Morgunblaðið - 05.12.1974, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1974
Svart og hvftt — mynd frá æfingu. (Ljósm. Mbl. Friðþjófur).
r
Sýningar Islenzka dansflokksins:
Æfingar hafnar á Coppelínu
ANNAÐ kvöld og á sunnudags-
kvöldið verða sýningar ís-
lenzka dansflokksins i Þjóð-
leikhúsinu. Undanfarið eitt og
hálft ár hefur flokkurinn æft
undir stjórn Alan Carters, en
fram til þessa hefur þetta verið
nokkurs konar tilraunastarf,
þar sem fastur dansflokkur
hefur ekki verið starfræktur til
þessa.
Þjóðleikhússtjóri hélt fund
með fréttamönnum nú i vik-
unni. Hann sagði, að nú þegar
væri ljóst, að grundvöllur væri
fyrir slíkum dansflokki hér á
landi. Dansflokkurinn hefur
komið fram á sviði Þjóðleik-
hússins og eins hefur hann far-
ið í sýningarferðir út á land.
Sveinn Einarsson þjóðleikhús-
stjóri sagði, að aðsókn að sýn-
ingunum úti á landi hefði verið
mismunandi, en þó allgóð þegar
á heildina væri litið.
Að þessu sinni sýnir dans-
flokkurinn þrjá balletta, alla
eftir Alan Carter. Tveir þeirra
voru sýndir hér á Listahátíð í
vor. — Höfuðskepnurnar, við
tónlist Askels Mássonar, og Til-
brigði við tónlist eftir Brahms.
Þriðji ballettinn er alveg nýr og
hefur ekki sézt áóur. Hann
nefnist Svart og hvítt, og hefur
Askell Másson samið tónlistina.
Síðast nefndi ballettinn er að
nokkru leyti byggður á negra-
sálmum, og þannig er nafnið
Svart og hvítt tilkomið.
Alan Carter sagðist á stríðsár-
unum hafa dvalizt á Bahama-
eyjum um tveggja ára skeið, og
þá hefði hann haft gott tæki-
færi til að kynna sér dansa
blökkumanna þar, og þessa
þekkingu hefði hann notfært
sér við samningu ballettsins.
I íslenzka dansflokknum eru
átta dansarar, en einnig taka
Framhald á bls. 22
Einn elzti borgari
Reykjavíkur látinn
LATINN ER hér í Reykjavík í þakklætis- og virðingarskyni. —
einn af eldri borgurum höfuð-
borgarinnar, Stefán Guðnason
fyrrum verkstjóri, Bergstaða-
stræti 17. Stefán var 92 ára er
hann lézt, en hann var fæddur
Reykvíkingur, fæddur á Lauga-
vegi 32 f októbermánuði 1882.
Stefán lærði skósmíði á yngri
árum og stundaði þá iðn unz hann
gerðist verkstjóri hjá Reykjavik-
urborg — eða í bæjarvinnunni
eins og það hét i gamla daga. Var
Stefán verkstjóri um áratuga
skeið og hætti ekki fyrr en aldrað-
ur orðinn. Stefán stofnaði í gamla
daga hljómsveitina Hörpu, sem
síðar varð Lúðrasveit Reykja-
víkur, en með henni starfaði hann
um langt árabil og var heiðurs-
félagi hennar. Hann kom einnig
við sögu við stofnun Sinfóníu-
hljómsveitarinnar og einnig þar
var hann gerður að heiðursfélaga
Loks var Stefán heiðursfélagi
Reykvíkingafélagsins.
