Morgunblaðið - 01.12.1974, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1974
41
félk í
fréttum
Wilma
Reading
+ Wilma Rcading sem er okk-
ur góðkunn af söng sínum,
bæði vegna hljómleikahalds
og skemmtana svo og sjón-
varpsþáttar sem tekinn var
upp hér á landi og sýndur,
hefur nú sent frá sér 2 plötur;
1 breiðskífu og eina litla plötu.
Lögin á litlu plötunni eru úr
nýrri kvikmynd „The Tama-
rind Seed“, þar sem þau Omar
Sharif og Julie Andrews leika
aðalhlutverkin og það er ein-
mitt Wilma Reading sem
syngur titillagið „Play It
Again“ og er það annað lagið á
plötunni. Wiima hefur haft
þann sið að dvelja hér
á Islandi yfir jólin. . Hver
veit nema svo verði einnig f ár
r - ,
fclk í
fjclmiélum
Sagt var hér f blaðinu f gær, að
þau Ashkenazy-hjónin ættu
von á fjórða barni sfnu. Þetta
er alrangt; fjórða barn þeirra
hjóna fæddist á Fæðingardeild
Landspítalans þann 10. októ-
ber sl. Barnið hlaut nafnið
Sonia Edda og er það hér á
myndinni til hliðar ásamt
móður sinni, föður og systkin-
um. Blaðið biður þau
hjónjin , svo og aðra les-
endur blaðsins, velvirðingar á
mistökum þessum.
„Rhapsody in Blue ”
Annað kvöld kl. 21.10 verður flutt „Rhapsody in Blue“ eftir George Gershwin. Tónskáldið var
bandarfskur pfanólcikari, sem hóf að semja lög af léttara taginu þegar hann var aðeins 16 ára að
aldri. Hann samdi f fyrstu lög, sem sungin voru f revfum, og slagara, en árið 1924, þegar Gershwin
var 26 ára sló hann fyrst reglulega f gegn. Þá bað Paul Whiteman, sem kallaður var „The King of
Jazz“, hann að skrifa jazz-verk fyrir sinfónfuhljómsveit. Gershwin lauk verkinu á tfu dögum, og
eftirvænting jazzunnenda var geysileg fyrir tónleikana. Verkið náði strax miklum vinsældum og
þar með var Gershwin orðinn heimsfrægur sem fyrsta „sinfóníu-jazztónskáldið". Þvf miður hefur
hann lika til þessa verið það eina, því að hvorki tókst honum sjálfum að semja annað eins verk
aftur né heldur gátu aðrir fetað f fótspor hans með góðum árangri.
Anne Stallyhrass um Onedin
I framhaldsmyndaþáttunum um Onedin skipafélagið giftist James Onedin Anne Webster, og
leikkonan Anne Stallybrass fer með hlutverk hennar. I framhaldi þessara flokka, sem verið er að
gera í Bretlandi um þessar mundir, fer Anne Stailybrass með annað hlutverk en áður, en hún sagði
nýlega í viðtali við brezkt blað; — Mér fannst ákaflega gaman að leika Anne, og sérstaklega fannst
mér merkilegt hvernig persónuleiki hennar þróaðist eftir þvf sem á leið. En eftir þau tvö ár, sem
liðin eru sfðan þættirnir voru kvikmyndaðir, finn ég að það er ekki gott að láta bendla sig um of við
ákveðið hlutverk. Það hefur verið gaman að fást við þau verkefni, sem ég hef haft með höndum
sfðan ég lék f Onedin, en samt sem áður hlakka ég mjög til að taka til starfa við myndirnar að nýju.
— Við, sem lékum f Onedin urðum undrandi áþeim frábæru viðtökum, sem þessi framhaldsmynda-
flokkur fékk, en nú er ekki erfitt að skilja hvers vegna það var. Þetta var spennandi ævintýri f
breytilegu umhverfi, alls konar athyglisverð fjölskyldumál fléttuðust þar inn í, og tónlistin var
frábær. Að þessu leyti hefur Onedin-skipafélagið verið frábrugðið mörgum framhaldsmyndaflokk-
um,“ sagði leikkonan að lokum.
Onedin-skipafélagið er á dagskrá sjónvarpsins kl. 20.40 annað kvöld.
étvarp Reykfavik
SUNNUDAGUR
1. desember
Fullveldisdagur íslands.
8.00 Morgunandakt
Séra Sigurður Pálsson vfgslubiskup
flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög
Útvarpshljómsveitin í Berlfn leikur
danssýningarlög; Ferenc Fricasy stj.
9.00 Fréttir. Utdráttur úr forustugrein-
um dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veður-
fregnir).
a. Þættir úr Jólaóratórfu eftir Johann
Segastian Bach.
