Morgunblaðið - 02.11.1974, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 02.11.1974, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1974 35 MTWETTIIi MOUBIAOSIIIS Slakur árangur golfmanna Eftir tvo fyrstu keppnisdagana f heimsmeistarakeppni áhuga- manna f golfi, reka tslendingar lestina f keppninni, og hefur árangur fslenzku golfmannanna verið með afbrigðum slakur, svo ekki sé meira sagt. Eftir tvo daga hafði fslenzka landsliðið leikið á samtals 578 höggum, og var 133 höggum á eftir þeirri sveit, sem var f forystu f keppninni, Banda- rfkjamönnum — Hrikalegur munur. Par vallarins, sem keppt er á i Dóminikanska lýðveldinu, er 72, en bezti árangur Islendings i keppninni er 91 högg og var það Þorbjörn Kjærbo, sem þeim árangri náði í gær. Fyrsta dag keppninnar var árangur Islendinganna sem hér segir: Þorbjörn Kjærbo 96 högg, Tómas Holton 103 högg, Jóhann Benediktsson 95 högg og Einar Guðnason 97 högg. A öðrum keppnisdeginum var árangurinn sem hér segir: Þorbjörn 91 högg, Tómas 99, Jóhann 103 og Einar 100. Árangur þriggja beztu er reiknaður f keppninni. Sem fyrr greinir eru Islending- ar síðastir í keppninni, en næstir á undan þeim er E1 Salvador, sem leikið hefur á 570 höggum. Skera þessi tvö landslið sig algjörlega úr á botninum. Eftir keppnina í gær var röð þátttökuþjóðanna sem hér segir: Bandaríkin Suður-Afríka Japan Brasilía Bretland-Irland Ástralía Argentína Formósa Sviþjóð V-Þýzkaland Frakkland Kanada Italía N-Sjáland N-Guinea Mexikó Spánn Ródesía Belgía Venezúela Holland Sviss högg 445 450 452 454 460 466 466 470 471 474 475 477 477 478 479 479 479 480 481 484 487 487 Framhald á bls. 22 Frakkar sigruðu Frakkar og Finnar léku landsleik I handknattleik um slðustu helgi og fór leikurinn fram f Lyons. Frakkamir sigruðu i leiknum meS 22 mörkum gegn 11, eftir aS 14—4 í hálfleik. LiSin léku einnig á föstudagskvöld í St. Etienne og sigruðu Frakkar líka f beim leik, 27—16. ÞaS var einkum einn maSur f franska liSinu, Legrand, sem lék finnska liSiS grátt f báðum leikjunum. SkoraSi hann 10 mörk f fyrri leiknum, en 7 mörk t seinni hálfleiknum Markhæstur finnanna í báSum leikjunum var Kaj Aström sem skoraði 4 mörk f fyrri leiknum og 3 mörk f þeim seinni. Landsleikur þessara þjóða hafa lengst af veriS nokkuð jafnir, en sagt er, aS Frakk- arnir eigi nú betra handknattleiks- landslið en þeir hafa nokkru sinni étt áður. Hefur það þegar hafið undir- búning sinn fyrir forkeppni Olympfu- leikanna. Eins og flestir sjálfsagt muna kepptu fslendingar við Frakka f undankeppni heimsmeistarakeppn- innar s.l. vetur. Töpuðum við fyrri leiknum, sem fram fór f Frakklandi 13:16, en unnum svo leikinn f Laugardalshöllinni með yfirburðum, 28:15. Tveir um 10 milljón dollara tilboð til Muhammeds Ali Pólland vann Kanada GREINILEGT er, að Kanada- mönnum hefur farið mjög mikið fram í knattspyrnu að undan- förnu, enda lögð áherzla á það þarlendis, að liðið, sem taka mun þátt í iokakeppni Olympíuleik- anna 1976, verði frambærilegt. Kanadiska knattspyrnulandsliðið hefur verið í keppnisferð og i æfingabúðum í Evrópu að undan- förnu. Lék það fyrst landsleik við Austur-Þjóðverja og tapaði 0—2, og í fyrrakvöld mætti það Pólverj- um I leik, sem