Morgunblaðið - 05.12.1974, Side 19

Morgunblaðið - 05.12.1974, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1974 19 Nixon má muna sinn fffil fegri Skriflegur vitn- isburður Nixons? Washington, 4. des. Reuter. JOHN Sirica, dómari í Watergate- málinu bað í gær lækna um að kanna hvort Richard Nixon, fyrr- um forseti, hefði heilsu til að svara skriflega spurningum í réttarhöldunum yfir fimm fyrr- verandi starfsmönnum hans. Sirica kvað þessa hugsanlegu skriflegu yfirheyrslu verða „aðeins hugmynd sem ég fékk“, en talið er að hann leggi enn áherzlu á að réttarhöldunum verði lokið fyrir jól. Læknar höfðu úrskurðað að Nixon gæti ekki borið vitni persónulega fyrr en á næsta ári, og skriflegur vitnisburður kann að verða lausn á þvi máli. Hins vegar var Water- gate-saksóknarinn, James Neal ekki allt of ánægður með þessa hugmynd Siricas, vegna þess að „við höfðum áður fengið margar yfirlýsingar frá forsetanum fyrr- verandi um Watergate-málið og engin þeirra hefur verið full- nægjandi fyrir ákæruvaldið." Fellir fata- fellan Mills? Washington, 4. desember — Reuter CARL Albert, forseti bandarísku fulltrúadeildarinnar spáði þvf í kvöld, að hinn áhrifamikli þing- maður, Wilbur Mills, myndi verða að hverfa úr sæti formanns hinnar valdamiklu fjárveitinga- nefndar þingsins. Mills sem lagð ist f gærkvöldi inn á sjúkrahús af ókunnum orsökum, hefur valdið miklu fjaðrafoki f stjórnmálalff- inu f Washington vegna sam- bands sfns við nektardansmeyna Fanne Fox, réttu nafni Annibella Battistella. Hafði þetta samband ógnað þingsæti Mills f kosningun- um f sfðasta mánuði, en þingmað- urinn þótti kóróna fyrri hegðun Svart útlit í Barents- hafsvið- ræðunum Osló 4. desember — NTB NOREGUR og Sovétríkin eru svo langt frá því að ná samkomulagi Mills — táldreginn af nektar- dansmey? sfna í þessu máli er hann fór upp á sviðið á nektarsýningu Fanne Fox nú um helgina og beygði sig og bukkaði ásamt nektardans- meynni, sem aðeins var klædd fíkjublaðspjötlu. Hugsanlegt er talið að hann segi af sér þingmennsku vegna þessa. varðandi skiptingu Barentshafs- ins, að engar líkur eru á samning- um á næsta ári, að þvi er Morgen- bladet í Osló segir. Deiluaðilar gátu ekki komið sér saman um tímasetningu nýs fundar eftir við- ræðurnar í Moskvu í fyrri viku, en.gert hafði verið ráð fyrir því, að hann yrði haldinn i Ósló næsta sumar. Segir Morgenbladet, að þetta sýni hversu litinn áhuga stjórnvöld í Moskvu hafi á að skjót lausn verði fundin á þessu máli, sem þegar er orðið 7 ára gamalt. Sovézkir framúrstefnu- listamenn: Neita að sýna af ótta við ofsóknir Moskvu, 4. desember — Reuter HOPUR sovézkra listamanna, sem ekki fylgja hinni opinberu lfnu I myndlist, hefur hafnað tilboði borgaryfirvalda f Moskvu um að sýna verk sfn á opinberri sýningu sfðar f þess- um mánuði, að því er einn þeirra, Oskar Rabin, skýrði frá f dag. Sagði Rabin ástæðuna vera þá, að þeir óttuðust að sýningin myndi verða til frek- ari kúgunar yfirvalda. Hann kvað marga þeirra sem áttu verk á septembersýningunni frægu f haust, þegar yfirvöld beittu jarðýtum og vörubflum gegn málurunum, hafa