Morgunblaðið - 26.11.1974, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.11.1974, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. NOVEMBER 1974 Möguleiki á Pitmans prófum hjá Mími Samstarf um verndun arna Hinn 11 nóvember s.l. veitti Pitman Examinations Institute 1 Englandi Málaskólanum Mími formlega réttindi tii þess að halda Pitmans-próf á Islandi. Pit- mans-próf Mímis gilda þvf hvar- vetna þar sem Pitmans-prófa er krafizt. Pitmans-próf eru einkum haldin þar sem starfsþjálfunar er krafizt í skrifstofustörfum. Sú deild Mímis, sem heldur þessi próf, nefnist Einkaritarskólinn. Fullskipað er í Einkaritara- skólann til fyrsta prófs, sem hald- ið verður laugardaginn 1. febrúar Bráðabirgðalög- unum mótmælt Samþykkt var á almennum fundi í Vélstjórafélagi Suður- nesja, sem haldinn var nýlega, að mótmæla harðlega þeirri árás á kjör sjómanna, sem felst í bráða- birgðalögunum frá 20. sept. s.l. þar sem kjör sjómanna eru veru- lega skert. Einnig mótmælir fund- 1975. Nemendur Einkaritar- skólans eru fjörutíu talsins. Fyrsta prófið er enskupróf, svo- nefnt „Intermediate l.“ Annað próf Einkaritarskólans verður haldið laugardaginn 5. apríl n.k. (enska, „Intermediate 2“) og þriðja prófið verður haldið laugardaginn 31. maí n.k. (verzlunarenska). Prófstjóri er Einar Pálsson B.A. Eftirlitsmenn eru af hálfu Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur Magnús L. Sveinsson skrifstofustjóri, og af hálfu Verzlunarráðs Islands Arni Árnason rekstrarhagfræðingur. urinn af fyllsta þunga þeirri ákvörðun að fiskverð til sjómanna sé bundið með lögum. Er þessi ákvörðun á nokkurar tíma- setningar, sem bendir til þess, að þarna geti verið um varanlegar aðgerðir að ræða. Fundurinn hvetur alla sjómenn til að standa saman sem einn mað- ur um þá kröfu, að fallið verði frá slíkri skattheimtu á stéttina eins og fólst í aðgerðunum 1968 og tekið er nú upp að nýju. Sheila Armstrong Ashkenazy og Armstrong á sinfóníukvöldi FIMMTU reglulegu tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar á þessum vetri verða n.k. fimmtu- dag. Stjórnandi að þessu sinni verður Vladimir Ashkenazy og einsöngvari verður hin þekkta enska söngkona Sheila Armstrong. Hún mun syngja tvær konsertaríur eftir Mozart og Bréf- aríuna úr Eugene Onegin eftir Tsjækofskí. Sinfóníuhljómsveitin mun einnig flytja 2. sinfóníu Mozarts í G-moll og 4. sinfóníu Sibeliusar. Plastflöskur 30 lítra og 60 lítra. Hentugar tll heimabrúks. FUGLAVERNDUNARFÉLAG Is- lands, sem beitt hefur sér fyrir verndun arnarstofnsins í landinu um alllangt árabil, hefur nýlega fengið bréf frá Danska fugla- fræðingafélaginu. Deild úr þvf er starfandi f Grænlandi. Hið danska félag er f bréfinu að leita eftir samstarfi við Fuglavernd- unarfélagið fyrst og fremst vegna þess, að á sfðasta ári kom til fram- kvæmda alfriðun arnarins f Grænlandi. Þar f landi er nú farið að óttast alvarlega um að arnar- stofninum verði hreinlega út- rýmt. Fuglaverndunarfélagið vonast til að samstarf geti tekizt og að félagið geti miðlað Grænlending- um einhverju vegna fenginnar reynslu i verndunarstarfi sínu. Þess er getið í bréfinu að á siðasta sumri teljist mönnum svo til i Grænlandi, að „aðeins" 43 arnar- ungar hafi komizt upp. Þess má geta, að hér hjá okkur er einungis vitað um 5 arnarunga, sem komizt hafi á legg. Stofninn í Grænlandi telur á þriðja hundrað fugla en stofninn hérlendis 70 — 80. Fuglaverndunarmenn hér hafa af þvi áhyggjur að nú virðist vera kominn af stað vaxandi þrýsting- ur frá æðarfuglsbændum um þaó á hið opinbera, að leyfi verði gef- ið til þess að bera út eitur. Verði það gert, segja -fugla- verndunarmenn, mun þess skammt að bíða, að örninn þurrkist með öllu út og þá þarf enginn lengur að hafa áhyggjur af þessum mesta fugli Islands. Að lokum skal þess getið, að fuglaverndunarmenn telja til- veru íslenzka arnarstofnsins vera háða því fjármagni sem Fugla- verndunarfélagið hefur yfir að ráða hverju sinni. Félagið nýtur nú 40.000 kr. styrks af fjárlögum á ári. Þess