Morgunblaðið - 26.11.1974, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 26.11.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1974 7 Dœmdur til dvalar á geðveikrahœU Victor Fainberg, sem nú er 42ja ára, var til- tölulega litt þekktur fé- lagi sovézku mannrétt- indahreyíingarinnar þegar hann var handtek- inn vegna þátttöku í mót- mælum á Rauða torginu gegn innrás Sovétríkj- anna í Tékkóslóvakíu ár- ið 1968. Hann neitaði að verða við kröfum full- trúa KGB, sem yfir- heyrðu hann, um að skýra frá starfsemi hreyfingarinnar, og var því sendur til vistar á geðveikrahæli, þótt þau örlög séu aðallega ætluð hörðustu gagnrýnendum Sovétríkjanna. Ásamt samfanga sín- um, Vladimir Borisov, ákvað hann að halda áfram andófinu á tvenn- an hátt. I fyrsta lagi ætluðu þeir að senda á laun frá sér upplýsingar um barsmíðar, innspraut- anir á lyfjum til að minnka viljaþrek fang- anna, og þann stöðuga ótta, sem ríkti meðal vist- manna. Þessum upp- lýsingum var svo komið áfram til Vesturlanda sem liður í baráttunni gegn misnotkun á geð- veikrahælum í Sovétríkj- unum. I öðru lagi ætluðu þeir persónulega að virða að vettugi þá grundvallar- kröfu kerfisins að enginn fangi skyldi fá frelsi fyrr en hann hefói afneitað stjórnmála- eða trúar- skoðunum sínum, viður- kennt að geðbilun hefði stjórnað gerðum hans, og þakkað læknunum fyrir að hafa veitt sér bata. Barátta þeirra — eins og barátta Pavels Litvinovs — miðaði að því að láta sannleikann kveða niður lygina og kúgunina, sem kerfið lifði á. í júní 1971 tókst hon- um að senda frá sér frá- sögn, sem enn er talin einhver bezta lýsing á þessum „einangraða ó- heimi með sín ó-lög“, sem geðveikrahælin geyma. Varó þessi frásögn helzta undirstaða mótmælaað- gerðanna á Vesturlönd- um. í marz 1971 hófu þeir félagar hungurverkfall til að undirstrika kröfur um bætur á aðbúð fang- anna. Þeir kröfðust þess að hætt yrði að gefa föng- unum sprautur gegn vilja þeirra, að þeir fengju lögfræðilega að- stoð og skoðun hjá geð- læknum er þeir sjálfir út- nefndu en ekki KGB, að mál þeirra yrðu tekin fyrir hjá dómstólum, og að aðbúnaður þeirra yrði bættur. Eftir LAURENCE MARKS Hungurverkfallið stóð í 82 daga. Sovézk yfirvöld vissu að misnotkunin á geðveikrahælunum yrði tekin til umræðu á al- þjóðaþingi geðlækna í Mexíkóborg þá um haust- ið. Var því gengið að kröfunum. „Yfirvöldin voru að undirbúa það að láta fjölda fanga lausa úr geð- veikrahælunum," segir Fainberg. „Grein var birt í Izvestia til að undirbúa almenning undir þessa stefnubreytingu. En að- gerðum var frestað með- an beðið var eftir niður- stöðum alþjóðaþingsins.“ Sovézku fulltrúarnir í Mexíkóborg gátu komið i veg fyrir að þingið tæki fyrir ítarlegar skýrslur, sem tekizt hafði að smygla út úr Sovétríkj- unum. „Vestrænu fulltrúarn- ir sviku okkur í tryggð- um er þeir létu undir höfuð leggjast að krefj- THE OBSERVER ast þess að skýrslurnar yrðu teknar til umræðu. Eftir það gat KGB gripið til hefndarráðstafana. Öll loforðin voru svikin.“ 1 desember 1971 hófu þeir Fainberg og Borisov annað hungurverkfall sitt. „1 þetta skiptið var meiri hörku beitt við að neyða okkur til að taka næringu," segir Fain- berg. „Svo var farið að sprauta í mig eiturlyfj- um. Ég hótaði að fremja sjálfsmorð. Það var eina vopnið, sem ég átti eftir.