Morgunblaðið - 02.11.1974, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1974
Ekki úr gamalli kvikmynd
heldur ný tfzka. Sfðar rnussur,
að vfsu gerðar nútfmalegri með
sfðu kögri og mynztruðum
köntum ofan við brjóst og á
hettunni — og f hettunni er
náttúrlega skúfur. Ullarefni er
f mussunni.
Hárgreiðslan hvetur til að hár-
ið fái að vera frjálsi og enn er
gerð atiaga að „túperingunni**.
Röndóft bómullarblússa, leður-
vesti með hálfstuttum ermum,
hatturinn úr ljósi filti. Við
þetta notar stúikan stórt smelti
f breiðri keðju og armband úr
sama efni.
Jakki úr hrokkinni lambsull.
Kraginn stór og góður til
skjóls. Hatturinn er úr flaueli.
Utprjónaðir vettlingar á borð
við þá, sem stúlkan hefur á
höndunum, þykja hinir feg-
urstu.
Þykkar slár virðast sérstaklega
vinsælar nú og eru þær af
miklu fleiri gerðum en áður
hafa sezt. Þær eru prjónaðar
eða heklaðar eða ofnar og
mynztrin og litir eftir smekk
hvers og eins. Slárnar hafa
sfkkað borið saman við það,
sem var í fyrra, en sláin á með-
fylgjandi mynd er þó með þeim
voldugri, sem við höfum séð.
Stúlkunni ætti ekki að verða
kalt f þessum búningi, en
hversu heppilegur hann er til
að vera f við hjólreiðar — eins
og stúlkan á myndinni — skal
ósagt látið.
AUur sportfatnaður á að vera
léttari og frjálslegri en áður og
það gildir reyndar um flestar
flfkur. Alpahúfan er endurvak-
in, sfðir peysujakkar f rólegum
litum, kjóllinn niður fyr hné og
há stfgvél við. Og ekki má
gleyma treflinum. Ef myndin
prentast vel ætti kögrið aðsjást
sæmilega.