Morgunblaðið - 05.12.1974, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.12.1974, Blaðsíða 40
Konson ^öffí seíS vermir RONSON FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1974 Geirfinnsmálið: Hinir eftirlýstu gáfu sig ekki fram HVORUGUR mannanna, sem auglýst var eftir f gær f sambandi við Geirfinnsmálið, hafði gefið sig fram þegar Mbl. hafði sam- band við Hauk Guðmundsson, rannsðknarlögreglumann f Kefla- vfk, í gærkvöldi. Verður nú farið að grennslast eftir þeim, m.a. verður reynt að hafa upp á Fiat- bflnum með G-númeri, sem annar mannanna var á þegar hann kom á smurstöð á Akureyri í fyrri viku. Stöðugt er unnið að könnun á háttum þeirra manna, sem fólk hefur bent á f sambandi við sfm- hringinguna úr Hafnarbúð kvöldið sem Geirfinnur hvarf. Hefur Keflavfkurlögreglan fengið sérstaka aðstöðu f lögreglustöðinni f Reykjavík, og þar unnu fjórir menn að rann- sókn málsins f gær, þrfr úr Kefla- vfk og einn úr Reykjavík. Jafn- framt hefur rannsóknarlögreglan í Reykjavfk haldið áfram rann- sókn. Þá hefur Skarphéðinn Njáls- son, lögreglumaður úr Keflavík, unnið að rannsókn málsins uppi við Sigöldu. Hefur hann yfirheyrt mjög marga aðila og margt fróð- legt komið fram í þvi, sem kannað verður nánar. Hann hefur m.a. sent til Reykjavíkur myndir af nokkrum mönnum sem ástæða þykir til að kanna nánar. Var von á Skarphéðni frá Sigöldu í gær- kvöldi. Haukur Guðmundsson bað Mbl. að ítreka, að menn þeir, sem auglýst var eftir í gær vegna Geir- finnsmálsins, þ.e. sá sem Geir- finnur ræddi við í veitingahúsinu Klúbbnum sunnudagskvöldið áður en hann hvarf, og sá sem kom á smurstöðina á Akureyri, gefi sig tafarlaust fram. Eins og gjarnan vill verða í sam- bandi við svona mál, hafa margs konar kjaftasögur komizt á kreik. Venjulega hafa slikar sögur reynzt uppspuni einn, og svo mun vera í þessu tilfelli. Lögreglan vill sérstaklega vara fólk við að leggja trúnað á allan söguburð í sam- bandi við þetta mál. V-Þjóðverjar valdir að veið- arfæratjóni ÞRÍR bátar urðu fyrir tölu- verðu veiðarfæratjóni af völdum v-þýzkra togara út af Suðvesturlandi í vikunni. Bátarnir höfðu lagt net sín og fóru aðfaranótt þriðjudagsins að vitja um þau. Kom þá í ljós að töluvert var búið að um- turna þeim og þegar betur var að gætt kom í ljós að vb. Gríms- eyingur frá Grindavík hafði misst tvær trossur, Hagbarður frá Keflavík eina og Ljósfari hálfa trossu. Að sögn forráða- manns Grímseyings voru tross- urnar kyrfilega merktar, t.d. með ljósum. Um fimm v-þýzkir togarar voru þarna í nágrenn- inu, og þarf ekki að vera nema einn togarinn hafi togað í gegnum trossurnar til að valda þeim spjöllum sem urðu. Uppvöðslusam- ir unglingar LÖGREGLUNNI hafa sfðustu daga borizt margar kvartanir vegna uppvöðslusemi unglinga á götum. Mikið er um að unglingarnir hangi aftan í bílum eftir að snjórinn kom og jafnvel svo margir í einu að bllarnir komast ekkert áfram I hálkunni. Að sögn lögreglunnar í Kópa- vogi hefur hún þurft að hafa sér- stakan lögreglubíl i því að hafa eftirlit með unglingum á götum í kringum Þinghólsskóla, sérstak- lega þó á Kópavogsbrautinni. Þar sitja þeir um bílana og einkum Framhald á bls. 22 Brutu flöskur á höfði húsráðenda MAÐUR nokkur, sem var á leið heim til sfn s.l. mánudagskvöld, nokkuð við skál, bauð inn til sín tveimur mönnum sem hann hitti á ferð sinni. Þágu þeir heimboðið í kjallaraíbúð mannsins, sem er í vesturborginni. Menn þessir voru líka eitthvað við skál. Seinna um kvöldið slettist eitthvað upp á vin- skapinn, og varð endirínn sá, að gestirnir brutu tvær stórar rauð- vínsflöskur á höfði húsráðanda og skildu hann þannig eftir vankað- an eftir höggin og auk þess blóðugan og skorinn á höfði eftir glerbrotin. Hafði hann samband við rannsóknarlögregluna, sem fljótlega hafði upp á mönnunum. Viðurkenndu þeir brot sitt. Engu munu þeir hafa stolið úr íbúð