Morgunblaðið - 26.11.1974, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1974
fttorgwnlþMiib
nucLvsmcnR
^^22480
\/insælasta ameriska sælgætid
Aðeins 5 mínútur milli
stöðvunar og handtöku
Spjallað við skipherra og 1. stýrimann á Ægi og skipstjóra Arcturus
VESTMANNAEYJUM,
25. nóvember —
frá Árna Johnsen —
VIÐ hittum Guðmund Kjærne-
sted skipherra um borð í Ægi f
Vestmannaeyjahöfn síðdegis í
dag. Hann var þá að ljúka við
skýrslugerð um töku þýzka togar-
ans. Skipverjum á Ægi bárust f
gær fjölmörg heillaskeyti, sem
héngu á töflu í skipinu. Þar á
meðal var heillaskeyti frá Ölafi
Jóhannessyni dómsmáiaráðherra.
Guðmundur sagði, að aðdragandi
málsins væri sá, að aðfararnótt
sunnudagsins um klukkan 01.40
hefði togarinn Hvalbakur kallað f
varðskipið og tilkynnt að Þjóð-
verjar væru að veiðum á suð-
vesturhorni Stokksnesgrunns.
Tæplega 40 minútum síðar kom
Ægir að þýzka togaranum Arctur-
Guðmundur Kjærnested kannar
skipsskjöl þýzka togarans Arctur-
us.
us N BX 739, þar sem hann var
nýbúinn að hífa og komlnn á
fulla ferð vestur með landi.
Kvaðst Guðmundur þá hafa
fylgt honum um 30 mílur vestur á
Öræfagrunn, en snúið þá aftur
við til að leita að öðrum þýzkum
togurum. Ægir kom síðan aftur að
Arcturus um hádegisbil á sunnu-
dag, en þá var hann á Öræfa-
grunni, hífði þegar upp og hélt
aftur í vestur. Um klukkan 15.15
tilkynnti SVR okkur, sagði Guð-
mundur, að þeir væru yfir Arctur-
us, vestarlega á Öræfagrunni, þar
sem hann væri farinn að toga
aftur á sömu slóðum og einnig
voru þar skipin Gullver og Hólma-
tindur. Við héldum því að
togaranum í þriðja sinn á þessum
sólarhring og komum að honum
klukkan 16.28. Var þá búið að
ákveða að taka skipið.
— Við kölluðum til skipsins, en
það svaraði ekki, en þá var skotið
fjórum púðurskotum af 50 metra
færi og klukkan 16.34 einu kúlu-
skoti. Klukkan 16.39 stöðvaðist
' togarinn á leið sinni vestur, en
Ægir var þá á 18 milna ferð á
eftir skipinu. Liðu aðeins 5 mín-
útur, þar til togarinn var stöðvað-
ur og varðskipsmenn voru komnir
um borð. Fóru þá 6 menn um borð
í togarann undir forystu Þorvalds
Axelssonar fyrsta stýrimanns.
Tóku þeir skipið og tilkynntu
skipstjóranum, að farið yrði með
það til hafnar. Sennilega hafa
togaramenn látið eftirlitsskipið
Minden vita, að verið var að taka
þá. Var síðan haldið til Eyja. Guð-
mundur kvaðst þó hafa komið við
á strandstað Andvara skammt frá
Ingólfshöfða um klukkan 20 um
kvöldið. Ljósin slokknuðu um
borð i Andvara, þegar við vorum
þarna fyrir utan, en allir skip-
verjar voru þá nýbúnir að yfir-
gefa bátinn. — Ég hafði lagt skip-
inu þarna hálfa mílu frá Andvara
og við vorum búnir að gera
dráttartrossu klára. Gúmmíbátur
frá okkur komst í 100 metra fjar-
iægð frá Andvara, en ekki var
hægt að skjóta línu, vegna þess að
mennirnir voru farnir frá borði.
Ef menn hefðu verið um borð,
hefðum við getað náð skipinu út.
Landhelgisgæzluflugvélin fylgd-
ist með okkur fram eftir nóttu, en
komið var til Eyja klukkan 06 á
mánudagsmorgun.
Aðspurður sagði Guðmundur,
að svolitil spenna virtist hafa
verið um borð i þýzka togaranum,
þegar varðskipsmenn hefðu verið
búnir að taka hann, en skipstjór-
inn lokaði sig inni í íbúð sinni og
horfði á kappaksturskvikmynd.
0 6 varðskipsmenn —
25 togarakarlar.
Þorvaldur Axelsson, fyrsti
stýrimaður, er þaulreyndur varð-
skipsmaður og hefur farið í fjöl-
marga togara við töku þeirra.
