Morgunblaðið - 26.11.1974, Side 43

Morgunblaðið - 26.11.1974, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1974 43 - Fyrsti togarinn Framhald af bls. 44 mannaeyjahöfn, en fyrr kvaó hann það ekki hafa verið hægt Ólafur sagði, að ef Landhelgis- gæzlan hefði farið að segja frá atburðum, hefði það hugsanlega getað leitt til þess, að aðrir þýzkir togarar hefðu komið á vettvang og leitt hefði til meiri árekstra. „Að minum dómi er óhjákvæmi- legt að það hvili leynd yfir hand- tökunni." Ólafur Jóhannesson kvaðst vona að þessir atburðir hefðu góð áhrif á samningshorfur milli Þjóðverja og Islendinga. Matthias Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra, sagði, að fyrstu við- brögð Þjóðverja bentu ekki til þess, að þessir atburðir hefðu góð áhrif á samningaviðræður land- anna um landhelgismálið, en ann- ars væri erfitt að segja nokkuð til um það, hver áhrifin yrðu. Raun- ar væri ekki ljóst, hvort úr nokkr- um samningum yrði. Landhelgisgæzlan lýsir við- burðarás og aðdraganda handtök- unnar á svofelldan hátt: „.. Varðskipið var að stugga við þýzkum togurum úti af Stokks- nesgrunni aðfararnótt laugar- dagsins 23. nóvember. Rak varð- skipið 5 togara út fyrir fiskveiði- takmörkin og klippti þar á vörpu eins togarans. B/v Arcturus var sjötta skipið í hópnum, en slapp undan varðskipinu vestur á bóg- inn. Er varðskipið hafði lokið störfum sínum á Stokksnesgrunni hélt það vestur um. Um hádegisbilið sunnudaginn 24. nóvember kom varðskipð Æg- ir aftur að sama togara, þar sem hann var að toga á vesturhorn Stokksnesgrunns, og rak hann brott. Hopaði togarinn þá enn á ný vestur á bóginn. Klukkan um 15.00 sama dag flaug flugvél Landhelgisgæzlunn- ar, TF-SÝR, yfir b/v Arcturus, þar sem hann var að toga með vörpu sina i sjó á suðausturhorni Mýragrunns. Flugvélin lét varð- skipið Ægi vita um stað og athöfn togarans, en varðskipið var þarna skammt frá. Varðskipið hóf strax aðför að togaranum, sem hélt undan, er hann varð varðskipsins var. Varðskipið Ægir gaf venju- leg stöðvunarmerki og skaut síð- an 4 púðurskotum og einu kúlu- skoti framan við togarann, sem þá nám staðar. Settir voru 6 vopnað- ir menn frá varðskipinu um borð i togarann, og héldu skipin því næst vestur á bóginn. A leiðinni renndi varðskipið á strandstað m/b Andvara VE-100, sem strand- aði við Ingólfshöfða um likt leyti. En þar sem áhöfn bátsins var farin í land og náttmyrkur skollið á, héldu skipin áfram áleiðis til Vestmannaeyja og komu þangað snemma í morgun. Tveir islenzkir togarar voru í næsta nágrenni þýzka togarans, er atburður þessi átti sér stað. B/v Arcturus er 724 tonna skip, smíðað árið 1963 í Þýzkalandi, upphaflega sem dráttarbátur, en breytt í skuttogara 1969. Arcturus var fyrsti þýzki togarinn, sem klippingartilraun var gerð á 25. nóvember 1972, er Ægir skar á bakborðsvír hans og sleit einnig höfuðlinu á vörpu togarans." Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar, sagði í gær, að handtakan hefði í sjálfu sér verið mjög friðsamleg, eftir að togarinn hafði stöðvazt. Setti þá áhöfn hans út stiga til þess að auðvelda varðskipsmönnum upp- göngu. Skipherra á varðskipinu Ægi er Guðmundur Kjærnested, en fyrsti stýrimaður varðskipsins, Þorvaldur Axelsson, var fyrirliði þeirra sexmenninganna, sem fóru um borð í Arcturus. Þröstur Sigtryggsson, skipherra á gæzluflugvélinni SÝR, sagði í viðtali við Mbl. í gær, að flugvélin hefði komið að togaranum, þar sem hann var að veiðum um klukkan 15 