Tómas er einn eftir hjá
Framkvæmdastofnuninni
TVEIR af þremur fram-
kvæmdastjórum Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins
hafa nú látið af störfum við
Um 300 milljónir greiddar
1 almannabætur fyrir jól
JESCHUA leik-
ur í 4 kirkjum
UM ÞESSAR mundir er stödd hér
á landi kristilega popphljómsveit-
in JESCHUA. Hljómsveitin, sem
flytur kristilegan boðskap með
popphljómlist, hefur náð miklum
vinsældum í heimalandi sínu
meðal ungs fólks. Hér á landi
hefur flutningur af þessu tagi
vakið mikla athygli, og er
skemmst að minnast tónleika
landa þeirra, Choralerna, í Há-
skólabíói fyrir fullu húsi, nú um
daginn. Æskulýðsstarf Þjóðkirkj-
unnar og Félag guðfræðinema við
Háskóla íslands ákváðu því, er
fréttist um komu Jeschua, að taka
höndum saman um fjórar sam-
komur, þar sem hljómsveitin
kæmi fram. Fyrsta samkoman var
í Neskirkju á miðvikudagskvöld.
Aðrir tónlekar eru síðan áform-
aðir kl. 20.30, á fimmtudag í Sel-
fosskirkju, í Bústaóakirkju á
föstudagskvöld, en lokahljóm-
leikarnir verða i Háteigskirkju á
laugardagskvöld. Guðfræðinemar
munu tala á öllum samkomunum,
sem eru öllum heimilar og er að-
gangur ókeypis.
GREIÐSLA almannabóta í
Reykjavík hefst I næstu viku. A
mánudag og þriðjudag 9. og 10.
desember hefst útborgun ellilíf-
eyrisbóta, hinn 11. hefst svo út-
borgun allra annarra bóta en fjöl-
skyldubóta. Hins vegar verður svo
byrjað að borga fjölskyldubætur
með þremur börnum og fleiri
hinn 16. desember, en hinn 18.
með einu og tveimur börnum.
Opið er hjá gjaldkerum
Tryggingastofnunarinnar alla
virka daga frá kl. 9.30 til 3 og á
mánudaginn til kl. 4, en 16.—18.
desember er opið lengur eða til
kl. 5. Siðasti útborgunardagur er
aðfangadagur en þá er opið til kl.
Dræm innheimta
Morgunblaðið spurðist um það
hjá gjaldheimtunni í Reykjavík i
gær hvernig gengi að innheimta
opinber gjöld í höfuðborginni það
sem af væri þessu ári. Að sögn
Guðmundar Vignis gjaldheimtu-
stjóra liggur ekki fyrir nákvæmt
yfirlit um innheimtuna fram að
síðasta mánuði ársins en hins
vegar upplýsti hann að inn-
heimtugjöldin í nóvembermánuði
sl. hefðu numið 538 milljónum
króna, en voru á sama tíma í fyrra
588 millj. kr. Innheimtan er
þannig minni í peningum nú þrátt
fyrir hærri álagningu.
12, en hins vegar veröur ekkert
borgað út milli jóla og nýárs og
byrjar ekki aftur fyrr en á venju-
legum útborgunartíma í janúar.
Nákvæm áætlun um upphæð al-
mannabóta sem nú koma til út-
borgunar liggur ekki fyrir, en til.
samanburðar má geta þess að
1972 komu til greiðslu samtals
195 milljónir kr. í fyrra um 250’
milljónir svo að gizka má á að til
greiðslu nú komi nálægt 300
milljónir króna.
stofnunina, þeir Guðmund-
ur Vigfússon og Bergur
Sigurbjörnsson. Tómas
Árnason situr einn eftir og
gegnir starfi þar til annað
verður ákveðið, en um
þessar mundir er verið að
endurskoða lög Fram-
kvæmdastofnunar, eins og
kveðið er á um í stjórnar-
sáttmálanum. Guðmundur
Vigfússon mun nú hafa
tekið upp fyrri störf hjá
Húsnæðismálastjórn og
Bergur Sigurbjörnsson
mun einnig hafa hug á að
taka upp fyrri störf hjá
Fjórðungssambandi Aust-
urlands.