Flytjendur: Gundula Janowitz, Christa
Ludwig, Fritz Wunderlich, Franz
Crass, Bach-kórinn og Bachhljómsveit-
in f Miinchen.
Stjórnandi: Karl Richter.
b. Sinfónfa nr. 4 f B-dúr op. 6 eftir
Beethoven. Columbfu sinfónfuhljóm-
sveitin leikur; Bruno Walter stj.
11.00 Guðsþjtousta í kapellu háskólans
á vegum guðfræðinema
Skfrnir Garðarsson stud. theol prédik
ar. Séra Þórir Stephensen þjónar fyrir
altari. — Guðsþjónustuformið miðast
við hátfðarsöngva sr. Bjarna Þorsteins-
sonar. Organleikari: Máni Sigurjóns-
son.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
íngar. Tónleikar.
13.15 A ártfð Hallgrfms Péturssonar
óskar Halldórsson lektor flytur þriðja
erindið f flokki hádegiserinda, og fjall-
ar það um Passfusálmana.
14.00 Fullveldissamkoma stúdenta: Ut-
varp frá Háskólabfói
Yfirskrift samkomunnar er: tsland,
þjóðsagan og veruleikinn.
Samfelld dagskrá með ræðuflutningi
og leiknum atriðum úr fslenzkum bók-
menntum. Megas og örn Bjarnason
flytja Ijóð og lög. Þorsteinn skáld frá
Hamri flytur ávarp.
16.00 Tónleikar.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 A bókamarkaðinum
Andrés Björnsson útvarpsstjóri sér um
þáttinn.
Dóra Ingvadóttír kynnir.
17.25 Trompetkonsert f Es-dúr eftir
Haydn *
Maurice André og Kammersveitin í
Miinchen leika;
Hans Stadlmair stj.
17.40 Utvarpssaga barnanna: „Hjalti
kemur heim“ eftir Stefán Jónsson
Gfsli Halldórsson leikari les (16).
18.00 Stundarkorn með austurrfsku
söngkonunni Ritu Streich
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Þekkirðu land?“
Jónas Jónasson stjórnar spuminga-
þætti um lönd og lýðt
Dómari: Ölafur Hansson prófessor.
Þátttakendur: Dagur Þorleifsson og
Bárður Halldórsson.
19.50 „Fagrar heyrði ég raddirnar4*
Dr. Einar ólafur Sveinsson les þjóð-
kvæði og stef.
20.00 Háskólakantata eftir Pál tsólfsson
fyrir einsöng, kór og hljómsveit við
Ijóð eftir Þorstein Gfslason.
Flytjendur: Guðmundur Jónsson,
Þjóðleikhúskórinn og Sinfónfuhljóm-
sveit tslands. Stjórnandi: Atli Heimir
Sveinsson.
20.30 „Fagurt er í Fjörðum"
Samfelld dagskrá úr íslenzkum bók-
menntum (flutt á sögusýningunni á
Kjarvalsstöðum 10. nóv.) óskar
Halldórsson tók saman. Flytjendur
auk hans: Halla Guðmundsdóttir,
Kristfn Anna Þórarinsdóttir og Gils
Guðmundsson.
Elfsabet Erlingsdóttir syngur fslenzk
þjóðlög. Kristinn Gestsson leikur á
pfanó.
21.25 Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur
Hans Ploder Franzson stjórnar.
21.35 Spurt og svarað
Svala Valdimarsdóttir leitar svara við
spurningum hlustenda.
# 9
A skfanum
SUNNUDAGUR
1. desember 1974
18.00 Stundinokkar
t þessum þætti fer Tóti til læknis,
söngfuglarnir eru komnir í jólaskap og
syngja af hjartans lyst, og Bjartur og
Búi hjálpa álfkonunni f lindinni að
komast heim til sfn. Einnig er litast
um f stofu Jóns Sigurðssonar f Þjóð-
minjasafninu, og sfðan sjáum við þýskt
ævintýri, sem heitir „Gjafir dverg-
anna“. Að lokum verður sýnt, hvernig
hægt er að búa til jólasveina til skrauts
og skemmtunar. Umsjónarmenn Sig-
ríður Margrét Guðmundsdóttir og Her
mann Ragnar Stefánsson. Stjórn
upptöku Kristfn Pálsdóttir.
18.55 Skák
Stutt, bandarfsk kvikmynd. Þýðandi og
þulur Jón Thor Haraldsson.
19.05 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrárkynning og auglýsingar
20.35 Það eru komntr gestir
Umsjónarmaður Vigdis Finnbogadótt-
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Danslög
Heiðar Astvaldsson danskennari velur
lögin.
