna, sem erfitt er að-spá í fyrirfram. sf. Svipmynd frá þingsetningu: Gylfi Þ. Gfslason, formaður Alþýðuflokks- ins, Geirþrúður Bernhöft, Friðjón Sigurðsson, skrifstofustjóri Alþingis, Guðmundur Garðarsson og ólafur Ragnar Grfmsson. Fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins: Steinþór Gestsson, Oddur Olafsson, Ellert B. Schram og Jón G. Sólnes. Þrír úr stjórnarandstöðunni: Ragnar Arnalds, formaður Alþýðubanda- lagsins, Eðvarð Sigurðsson og Þór Vigfússon. !?Ji3^il!Eli3!33)G)G]GlGl!3(3!3!3!3GI!33]!3!3!3!3!3!3!3!3G]!3[3§ls[a[s[a[s[s[3lsla(a[a[a[a[sls[a[a[s[s[s[a[a[a(s[s[a[a[s[a[3[aGil Barnahátíð Þórs IHJ 13 13 13 Kynnir verður Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona. Andrés önd býður ykkur velkomin í Háskólabíó laugardaginn 2. nóvember kl. 3 e.h. og sunnudaginn 3. nóvember kl. 1.15 e.h. Fjölskylduboð fyrir fjóra til Mallorka Skólahljómsveit Kópavogs spilar, stjórnandi Björn Guðjónsson. Kvikmyndasýning — teiknimyndir (mikið fjör). Hver aðgöngumiði er happdrætti. Vinningurinn er ferð fyrir fjóra í sólskinið á Mallorka — ferð fyrir fjölskylduna. Dregið verður úr seldum miðum þegar öllum skemmtununum lýkur. Vinningsnúmerið verður birt á siðustu skemmtuninni og í fjölmiðlum. Aðgöngumiðinn kostar 300,00 kr. Popphljómsveitin Dögg eykur á gamanið. Margt fleira til skemmtunar. Forsala aðgöngumiða verður í Háskólabíói í dag, laugardag frá kl. 1 e.h. og sunnudag frá kl. 1 1 f.h. Allur ágóði rennur til barnaheimilisins að Tjaldanesi og líknarsjóðs Þórs. 13 Um leið og hverri skemmtun lýkur fá öll börnin afhenta gjafapakka frá Andrési önd. 13 13 Lionsklúbburinn Þór. 131 G1 1 31 31 31 31 31 (31 Gl G1 E)S]lá]ElE]E]B)BlE]G]E]G]G]E]E|G]E|E]ElElG]ElE]E]EIE]GlE]GlG]E]E|E]B]G]BjE]G]E]B]B]G]E]E]E]E]E]G]E]E]E]E]5]S]B]B]G]E]G]E]E]E]S](gl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.