Morgunblaðið - 01.12.1974, Side 14

Morgunblaðið - 01.12.1974, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1974 Hópurinn finni lausnina „Vandamál þessara unglinga kunna að koma fram á mjög mis- munandi hátt,“ segir Steinunn þegar Slagsíðan spurði um eðli vandans og hvernig hún fyrir sitt leyti brygðist við honum. „Þau kunna að virðast jafn ólík og einstaklingarnir eru ólíkir. En í upprunalega eðli sínu eru þau ekki eins ólik og þau virðast í fljótu bragði." „Þegar ég fæ mál af þessu tagi, t.d. varðandi afbrot, ósamlyndi á heimili eða annars staðar, eða hegðunarvandamál einhvers kon- ar,“ hélt Steinunn áfram „þá reyni ég fyrst og fremst að kom- ast inn í umhverfi unglingsins, ræða við foreldra, — einkum ef unglingurinn dvelst hjá þeim —, og kanna hver getur verið orsök- in. Eg legg mikla áherzlu á að fólkinu í umhverfi unglingsins taksit sjálfu að sjá þá orsök sem þar kann að liggja fyrir vanda- málinu. Ég reyni auðvitað lika að tala við unglinginn sjálfan og gera honum Ijóst hvernig það umhverfi sem hann lifir i er, og hvernig hann geti bezt lifað í því. Það er nauðsynlegt að bæði foreldrar eða aðstandendur og unglingurinn sjálfur skilji eðli vandans, þannig að allur hópur- inn geti unnið saman að lausn- inni.“ „En þelta tekst að sjálfsögðu mjög misjafnlega, því að hegðun fólks og allt atferli er orðið svo rótgróið að nauðsynlegtgetur ver- ið að unglingurinn komist í annað umhverfi, þ.e.a.s. ef fyrrnefnda áræðið bregzt." Borgin og sveitin Um hvers konar „annað um- hverfi" er helzt að ræða? „Þar eru möguleikarnir því miður ekki mjög miklii. i fyrsta lagi er það upptökuheimilið í Kópavogi. Þeir sem þurfa að komast að heiman fara yfirleitt fyrst þangað. Þar hafa þeir tækifæri til að njóta hjálpar, en þeir og aðstandendur þeirra þurfa að vilja það sjálfir. Að vísu eru unglingarnir ekki þarna nema um skamman tíma, eða nokkra mánuði. Sfðan er helzt um það að ræða að aðstoða ungl- ingana við að komast á heimavist- arskóla eða á góð sveitaheimili, sem geta tekið að sér þetta verk- efni, og er I sumum tilfellum auðvitað ínjög vandasamt verk- efni. Sveitaheimilin hafa oft reynzt vel, þvl að þar er einmitt það sem unglingana hefur alltaf vantað í sitt umhverfi. Vandamál þeirra eru að verulegu leytidæmi gerð borgarvandamál. I borg, eins og Reykjavík virðist fólk verða svo lokað og einangrað. 1 sveitum og minni stöðum virðist hins veg- ar vera mun meira um eðlilegri og opnari samskipti.“ „En ég vinn sem sagt mest með einstaklinginn í sínu uppruna- lega umhverfi,“ sagði Steinunn. „Ég reyni t.d. f því sambandi að finna þar einhvern einn, sem virðist skilja vandamálið og vinn svo með honum eða henni. Ég legg mesta áherzlu á það, að um- hverfið leysi vandamálið sjálft, og ég sé aðeins ráðgefandi hjálparaðili. Og sfðan aðstoða ég unglinginn við að komast að heiman ef þörf krefur." Kemst ekki yfir öll málin. Það er sama sagan hjá Félags- málastofnuninni og rannsóknar- lögreglunni, — einn maður á að sjá um stóran málaflokk og unglingamál eru f 100.000 manna borg. Slagsíðan spurði Steinunni hvort unnt væri að nefna nokkra tölu um fjölda þeirra mála sem hún fær til meðferðar á ákveðnu tímabili. „Um það er mjög erfitt að segja," svaraði Steinunn, „ekki sfzt vegna þess hve ég hef verið stuttan tíma í starfinu. En fjöldi málanna er mjög mikill. Ég gizka á að ég fái 1 nýtt mál daglega, sem þó eru mjög misjafnlega erfið". Er ekki erfitt að komast yfir þetta allt? „Jú þetta er mjög mikið verk, — svo mikið raunar að ég kæmist aldrei yfir það ein að vinna öll málin til hlítar. En ég reyni að vinna þau mái til hlítar þar sem samstarfið við ungling- inn og aðstandendur er það gott, að ég get haft góða von um árang- ur. Sum mál eru svo aftur þannig, að árangurinn getur komið sfðar. Þótt árangur verði ekki eins og skot, þá held ég að fólk hafi gagn af því að rætt sé við það.