á sunnudag, en þá var hann að toga um 16 sjómílur innan markanna. Ægi var þegar gert viðvart, en hann var þá um 25 mílur í burtu, en í nágrenni við Þjóðverjann voru tvö íslenzk skip, Gullver og Hólmatindur. Flugvélin hélt síðan f vesturátt en um klukkan 16,28 sagði Þröstur, að Ægir hefði skotið fyrsta skot- inu. Þröstur sagði, að við komuna til Reykjavíkur hefði áhöfn flug- vélarinnar frétt af því, að menn frá Ægi væru komnir um borð. Var því fljótlega haldið af stað aftur á handtökustað og sveimaði flugvélin yfir skipunum. Þess má geta, að þótt sagt sé að Arcturus sé fyrsti togarinn, sem tekinn sé innan 50 milna fisk- veiðitakmarkanna, var fyrir nokkrum mánuðum tekinn brezk- ur togari, sem brotið hafði af sér og veitt innan 12 mílna mark- anna. Var það brot framið eftir að bráðabirgðasamkomulagið var gert við Breta. — Aðeins 5 mínútur Framhald af bls. 44 Aðspurður svaraði Þorvaldur, að þeir hefðu verið 16- tima um borð i togaranum, en engan mat fengið allan tímann. — Þetta bar brátt að og við tókum ekki mat með okkur og okkur var hvorki boðið vott né þurrt eða um beðið og við töldum ekki rétt að stöðva varðskipið þar sem verkefnið var meira virði en magafylli. Hins vegar gat Þorvaldur þess, að brezkir sjómenn byðu ávallt varð- skipsmönnum einhverjar veiting- ar, hvort sem þeir þæðu þær eða ekki. Strax og varðskipsmenn voru komnir um borð, könnuðu þeir fiskinn, sem var í vörpunni, og var það sprelllifandi fiskur. Við héldum okkur mest við brúna, sagði Þorvaldur, því að skipverjar voru 25, en við aðeins 6 og þvi eins gott að standa vel að vígi ef til átaka hefði komið. — Það var reyndar furðulegt, hvað þetta gekk hljóðlega. • Ekki neitt mál — millirikjamál. I innstu höfn i Eyjum, Friðar- höfninni, hittum við skipstjóra þýzka togarans, Werner Maspeit, 41 árs gamlan, um borð í skipi sínu. Hann kvaðst ekki hafa haft samband við Þýzkaland eftir að varðskipsmenn komu um borð, en sagði, að útgerðarmaður skipsins myndi koma til réttarhaldanna á morgun. Maspeit var að spila á spil við loftskeytamann sinn og stýrimann, þegar við komum um borð, en ekki kvaðst hann vita hvað hann ætti að segja um stöð- una í þessu máli. Þetta væri furðulegt frá sínu sjónarmiði, þvi að útgerð sin hefði sagt sér, að hann mætti veiða á þessu svæði. Þeir hefðu verið að veiðum í lið- lega sólarhring, en oft verið trufl- aðir af varðskipum. Kvaðst hann vera með 25 til 30 tonn af fiski um borð. Annars er ekki mitt að segja neitt um þetta mál, sagði skip- stjórinn. Ég lít á þetta mál sem milliríkjamál milli Þýzkalands og Islands. — Kissinger Framhald af bls. 1 en við þessa tvo áhrifamenn mun Kissinger eiga viðræður meðan hann dvelur í Kína að þessu sinni. 1 veizlunni sagði Chiao meðal annars, að Kínverjar væru fyrir sitt leyti ánægðir með þróunina 1 samskiptum Bandaríkjamanna og Kínverja eftir að fyrrverandi Bandaríkjaforseti, Richard Nixon, hefði komið i hina sögu- legu heimsókn til landsins í febrúar 1972. Hann lét einnig i ljós von um, að þessi ferð Kiss- ingers myndi verða tíl þess að frekari jákvæð þróun yrði í þess- um samskiptum, en þau voru fast- mælum bundin með hinni svoköll- uðu Shanighaiyfirlýsingu 1972. Utanríkisráðherrann lagði áherzlu á, að löndin byggju við ólík samfélagsform og skoðana- munur væri um fjölda miklvægra mála. Þó mætti það ekki verða til að koma í veg fyrir, að samstaða gæti náðst um sameiginleg hags- munamál. Kissinger sagði i svar- ræðu sinni, að Ford forseti