Morgunblaðið - 05.12.1974, Side 11

Morgunblaðið - 05.12.1974, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1974 11 5KU6GSJÁ » PETER FREUCHEN 'XWAíAa. ■ m IHW Ódýrar, skemmtilegar og f róðlegar bækur FAÐIR MINN Faðir minn — Læknirinn Bjarni Jensson — Skúli Árnason — Sigurður Magnússon — Guðmundur Hannesson — Ólafur Finsen — Ólafur Thorlacius — Ingólfur Gíslason — Þórður Sveinsson — Matthías Einarsson — Olafur O. Lárusson — Guðmundur Thoroddsen — Helgi Tómasson — Har- aldur Jónsson — Gísli Pálsson. — Lesið þessa skemmti- legu læknabók Þeir urðu margir þjóðsagnapersónur þegar i lifanda lífi, þessir læknar Jakobína Sigurðardóttir: Lifandi vatnið Skáldsagan, sem mun verða talin skáldsaga ársins 1 974. Gnæfandi tindur á skáldskaparferli höfundarins, bók, sem enginn unnandi Islenzks skáldskapar getur látið fram hjá sér fara ólesna. — Svona er hægt að skrifa ef maður kann til þess. JAKOBlNA sigurdardOttir x*xx*j».nrr>x VAI.GEÍR SIGLRDSSON £ Valgeir Sigurðsson: Ef liðsinnt ég gæti Fimmtán viðtöl við landskunna menn og aðra minna þekkta. „Stundum leitaði ég eftir æviatriðum manna og lýsingu á horfinni tíð. . . Sumir ræddu um tómstunda- vinnu sina og hugðarefni, aðrir töluðu um vandamál og viðfangsefni líðandi stundar. Hér er jafnvel sagt frá visindalegri starfsemi", segir höfundurinn í formála. — Þessi bók eykur viðsýni og skilning. hún er stórfróðleg og skemmtileg RAG N H E I Ð U R BRY NJÓL F S DÓTTI R FRA MIÐILSSAM8AN01 GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR Ragnheiður Brynjólfsdóttir II. bindi Frá miðilssambandi Guðrúnar Sigurðardóttur frá Akureyri Bókin um Ragnheiði Brynjólfsdóttur varð metsölubók slðasta árs þrátt fyrir óvenjulegt og ósmekklegt níð ákveðins ritdómara. Síðara bindið er að allra dómi enn skemmtilegra en hið fyrra og sala þess stefnir beint á tindinn. — Hefur þú eignast slðara bindið af Ragnheiði? Ef ekki, þá frestaðu ekki að kaupa þessa óvenjulegu bók, hún gæti hæglega selst upp fyrir jólin. Elínborg Lárusdóttir: Leit mín að framlífi Fjölþættar frásagnir af dulrænni reynslu höfundarins, sýnum hennar og dulheyrn. Hér segir einnig frá óvenju- legri reynslu hennar á sérstæðum miðilsfundum, fágætri trúarvissu og staðfastri sannfæringu um fagurt framlíf að jarðvist lokinni. Þetta er fögur bók og einlæg frásögn mikillar trúkonu. Ragnar Ásgeirsson: LEITMIN Afl. FRAMLIFI ELÍNBORG LARUSDOTTIR mm Skrudda I—III Nú er lokabindið af Skruddu komið, fjölbreytt að efni og skemmtilegt. Skrudda geymir sögur, sagnir og kveðskap úr öllum sýslum landsins. skráðar á fögru máli, þvl Ragnar var smekkmaður á Islenzkt mál, sjófróður og skemmtilegur sögumaður. í þessu bindi er bókarauki: bernskuminningar Ragnars vestan af Mýrum, sýnishorn af Ijóðabréfum hans og lausavlsum og ritgerð um Ragnar eftir Guðmund Jósafatsson frá Brandsstöðum, auk Itar- legrar nafnaskrár yfir öll bindin. J X ÚLFAR POHMÓDSSON / ÁKÆRAN SÚKNARNEFNOIN GEGN . SÉRA / PÁLI Sigvaldi Hjálmarsson: INGÖLFUR JÓNSSONÍ FRÁ PRESTSBAKKA Jón Gíslason: Úrfarvegi aldanna II Hér er sagt frá fyrirhleðslunni miklu á Brúnastaðaflötum og koma þar margir merkir og stórhuga menn við sögu, en hæst ber nafn Gísla búfræðings Gislasonar frá Bitru, sem gerði áætlun um verkið og stjórnaði því. Sagt er frá byggingu Þjórsárbrúarinnar, gagnmerkum áfanga í sam- göngumálum þjóðarinnar, þáttur er um loðnusilungirin í Ulfsvatni og annar um kálfinn í Gegnishólum og eru þeir báðir sérstæðir og furðulegir Loks er frásogn af spá- dómsgáfu fugla og eggjasöfnun Peter Freuchen: Æskuár mín á Grænlandi Ný og vönduð þýðing Andrésar Kristjánssonar fyrrum ritstjóra. Þessar Grænlandsminningar Freuchens eru meðal skemmtilegustu ferðaminninga, sem skráðar hafa verið. Þeir, sem ekki hafa kynnst frásagnarsnilld hans og sérstæðri og djarfri kimnigáfu og eiga þessa bók ólesna, eru