orðið fyrir ýmiss konar áreitni og ofsóknum síðan, m.s. verið sendir í herinn og á geðveikra- hæli. Rabin kvað listamennina þess f stað ætla að halda áfram að vinna að verkum sinum, og síð- an koma þeim hugsanlega á framfæri á næsta ári upp á eig- in spýtur. Yfirvöld í Leningrad skýrðu frá því í dag, að á útisýningu sem hæfist 22. desember þar í borg, yrðu um 120 verk lista- manna sem ekki væru sósíalrealískir og tilheyrðu ekki hinu opinbera listamannasam- bandi. Fengu þessir málarar að velja sjálfir verk sín til sýning- ar. Ahrif Vladivostoks-samningsins: Stærri eldflaugar, minni árásarhætta Washington, 4. des. Réuter. SAMKOMULAGIÐ f Vladi- vostok um takmörkun kjarn- orkuvfgbúnaðar hefur þau áhrif að báðir aðilar geta smfð- að stærri eldflaugar og fleiri kjarnaodda og aukið herút- gjöld sfn að sögn bandarfskra embættismanna. Möguleikar á skyndiárás verða hins vegar sama sem eng- ir að sögn þeirra. Þeir segja, að samkvæmt ^mkomulaginu megi heits. ógerningur fyrir annan hvorn aðilanna að reyna að þurrka út kjarnorkubirgðir mótaðilans með skyndiárás. Leyfilegur hámarksfjöldi kjarnorkueldflauga á landi, kjarnorkueldflauga, sem er skotið úr kafbátum, og sprengjuflugvéla, sem bera kjarnorkuvopn, verður 2.400, en þar af 1.320 er geta borið kjarnaodda með mörgum kjarn- orkusprengjum (Mirvs). Samkvæmt þessu hefur hámarkstalan hækkað og þar sem fjöldi kjarnaodda er ekki takmarkaður getur hvor aðili um sig komið sér upp 10.000 kjarnaoddum fyrir 1985 þótt talið sé að bandarísku kjarna- oddarnir verði ívið fleiri en þeir sovézku. Stærð eldflauganna er heldur ekki takmörkuð samkvæmt samkomulaginu og fræðilega séð gætu Bandarikjamenn smíðað eldflaug á stærð við Empire State-bygginguna og vopnað hana þúsund kjarna- oddum, en þeir gætu ekki falið slika eldflaug neðanjarðar eða í kafbáti og slík eldflaug yrði auðvelt skotmark. Mikilvægi samningsins felst i þvi að hvorugur aðillinn getur leyft sér að halda að mótaðilinn sé svo langt á eftir í vígbúnaði að taka megi þá áhættu að leggja óvininn að velli í skyndi- árás. Þá getur hvorugur aðilinn notað vígbúnað mótaðilans sem afsökun fyrir nýjum og stór- auknum herútgjöldum að sögn embættismannanna. Ef Rússar auka eldflaugavíg- búnað sinn þannig að Banda- ríkjamönnum finnist þeim ógn- að geta þeir smíðað stærri lang- drægar eldflaugar eða fjölgað kjarnorkukafbátum sínum inn- an leyfilegra marka. Sovézkar eldflaugar búnar mörgum kjarnaoddum eru auð- þekktar og frábrugðnar eld- flaugum með einum kjarnaoddi að sögn embættismannanna, en þeir viðurkenna að Rússar geti leikið á Bandarikjamenn með því að smíða eldflaug búna mörgum kjarnaoddum sem lít- ur út eins og eldflaug búin ein- um kjarnaoddi. Bandaríkjamenn vona að í Salt-viðræðunum náist sam- komulag er fyrirbyggi þetta. Auk þess segja embættismenn- irnir að hægt sé að fyrirbyggja slíkt gabb með eftirliti og nýjustu tækni. Þeir segja að þakka megi Vladivostok-samkomulagið þvi að Rússar féllu óvænt frá því skilyrði að þeim yrði leyfilegt að eiga fleiri vopn en Banda- rikjamenn til að vega upp á móti kjarnorkuvopnum Breta og