Morgunblaðið - 02.11.1974, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NOVEMBER 1974
15
Vopnabírgðir
n-írskra fanga
Belfast, 1. nóv. AP.
FUNDIZT hafa I MAZEfangels-
inu f Belfast talsverðar birgöir
„heima“-geróra vopna, sem talið
er, að hafi átt að nota við meiri
háttar flótta þaðan. Vopnin fund-
ust f þelm hluta fangelsisins, sem
hýsir fanga, sem grunaðir eru um
að vera f hryðjuverkasveitum
mótmslenda.
Meðal vopnanna, sem fangarnir
höfðu gert sér, voru barefli úr
járni (lappir undan járnrúmum)
og slöngvivélar, sem eru taldar
sérstaklega hættulegar, þar sem
hægt er að varpa úr þeim stálflfs-
um í allt að 50 metra fjarlægð.
Vopnuð
lögregla
til starfa
á Heathrow
London, 1. nóv. Reuter.
VOPNAÐIR lögreglumenn
komu sér fyrir á Heathrow-
flugvelli hjá London og verða
þar til frambúðar til þess að
verja flugvöllinn gegn hryðju-
verkamönnum.
Brezkir lögreglumenn hafa
verið óvopnaðir frá gamalfi tfð
en hafa þó stundum borið
vopn þegar þeir hafa fengið
hættuleg verkefni eða teklð að
sér lffvarðarstörf.
Lundúnalögreglan tekur við
starfi lögregluliðs, sem hefur
heyrt undir yfirstjórn brezkra
flugvalla, og Christopher
Payne, nýr lögreglustjóri
Heathrow-flugvallar, seglr, að
margir þeirra 400 lögreglu-
manna, sem starfa á flugvell-
inum, muni ekki bera vopn við
dagleg störf.
Hann sagði, að vopnum yrði
úthlutað eftir þörfum hvenær
sem til þess kæml að öryggi
yrði ógnað og herinn yrði
kallaður á vettvang ef þess
gerðist þörf.
Yfirlýsing hans virðist vera
liður f þeirri viðleitni stjórn-
arinnar að tryggja það, að
skæruliðum verði ljóst, að
Heathrow sé „erfitt" skotmark
og að þelr verði að leita fyrir
sér annars staðar.
Framhald á bls. 22
Sömuleiðis höfðu þeir gert sér
riffla og byssur, sem líktust vél-
byssum. Sængurföt höfðu þeir rif-
ið I strimla og bundið í gripkróka
og loks fannst teikning af þvf
svæði fangelsisins, þar sem gestir
fá að hitta fangana.
Þar til nýlega voru um 80%
fanganna I MAZE úr röðum ka-
þólskra, sem grunaðir voru um
aðild að hryðjuverkasveitum IRA.
Þeim tókst á hinn bóginn nýlega
að brenna ofan af sér hluta fang-
elsisins og voru þá flestir fluttir I
önnur fangelsi. Brezkir hermenn
hafa unnið að endurbyggingu
þeirra húsa, sem brunnu. Fangar
úr röðum mótmælenda tóku eng-
an þátt I óeirðunum þá, en þær
voru þáttur f víðtækari aðgerðum
kaþólskra fanga i fangelsum á
Norður-Irlandi.
Mesta atvinnuleysi í
Bandaríkiunum í 3 ár
Washington, 1. nóv. AP.
ATVINNULEYSI Jókst úr 5,8 f
6% f sfðasta mðnuði f Bandarfkj-
unum og hefur ekki verið meira f
þrjú ár.
Þessi auknlng er enn ein vfs-
bendingin um samdrátt f Banda-
rfkjunum og er mikið áfall fyrir
stjórn Fords forseta fyrir kosn-
ingarnar á þriðjudaginn.
Atvinnuleysið var einnig 6% f
nóvember 1971, en þá var efna-
hagslffið að ná sér eftir samdrátt f
tvö ár. Atvinnuleysi fór sfðast yfir
6% f nóvember 1961, en þá var
efnahagslffið einnig að lagast
eftir samdrátt.
5,5 milljón Bandarfkjamanna
voru atvinnulausir f sfðasta mán-
uði að sögn verkamálaráðuneytis-
ins, 200.000 fleiri en f september
og 1,3 milljón fleiri en f október
1973.
Fjöldi atvinnuiausra f Banda-
rfkjunum hefur aldrei verið að
tölu til meiri sfðan skráning
þeirra hófst 1948.