má geta hér i þessu sam- bandi, að Danska fuglafræðinga- félagið nýtur styrks frá Carls- bergssjóði og frá Alþjóðlega náttúruverndarsjóðnum til rann- sóknar og verndunar grænl. arnarins. „Þrautgóðir á raunastund” Loftur Guðmundsson skrifar 6. bindið Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. hefir sent frá sér sjötta bindi björgunar- og sjóslysasögu ls- lands. Það er Loftur Guðmunds- son sem ritar þessa bók og er hún talsvert frábrugðin hinum fyrri að efni. Hún er helguð þremur forvfgismönnum á sviði björgunarmála og slysavarna, þeim séra Oddi V. Gfslasyni, Sigurði Sigurðssyni frá Arnar- holti og Jóni E. Bergsveinssyni, fyrsta erindreka SVFl. 1 fréttatilkynningu frá útgáf- unni segir ma.a.: „Astæðan fyrir því að ekki eru raktir atburðir f þessari bók sem hinum fyrri er sú, að útgefendum þótti atburðir síðustu bókar komnir það nálægt samtímanum, að ástæða væri til þess að snúa við blaðinu og hefja frásögn af at- burðum fyrir stofnun Slysavarna- félagsins árið 1928, en fyrsta bók- in hefst það ár. Verið er að safna gögnum er varða árin frá alda- mótum og fram til 1928, en meðan að sú gagnasöfnun fer fram, þótti fara vel á því að skrá sögu þeirra þriggja forvígismanna sem að framan eru nefndir." Bókarkápan er mjög sérstæð en uppistaða hennar eru teikningar sem birtust á sínum tíma á for- síðu Sæbjargar, málgagni séra Odds V. Gfslasonar á öldinni sem leið. Hilmar Þ. Helgason annaðist kápugerðina. MS MS MZ ik SVV 2IAI SW MS MY Adalst AUGL V^/TEIKn NDAM ræti 6 simi M2 VSIIMGA- JISTOFA ÓTA 5810 Fiskiskip til sölu 104, 1 1 5, 125, 218, 228, 229, Stálskip: 29, 75, 76, 103, 146, 188, 193, 197, 207, 230, 233. Tréskip: 17, 29, 37, 38, 39, 44, 47, 48, 50, 51, 52, 56, 59, 61, 62, 63, 65, 67, 70, 71, 72, 74, 75, 76, 80, 81,82, 85, 89, 92, 101, 103, 104, 144. Landssamband íslenzkra útvegsmanna. Laus er til umsóknar staða aðstoðarborgarlæknis í Reykjavík Hér er um að ræða stöðu forstöðumanns fyrir heilsuverndardeild borgarlæknisembættisins. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi reynslu eða sérmenntun í embættislækningum eða heilsuverndarstarfi. Umsóknarfrestur er til 15. desember n.k. Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborg- ar. Staðan veitist frá n.k. áramótum eða eftir samkomulagi. Reykjavík, 25. nóvember 1974 Borgarlæknir fc Árg. Tegund Verð í þús. 74 Bronco V-8 930 74 Bronco V-8 890 71 Bronco V-8 790 66 Bronco 350 74 Mustang 1.060 74 Comet Custom 950 73 Comet Custom 890 74 Peugeot 404 825 74 Citroen Ami 590 74 Vauxhall Viva 590 73 Escort XL 470 74 Lada Station 430 74 Capri 1 600 685 68 Ford 20M 285 68 Ford 1 7M 275 71 Maverick 505 71 Thunderbird 1.100 68 Cortina 1 75 FORD SVEINN EGILSSONHF FORO HUSINU SKEIFUNN117 SIMI 85100 Pólar h.f., Einholti 6. Hallgrímssöfnuður KJÖRSKRÁ fyrir prestskosningu, er fram á að fara í Hallgrímsprestakalli í Reykjavík sunnu- daginn 1. des. n.k. liggur frammi í HALL- GRIMSKIRKJU í Reykjavík (skrifstofu Biblíufé- lagsins, opið kl. 3 — 5 sd ). Kærufrestur rennur út þriðjudaginn 26. nóv. kl. 24. Sóknarnefndin. Til sölu — Stigahlíð Glæsileg 145 fm jarðhæð í þríbýlishúsi. íbúðin er 3 svefnherb., 35 fm stofa, húsbóndaherb., eldhús, baðherb., gestasnyrting. Sérþvottahús og geymsla. Fallegur garður. Laus 10. janúar. IBUDA. SALAN INGÓLFSSTRÆTI GEGNT GAMLA BÍÓl SÍMI 12180. Verzlunarstjóri Stjórnsamur og reglusamum maður óskast til afgreiðslustarfa og til að v.eita þekktri herrafata- verzlun forstöðu. Starfsreynsla æskileg. Þarf að geta hafið starf strax. Sendið upplýsingar um fyrri störf til Mbl. merkt. „Fljótt — 7059", fyrir 28. nóv. n.k. Sinfóníuhljómsveit Islands Tónleikar í Háskólabíói fimmtudaginn 28. nóv- ember kl. 20.30. Stjórnandi Vladimir Ashkenazy. Einsöngvari Sheila Armstrong sópran. Fluttar verða aríur eftir Mozart óg Tsjaikovsky, Sinfónía í G moll eftir Mozart og sinfónía nr. 4 eftir Sibelius. Aðgöngumiðar seldir í bókabúð Lárusar Blön- dal, Skólavörðustíg_2 og í bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.