(Talið frá vinstri). Guðlaug Runólfsdóttir, starfsmaður Mæðrastyrks-
nefndar, Jónína Guðmundsdóttir formaður nefndarinnar og Stefanía
Guðmundsdóttir, sem er í stjórn Mæðrastyrksnefndar.
Jólasöfnun Mæðra-
styrksnefndar hafin
Jólafundur Hvat-
ar verður 1 kvöld
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt
efnir að venju til jólafundar í
desembermánuði, þar sem fólk
hittist og á saman kvöldstund til
að koma sér í jólaskap. Hafa þess-
ir fundir ávallt verið mjög vin-
sælir og vel sóttir, og þótt ómiss-
andi í félagsstarfinu.
Jólafundur Hvatar er i kvöld í
Atthagasal Hótel Sögu og hefst kl.
8.30. Sr. Óskar J. Þorláksson mun
flytja hugvekju. Þá syngur
Magnús Jónsson, óperusöngvari.
Fundargestir leggja svo sitt til
með því að taka lagið og opna
jólapakka, sem verða að venju I
jólahappdrætti. Er búið að safna
miklu af pökkum og pakka í jóla-
umbúðir og búa til skreytingar
með kertaljósum.
Mæðrastyrksnefndin í Reykja-
vfk hefur nú hafið jólasöfnun
sfna, og hafa samskotalistar þegar
verið sendir út til fyrirtækja.
Þótt almenningur hafi rúm
peningaráð, er þó ávallt hópur
samborgara okkar, sem þar
verður útundan, gamlar konur,
einstæðar mæður og heimili, sem
veikindi eða önnur ógæfa steðjar
að.
Mæðrastyrksnefnd væntir þess,
að Reykvíkingar muni nú, eins og
um fjöldamörg undanfarin ár,
minnast þessa hóps með framlög-
um í jólasöfnunina, og þakkar
Framhald á bls. 22
37 hross og
7 hundar
9
með Iscargo
til Hollands
ENGIR fiskflutningar hafa farið
fram á vegum Iscargó til Belgfu
undanfarið. Hefur verið talið ráð-
legt að bíða Htið eitt átekta þar til
markaðsaðstæður batna og taka
upp þráðinn að nýju eftir ára-
mótin.
Hins vegar hafa verið næg verk-
efni í loftflutningum, að sögn Is-
cargómanna. Þannig fór i gær
flugvél utan með 37 hross frá
Sambandinu og það sem meiri
tiðindum sætir — 7 hunda, þar af
tvo hreinræktaða af íslenzku
hundakyni. Áfangastaður vélar-
innar var Holland, þar sem kaup-
Framhald á bls. 22
Geir til Stokkhólms
Morgunblaðinu barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
forsætisráðuneytinu:
Geir Hallgrímsson forsætisráð-
herra fór til Stokkhólms f morg-
un. Ráðherrann mun þar stjórna
fundi samstarfsráðherra um
Norðurlandamálefni. A dagskrá
fundarins verður m.a. undir-
búningur Norðurlandaráðsfund-
ar f Reykjavík f febrúar n.k. For-
sætisráðherra kemur aftur frá
Stokkhólmi um næstu helgi.
Neitar að svara...
MORGUNBLAÐIÐ hafði samband við Njörð P. Njarðvík, for-
mann útvarpsráðs, og innti hann eftir forsendum ákvörðunar
útvarpsráðs um að hafna beiðni kirkjuráðs um helgistundir f
útvarpinu.
Njörður sagði að ekki þýddi að spyrja sig, hann svaraði ekki
vegna þess að hann treysti ekki Morgunblaðinu. „Það þýðir ekki
að svívirða mann annan daginn og óska samvinnu hinn daginn,"
sagði hann. Blaðamaðurinn bauð honum að það væri sjálfsagt að
lesa fyrir hann það, sem hann vildi segja þannig að ekkert færi á
milli mála, en formaður útvarpsráðs vildi engar upplýsingar gefa
um þessa ákvörðun hins opinbera ráðs sfns.