Morgunblaðið - 05.12.1974, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.12.1974, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1974 Varnarmálaumræður á Alþingi: „Þjóðarsamstaða i utanríkis- og öryggismálum nauðsynleg’ ’ MORGUNBLAÐIÐ skýrdi I gær frá varnarmálaumræðuni í sam- einuðu þingi, sl. þriðjudag. Hér verður lauslega rakinn efnisþráð- ur í málflutningi ræðumanna, er kvöddu sér hljóðs, eftir framsögu utanrikisráðherra. Gils Guðmundsson (K) þakkaði utanríkisráðherra það að gefa Al- þingi kost á að sjá og ræða samn- inginn um framkvæmd varnar- samstarfsins. Það væri, þvi miður, það eina, sem hægt væri að þakka ráðherranum á þessum vettvangi. Ræðumaður gat þess, að afstaða Sjálfstæðisflokksins í þessu máli hefði legið ljós fyrir, bæði fyrir og eftir siðustu Alþingiskosningar. Hann hefði staðið í þeirrí mein- ingu, að stefna og markmið Fram- sóknarflokksins væru heldur eng- um vafa undirorpin. Nú væri hinsvegar á daginn komið, að Framsóknarfl. hefði í raun ekki einungis fallizt á stefnu Sjálf- stæðisflokksins, heldur beinlínis tekið að sér að framkvæmda’ hana. Ræðumaður rakti siðan í ítar- legu máli þróun varnarsamstarfs- ins frá öndverðu, þ.á m. sam- þvkktir flokksþinga Framsóknar- flokksins, ákvæði í stjórnarsátt- mála vinsti stjórnarinnarog með- ferð utanríkisráóherra, þáverandi og núverandi ríkisstjórnar, á þeim sáttmála og þeirri stefnu- mörkun. Taldi hann Alþýðu- bandalagið hafa fallizt á áfanga- fækkun varnarliðsins til sam- komulags við Framsóknarflokk- inn, og treyst því, að samstarfs- flokkurinn væri heill og trúr sin- um eigin, yfirlýstu markmiðum. Staðreyndin hefði önnur orðið. Hægri öfl i Framsóknarflokkn- um, sem hefðu hliðstæð sjónar- mið og Sjálfstæðisflokkurinn í þessum efnum, hefðu ráðið ferð- inni, brigðum á heitum vinstri stjórnar og síðan nýju stjórnar- samstarfi. Gils fjallaði um samskiptí og sambúð sveitarfélaga á Reykja- nesi við vararliðið. Taldi hann, að þau hefðu sýnt meiri styrk, menn- ingarlega og atvinnulega, í þeirri sambúð og samkeppni, en flestir rerðu sér rrcin fvrir. Hann ræddi þjóðernisleg, menningarleg og atvinnuleg vandamál, sem sambúðin skapaði, siðferðilega hnignum og þá hættu á annarlegum áhrifum á þjóðlífið, sem langverandi „herseta" hefði í för mr með sér. Hann sagðist ótt- ast, að samkomulag það, sem hér lægi fyrir til umræðu byggi í hag- inn fyrir frambúðardvöl banda- riska herliðsins i landinu. Benedikt Gröndal (A) sagði Al- þýðuflokkinn fylgjandi aðild Is- lands að Atlantshafsbandalaginu. Flokkurinn hefði stutt komu varnarliðsins til íslands á sínum tima. 1 grundvallaratriðum fylgdi flokkurinn óbreyttri afstöðu enn. Ekki væri tímabært, að varnarlið- ið hyrfi nú allt úr landi. Hinsveg- ar þyrfti að endurmeta aðstæður allar í ljósi nýrra viðhorfa. Eðli- legt væri að fækka í varnarliðinu, eins og nú væri stefnt að, og að Islendingar tækju að hluta við eftirlitsstörfum á þessum vett- vangi. Benedikt rakti úrslit síð- ustu kosninga, þar sem m.a. hefði verið kosið um varnarmál. Urslit- in hefðu verið þau, að ekki hefði verið þingfylgi til að framfylgja fyrri ákvörðun um brottför hers- ins, né algjörlega gagnstæðum sjónarmiðum. Hér væri farin eðli- leg millijeið. Og væri Alþýðu- flokkurinn sammála samnings- uppkastinu, svo langt sem það næði. Hins vegar hefðu sum efnis- atriði þess mátt vera skýrar orð- uð. Magnús Torfi Olafsson (SFV) minnti á ákvæði varnarsamnings frá 1951, um skýlausan ákvörð- unarrétt Islendinga, og að erlend- ur her skyldi ekki dvelja hér á frióartímum. Engu að siður hefði herinn setið samfellt yfir 20 ár frá þessari samningsgerð. Stjórnar- sáttmálinn frá 1971 hefði stefnt að því að gera að veruleika fyrir- heitin um herlaust land á friðar- tímum. Hinsvegar hefði þessum ákvæðum stjórnarsáttmálans aldrei verið hrundið í fram- kvæmd. Eftir síðustu Alþingis- kosningar hefðu styrkleikahlut- föll á þingi breytzt, þó myndun nýrrar vinstri stjórnarhefði raun ar ekki verið fullreynd. Sam- komulag það, sem hér lægi fyrir, miðaði máske eilítið, eins og hænufet, í rétt átt. Hinsvegar væru í því viðsjárverð atriði, m.a. fjárhagslegs eðlis. Og orðalag loð- ið og fyrirvarar margir. Þá gerði MTÓ grein fyrir samþykktum og afstöðu landsfundar SFV til þessa máls. Kjartan Olafsson (K) þræddi i máli sínu troðna slóð Gils Guðmundssonar. Hann minnti á, að Alþýðuflokkurinn (þingflokk- urinn) hefði lýst fullum stuðningi við Varið land. Kjartan gat þess, að íbúðar- byggingar, sem fyrirhugaðar væru á vellinum, samsvöruðu nýj- um 2000 íbúa kaupstað. Kostnað- ur við nýja flugstöð næmi um 5000 m. kr. og fjárfestingarkostn- aður nýrra íiamkvæmda alls naumast undir 7000 m. kr. Það væri 16 sinnum hærri fjár- hæð en aukning á fjárráðum Byggðasjóðs Þá ræddi K. 0. um sjónvarps- málið (Keflavikursjónvarpið), sambúð risavcldanna, valdajafn- vægi, umræður í öldungadeild Bandarikjaþings um fækkun her- liðs utan landamæra Bandaríkj- anna o.fl. Kjartan lauk máli sinu með því að fullyrða, að Fram- sóknarfl. hefði ekki umboð kjós- enda sinna til að ganga erinda Sjálfstæðisflokksins í þessu efni. Geir Hallgrimsson (S) sagði umræður þessar hafa fremur snú- izt um uppgjör samstarfsflokka í fyrri ríkisstjórn en um efnisatriði samkomulagsins, er á dagskrá væri. Hann vék fyrst að ábend- ingum um, að orðalag samkomu- lagsins væri óljóst. Þetta sam- komulag væri um framkvæmd samnings, sem væri mjög skýrt og ótvírætt orðaður. Réttur íslend- inga til einhliða ákvörðunar í þessu efni, hvers eðlis sem væri, væri hafinn yfir allan vafa. Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar- innar, sem og samkomulag þetta, væri í þágu öryggishagsmuna Is- lands, og í samræmi við þann þjóðarmeirihluta, sem í ljós hefði komið í síðustu Alþingiskosn- ingum. Eðlilegt væri að Alþingi nú hefði hliðstæða afstöðu til málsins, þar eð þingið væri á hverjum tima spegilmynd af þjóðarviljanum, eins og vera bæri i lýðfrjálsu landi. Meginatriðin i breyttri fram- kvæmd varnarsamningsins, sem gilti áfram óbreyttur, enda horfið frá endurskoðun hans, væru þrjú: Aðskilnaður farþegaflugs á Kefla- víkurflugvelli frá varnarstarf- seminni sjálfri, aukinn þátttaka Islandinga sjálfra í eftirlits- störfunum og búsetuskilyrði um dvöl varnarliðsmanna innan vallarsvæðisins. Stjórnar- flokkarnir eru sammála um, aó þessar breytingar horfi til bóta um framkvæmd varnarsamnings- ins. Forsætisráðherra lagði áherzlu á, að þær framkvæmdir, sem breyttri framkvæmd samn- ingsins fylgdu, yrðu með þeim hætti, að sem minnst áhrif hefðu á efnahagslíf þjóðarinnar og vinnuaflsþörf atvinnuvega okkar. Framkvæmdirnar og aukin aðild Islendingá í gæzlustarfinu yrðu að vera með þeim hætti, að ekki kæmi i bág við þarfir atvinnu- greina sjávarútvegsins í næsta ná- grenni, þ.e. á Reykjanesi. Þá