“ Steinunn vildi gera lítið úr skorti á starfskrafti í þessum málum. Hún kvaðst vinna sitt starf í náinni samvinnu við annað starfsfólk f jölskyldudeildar, á Féiagsmálastofnuninni, t.d. fé- lagsráðgjafa og sálfræðing, sem hafa annað verksvið, en þekkja unglingamálin frá öðrum hliðum. ,4ú, auðvitað þarf stórlega að fjölga þeim sem fást við þessi mál,“ viðurkenndi hún þó að lok- um. „En ég reyni að nota dóm- greind mfna og þekkingu til að gera það fyrir fólkið sem máli skiptir, reyni að lifa mínu lffi og haga mínu starfi þannig að ég unnið það. Hitt er svo annað mál, að það þyrfti að nýta alla þá góðu starfskrafta sem eru fyrir hendi, — fólk sem hefur bæði hæfileika og menntun til að vinna þessi 0 Á SLAGSÍÐUNNI á sunnudaginn hófst greinaflokk- urinn um ,,unglingavandamál“ með viðtali við Helga Daníelsson, rannsóknarlögreglumann. í dag ræðir Slag- síðan hins vegar við Steinunni Ólafsdóttur uppeldisfræð- ing sem er fulltrúi með unglingamál hjá Félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar. Þvi starfi hefur hún þó aðeins gegnt frá 1. september í haust, en vann áður hjá Sálfræðideild skóla. Til hennar kasta koma almenn fé- lagsleg vandamál unglinga á aldrinum 13—17 ára, þ. á m. mál sem ekki verða endilega að sakamálum. Slagsíðan innti Steinunni m.a. eftir eðli starfsins, stöðu þessara vandamála í dag, hugsanlegum úrbótum o.fl. Fyrst var hún spurð um verksvið sitt. 0 „Mitt verksvið er vandamál unglinga og afbrota- barna, og koma þá þessi mál til mín bæði frá rannsóknar- lögreglunni, skólum og beint frá foreldrum eða öðrum aðstandendum. Og stundum koma unglingarnir sjálfir. En þeir sem ég hef fengið á þann hátt hafa yfirleitt komið hér áður til fyrirrennara minna í starfi, — upphaf- lega fyrir tilstilli lögreglu eða foreldra. Þeir vita að hér er hægt að fá stuóning og hingað er hægt að leita þegar þeir komast í vanda. Það eru fleiri sem koma á þennan hátt en ég hafði búizt við. En þeir hafa margir hverjir ekki neitt annað að fara, eru komnir úr tengslum við heimili sitt og f jölskyldu, og koma hér í von um að ég geti greitt götu þeirra varðandi þann vanda sem að þeim steðjar. Það er raunar það stutt síðan ég tók við þessu starfi, að ég hef mest verið með eldri mál frá fyrirrenn- ara mínum, þó einnig hafi nokkur ný bætzt við. Samt er þetta mest fólk sem kemur aftur og aftur.“ Slagsíðan ræðir við , Steinunni Olafsdóttnr, félagsmálafnlltrna ★ „Sveitaheimilin reynast oft ★ „Stúlkur byrja svo snemma * „A efnameiri heimilum vel...“ að lifa lífinu... “ koma aðrir möguleikar til hjálpar ... “ „Meirihlntinn kemnr frá heimilnm, þar sem folk er illa fariö félagslega, fjárhagslega og andlega” Myndirnar af unglingunum hér á opnunni eru teknar af ljós- myndurum Morgunblaðsins við ýmis tækifæri, og ber að lfta á þær sem aðeins óbeint tengdar umræðuefni greinarinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.