fram fór í Varsjá. Aftur töpuðu Kanadamenn 0—2, sem er ekki mikið þegar tekið er tillit til þess, að Pólverjar hlutu bronsverðlaun í siðustu heims- meistarakeppni. Staðan í hálfleik var 2—0. Mörk Pólverjanna skor- uðu Kasalik og Jakubczak. SIGUR Muhammeds Ali yfir George Foreman f einvfginu í Kinshasa f Zaire á dögunum hefur vakið gífurlega athygli. Hafa viðbrögð manna verið á ýmsan veg, en allir virðast þó sammála um að frammistaða Ali f leik þessum hafi verið frábær og komið mjög svo á óvart. Það eru helzt landar Alis f Bandarfkj- unum, sem geta ekki dulið von- brigði sfn yfir sigri hans. Þar stóðu nær allir með George Fore- man, a.m.k. hvftir menn. Hnefaleikasérfræðingar þeir, sem fjallað hafa um leikinn, eru á einu máli um, að þar hafi gerzt tvennt í senn: Ali hafi sýnt sitt allra bezta og verið i mun betri æfingu og sálarlegu jafnvægi en oftast áður, og að Foreman hafi hins vegar verið þyngri og óör- uggari en oftast áður. Segja þeir, að engin tvímæli séu á því, að það hafi verið mjög erfitt fyrir Fore- man að keppa þennan leik. Hann hafði um 70 þúsund áhorfendur á móti sér, og að undanförnu hefur hann stöðugt orðið að þola skens- yrði Alis og jafnvel ósvífni hans. — Það er sama hversu sterkir menn eru, slíkt hefur niðurdrep- andi áhrif þegar til lengdar lætur, og allir þeir iþróttamenn, sem það hafa reynt, vita hversu erfitt það er að hafa alla áhorfendur á móti sér. Afríkubúar eru hins vegar í sjö- unda himni yfir sigri Alis. Hann er þeirra maður, segja þeir, og sömuleióis varð mikill fögnuóur i löndum Araba vegna sigursins. Hefur eitt Arabariki heitið því aó greiða 10 milljónir dollara í verð- laun, vilji Ali berjast aftur, en eftir sigurinn yfir Foreman á dögunum sló Ali því fram, að hann myndi ef til vill fara i hring- inn ef svo há upphæð væri í boði, en alls ekki fyrir minna. Þá hefur John Daly, sá er stjórnaði einvig- inu í Zaire, einnig boðizt til þess að greiða 10 milljónir dala í verð- laun. Daly þessi, sem er 35 ára, er sonur fyrrverandi hnefaleikara og eigandi um 250 verzlana, auk nokkurra kvikmyndafyrirtækja. Muhammed Ali hefur ekki látið enn uppi hvort hann muni ganga að þessum tilboðum, en víst er, að margur myndi vilja láta berja sig fyrir minni upphæð. — Eg ætla að hvíla mig næstu sex mánuðina og njóta titilsins, sem ég hef orðið að hafa svo mikið fyrir. Ali flaug vestur um haf í gær og hafði þá viðkomu í Paris. Þar ræddi hann við blaðamenn og fór mestur tíminn hjá honum i að hrópa að þeim: „Ég er kóngurinn — ég er konungur heimsins, mesti hnefaleikari sem uppi hefur verið fyrr og síóar. Hann sendi Foreman einnig kveðjur: Foreman er aumingi, sem kann ekki að tapa, sagði Ali, — hann tapaði öllum lotunum, það sáu allir. Og þó að hann hefði skriðió á fætur hefði ég verið fljótur að smyrja hann á gólfið aftur. Hann átti enga von í leiknum. Ali sagðist ekki vilja berjast við Patterson. — Hann er of gamall. sagði hann, — Við Joe Frazier? — Hvers vegna ekki, — það er spurning um peninga, svaraði Ali. Og Foreman: — Ég þekki hann of vel, sagði Ali, — hann slær fast en er þó enginn hnefaleikari. Eg er of fljótur og of fallegur fyrir hann. Ég get unnið hann daglega f viku. Þess má svo að