sagði forsætisráðherra: 1 stefnuyfirlýsingu ríkisstj. kemur fram það markmið, að Keflavikurstöðin geti gegnt hlut- verki sínu í samræmi við öryggis- hagsmuni tslands á hverjum tíma. I kosningastefnuskrá sjálf- stæðismanna í utanríkis- og varnarmálum var það tekið fram, að eitt af meginhlutverkum ríkis- stj. væri að gera þjóðinni á hverjum tíma rækilega grein fyrir þvi, hvaða ytri atvik ráði mestu um öryggishagsmuni hennar. Ég tel, að með samkomu- lagi þvi, sem nú er gert við Banda- ríkjastjórn, hafi skapazt grund- völlur fyrir þvi, að stöðug athug- un á varnar- og öryggishags- munum landsins geti farið fram innan ramma varnarsamningsins, og þannig sé unnt að breyta fyrir- komulagi varna á hverjum tíma, eins og bezt samrýmist hags- munum Islendinga. En auk þess er það skylda stjórnvalda og ég tel það skyldu núverandi ríkisstj. að fylgjast svo með atburðarás og viðhorfum á alþjóðavettvangi, að unnt sé að hafa þessi mál öll i stöðugri endurskoðun og breyta um ýmislegt i framkvæmd varnarsamningsins, þegar ástæða þykir til. Ef við leiðum hugann að því, hvað það er, sem við Islend- ingar þurfum að kanna í þessu sambandi sérstaklega, þá hygg ég, að það fari ekki á milli mála, að það sé fyrst og fremst, að við verðum að fylgjast með umferð umhverfis landið. Við verðum að vita um það, hverjir fara um okkar næsta nágrenni. 1 þessu sambandi er ómetanlegt það starf, sem rekið er frá Keflavíkurflug- velli af Atlantshafsbandalaginu. Við getum ekki gert okkur grein fyrir þvi, Islendingar, hvaða hætt- ur steðja að öryggi okkar, ef við höfum ekki fullkomnar upplýs- ingar og yfirlit yfir þá og þau tæki, sem eru á ferð og á sveimi umhverfis okkar land. Þá hlýtur það og að vera skylda okkar að fylgjast svo með alþjóða- stjórnmálum, að við gerum okkur grein fyrir því, hvort á hverjum tíma sé um hættuástar.d að ræða eða ekki. Ráðherrann endaði ræðu sína á þessum orðum: Ég vil svo að lokum, herra for- seti, leggja áherzlu á það, sem hér hefur verið á minnzt, að það er Geir Hallgrfmsson, forsætisráð- herra, Gils Guðmundsson, alþingis- maður, helzti andmælandi sam- komulagsins f varnarmálum. Einar Agústsson utanrfkisráð- herra. AIÞinCI nauðsyn að Islendingar reyni eftir fremsta megni að ná sem mestri samstöðu í meðferð utan- ríkismála sinna. Það á ekki að nota utanrikismálin sem tæki eða vopn i baráttu flokkanna innan- lands. Vió eigum að hefja okkur upp yfir það að gera utanríkis- málin á ábyrgðarlausan hátt að bitbeini i innanríkismálabaráttu okkar. Þegar við leitum sem við- tækastrar samstöðu meðal þjóðar- innar þá held ég, að það fari ekkí að milli mála, að takmarkið hljóti að vera að vernda sjálfstæði og öryggi landsins. Hér á Alþingi eru fulltrúar 5 stjórnmálaflokka. Ég hygg, að það sé hægt að segja, að þrír þeirra hafi skýra og ákveðna afstöðu til þess að þátttaka í varnarbandalagi Atlantshafsríkj- anna sé Islendingum nauðsynleg. Og jafnvel mun hluti fjórða stjórnmálaflokksins vera sömu skoðunar, það er aðeins einn stjórnmálaflokkur hér á Alþingi Islendinga, sem telur það ekki þjóna sjálfstæðishagsmunum Is- lendinga. I þessum efnum er því mjög víðtæk samstaða meðal Is- lendinga, hvað snertir þátttökuna í Atiantshafsbandalaginu. Og ég hygg, að varðandi spurninguna um dvöl varnarliðs á Islandi, þá sé einnig töluverð samstaða meðal þessara flokka. Við teljum eðlilegt og sjálfsagt, að hér séu varnir í