Hann sagði, að urgur hefði verið í
skipstjóranum fyrst eftir að hann
hefði tilkynnt honutn, að skipið
væri tekið fast, vegna þess að
hann hafi gerzt brotlegur við ís-
lenzk lög, sem skipstjórinn mót-
mælti. Skipstjórinn vildi þá fá að
vita til hvaða hafnar yrði siglt, en
Þorvaldur sagði honum, að hann
fengi nógu fljótt að vita það og
stefna skipsins væri honum óvið-
komandi á meðan varðskipsmenn
væru um borð. Vélstjórar togar-
ans höfðu orð á því, að þeir
myndu ekki keyra vélar skipsins,
en féllu frá þeim hótunum. Hins
vegar var vélstjóri i hópi varð-
skipsmanna, ef til hefði þurft að
taka. Varðskipsmenn lögðu undir
sig brúna og stjórnuðu skipinu
þaðan. Framhald á bls. 43
Skipverjarnir á Ægi, sem fóru yfir í Arcturus. Frá vinstri: Halldór Gunnlaugsson, 2. stýrimaður, Óskar
Indriðason, 2. vélstjóri, Þorvaldur Axelsson, 1. stýrimaður, Óiafur Ragnarsson, bátsmaður, Elfas
Sveinbjörnsson, háseti, og Sigurjón Bergmann, háseti. Stjórnendur léttabátsins, sem flutti þá félaga yfir
f togarann, voru Hörður Brandsson, 4. véistjóri, og Guðjón Karlsson, háseti. — Ljósm.: Sigurgeir.
Fyrsti togarinn tekinn
innan 50 mílnanna
VARÐSKIPIÐ Ægir tók á
sunnudag þýzka skuttogar-
ann Arcturus BX 739 að
meintum ólöglegum veið-
um um 15 sjómílur fyrir
innan fiskveiðitakmörkin á
Mýragrunni. Varðskipið
fór með togarann til Vest-
mannaeyja, þar sem réttar-
höld munu hef jast í dag. Er
Arcturus fyrsti erlendi tog-
arinn, sem tekinn er frá
þvi er landhelgin var færð
út í september 1972.
Sendiherra Sambandslýð-
veldisins Þýzkalands Rai-
mund Hergt, gekk í gær
á fund forsætisráðherra,
Geirs Hallgrímssonar, og
flutti honum harðorð mót-
mæli ríkisstjórnar sinnar
vegna töku togarans, en
ráðherrann áréttaði
sjónarmið íslendinga og
kvað málið nú í höndum
dómstóla.
Geir Hallgrímsson, for-
sætisráðherra sagði í gær
V.S.ÆGIR tekur
B.V. ARCTURUS
BX.739
að með töku togarans væri
um löggæzlu að ræða, en
síðan væri það íslenzkra
dómstóla að kveða upp úr
um meint brot. Um áfram-
haldandi samningaviðræð-
ur við Vestur-Þjóðverja
meó tilliti til atburðanna
sagði ráðherrann: ,,Á
þessu stigi málsins er ekki
hægt að kveða upp úr um
það. Við munum hér eftir
sem hingað til kanna hvort
skilyrði eru fyrir samning-
um, sem fullnægja hags-
munum okkar lslendinga“.
Morgunblaðið ræddi i gær við
Ölaf Jóhannesson, dómsmálaráð-
herra, en ha.nn hafði í viðtali við
blaðið lýst því fyrir skömmu, að
aðgerðir landhelgisgæzlunnar
yrðu hertar gagnvart Þjóðverjun-
um. Ölafur endurtók ummæli sín
og sagði, að aðgerðir yrðu hertar
gegn þeim, eftir því sem geta
leyfði, vegna síendurtekinna lög-
brota þeirra. Ólafur sagði, að i
sjálfu sér hefði togarataka ekki
verið beint takmark, heldur það
að koma i veg fyrir veiðar togar-
anna innan 50 mílna markanna.
„Ég er og hefi verið þeirrar skoð-
unar,“ sagði ráðherrann, „að
æskilegast væri fyrir báða aðila
að leysa þetta með bráðabirgða-
samkomulagi án þess að verk-
smiðju- og frystitogurum yrði
veitt undanþága. Sú afstaða mín
er óbreytt, en ég skal ekki segja
um, hver áhrif þetta hefur á Þjóð-
verja. Þó gæti verið, að þeim
skyldist hver alvara væri á ferð-
um og kannski vekur þetta at-
hygli stjórnmálamannanna þar í
landi á þessu vandamáli, sem þeir
ef til vill ekki af eðlilegum ástæð-
um hafa beint augum sínum svo
mjög að.“
Varðskipsmenn höfðu tekið tog-
arann í fyrrakvöld um klukkan
17, en ekkert fréttist af atburðum
frá Landhelgisgæzlunni fyrr en í
gærmorgun og þá höfðu þegar
löngu áður borizt fréttir hingað til
lands frá Þýzkalandi af atburðum
og í þýzkum fjölmiðlum höfðu
sjónarmið útgerðar togarans ver-
ið tíunduð. Ölafur Jóhannesson
var spurður að því, hvort hann
teldi ekki, að íslendingar hefðu
átt að gefa út fréttir af atburðum
mun fyrr, til þess að sjónarmið
Islendinga hefðu getað fylgt þess-
um fréttum. Hann svaraði: „Þetta
byggist á því, að ég tel ekki hægt
að gefa upplýsingar um handtöku
fyrirfram eða meðan á henni
stendur og því veldur löggæzlu-
sjónarmið en ekki nein löngum til
að sniðganga fréttamenn. Hins
vegar var ekki hægt að koma í veg
fyrir, að togaramennirnir sendu
út fréttir sínar um talstöð áður en
henni var lokað. Einhverjir hafa
náð í þær sendingar." Hins vegar
sagði Olafur, að það hefði verið
matsatriði, hvort ekki hefði átt að
gefa fréttatilkynningu út fyrr eða
um klukkan 06 í gærmorgun, er
togarinn var kominn í Vest-
Framhald á bls. 43