Atvinnuleysi hefur aukizt mest
meðal þeldökkra verkamanna, úr
9,8 f 10,9%. Atvinnuleysi meðal
hvítra verkamanna er svo tii
óbreytt, 5,4%.
Efnahagslffið er f lægð svo
búizt er við, að atvinnuleysi auk-
izt enn og verði ef til vill 7% á
næsta ári, samkvæmt spám efna-
hagssérfræðinga Fords forseta.
Stjórnin hefur lagt til, að at-
vinnuleysisbætur verði auknar og
störf aukin við opinberar fram-
kvæmdir þegar atvinnuleysi fer
yfir 6% þrjá mánuði f röð.
Fjöldi þeirra, sem stunda at-
vinnu, er 86,5 milljónir og breytt-
ist ekki I mánuðinum en aukn-
ingin síðan í fyrra er 850.000.
A þessari mynd má sjá
leifar húss eins í hress-
ingarmiðstöð brezka
hersins í Ballykinlar,
skammt frá Newcastle á
Norður-Irlandi. Húsið
eyðilagðist í eldi 28.
október sl. eftir spreng-
ingu, er varð í bifreið,
sem lagt hafði verið þétt
upp við einn af veggjum
þess. Tveir brezkir her-
menn létu lífið, þrjátíu
manns særðust, þar á
meðal nokkrir óbreyttir
borgarar.
Heath hyggst þrauka,
Wilson agar ráðherra
London, 1. nóvember. Reuter.
EDWARD Heath snerist til varn-
ar f daggegn eindregnum tiiraun-
um til þess að vfkja honum úr
stöðu leiðtoga thaldsflokksins og
virðist ákveðinn að þrauka þótt
kröfur um að hann hstti verði
stöðugt hávsrari.
Harold Wllson forsstisráð-
herra reyndl jafnframt að aga
vinstri arm Verkamannaflokks-
ins og hótaði að reka þrjá ráó-
herra — Anthony Wedgewood
Benn iðnaðarráðherra, Judith
Hart þróunaraðstoðarráðherra og
Joan Lestor aðstoðarutanrfkisráð-
herra — sem mótmsla stefnunni
gagnvart Suður-Afrfku.
Vinstri armurinn er Wilson
þungur í skauti þvf hann vill ein-
dregnari sósfalisma en Wilson vill
hófsamari stefnu til að leysa verð-
bólguna og mæta kaupkröfum
verkamanna. A sama tíma vilja
margir íhaldsmenn, að flokkur
þeirra sveigi lengra til hægri, en
Frumvarp um frjálsar fóstureyðingar
fellt í norska Stórþinginu með 1 atkv.
lagt fyrir aftur í breyttri mynd
Ósló. 1. nóvember.
Frá fréttaritara
Morgunblaðsíns
Agústi I. Jónssyni.
• FRUMVARP norsku rfkis-
stjórnarinnar um frjálsar
fóstureyðingar var fellt með
einu atkvsði f Stórþinginu f
nótt. Að loknum 15 klst. um-
rsðum dró stjórnln frumvarpið
tii baka eftir að 78 þingmenn
höfðu lýst sig andvfga þvf eins
og það var lagt fram. 77 þing-
menn voru frumvarpinu fylgj-
andl, þannig að munurinn gat
ekki verið minni.
0 Þrátt fyrir að frumvarpið
fengi ekki meirihluta f Stór-
þinginu er samt sem áður
meirihlutl meðal þingmanna
fyrir auknum frelsi tii fóstur-
eyðinga. Menn eru hins vegar
ekki á eitt sáttir um ýmis atrlði
frumvarpsins og þvf náði það
ekl.i fram að ganga að þessu
sinni.
Frumvarpið — sem raunar
ber nafnið fjölskyldufrumvarp-
ið — verður nú aftur tekið til
meðferðar af félagsmálaráðu-
neytinu og á þvf gerðar nauð-
synlegar breytingar tll að
tryggja því meirihluta f Stór-
þinginu. Trygve Bratteli, for-
sætisráðherra, sagði þegar það
hafði verið fellt, að mikill
meirihluti þingmanna væri
fylgjandi stórvægilegum breyt-
ingum á núverandi lögum um
fóstureyðingar, og félagsmála-
ráðherra iandsins Tor Halvor-
sen, sagði, að strax yrði hafizt
handa um að vinna að þeim
breytingum.