23.25 Fréttir f stuttu málL Dagskrárlok.
MANUDAGUR
2. desember
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kL 7.30, 8.15 (og forustugr
landsmálabl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55: Séra Jón Einars-
son f Saurbæflytur (a.v.d.v.).
Morgunleikfimi kl. 7.35 og 9.05:
Valdimar örnólfsson leikfimikennari
og Magnús Pétursson pfanóleikari
(a.v.d.v.).
Morgunstund barnanna kL 9.15:
Guðrún Guðlaugsdóttir les „örlaga-
nóttina“, ævintýri um múmfnálfana
eftir Tove Jansson í þýðingu Steinunn-
arBriem (12).
Tilkynningar kl. 9.30
Búnaðarþáttur kl. 10.25: Nýja fjósið f
Sveinbjamargerði Gfsli Kristjánsson
ritstjóri talar við Hauk Halldórsson
bónda.
Morgunpopp kl. 10.40.
Morguntónleikar kL 11.00: Ffl-
harmónfusveit Lundúna leikur „Ung-
verjaland“, sinfónfskt Ijóð nr. 9 eftir
Liszt / Jon Vickers syngur söngva úr
„Sfgenaljóðum“ op. 55 eftir Dvorák /
Smetana kvartettinn leikur Strengja-
kvartett I d-moll eftir Sommer.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
13.00 Miðdegissagan: „Fanney á Fum-
völlum“ eftir Huerúnu
Höfundur les (15).
15.00 Miðdegistónleikar
Burghard Schaeffer og kammersveiti
undir stjórn Mathieu Lange flytja
Konsert í G-dúr fyrir flautu, strengja-
sveit og fy Igirödd eftir Pergolesi
Licia Albanese syngur ftölsk þjóðlög
og alþýðusöngva. ttalska RCA hljóm-
sveitin leikur undir; Réné Leibowitz
stj.
Léon Goossens og Fflharmónfu
strengjasveitin leika Óbókonsert f c-
moll eftir Marcello; Walter Siisskind
stj.
Léon Goossens og Gerald Moore leika
Rómönsur f A-dúr og a-moll op. 94 nr. 2
og 3 eftir Schumann.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.25 Popphomið
17.10 Tónlistartfmi barnanna
Ólafur Þórðarson sér um tfmann.
17.30 Aðtafli
Guðmundur Amlaugsson rektor flytur
skákþátt.
18.00 Tónlei-kar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.40 Mælt mál
Bjarni Einarsson flytur þáttinn.
19.45 Um daginn og veginn
Hlöðver Sigurðsson skólastjóri á Siglu-
firði talar.
20.05 Mánudagslögin
20.25 Blöðin okkar
Umsjón: Páll Heiðar Jónsson
20.35 „Menntaskólaneminn“, smásaga
eftir Jakob Guntersen
Hjörtur Pálsson les eigin þýðingu.
20.50 Til umhugsunar
Sveinn H. Skúlason stjórnar þætti um
áfengismál.
21.10 „Rhapsody in Blue“ eftir George
Gershwin
Dimitri Alexejeff og Fflharmónfu-
sveitin f Slóvakfu leika;
Ondrej Lenard stjórnar.
21.30 Utvarpssagan: „Ehrengard“ eftir
Karen Blixen
Helga Bachmann leikkona byrjar lest-
ur sögunnar, sem Kristján Karlsson
IslenzkaðL
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Byggðamál
Fréttamenn útvarps sjá um þáttinn.
22.45 Hljómplötusafnið-
f umsjáGunnarsGuðmundssonar.
23.40 Fréttir f stuttu máli. Dagskrárlok.
ir. Gestir kvöldsins eru Anna Björns-
dóttir, Ijósmyndafyrirsæta, Magnús
Kjartansson, tónlistarmaður, og hjónin
Svava og Ludvig Storr.
21.15 Þórbergur Þórðarson
Kvikmynd eftir Ósvald Knudsen um
meistara Þórberg og störf hans. Þór-
bergur var um sjötugt þegar myndin
var gerð. Aður á dagskrá í ársbyrjun
1968.
21.40 Húsverkin
Gamansamt sjónvarpsleikrit eftir
Busk Rut Jonsson. Aðalhlutverk Lis
Nilheim, Börje Ahlstedt, Birgitta Val-
berg og Lars Lennartsson. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir. Leikritið fjallar
um stöðu konunnar I þjóðfélaginu og
lýsir fyrstu vikunum f sambúð ungra
hjóna, sem bæði eru hlynnt jafnrétti
kynjanna — á sinn hátt. (Nordvision
— Sænska sjónvarpið)
22.25 Að kvöldi dags
Séra Þorsteinn Björnsson flytur hug-
vekju.
22.35 Dagskrárlok