landinu fyrst um sinn, en leiður munu að einhverju leyti skilja, þegar meta á viðhorfin i alþjóðastjórnmálum að þessu leyti, hve miklar varnirnar skulu vera, hve víðtæk varnar- og eftir- litsstöð skuli vera, sem héðan er rekin og hvernig vörnunum skuli háttað. Vió skulum fremur leita samstöðu að þessu leyti, þessir 3 stjórnmálaflokkar og jafnvel 4 stjórnmálaflokkar,. sem hér eiga fulltrúa á Alþingi, heldur en gera mikið úr því, sem kann að skilja á milli okkar i einstaka túlkunar- atriðum eða matsatriðum á þessu sviði. Á þessum grundvelli hygg ég, að unnt sé að ná víðtækri þjóðarsamstöðu í varnar- og öryggismálum, sem er skilyrði fyrir því, að við getum tryggt sjálfstæði okkar í framtíðinni. Steingrimur Hermannsson (F) ítrekaði að stefna Framsóknar- flokksins í þessum efnum væri óbreytt. Framsóknarflokkurinn vildi vinsamleg samskipti við allar þjóir, ekki sízt hinar vest- rænu, sem við ættum nánust menningar- og viðskiptatengsl við. Afstaða Framsóknarflokksins til NATO væri og skýr og ljós. Starfsemi þess hefði færzt út á fleiri svið en varnarmálanna einna, sem okkur væri hagkvæmt að eiga aðild að. Hinsvegar vildi flokkurinn ekki hafa hér her á friðartimum. Erfitt væri að vísu að skilgreina, hvað væru friðar- tímar, en að sínu mati væru þó aðstæður slíkar nú, að friðartímar teldust. Hann fór nokkrum orðum um „kafbátaeftirlit" héðan, sem virt- ist vestrænum þjóðum mjög þýð- ingarmikið og gerði „Keflavíkur- stöðina ef til vill — ég veit það ekki gjörla — nær ómissandi fyrir vestrænt varnarsamstarf". Steingrímur taldi samninginn áfanga að settu marki um brott för hersins, sem hér ætti ekki að vera á skýlausum friðartimum. Einar Ágústsson, utanrikisráð- herra, talaði siðastur í um- ræðunni. Hann sagði Fram- sóknarflokkinn einhuga um aðild að NATO. Hinsvegar vildi flokkurinn ekki hafa hér her á friðartímum. Þessi stefna væri óbreytt og þetta samkomulag spor í þá átt. Ráðherrann gerði grein fyrir stefnuyfirlýsingu núverandi stjórnar í þessu efni „öryggi landsins skyldi tryggt með aðild að Atlantshafsbandalaginu og haft yrði sérstakt samstarf við Bandaríkin meðan hér væri starf- rækt varnar- og eftirlitsstöð á vegum bandalagsins." Síðan ræddi ráðherrann um efnisatriði samkomulagsins nú og breytta skipan á framkvæmd varnar- samningsins frá 1951, sem ekki hefði verió sagt upp né breytt á nokkurn hátt. Hann las upp bréfaskriftir milli sín og Bandarikjamanna hér að lútandi, þar sem m.a. segir: „Ríkisstjórnir okkar eru sám- mála um að núverandi ástand heimsmála svo og öryggismála Is- lands og þeirra ríkja, sem aðíld eiga að Atlantshafsbandalaginu, sé þannig háttað, að enn sé þörf fyrir aðstöðu, sem varnarliðið á Islandi hefur notið samkvæmt ákvæðum samningsins, á þann hátt, sem báóir aðilar geta sætt sig við.“ Þá ræddi ráðherrann um, að samkomulag um breytta fram- kvæmd varnarsamningsins fæli ekki i sér neinar breytingar á samningnum sjálfum, og því hefði ekki verið þörf á að leggja málið sérstaklega fyrir Alþingi. Hann ræddi og um ákvæði bókun- ar um samstarf, sem nauðsynlegt væri, vegna aðskilnaðar flugs og varnarstarfa á vellinum, þátttöku íslendinga í eftirlitsstörfum og annarra breytinga á framkvæmd samningsins. I lok máls síns sagði ráðherr- ann, að hér væri um frestun en ekki fráhvarf á markaðri stefnu flokks sins um brottför varnar- liðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.