Morgunblaðið - 02.11.1974, Page 17

Morgunblaðið - 02.11.1974, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1974 17 Komið í veg fyrir frekari útþenslu í ríkisbúskapnum — fjárhagsstaða ríkissjóðs styrkt Rfkisstjórnin lagði fram á Al- þingi sl. miðvikudag frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1975. Heildarútgjöld rikisins á næsta ári eru áætluð 44,7 milljarðar króna, en tekjuafgangur er áætlaður 512,7 milljónir. Niðurstöðutölur frumvarpsins eru þvf 45,2 milljarðar króna og er það 52,2% hækkun miðað við fjárlög þessa árs. Meðaltals- hækkun verðlags á þessu tfma- bili hefur verið 50 til 55%. I athugasemdum við frumvarpið segir að lögð hafi verið áhersla á þrjú meginatriði: • 1 fyrsta lagi hefur verið reynt að sporna við útþenslu rfkisbúskaparins miðað við önnur svið efnahagsstarfsem- innar f landinu. • 1 öðru lagi hefur verið reynt að stilla opinberum fram- kvæmdum svo f hóf, að ekki leiði til óeðlilegrar samkeppni um vinnuafl án þess að at- vinnuöryggi sé stefnt f hættu eða það komi niður á þjóðhags- lega mikilvægum framkvæmd- um. 0 1 þriðja lagi hefur verið lögð áhersla á að styrkja fjár- hag rfkissjóðs og stuðla jafn- framt að efnahagslegu jafn- vægi f vfðari skilningi, en það verður eitt meginviðfangsefni á næsta ári, segir f athuga- semdunum. 1 athugasemdum við fjárlaga- f rumvarpið segir ennfremur: „Fjármál rfkissins eru sam- ofin efnahagsmálum þjóðar- innar og hin almenna hagþróun endurspeglast einatt f þeim áætlunum um rfkisbúskapinn, sem settar eru fram f fjárlaga- frumvarpi. Það frumvarp, sem hér liggur fyrir, er engin undantekning þeirrar reglu. Sú öra verðbólguþróun, sem rfkt hefur hér á landi að undan- förnu, ásamt ýmsum félagsleg- um og efnahagslegum aðgerð- um, sem gripið hefur verið til á árinu, koma f rfkum mæli fram f þessu frumvarpi og eru reynd- ar höfuðorsök þeirrar hækkun- ar, sem fram kemur f saman- burði við fjárlagatölur yfir- standandi árs. Við slfkar að- stæður er þess vart að vænta að gefist hafi ráðrúm til að marka djúp spor f f jármálastefnu rfkisins á þeim skamma tfma, sem verið hefur til að móta f járlagaf rumvarpið. Fjárlagafrumvarpið ber það með sér engu að sfður að komið er f veg fyrir frekari útþenslu rfkisbúskaparins og dregið er úr rfkisframkvæmdum. Þetta er skref til að freista þess að hafa hemil á verðbólgunni, draga úr greiðsluhallanum við útlönd og tryggja sem best lffs- kjör almennings.** Alþingi fær nú fjárlagafrumvarpið til meðferðar, en venja er að samþykkja fjárlög áður en þingmenn fara f jólaleyfi. Minnka að magni tiluml0till5% Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir 10 til 15% samdrætti verklegra framkvæmda á veg- um ríkisins á næsta ári. Gert er ráð fyrir að verja alls 7,6 milljörðum króna til verklegra framkvæmda á næsta ári, en í fjárlögum fyrir árið 1974 var gert ráð fyrir 5,7 milljörðum. Hækkunin nemur því 1,9 millj- örðum kr. eða 33,8%. En þegar miðað er við 50 til 55% hækkun verðlags, er hér raunverulega um 10 til 15% samdrátt að ræða. Ef verklegar fram- kvæmdir hefðu átt að fylgja verðlaginu eftir, hefðu fjár- framlög til þeirra þurft að vera 1,2 milljörðum króna hærri en ráðgert er í frumvarpinu. I athugasemdum við frum- varpið segir um þetta atriði: „Þrátt fyrir þessa lækkun hef- ur þess verið gætt, að hún komi sem minnst niður á fram- kvæmdum, sem telja verður mjög brýnar frá þjóðhagslegu sjónarmiði. Eins og kunnugt er, hefur rikt mikið þensluástand í framkvæmdum i landinu, sem m.a. hefur bitnað á útflutnings- atvinnuvegum þjóðarinnar, og er hér gerð tilraun til að hamla gegn því ástandi. Sá samdráttur ríkisframkvæmda, sem hér um ræðir, ætti þó engan veginn að leiða til ónógrar atvinnu, enda er það eitt af meginmarkmiðun- um að tryggja næga atvinnu." Á meðfylgjandi töflu má sjá þær breytingar, sem verða á framkvæmdaframlögum miðað við fjárlög þessa árs: Verklegar framkvœmdir <*K Vei'klegar framkvæmdir ............. 1. Hreinar rikisframkva*nidir ...... I»ar af: VegagerÖ, nema svsluvegir og vegir í kauptúnum...... Haforkuframkvæimiir ...... Skólabyggingnr ............ Hafnagerð ................ Flugmál .................. Hikisspitalar ............ Landgræðsla og skógrækt . Hangverksmiðja. Heykhólum Annað .................... - I'ramkv.emdir kostaðar af fleiri aðilum l»ar al : Skólabvggingar ........ Hafnagerð ................ Sjiikrabús og keknabústaðir Landbiinaðannúl .......... Annað .................... Kjárlog 1974 5 703,7 3 716,3 1 I 028,3 320.6 243,0 172,0 143.2 85.3 337.4 t»05.4 622.7 205,1 248.7 125.5 Frumvarp 1975 7 634,3 5 314,3 2 004,S 1 495,0 333,0 350,0 184,0 178,0 276,9 100,0 392,6 I 987.4 2 320.0 838,0 542,7 431.2 305.3 202,\ Þessi tafla sýnir fjárveitingar til rfkisframkvæmda samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1975 og samanburð við fjárlög 1974 f millj. kr. Ríkisframkvœmdir: Matthfas A. Mathiesen fjármálaráðherra og Halldór E. Sigurðsson fyrrv. f jármálaráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.