Morgunblaðið - 01.12.1974, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 01.12.1974, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR 1. DESEMBER 1974 Brjóstsykursnáman eftir ALLAN PREVER Lalli: Ég er ekki feigur. Ég vil allt á mig leggja til að komast sem fyrst heim og borða saltkjöt og baunir. Nú fer ég í kaf. Ef ég kemst í gegnum opið, hjálpa ég ykkur upp úr gryfjunni þegar dimmt er orðið og þorpararnir eru sofnaðir. María: Og þarna hvarf hann. Emil: Sjáið þið hann? Rikki: Já, ég sé dökkan skugga undir vatninu. Hann syndir að opinu. Jói: Nú er hann kominn í opið... nú er allt dimmt.... María: Lýsir ekkert aftur? Rikki: Skyldi hann vera fastur? Jói (áhyggjufullur): Það er enn dimmt. Emil: Hann er fastur. Hvað eigum við þá að gera? Jói: Nei, nei, nú sé ég aftur ljós.... hann er kominn í gegn.... Rikki: Nú verðum við bara að vona, að straumhörð á renni ekki þarna fyrir framan. Jói (reynir að vera hughraustur): Hvaða vit- leysa... það er bara lítill lækur. Emil: Hvað eigum við nú að gera.? Rikki: Við getum ekkert gert.... enginn okkar er svo lítill aö hann geti farið sömu leið og Lalli.... Við verðum bara að bíða. Jói: Lalli finnur einhver ráð. Það er ég viss um. Bráðum komumst við upp úr gryf junni.... vona ég.... □ María: Mikið er hann lengi. Emil: Já, nú hljóta að vera liðnir margir klukku- tímar síðan hann fór. Það er komið kolsvart myrkur. Rikki: Verið þið róleg.... Borri og Amal Gam eru ef til vill ekki enn farnir að sofa. Emil: Nei, ef til vill ekki.... Jói: Þorparar sofa aldrei á næturnar, eins og þið vitið. Þeir fara ekki að sofa eins og venjulegt fólk. Þeir vaka við að telja stolna peninga og þess háttar.... Maria: Ég er svo áhyggjufull.... ef þeir hafa nú séð Lalla og tekið hann til fanga.... Jói: Ég hef engar áhyggjur af bróður mínum... ég þekki hann.... Emil(geispar): Ég er orðinn syfjaður.... Efni: Teiknipappír Litir Skæri Garn Leggið myndina af fuglinum ofan á teiknipappír og hafið kalkipappír á milli. Farið fast ofan í allar línur. Litið síðan fugl- inn og klippið hann út. Síðan skuluð þið fara með oddinum á skær- unum ofan í allar punktalínurnar. Brjót- ið síðan fuglinn eins og sýnt er á minni myndinni. Gerið síðan lítil göt, þar sem merk- in eru, til þess að hægt sé að þræða spotta í, þannig að fuglinn geti hangið eins og sýnt er á myndinni. Endarnir eru tveir og þið bindið þá saman. Hægt er að hengja fuglinn upp í loft sem skraut. Ef hann hangir yfir ofni þá get- ur hann snúist. ffl«&Thorgunlfaffinu Ég hef sofið yfir mig — afsakaðu. Þú getur tekió hattinn ofan núna. Ég kemst ekki til fundar- ins — krakkarnir eru með bílinn og konan tók skóna mína með sér á jólabasarinn. Þetta er ekki herrameg- in, heldur dömumegin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.