Morgunblaðið - 26.11.1974, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26, NÖVEMBER 1974
17
Skipstjórinn á Kópi SH
viðurkennir brot sitt
Mál Kóps og Jökultinds til saksóknara
MAL skipsljóranna á togbátunum
Jökultindi SU 200 og Kópi SH
132, sem teknir voru fyrir land-
helgisbrot f sfðustu viku, hafa nú
verið send saksóknara ríkisins til
ákvörðunar. Skipstjórinn á Jökul-
tindi, sem staðinn var að veiðum
útaf Haganesvfk, neitar stöðugt
sakargiftum, en skipstjórinn á
Kópi, sem staðinn var að veiðum
á Breiðafirði hefur viðurkennt
brot sitt. Hann þverneitaði f
fystu, og laug upp sögu fyrir
réttinum, en játaði svo að lokum.
Þorkell Gíslason sýsiufulltrúi í
Stykkishólmi tjáði Mbl. I gær, að
réttarhöldum væri lokið í bili i
máli Kóps, og málið farið til sak-
sóknara. Við yfirheyrslur neituðu
skipverjar í fyrstu að hafa verið á
togveiðum i Breiðafirðinum, þeir
hefðu aðeins verið á lúðuveiðum.
Seinna játuðu skipverjar brotið,
en skipstjórinn hált fast við fram-
burð sinn, en játaði svo að lokum.
Veiðarfærum og afla höfðu skip-
verjar hent fyrir borð á leið í
land.
Elías I Elíasson bæjarfógeti á
Siglufirði sagði, að áhöfn land-
helgisvélarinnar Sýr, sem stóð
Jökultind að veiðum og kærði
hann, hefði komið fyrir rétt í gær.
Skipverjar á Jökultindi halda fast
við framburð sinn. Verður málið
nú sent til sáksóknara til frekari
afgreiðslu, en sú er venjan í svona
tilfellum, að sögn Eliasar.
Þing Alþýðubandalagsins:
Kastljós liður í átökum
MORGUNBLAÐIÐ hefur
fregnað, að nokkrar deilur hafi
risið meðal aðstandenda Kast-
Ijóss s.l. föstudag, en tilefnið var
meðferð Þórunnar Klemenz-
dóttur á efni því, sem hún fjallaði
um i þættinum, þ.e. hugsanlegri
mengun frá fyrirhugaðri málm-
blendiverksmiðju á Grundar-
tanga i Hvalfirði.
Deilur þessar munu hafa orðið
vegna þess, að umsjónarmenn
Kastljóss töldu sig ekki getað
unað því, að þátturinn væri mis-
notaður til að hafa áhrif á innan-
flokksdeilur i Alþýðubandalag-
inu. Þættinum var sjónvarpað
meðan flokksþing Alþýðubanda-
iagsins stóð sem hæst, en eins og
fram hefur komið í fréttum, áttu
sér þar stað mikil átök milli
Magnúsar Kjartanssonar og
stuðningsmanna hans annars
vegar, og andstæðinga hans i
Union Carbide-málinu hins vegar.
Deilum þessum lyktaði sem kunn-
MBL. hafði i gær samband við
gjörgæzludeild Landakots-
spítalans til að leita upplýsinga
um líðan piltsins frá Akranesi,
sem hefur verið meðvitundarlaus
síðan hann lenti í átökum við afa
sinn í síðustu viku. Fékk blaðið
þær upplýsingar, að engin breyt-
ing hefði orðið á liðan piltsins, og
væri hann enn í lifshættu.
ugt er með þvi, að Magnús fékk
ekki stuðning til formennsku i
Alþýðubandalaginu, og varð að
láta af stefnu sinni i Union
Carbide-málinu.
Á þinginu mun hafa verið efnt
til undirskriftasöfnunar meðal
stuðningsmanna Magnúsar Kjart-
anssonar þar sem skorað var á
hann að gefa kost á sér til for-
mennskunnar, en meðal þingfull-
trúa gekk sú undirskriftasöfnun
undir nafninu „karbitið land“.
Gullberg við bryggju i Mandal.
Fyrsta nótaveiðiskipið
skírt í Noregi
FYRSTA nótaveiðiskipið af
f jórum, sem byggð eru í Noregi
fyrir lsiendinga, var skýrt þann
7. nóvember s.l. Skipið hlaut
nafnið Guilberg VE 292 og er I
eigu Ufsabegs h.f. I Vestmanna-
eyjum. Skipinu gaf nafn frú
Anna Þorsteinsdóttir, eigin-
kona eins eigandans Jóns Guð-
leifs Olafssonar.
