Morgunblaðið - 05.12.1974, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.12.1974, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1974 „Kvæði eiga að kroppa r 1 veru- leikann” ÞAÐ var hérna um daginn, að Slagsíðan kynnti Kvæði Þörarins Eldjárns lítiilega. Nú ætlum við að bæta um betur og heyra aðeins í honum hljöðið. Eins og við sögðum um daginn stundar Þórarinn bókmenntanám í Lundi í Svíþjóð og leggur þessa dagana mesta rækt við Andrés Önd, glæpó, klám, skrípó ag káboj. „Geysi- djúpt," segir hann. Kvæði hafa nú verið gefin út í annarri prent- un. Fyrsta upplagið seldist upp og önnur 500 eintök prentuð. Samkvæmt síðustu fréttum eru þau langt komin með að seljast upp þótt lands- byggðin hafi verið afskipt. Stærsti vandinn, sem fylgir eigin útgáfu höf- undar á verkum sínum er dreifingin. Höfundur- inn hefur ekki aðgang að eða bolmagn til að koma verki sínu verulega í umferð, og sést það bezt á því, að ljóðabók Þórarins hefur verið til sölu aðeins f einni bókaverzlun utan Reykjavík- ursvæðisins. Sú verzlun er á Dalvík, ekki Grindavík. Ástæðan er sú, að bókin er einungis seld f verzlunum, sem óska sérstaklega eftir þvf. Dreifingarvandinn er reyndar kapftuli út af fyrir sig og vert athugunarefni. Látum þetta nægja að sinni, en snúum okkur nú að Þórarni. — Hvenær byrjaðir þú að yrkja? Það er langt síðan, þó ekki mjög langt. — Hvers vegna yrkirðu? Aðallega vegna þess að mér finnst gaman að yrkja. — Yrkirðu til að hlýða kalli skáldgyðjunnar, eða viltu koma pólitfskum boðskap á framfæri? Ég þekki enga skáldgyðju, að minnsta kosti hefur hún aldrei kallað neitt tíl mín, hvað sem hún kann að hafa sagt við aðra. Yrkingar eru ákveðin handverk, sem menn þurfa að þekkja inná ótal tæknileg atriði til að geta ort. Tæknin ein hrekkur þó skammt. Kvæði þurfa að vera virk, fólk á að geta sótt í þau eitthvað sem kroppar í veruleikann og hjálpar því á einhvern hátt að skilja öflin sem móta lifshlaup þess. Þessu marki nær maður ekki með því að yrkja pólitiskan áróður á banalan hátt, einskonar rim- aða leiðara, heldur verður að fara aðrar leiðir, dýpri og lymskufyllri, spilandi á allt instrúment- ið eftir því sem geta leyfir. Það þarf að dilla listneyslufærunum um leið og speki eða tilfinn- ing er framreidd, en gæta þess þó alltaf að dillandin verði ekki takmark i sjálfu sér. Helst. — Af hverju yrkirðu f hefðbundnum stfl? Ég get ekki samþykkt þá skoðun að ég yrki í hefðbundnum stíl, og líklega áttu við hvers vegna ég yrki á bundnu formi, með rími og stuðlum. Skýringin á þvi er einföld, ég get ekki annað. Ég hef reynt að yrkja kvæði í óbundnu máli, en ég get það ekki, það er of erfitt. Ég kann ekki handverkið, það er svo erfitt að henda reiður á því. Ég verð eins og belja á svelli um leið og fastlendi ríms og stuðla sleppir. Því miður. — En ertu þá á móti óbundnum kveðskap? Nei, slíkt sé fjarri mér. Það er sorglegt hvern- ig eiginlega öll umræða um kveðskap hér á landi undanfarna áratugi hefur lent í þjarki um form- ið. Formið er aukaatriði í sjálfu sér, það skiptir engu máli hvort kvæði er rímað eða órímað ef það er gott kvæði. Öbundni kveðskapurinn hef- ur gert íslensku Ijóðmáli gott, hann hefur gert ýmsar klissjur