öfundsverðir, þvf bókin er I einu orði sagt: óviðjafnan- leg. AST OC ATTAR80ND, Theresa Charles: Ást og ættarbönd Roberta var orðin liðlega tvítug þegar Maynie sagði henni söguna af ógnum Kelpiesloch og því, hvernig hún rændi henni sem ungu barni og hratt barnavagm hennar út í vatnið Hún var að hefna sin á gamla jarlinum og konunni, sem hafði náð eiginmanni hennar frá henni. En yrði sögu Robertu trúað, þegar hún kom sem væntan legur erfingi, eða gat hún átt von á að vetða næsta fórnarlamb vatnsins? — Æsispennandi ástarsaga íslendinga sögur með nútíma stafsetningu Nú eru allar íslendinga sögur og þættir komnar út i 8 bindum á þvi máli, sem við ritum og tölum i dag. Er þetta eina heildarútgáfa sagnanna á nútímamáli og geta þvi allir íslendingar, jafnt ungir sem aldnir, notið sagnanna til fulls ...ritháttur skiptir i raun og veru máli — það fer ekki hjá þvi að hinn gamli, samræmdi ritháttur var fráhrind andi að ýmsu leyti, ekki sizt ungu fólki", segir Arni Bergmann i ritdómi. Hér kveður við nýjan tón I sagnasöfnun, margar sögurnar eru sérstæðar og óvenjulegar og sumar meinfyndnar. Höfundur hefur vlða leitað fanga, mest þó meðal alþýðu- fólks, en helztu sögumenn hans eru Steinunn Guðmunds- dóttir á Stóru-Hvalsá I Hrútafirði, Ingibjörg Guðmunds- dóttir á Efri-Brunná I Dalasýslu og Jón Guðlaugsson á Vopnafirði. Tunglskin í trjánum Enginn íslendingur þekkir Indland og Indverja eins og Sigvaldi, sem hefur ferðast um landið þvert og endilangt, rölt um þorp og byggðir, rætt við krakka og karla, helga menn og vitringa, hlýtt á skarkala stórborgarllfsins og gefið sig þögninni á vald með hinum þöglu. Þetta er heillandi ferðabók, sem opnar sýn inn í töfrandi undra- heim. Úlfar Þormóðsson: Ákæran. Sóknarnefndin gegn séra Páli Barbara Cartland Týndir töfrar j skóginum hjá sveitarsetri slnu hittir Alton lávarður unga konu. Hún er fögur og leyndardómsf ull og neitar að skýra frá hver hún er. En þegar hún trúir honum fyrir þvi að hún sé skyggn, biður hann hana að Ifta inn I framtlðina fyrir sig. Hún segir honum að kona muni leggja fyrir hann snöru. að hann eigi að leita að persónu. sem hann finni ekki og að framundan sé myrkur og blóð, — mikið blóð. . . — Saga full af leyndardómum og spennu. FARSÆLDAR RÍKIÐOG MANNGILDIS KristiánFriAiksson Ingólfur Jónsson frá Prestsbakka: Þjóðlegar sagnir IÓK GÍSLASON ® ÚR blajr-veigh „Ákæran getur minnt á Kristnihald undir Jökli: biskup I Reykjavlk, prestur I þorpi úti á landi. Frásagnaraðferðin er hins vegar nær Gunnari og Kjartani Vésteins Lúðvlks- sonar..." — Erlendur Jónsson I Morgunblaðinu. — Þessi bók vekur umtal og kann jafnvel að hneyksla suma. Eruð þérá bandi prestsins eða sóknarnefndarinnar? nemti mihi n Liiuii ii uiimi Oscar Clausen: Sögn og saga III Í þessu lokabindi þessa sagnaflokks segir m.a. frá hestum höfundarins, en hann var mikill hestamaðurog hestaunn andi og hafði samband við marga með sömu áhugamál. Auk þess eru hér ýmsir aðrir fróðlegir og skemmtilegir þættir víðsvegar að af landinu. — Bók hestamanna og þeirra, sem þjóðlegum fróðleik unna. SIGVALDI HJAI.MARSSON # UNGLSKIN TRJANUM ©ríiiicind JSháxr lofrar Krístján Friðriksson: Farsældarríkið og manngildisstefnan Karl Kristjénsson fyrrum alþingismaður segír um bókina: „Tillögur hans eru grundvallaðar á þeirri Iffsskoðun, að hver maður hafi skyldur að ynna eftir þvl, sem hann hefur getu til frá skapara slnum, en eigi jafnframt heimtingu á að njóta réttlætis, mildi og mannhalgi. Bókin er höfundi til mikils sóma. Manndómlegt framlag mikils llfsáhuga- manns. ." — Þetta er bók fyrir áhugamenn um fálagsmál og pólitlk. Þair verða a.t.v. ekki sammála Kristjáni, en þeir verða að lesa bókina. ISl.LNKKAR fORNSÖGUK iswft>inoA Skuggsjá — Bókabúð Olivers Steins — Haf narfirði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.