“ Þegar hér var komið sögu var nafn Fainbergs orðið vel þekkt á Vestur- löndum vegna baráttu hans. KGB þorði ekki að taka afleiðingunum af hugsanlegu sjálfsmorði hans — og þeim alþjóða- mótmælum, sem áreiðan- lega fylgdu í kjölfarið. Yfirvöldin drógu í land, og fangarnir tveir voru sendir til læknis- skoðunar á ný hjá Serbsky-stofnuninni ill- ræmdu í Moskvu. Þeir hættu þá tveggja mánaða hungurverkfalli sínu. Þeim var tilkynnt að þeir yrðu nú sendir til dvalar i venjulegu geð- veikrahæli um hríð, en það er venjulega fyrsta sporið í átt til frelsis. Þetta leiddi til þess að herferðinni til að fá þá leysta úr haldi var hætt. Þegar KGB fann að farið var að draga úr þrýst- ingnum, voru þeir aftur sendir á fanga-geðveikra- hælið. Nú var svo komið aö fanga-geðveikrahælið í Leningrad var orðið al- ræmt á Vesturlöndum vegna upplýsinga Fain- bergs. Yfirvöldin ákváðu því að dreifa föngunum til annarra hæla, allt að 1.500 kílómetrum frá heimilum þeirra og fjöl- skyldum, í því skyni að torvelda þeim að koma frá sér fréttum og upp- lýsingum. Fainberg komst að því að hann yrði einn eftir í Leningrad og að vilja- þrek hans yrði brotið nið- ur. Honum tókst að senda frá sér áskorun til Kurts Waldheims fram- kvæmdastjóra Sam- einuðu þjóðanna, og hann hóf þriðja hungur- verkfall sitt til að mót- mæla dreifingu fang- anna. Yfirvöldin voru nú tek- in að óttast að langvar- andi þjáningar þessa óstýriláta fanga þeirra gætu leitt til dauða hans. Hætt var við fangadreif- inguna. I desember 1972 var hann svo fluttur í venjulegt geðveikrahæli. Enn var eftir að fá hann til að játa syndir sínar og viðurkenna að hann hefði verið geðveik- ur. Margir áhrifamenn meðal andófsmanna höfðu litið á þessi atriði sem kjánaleg formsatr- iði. En Fainberg lét sig ekki og neitaði að taka þátt í þessum skrípaleik. Aðrir læknar voru kvaddir til, og reyndu þeir að fá hann til að skilja vandann og skipta um skoóun. „Til að sann- færa rannsóknarnefnd- ina,“ sögðu þeir honum, „verðum við að gefa ein- hverja ástæðu fyrir bata þínum. Nefndu eitthvað meðal, og við gefum þér lyfseðil.“ „Það,“ sagði Fainberg, „er ykkar mál.“ „Þér getur ekki verið á móti skapi að taka nokkr- ar svefntöflur," spurðu læknarnir. „Ef það er eitthvað, sem ég hef lært undan- farin fjögur ár,“ svaraði Fainberg, „þá er það að meta gildi svefnsins." Hann var kallaður fyr- ir hjá rannsóknarnefnd- inni. „Þeir sögðu vió mig: „Jæja, við ætlum ekki aó krefjast þess að þú af- neitir skoðunum þínum, en við verðum að spyrja Framhald á bls. 11. Teborð úr reyr með áfastri blaðagrind. KÖRFUGERÐIN, INGÓLFSSTRÆTI 16. Brotamálmar Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN27 Sími 25891. Heimilisstóllinn. Við gerum ekki upp á milli kynj- anna. Nafnið á nýja hvíldarstóln- um er heimilisstóllinn. Greiðsluskilmálar. Nýja bólsturgerðin Sími 1 6541. Bólstrun Tek bólstruð húsgöng í klæðn- ingu. Fast verðtilboð, ef óskað er. Bólstv. Bjarna Guðmundssonar, Laugamesvegi 52, sími 32023. Milliveggjaplötur vorar eru nú aftur fyrirliggjandi. Athugið að nákvæmni í stærð og þykkt sparar pússningu. Steypustöðin h.f., sími 33603. Bókhaldsþjónusta Viðskitastofan, Austurstræti 10, 5. h. Sími 13995. Húseigendur — Verktakar Smíðum handrið og stiga, og framkvæmum allskonar járnsmíði, svo og rennismlði. Dreki h.f., sími 86040. Er vaskurinn stiflaður? Tek stlflur úr handlaugum, baðkör- um, eldhúsvöskum og niðurföll- um. Baldur Kristiansen Plpulagningameistari. Simi 19131. Milliveggjahellur Steypuiðjan s.f., Selfossi, slmi 99- 1399. 2Wor:0Mní)lnt>i& mnRGFmonR mÖGULEIKR VÐflR Spariúlpa vetrarins 65% Polyester, 35% bómull, vatteruð og vel gerð flík með loðfóðraðri hettu. Litir: Gulur með bláu loðfóðri í hettu og bláum rennilásum, rauður með bláu loðfóðri í hettu og bláum rennilásum, dökkblár með rauðu loðfóðri í hettu og rauðum rennilásum. Stærðir: (líkamshæð í cm.) 86 — 92 — 98 — 104 — 1 10. Verð kr. 3.250.00. I SKEIFUNNI151iSIMl 86566

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.