úreltar og opnað nýjar víddir. En hann hefur aldrei náð tökum á fólkinu. Það á sér sjálfsagt margar skýringar, ein þeirra er vafalitið sú að mikill hluti af þessum kveðskap er vondur. Það eru svo margir sem telja sig kallaða til slíkra yrkinga af því að þeir halda þær auðveldar, en það er misskilningur að svo sé. — Hvaða skáldum fslenskum hefurðu mestar mætur á? Jónas Hallgrímsson er og verður beztur. Hall- dór Laxness er mesta núlifandí ljóðskáld íslend- inga. Þetta hefur mörgum sést yfir. Menn hafa starað sig blinda á skáldsögur hans. Kvæðakver hans er besta kvæðabók íslensk á þessari öld. Af yngri mönnum er Megas naskastur. I prósanum höfðum við svo Birkiland. Viðarkolsteikning af Þórarni eftir Sigrúnu Eldjárn. Það er einmitt hún, sem myndskreytti Kvæði. , ,Það þarf að dilla nejzlu- fær- unnm...” — Hvernig stóð á því að þú ákveðst að gefa kvæði þfn út? Þú getur lesið um það í formálanum að fyrstu útgáfunni á Kvæðakveri Halldórs Laxness. Ég var með þetta í lúkunum og vissi ekki hvað ég átti að gera við það. Ég var of lítill karakter til að henda kvæðunum og því fór sem fór. — Hvernig stendur á þvf að þú gefur bókina út sjálfur? Varstu búinn að leita til einhvers forlags? Það liggja margar ástæður til þess að ég gef bókina út sjálfur. Utgáfa af þessu tagi hefur svotil allt framyfir venjulega forlagsútgáfu. Ég gekk ekki fyrir neinn forleggjara, en segjum sem svo að eitthvert forlag hefði tekið að sér að gefa hana út. Þá hefði hún ekki kom- ið fyrir almenningssjónir fyrren a.m.k. ári siðar. Prógramm forlaganna er svo ásetið af miðlabókum, reyfurum og hrakningasögum segja mér fróðir menn. Þetta er alltof langur timi, á meðan vex höfund- urinn frá verkinu og fer á kaf í eitthvað annað. Ég gæti séð í blaði eftir eitt ár að út væri komin kvæðabók eftir mann sem hét sama nafni og ég, og þetta muridi snerta mig álíka mik- ið einsog ef ég læsi einhvers staðar að nýtt hefti af Eimreiðinni væri komið í verslanir. Forleggjarinn er óþörf miliihönd sem ger- ir ekki annað en að breikka bilið milli höfundar og bókar, milli bókar og les- anda. Ef höfundur sér sjálfur um út- gáfuna fær hann betra tækifæri til að stinga pennanum beint í hjarta lesandans. Það nægir að nefna eitt atriói til að sanna þetta: bókin verður miklu ódýrari með þessu móti. Ég vil hvetja alia höfunda til að taka upp þessa aðferð. Aðalvandamálið er startkapital og dreifingar- kerfi, en samtök rithöfunda ættu að geta leyst það einhvern veginn. — En svo að við vfkjum aftur að kvæðunum sjálfum: Kvæði þín eru sönghæf, hefurðu ein- hverjar skoðanir á hugsanlegum hljómbúningi þeirra? Hljómbúningur fróar, rétt er það, en það er ekki sama hvernig á er haldið. Popparar flestir eru í heljargreipum kommersíalismans og virð- ist líka vel. Það þyrfti að blása lífsanda i íslenska músíkhefð og stefna henni gegn þeirri framleiðslu bandariska meðvitundariðnaðarins sem tröllríður skynfærum íslendinga. (Þú mátt skila því til Magnúsar Bjarnfreðs- sonar að meðvitundariðnaður er ekki tískuorð, heldur nafn á þjóðfélagslegum veruleika). Raunar má segja það um alla menningarstarf- semi sem stunduð er á Islandi, hennar aðal ætti að vera andóf gegn engilsaxneskum