Reiknað er með þvf, að helztu
breytingar á frumvarpinu verði
eftirfarandi:
1. 1 stað frjálsra fóstureyð-
inga fái konur rétt til að sækja
sjálfar um fóstureyðingu og
áfrýja niðurtöðunni, ef svo ber
undir. Aður hafa konur orðið
að fá lækna til að sækja um
fóstureyðingar fyrir sig.
2. Fóstureyðingamefndum
verði fjölgað og jafnvel sett á
stofn áfrýjunarnefnd f fóstur-
eyðingarmálum fyrir allt land-
ið þannig að konur allsstaðar f
Noregi hafi sömu möguleika á
þvf að fá fóstri eytt.
Aliar skulu þær breytingar,
sem gerðar verða á frumvarp-
inu, miða að þvf að gera fóstur-
eyðingar auðveldari en nú er og
auka áhrif kvennanna sjálfra f
þeim efnum.
Þingmenn Verkamanna-
flokksins og Sósfaliska kosn-
ingabandalagsins (SV) voru
fylgjandi frjálsum fóstureyð-
ingum við atkvæðagreiðsluna,
að undanskildum einum þing-
manni SV og afstaða hans réð
úrslitum f þessu máli. Hægri
flokkurinn, Miðflokkurinn,
Vinstri flokkurinn, Nýi þjóðar-
fiokkurinn og flokkur Anders
heitins Lange gátu ekki í öllum
atriðum fellt sig við frumvarpið
og greiddu því atkvæði gegn
því. Kristilegi þjóðarflokkur-
inn hafði mikla sérstöðu f þessu
máli. Þingmenn flokksins lýstu
sig fylgjandi strangari regium
um fóstureyðingar en nú gilda
en málstaður þeirra fékk engan
hljómgrunn.
Það var hiti f umræöunum f
Stórþinginu f gær og þingmenn
vitnuðu í rit Alberts
Schweitsers, f Níirnberg dóm-
ana og við iok umræðnanna
hafði einn þingmanna með sér f
ræðustólinn Gamla testamentið
og las upp 139. sálminn.
Norska þjóðin fylgdist náið
með umræðunum um fóstur-
eyðingarmáliö. A hverjum degi
skrifuðu blöðin meira og minna
um frumvarpið og sjónvarpið
lét sitt ekki eftir liggja, sendi
m.a. beint frá umræðunum
mestallan daginn í gær. Undir-
skriftum hefur verið safnað af
báðum aðilum og þátttaka verið
mikil. Til að mynda afhentu
andstæöingar frumvarpsins
forseta Stórþingsins 610.000
undirskriftir á miðvikudaginn.
Heath hefur alltaf hvatt til
þjóðareiningar. Þannig vinna
sterk öfl í báðum flokkum að þvf
að skerpa andstæöurnar f brezk-
um stjórnmálum.
Fullvíst var talið eftir fund
þingmanna Ihaldsflokksins, að
Heath yrði að víkja úr stöðu sinni
þar sem aðeins tveir ræðumenn af
21 reyndu að verja hann. „Enginn
getur búizt við því, að hann haldi
áfram eftir það, sem hann heyrði
í gærkvöldi," sagði ónefndur
þingmaður. (Heath var ekki við-
staddur en fékk fréttir af fundin-
um).
Niðurstaða fundarins var sú, að
Heath yrði að ákveöa hvort hann
segði af sér, gæfi kost á sér til
endurkjörs, þótt það geti valdið
klofningi f flokknum, eða héldi
áfram. 1 dag tók Heath síðan
fram, að hann væri ákveðinn f þvf
að þrauka.
Wilson er sagður fokvondur
vegna þess, að Tony Benn, Judith
Hart og Joan Lestor munu hafa
stutt ályktun framkvæmdanefnd-
ar Verkamannaflokksins þar sem
harmað var, að brezk herskip fóru
nýlega f heimsókn til Suður-
Afríku og iýst yfir, að þetta hefðu
verðið „herfileg mistök" hjá
stjórninni. Wilson er andvígur að-
skilnaðarstefnu Suður-Afríku-
stjórnar en er reiður þvf að
nokkrir ráðherrar gagnrýni eigin
stjórn og brjóti þá brezku hefð að
rfkisstjórnir standi sameinaöar.
Wilson sendi þeim bréf og mun
hafa sagt þeim, að ef þau full-
vissuðu sig ekki um hollustu við
stjórnina yrðu þau að víkja úr
henni.
Ungfrú Lestor er sérfræðingur
I Afríkumálum og heitur and-
stæðingur aðskilnaðarstefnunnar
og verið getur, að hún hugleiði að
Framhald á bls. 22