mannsins. Loksins er snjórinn kotninn fyrir alvöru, og þá eru krakkarnir ekki lengi að fara á kreik. Von bráðar höfðu þeir fylkt sér á Arnarhólinn og brunuðu á snjóþotum sínum niður hallann. (Ljósm. Mbl. Emilía) Stj órnarfrumvarp um nýtt útvarpsráð LAGT hefur verið fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á útvarpslög- um (nr. 19/4.971). Megin- efni frumvarpsins er að út- varpsráð skuli skipað 7 mönnum koshum hlutfalls- kosningum á Alþingi eftir hverjar alþingiskosningar. Menntamálaráðherra skal skipa formann og varafor- mann úr hópi kjörinna út- varpsráðsmanna. Útvarps- stjóri skal eiga sæti á fund- um ráðsins með málfrelsi og tillögurétti. 1 gildandi útvarpslögum frá árinu 1971 er mælt fyrir um, að útvarpsráð skuli kosið á fjögurra ára fresti. Þar áður voru laga- ákvæði á þá lund, sem nú er lagt til að verði. Með því er tryggt að skipan út- varpsráðs, sem ber að gæta fyllstu óhlutdrægni, verði jafnan í samræmi við skip- an Alþingis. Sótt um heimild til smíði 4ra skuttogara í Póllandi RlKISSTJÓRNIN hefur fengið umsókn frá fimm útgerðarfyrirtækjum um heimild til að láta smíða fjóra skuttogara í Póllandi. Þessir togarar verða minni en þeir sem hingað til hafa verið smíðaðir fyrir ís- Fjárhagsáætlun fyrir Reykjavík- urborg árið 1975 hækkar um 52% FRUMVARP að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 1975 verður tekið til fyrstu um- ræðu á fundi borgarstjórnar í dag. Niðurstöðutölur frumvarps- ins eru 5,9 milljarðar króna, en niðurstöðutölur f járhagsáætlunar fyrir árið 1974 voru 3,8 milljarðar króna. Rekstrargjöld eru áætluð samkvæmt frumvarpinu 3,9 milljarðar króna, en voru 2,7 milljarðar á fjárhagsáætlun þessa árs. Framlög til verklegra framkvæmda eru áætluð 1,9 milljarðar króna, en voru hins vegar á fjárhagsáætlun þessa árs 1,1 milljarður króna. Útsvarstekjur Reykjavfkur- borgar eru áætlaðar 3.199 millj. kr. á næsta ári en voru 1.906 millj. kr. i fjárhagsáætlun þessa árs. Reiknað er með 10% aukaálagi á útsvör þannig að útsvarsálagið verði 11% i stað 10%. Tekjur af fasteignagjöldum eru áæltaðar 770 millj. kr. Gert er ráð fyrir að aðstöðugjaldið gefi 802 millj. kr. og tekjur úr Jöfnunarsjóði sveit- arfélaga nemi 591 millj. kr. Stærsti hluti rekstrafgjalda fer til gatnagerðar eða 1.172 millj. króna. Næst stærsti gjaldaliður- inn eru félagsmálin, en til þeirra er ráðgert að verja 894 millj. kr. Til fræðslumála er ráðgert aó verja 690 millj. kr. og til heil- brigðis- og hreinlætismála 401 millj. kr. Til listastarfsemi, iþrótta og útivistarmálefna er ráð- gert að verja 350 millj. kr. Stjórn borgarinnar mun samkvæmt áætl- uninni kosta 185 millj. kr. Niðurstöðutölur frumvarpsins hækka um rúmlega 50% frá fjár- hagsáætlun þessa árs. Samkvæmt áætluninni munu útsvör hækka um 67%, fasteignagjöld um 28% og aðstöðugjöld um rúm 50%. Af gjaldaliðum hækka fræðslumál um tæplega 50%, félagsmál um tæp 45%, gatnagerð um 35% og stjórn borgarinnar um 27 %. lenzka aöila í Póllandi eða um 450 brúttótonn að stærð. Matthías Bjarnason sjávarút- vegsráóherra staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið í gær og kvað hann fyrirtækin fimm — Krossvik á Akranesi, Hraðfrysti- hús Stokkseyrar, Barða hf. í Kópavogi og Miðnes hf. í Sand- gerði og Keflavik hf., sem ætla að láta smíða einn togarann i sam- einingu — nýlega hafa gert samn- ingsdrög við Pólverja um smíði þessara fjögurra togara og sent þau ríkisstjórninni til athugunar. Liggur málið nú hjá lánsfjárstofn- unum til frekari umsagnar. Morgunblaðið hafði tal af ein- um forráðamanna ofangreindra útgerðarfyrirtækja til að spyrjast fyrir um kostnað við smíði tog- aranna en hann kvaðst ekki geta skýrt frá honum á þessu stigi, en fullyrti þó að verðið væri mun lægra en ef þeir hefðu verið smið- aðir hjá innlendum skipasmíða- stöðvum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.