kúltúr- imperíalisma. Ef einhver maður kemur fram sem getur komið með lifandi nýsköpun á göml- um islenskum merg þá má hann tónsetja kvæði min ef hann vill, annars ekki. Margt af þessum kvæðum sem ég hef verið að setja saman má skoða sem vísur eða ballöður. Helzt ætti ég náttúrlega að syngja þau sjálfur við eigin músík, en því miður, eða öllu heldur sem betur fer, ég treysti mér ekki til þess. — Hvað viltu segja um viðtökur fólks f bók- inni? Allir sem ég hef heyrt í hafa verið elskulegir, en ég hef ákveðið að takaþað ekki nærri mér. — Að lokum ein klassfsk spurning: Hefurðu eitthvað f smfðum? Já og nei. h. NUUSWAII % Jón Kristjánsson sendi Slagsfðunni pistil í tilefni af viðtali við Steinar Berg á síðunni 17. nóvember um popp f útvarpinu, og segir m.a.: „Ljúfa Slagsfða! Enn æla menningarvitar útvarpsins út úr sér spýju eymdarinnar . . . Jafnvel jazzinn er ekki í náðinni hjá postulunum f fílabeinsturn- inum þótt einstaka tónlistar- deildarmaður telji sig svo „líberal" að geta lagt eyrun við Ellington eða gamla Armstrong. Jazzaðdáendur fá af náð og miskunn slett f sig einum þætti hálfsmánað- arlega, og þótt sá háttur sé góður fullnægir hann hvergi nærri þörfum landsmanna fyrir góða jazztónlist, því að ég leyfi mér að fullyrða, að hópur jazzaðdáenda er orð- inn stór og fer sffellt vax- andi meðal þeirra, sem eru um og upp úr 20 ára. Steinar Berg sá um til skamms tima poppþátt þar sem hann kynnti ýmis lög, rabbaði um þau, talaði við poppara og þar fram eftir götunum. En loksins þegar útvarpsmenn lögðu sig niður við að hlusta á þáttinn og komust að þvf hvaða verk voru þarna drýgð var honum tilkynnt, að svona mætti ekki vinna þættina. Aðeins væri leyfilegt að kynna lög- in og spila þau. Basta. Annað væri auglýsingastarf- semi. Basta. Svona nokkuð er ekkert einsdæmi. (Jtvarp- ið hefur löngum komið svona fram við poppaðdá- endur. Þetta er hreinlega heimspeki eymdarinnar, eins og meistarinn sagði. Svona vinnubrögð ávinna sér ekkert nema verðskuld- aðan aðhlátur. En ef þetta er auglýsingastarfsemi er hætt við að hægt sé að brenni- merkja ýmsa þætti útvarps- ins sem auglýsingaþætti. Gott og vel, útvarpsráð fjölgaði poppþáttum. En þessum þáttum hefur verið sýndur lftill sómi, tómlæti og áhugaleysi rfkt um gerð þeirra, hendur umsjónar- manna bundnar af áður- nefndum bönnum og árangur því ekki sérlega burðugur. Útvarpshlust- endur eiga skýlausa kröfu á því að breytt sé um vinnu- brögð. Ég leyfi mér að benda á úrbætur. Ráðinn verði eins konar umsjónar- maður með poppefninu, sem sæi um samræmingu flutn- ings á popptónlist og gerð ýmissa stuttra þátta um hana. Þáttum á borð við hinar ágætu „Draumvfsur" verði haldið uppi. Sá þáttur flutti áhugaverða tónlist úr mörgum áttum: popp, jazz, klassfk, elektróník, Austur- landatónlist o.s.frv. Steinar Berg fái að halda áfram með sinn ágæta þátt á fimmtu- dagsmorgnum f uppruna- legu formi. Varðandi jazz- inn: Jazzþáttunum verði fjölgað a.m.k. um helming. og meira fjallað um nútfma- jazz en áður. Tónlistardeildarmönnum þykir þetta eflaust skefja- j laus heimtufrekja og mis- j notkun á útvarpsmfnút- ] unum ... Jón Kristjánsson.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.