Gullberg er byggt bæði fyrir
troll- og netaveiðar. Það er 350
brúttólestir, 43.35 metrar að
lengd, 8.20 metrar á breidd. I
skipinu eru þrjár lestar og
hægt að hafa hitastig þeirra allt
að 0°C. I skipinu eru flest full-
komnustu fiskileitartæki, sem
völ er á, þrjú 16 tonna spil eru í
skipinu, Simrad-havsonar fiski-
leitartæki og fl. Þá er 1250 hest-
afla aðalvél i skipinu, tvær 150
ha. hliðarskrúfur og 2 130 hest-
afla hjálparvélar. Ibúðir skip-
verja eru 4 eins manns her-
bergi og 5 tveggja manna her-
bergi.
Gullberg verður afhent i
Mandal 28. desember n.k., en
þá fer skipið til Egersunds og
Bodö, þar sem gengið verður
frá fiskveiðitækjum. Heim
kemur skipið í byrjun næsta
árs, tilbúið á loðnuveiðar. Skip-
stjóri á Gullbegi verður Guðjón
Pálsson, og 1. vélstjóri Ölafur
Sigmundsson.
Landsfundur Alþýðubandalagsins:
Varaforseti ASI féll
í miðstjómarkjöri
LANDSFUNDI Alþýðubandalags-
ins lauk á sunnudagskvöld. A
fundinum urðu talsverð átök
milli landsbyggðarfulltrúa og
Reykvikinga. Nokkrir þekktir
forystumenn verkalýðsfélaga I
Reykjavík féllu við miðstjórnar-
kjör. 1 þeirra hópi var Snorri
Jónsson, varaforseti og fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands-
ins. Þingið átti að halda f heyr-
anda hljóði og hafði Morgunblað-
ið fengið leyfi til þess að láta
blaðamann fylgjast með umræð-
um. Þegar til kastanna kom var
þingið hins vegar að mestu
haldið fyrir luktum dyrum.
Blaðamaður fékk að fylgjast
með setningarfundinum á
fimmtudagskvöld, þar sem leið-
togar flokksins fluttu yfirlitsræð-
ur um stjórnmálaviðhorfið. A
föstudag störfuðu umræóuhópar,
sem voru lokaðir. Umræður á
Nýr íslenzkur gjald-
maelir leigubifreiða
Fjöldi fyrirspurna erlendis frá
EINS OG Morgunblaðið hefur
áður skýrt frá, þá hefur fyrir-
tækið Iðntækni unnið um hríð
að gerð nýrra rafeindagjald-
mæia fyrir leigubifreiðar, og
nú hefur það afhent fyrstu
mælana.
Þessir mælar eru mjög full-
komnir og eru algjörlega is-
lenzk uppfinning. 1 mælunum
er minni (svipað og I nýjustu
gerð tölva), sem geymir það
gjaldskrárkerfi, sem I notkun
er hverju sin-ni. Þegar gjald-
skrárbreyting verður er hún
fyrst gerð I þar til gerðu tæki,
sem kallað er gjaldskrárkenn-
ari. Þetta tæki er slðan notað til
að skipta um gjaldskrá í öllum
mælunum og tekur það aðeins
um 30—60 sekúndur að kenna
hverjum mæli nýja gjaldskrá.
Þróun á þessum gjaldmæli
hefur staðið yfir í 18 mánuói.
Hann var fyrst settur í bil hjá
Iðntækni í desember 1973.
Samtimis fór fram prófun á
þeim mæli og þróun og undir-
búningur á framleiðslu fyrstu
mælanna til ísetningar í leigu-
bíla.
Núna verða settir 20 mælar í
leigubíla og verða þeir reyndir
í 4—6 mánuði. A þeim tíma
verður fylgzt með þeim og
breytingar gerðar ef þurfa
þykir. Að þessum tíma liðnum
getur f jöldaframleiðsla hafizt.
Gunnlaugur Jósefsson hjá
Iðntækni sagði, er við ræddum
vió hann, að fyrirtækið hefði
þegar fengið fyrirspurnir frá
300 íslenzkum leigubílstjórum,
og reiknar fyrirtækið með að
komast inn á íslenzka mark-
aðinn fljótlega. Þá hafa borizt
margar fyrirspurnir erlendis
frá, meðal annars frá fyrir-
tækjum á Norðurlöndum,
Þýzkalandi, Bretlandi og
Bandaríkjunum, sem öll hafa
óskað eftir þvi að taka að sér
umboð fyrir þessa mæla. Mælir-
inn er algjörlega íslenzk fram-
leiðsla, en upphafsmaður hans
er Gunnlaugur Jósefsson, síðan
tók Finnur Torfi Guðmundsson
vió og fleiri og hafa þeir sifellt
fullkomnað mælinn. Kassann
utan um mælinn, sem er mjög
smekklegur, teiknaði Steinn
Sigurðsson.