lokum geta, að belgíska hnefaleikasambandið hefur nú sent alþjóðahnefaleika- sambandinu formleg mótmæli vegna ummæla, sem Ali vióhafði eftir leikinn gegn Foreman á dögunum. Hann sagði: — Ég er Afrikubúi, hér á ég heima. En Foreman. Hann á ekki heima hér — hann er Belgi ræfillinn sá arna. Með þessu mun Ali hafa ætlað sér að slá sig til riddara í augum fólksins i Zaire, en sem kunnugt er var það riki áður ný- lenda Belgiumanna, — Belgiska Kongó. Arsþing Júdósambandsins Eysteinn Þorvaldsson endurkjörinn formaður ÁRSÞING Júdósambands tslands var haldið f Reykjavík 19. október s.l. JSl var stofnað f ársbyrjun f fyrra, og hefur sambandið haft mörgum og stórum verkefnum að sinna. A liðnu starfsári háðu fslenzkir júdómenn fjórum sinnum lands- keppni, hinar fyrstu frá upphafi og stóðu sig með prýði. Þá tóku íslenzkir júdómenn þátt í Norður- landameistaramótinu í Kaup- mannahöfn og Evrópumeistara- mótinu í London. Hingað til lands kom fyrsta erlenda júdólands- liðið, lið Tékkóslóvakiu, og einnig kom hingað vestur-þýzka ungl- ingalandsliðið. JSI réð í fyrra landsliðsþjálfara í fyrsta sinn, og hefur starf hans borið mikinn ár- angur. Á árinu var háldið fyrsta dómaranámskeiðið á Evrópu- mælikvarða hér á landi og út- skrifaðir 14 dómarar, þar af 6 landsdómarar. Þá var haldið þjálfaranámskeið í fyrsta sinn, og mikil störf unnin i skipulags- og tæknimálum. Skipulegt unglinga- starf var tekið upp af samband- inu. Aðalmál júdóþingsins að þessu sinni var afgreiðsla mikilvægrar reglugerðar um gráður, sem Michal Vachun landsþjálfari hefur lagt grunninn að með mikilli nákvæmni og ágætri kunnáttu. Græður í júdó eru mjög til að efla áhuga og virðingu fyrir íþróttinni. JSI er aðili að Evrópu- sambandinu og Alþjóðasambandi Eysteinn Þorvaldsson, formaður Júdósambandsins — f einkennis- búningi júdómanna. júdómanna, og eru gráðureglunar i samræmi við ströngustu kröfur á alþjóðamælikvarða. Reglugerð um gráðudómara var líka sam- þykkt á þinginu. Júdómenn eiga mikil verkefni fyrir höndum á nýbyrjuðu starfs- ári, og ber þar hæst Norðurlanda- meistaramótið í júdó, sem haldið verður í Reykjavík 19. og 20. apríl i vor. JSI annast undirbúning og framkvæmd mótsins. I stjórn JSI fyrir næsta starfsár voru kosnir: Eysteinn Þorvalds- son, formaður, og aðrir í stjórn: Sigurður H. Jóhannsson, össur Torfason, Jóhannes Haraldsson og Einar Erlendsson. Mikill áhugi TIL MARKS um mikinn hand- knattleiksáhuga i Færeyjum má geta þess að þegar lið þeirra Kyndil lék við danska liðið Árhus KFUM á dögunum voru áhorfend- ur að leiknum um 1800, þótt húsið rúmaði ekki nema 1500 áhorfend- ur. Seld voru stæði á ölkössum sem raðað var fyrir aftan mörkin, og kostuðu slík stæði 30 kr. dansk- ar, eða um 600 kr. fslenzkar! Sovétmenn sigursælir Heimsmeistarakeppninni i róðri á húðkeypum er nýlega lokið I Mexikó. Eins og fyrirfram var búizt við voru Austur-Evrópubúar sigursælastir f keppninni, en skipting verðlauna var sem hér segir: GULL SILFUR BRONS ALLS Sovétrfkin 6 7 1 14 Austur-Þýzkaland 4 2 2 8 Ungverjaland 3 4 3 10 Rúmenfa 3 2 6 11 Pólland 1 2 3 6 Italfa 1 1 0 2 Belgfa 0 1 0 1 Tékkóslóvakfa 0 0 1 1 Frakkland 0 0 1 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.