hefði sent hann til Kína til að halda áfram þeim góðu og giftudrjúgu skoðanaskiptum, sem tekizt hefðu milli landanna tveggja og til að vinna að því enn öflugar að á samvinnu rikjanna tveggja félli ekki skuggi. Kissinger sagði, að heimurinn væri nú að lifa miklar breytingar og vonandi yrðu þær þegar fram i sækti til góðs fyrir allarþjóðir. — Bretar vilja Framhald af bls. 1 Hann kvaðst sannfærður um að strax að lokinni hafréttarráð- stefnu SÞ yrði lýst yfir 200 mílna fiskveiðilögsögu um allan heim. Hann taldi, að Bretar mundu þá fara að dæmi annarra. Evensen hafréttarráðherra hef- ur áður skýrt frá áætlun Norð- manna i þremur liðum um varð- veizlu fiskstofna með útfærslu fiskveiðitakmarkananna við Noreg en aðeins að höfðu samráði við ríki Vestur- og Austur- Evrópu. — Skólafólk Framhald af bls. 34 sér. Og þá líður ekki á löngu, þangað til nýr, áhugasamur og traustur framkvæmdaaðili, skóla- æska Islands, byrjar að vinna markvisst að skógræktarstörfum undir góðri leiðsögn og vinnur þar merk þjóðnytjastörf fyrr en varir eins og skólaæskan norska hefur lengi gert. — Dr. Páll Framhald af bls. 1 Enginn einn maður hefur haft önnur eins áhrif á tón- listarlif islenzku þjóðarinnar og Páll Isólfsson. Sjálfur samdi hann fjölda tónverka, og þegar hann kom ungur aftur til Is- lands aó loknu námi i Þýzka- landi og gerðist organisti í Reykjavik, flutti hann með sér andblæ heimsmenningar, sem átti eftir að skipta sköpum í þjóðlífi íslendinga. Páll Isólfsson var um langt skeið tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins. Og í forystu- grein á 75 ára afmæli hans fagnar blaðið þessu starfi hans með eftirfarandi orðum: „Á 75 ára afmæli dr. Páls i dag getur Mbl. og lesendur þess fagnað þvi að hafa um langt skeið notið menntunar hans og gáfna, því að hann var tón- listargagnrýnandi blaðsins og markaði djúp spor i þvi starfi...“ Dr. Páll Isólfsson fæddist 12. okt. 1893 á Stokkseyri. Hann var sonur ísólfs Pálssonar organleikara þar og siðar í Reykjavík og konu hans Þurið- ar Bjarnadóttur. Hann stundaði tónlistarnám bæði hér á landi, i Leipzig og Paris og var sérgrein hans orgelleikur. Meðal kenn- ara hans voru tónskáldið Max Reger orgelleikari Tómasarkirkjunnar í Leipzig, Karl Straube og Joseph Bonnet í París, en hann var einnig víð- frægur orgelsnillingur og læri- sveinn Guilmants. Allra þess- ara kennara sinna minnist dr. Páll í samtalsbókinni Hunda- þúfan og hafið. Dr. Páll var við nám hjá Straube frá 1913—T8, en að- stoðarorganisti hans og stað- gengill við Tómasarkirkjuna 1917—’19. Þegar heim kom varð hann kennari og skóla- stjóri Tónlistarskólans frá stofnun hans 1930—1957, og kenndi auk þess um skeið organleik í Háskóla Islands. Organisti við Fríkirkjuna i Reykjavik var hann á árunum 1926—1930, en við Dómkirkj- una i Reykjavik frá 1939. Hann var tónlistarráðunautur Ríkis- útvarpsins frá stofnun 1930 til hausts 1959. Hann varð heiðurs- doktor við háskólann i Ösló 1945 og félagi i Konunglegu sænsku músikakademíunni 1956. Dr. Páll samdi fjölda tón- verka, eins og fyrr getur, bæði fyrir orgel, pianó, kór, hljóm- sveit og einsöng. Eitt af því síðasta, sem hann samdi, var tónlist við texta úr Ljóðaljóð- um. Dr. Páll Isólfsson var tví- kvæntur. Fyrri kona hans, Kristin Jónsdóttir Norðmann, lézt 1944. Þau áttu þrjú börn, sem öll lifa föður sinn. Síðari kona hans er Sigrún Eiriksdóttir og eignuðust þau eina dóttur barna. Fru Sigrún lifir mann sinn, ásamt dóttur þeirra. Dr. Páls