Kristján Sveinsson, leigubíl-
stjóri hjá B.S.R., er kominn
með gjaldmæli frá Iðntækni i
bilinn sinn. Sagði hann, að
þessi mælir tæki öllum mælum
fram, sem hann hefði kynnzt og
væri hann að sínu mati hreint
frábær. T.d. færi enginn timi
né kostnaður í breytingar á
gjaldskrá, einnig væri hann
þægilegur til aflestrar og ekki
væri hægt að nota vitlausan
taxta, hvort sem það væri vilj-
andi eða óviljandi gert.
Til framleiðslu á mælinum og
fleiri tækjum hefur Iðntækni
keypt 5 samsetningarvélar og
hver þeirra hefur afkastagetu á
við 18 manns. Einnig hafa verið
keypt mjög fullkomin rann-
sókna- og gæðaeftirlitstæki svo
sem tölvukerfi, er getur prófað
allar einingar mælisins sam-
tímis og gefið siðan skýrslu um
útkomuna. Kæli- og hitapróf-
unartæki er einnig notað til að
reyna mælinn í vinnslu frá + 70
til + 200°C. Til þróunarinnar
hefur verió varið fyrir utan
ofangreind tækjakaup 4,3 millj.
kr. og notaðar hafa verið um
5000 vinnustundir.
Kristján Sveinsson leigubílstjóri
Mbl.: Öl.K.M.
sýnir nýja gjaldmælinn. Ljósm.
laugardag fóru einnig fram fyrir
luktum dyrum svo og mið-
stjórnarkjör. Á sunnudag fékk
blaðamaður að koma inn á fund,
en er hann hafði setið þar nokkra
hríð var samþykkt að vísa honum
á dyr og halda fund fyrir luktum
dyrum.
Við kjör formanns, varafor-
manns og ritara komu aðeins til-
lögur um einn mann í hvert emb-
ætti. Eigi að síður fór fram skrif-
leg kosning. Öll atkvæði, sem
féllu á aðra en þá, sem stungið
hafði verið upp á, voru hins vegar
talin ógild. Samkvæmt því var
Ragnar Arnalds endurkjörinn
formaður, Adda Bára Sigfúsdóttir
endurkjörinn varaformaður og
Jón Snorri Þorleifsson endurkjör-
inn ritari.
Talsvert miklar deilur urðu um
afstöðu Alþýðubandalagsins til
málmblendiverksmiðjunnar við
Grundartanga, sem Magnús
Kjartansson átti frumkvæði að,
en hefur nú snúist gegn vegna
þeirrar andstöðu, sem stefna hans
hefur sætt innan Alþýðubanda-
lagsins. Tryggvi Sigurbjarnarson
og Ingi R. Helgason munu hins
vegar hafa talið rétt að fylgja
fram fyrri stefnu Magnúsar
Kjartanssonar í máli þessu. Mikl-
ar breytingar voru gerðar á þeim
drögum að hugmyndafræðilegri
stefnuskrá, sem lögð var fyrir
landsfundinn.
1 miðstjórn Alþýðubandalags-
ins voru kjörnir: Álfheiður Inga-
dóttir, Benedikt Davíðsson,
Bjarnfriður Leósdóttir, Bjarni
Þórarinsson, Eðvarð Sigurósson,
Erlingur Viggósson, Garðar
Sigurðsson, Gils Guðmundsson,
Guðrún Hallgrímsdóttir, Guðrún
Haraldsdóttir, Haraldur Stein-
þórsson, Helgi Guðmundsson,
Hjörleifur Guttormsson, Júlíus
Halldórsson, Karl Sigurbergsson,
Kjartan Ölafsson, Lúðvík Jóseps-
son, Magnús Kjartansson, Sigurð-
ur Björgvinsson, Sigurður
Blöndal, Sigurður Magnússon,
Sigurjón Pétursson, Skúli
Alexandersson, Soffía Guðmunds-
dóttir, Svavar Gestsson, Vilborg
Harðardóttir, Þór Vigfússon.
Magnús Kjartansson mun hafa
fengið flest atkvæði.