Frakka. Nú telji þeir þau ekki breyta nokkru og heldur ekki herstöðvar Bandarikja- manna erlendis. Egyptar heimila skipaferðir um Súez til ísrael Tel Aviv, 4. desember. NTB. AP. EGYPTAR hyggjast leyfa skipum sem ætla til hafna I Israel að sigla um Súez-skurð þegar hann verður opnaður aftur að sögn utanríkis- ráðherra Israels, Yigal Allons. Egyptar hafa heitið þessu fyrir milligöngu Sameinuðu þjóðanna og þetta samkomulag er óviðkom- andi samningnum um aðskilnað herliða Israelsmanna og Egypta að sögn Allons f gær. Skipin fá að nota skurðinn með því skilyrði að þau sigli ekki undir ísraelskum fána. Skip með Grimsby, 4. des. AP. SÉRSTAKUR siðadómstóll I Grimsby hefur dæmt tvo brezka sjómenn í ævilangt ráðningar- bann fyrir þátttöku þeirra í inn- brotinu I Kaupfélag Dýrfirðinga og áflog þeirra við tslendinga. H. L. Hunt látinn EINN af ríkustu mönnum heims, oliukóngurinn frá Texas, H. L. Hunt, lézt fyrir helgina, 85 ára að aldri. Hann hafði átt við vaxandi heilsuleysi að stríða undanfarna mánuði. ísraelskan fána fá ekki að sigla um skurðinn fyrr en varanlegri samningur hefur verið gerður. I Washington tilkynnti Alþjóða- bankinn í dag að hann hefði veitt 50 milljón dollara lán til endur- bóta á Súes-skurði. Bankinn veitti síðast slfkt lán 1959 og upphæðin þá var $ 56,5 millj. Jafnframt herma fréttir að tsraelsmenn séu byrjaðir að treysta varnarvirki sín á Sinai- skaga og hafa lokið við gerð nýrrar víggirtrar víglína á Golan- hæðum. Israelsmenn hafa kært Egypta Útgerðarfyrirtæki sjómann- anna, Consolidated Fisheries, tel- ur þó skaðabótakröfu kaupfélags- ins alltof háa og vill fá sundur- liðaðan reikning frá kaupfélag- inu. Krafan hljóðar upp á 1025 pund. Þeir sem voru látnir sæta ævi- löngu ráðningarbanni voru James Padgett, 26 ára, frá Cleethorpes, og Frank Clarkson, 28 ára, frá Hull. Peter Hallett, 18 ára, frá Grimsby var dæmdur í 56 daga ráðningarbann, en David Willi- amson, 26 ára, frá Hull mætti ekki og mál hans verður tekið fyrir síðar. Don Lister, framkvæmdastjóri Consolidated Fisheries, sagði um úrskurðinn að Hallett hefði fengið vægan dóm þar sem hann hefði ekki tekið þátt í innbrotinu. fyrir Sþ vegna byggingafram- kvæmda á austurbakka Súez. Þeir segja að Egyptar hafi komið þar fyrir skotpöllum fyrir loftvarna- eldflaugar þótt slíkt sé bannað á svæðum þar sem er takmarkaður fjöldi hermanna. Sakharov — ómyrkur I máli Ný ofsóknar- alda í Sovét — segir Sakharov Chicago, 4. des. Reuter. SOVÉZKI eðlisfræðingurinn og andófsmaðurinn Andrei Sakharov segir að ný ofsóknar- alda gangi nú yfir Sovétrfkin. Þetta kom fram við afhend- ingu Reinhold Nieburh verð- launanna i Chicagoháskóla f gær. Hlutu þau Sakhcrov og suður-afrísku' gagnrýnandi aðskilnaðarstefnunnar, di. Bpyers Naude, fyrir mauiiiétt- indabaráttu. Verðlaunin nema 5000 dollurum. Prófessor Pavel Litvinov tók við verð- launum Sakharoves fyrir hans hönd og sagði að hann hefði taiað við eðlisfræðinginn sím- leiðis fyrir viku, og lék Lit- vinov samtalið af segulbandi. Saeta ævilöngu ráðningarbanni fyrir innbrotíð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.