Isólfssonar verður nánar minnzt hér í blaðinu síð- ar. Morgunblaðið sendir frú Sigrúnu og fjölskyldunni inni- legar samúðarkveðjur um leið og það þakkar dr. Páli enn einu sinni framlag hans til vaxtar og viðgangs þess og brautryðj- andastarf í tónlistarmálum þjóðarinnar. — Harkalegar Framhald af bls. 1 tvö hundruð slösuðust, þar af margir mjög alvarlega. Aftur á móti virðist lögreglan viss i sinni sök um að IRA-menn hafi staðið að baki morðunum. S?x Irar, allir frá Norðurír- landi, hafa verið handteknir og voru leiddir fyrir rétt i Birming- ham í dag. Þeir eru allir grunaðir um að vera viðriðnir sprengju- árásina fyrir helgina. Þeirra er mjög vandlega gætt og hvorki blaðamenn né ljósmyndarar hafa fengið að koma nálægt dómhúsi pví þar sem yfirheyrslur fara fram. Um svipað leyti og Roy Jenkins kynnti hinar nýju fyrirætlanir ríkisstjórnar Bretlands særðust níu manns á ýmsum stöðum í London, þegar sprengjur sprungu þar. Einni sprengjunni hafði ver- ið komið fyrir við póstkassa skammt frá Piccadilly og slös- uðust þar sex menn og tvær kon- ur. Annar maður slasaðist lítil- lega, þegar sprengja sprakk við annan póstkassa skammt frá og sú þriðja sprakk við póstkassa við Victoria kvikmyndahúsið, en þar munu ekki hafa orðið meiðsl á fólki. — Viðbrögðin Framhald af bls. 1 yrði ekkert um málið sagt af þeirra hálfu fyrr en hann hefði látið frá sér heyra. Talsmaður v-þýzku stjórnar- innar sagði í samtali við frétta- mann Associated Press fréttastof- unnar í gær, að enda þótt stjórnin í Bonn hefði ennþá áhuga á því að finna lausn á fiskveiðideilunni við Islendinga, hefði hún mót- mælt harðlega síðustu aðgerðum Islendinga í þorskastríðinu gegn v-þýzkum fiskiskipum. „Þetta er nútíma sjórán," sagði talsmaður- inn og bætti því við, að árás Is- lendinga á togarann væri alvar- legt brot á alþjóðalögum. Hann sagði, að sendiherra VÞýzka- lands á íslandi, Raimund Hergt, hefði mótmælt togaratökunni á sirnnudag og i þeim mótmælum áskildi v-þýzka stjórnin sér rétt til þess að krefjast skaðabóta af íslenzku ríkisstjórninni. Tals- maðurinn bætti því við, að árás íslendinga á v-þýzka togarann bryti gegn úrskurði þeim, sem alþjóðadómstóllinn í Haag hefði kveðið upp i júli sl., en þar hefði verið viðurkenndur réttur Þjóð- verja til fiskveiða á hefðbundnum fiskimiðum þeirra við Island og rétti Islendinga til að lýsa yfir 50 sjómílna fiskveiðilögsögu hefði verið hafnað. Loks hefur frétta- maður AP eftir heimildum í Bonn, að þar sé litið svo á, að aðgerðir Islendinga hafi skaðað samskipti ríkisstjórna landanna verulega svo og væntanlegar samningaviðræður, er hafi átt að miða að lausn á deilum þeirra. Sjómenn standa vörð um hafnarhliðin „Togaraeigendur og félags- menn í samtökum sjómanna eru bálreiðir," sagði Ernst Stabel, ræðismaður Islands í Cuxhaven, þegar Morgunblaðið hafði sam- band við hann í gær og spurðist fyrir um viðbrögðin þar um slóðir við töku togarans. „Fiskimenn liafa haldið fundi um málið og ætla að koma i veg fyrir, að islenzk fiskiskip geti komið hingað til hafnar eða farið úr höfn, ef þau komast inn. Þeir ætla að halda vörð við hafnarhliðin. Á sunnudag komst þó íslenzkt skip hingað inn, Snæfugl, og landaði án nokkurra vandræða i morgun. Hinsvegar hefur Ögra, sem væntanlegur var til Bremerhaven i kvöld, verið snúið til Belgíu vegna ólgunnar meðal sjómanna í Bremerhaven. Snæfugl slapp svona vel, vegna þess, að hann kom hingað til Cuxhaven áður en sjómenn áttu von á honum ella hefðu þeir gert eitthvað, eftir því sem blöð hafa eftir þeim i dag. Sömuleiðis segja verkamennirnir, sem lönduðu úr Snæfugli, að þeir hafi gert það til að forðast ófrið, en þeir muni ekki landa úr ögra, ef hann kemur inn. Fiskkaup- menn i Bremerhaven eru eðlilega ergilegir yfir þvi að fá ekki fisk- inn úr ögra, þvi þar er nú enginn fiskur til.“ Stabel kvaðst hafa átt von á einhverjum aðgerðum þegar Snæ- fugl færi út, en lögreglan i Cux- haven greip i taumana, hafði sam- band við sjómannafélagið og til- kynnti þvi, að litið yrði á hvers- konar tilraunir til að hindra brott- för skipsins sem ólöglegar og yrðu þá gerðar viðhlítandi ráðstafanir. „Það varð því ekkert úr aðgerð- um,“ sagði Stabel, „en auóvitað er aldrei að vita hvað þeir gera á næstunni ef islenzk skip koma.“ Ekki kvaðst Stabel vita hversu lengi sjómenn myndu halda uppi gæzlu sinni við hafnarhliðin né hversu mikil alvara yrði í aðgerð- um þeirra, — ef ekkert skip kærai á næstu dögum yrðu þeir e.t.v. fljótlega leiðir á varðgæzlunni. „En þetta er mál, sem stjórnir landanna ættu að útkljá sem fyrst. Togaraeigendur hafa haft samband við landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið og óskað eftir þvi, að aðgerðum Islendinga verði harðlega mótmælt; ég efa ekki að báðir aðilar senda eða hafa sent frá sér mótmæli. Og þá hljóta einhverjar viðræður að fylgja í kjölfarið. — Gíslar Framhald af bls.42 kröfum sinum. Hefði Þjóð- verjinn, sem lézt, talið svo einnig og fallizt á að koma með þeim út á tröppurnar við flugvélina og einskis ills átt sér von. Vestur- þýzk stjórnvöld ihuga nú, hvort þau geti lagalega séð krafizt þess, að mennirnir verði framseldir fyrir morðið. Margir telja, að Túnismenn muni eiga yfir höfði sér hefndar- aðgerðir annarra Arabaþjóða ef þeir halda því til streitu aó taka ræningjana undir sinn verndar- væng. — Heilbr.mál Framhald af bls. 31 engu, þó barnið virðist eiga sér litla eða enga von, og við full- vissum þá um, að við munum alltaf svara spurningum þeirra af fullri einlægni. Þannig vita þeir um afstöðu okkar og að við stöndum með þeim i baráttunni fyrir lífi barnsins. Tæplega ætti neinn, áð geta skilið betur þann vanda, sem steðjar að foreldrum, sem fá vitneskju um, að barnið þeirra sé með krabbamein en Grace læknir við Roswell Park minn- ingarstofnunina. Hann fylgdist mað baráttu barnsins síns, sem fékk hvítblæði og beið lægri hlut. Þegar sá harmleikur var á , enda, yfirgaf Grace læknir starf sitt, sem virtur skurð- læknir og helgaði sig algerlega krabbameinsrannsóknum. Stundum geta börnin virst al- heilbrigð, segir hann, en for- eldrarnir eru i stöðugri angist Út af því, sem seinna kunni að gbfast. Það getur leitt til þess, að ý*jka barnið fái að gera næstum hvað sem þvi sýnist, en vandi sem af þvi leiðir getur orðið alvarlegur, ekki síst ef fleiri börn erú í fjölskyldunni. Veika barnið verður að hlita ákveðnum aga. En foreldrun- um hættir til að draga um of úr þeirri kröfu. Þeir mega ekki láta tilfinningarnar hafa of mikið vald á sér, heldur muna, að lífið verður að ganga sinn gang og reyna að sjá vandann, i sambandi við hið veika barn, í réttu ljósi. Grace læknir leggur mikla áherslu á að glæða vonir for- eldranna og i tilefni af því, segir hann að lokum: Foreldr- arnir verða að gera sér ljóst, að þó sjúkdómsgreiningin sé krabbamein, er það engin stað- festing þess, að sjúkdómurinn sé banvænn. Bj. Bj. þýddi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.