Morgunblaðið - 07.01.1975, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANUAR 1975
Friðrik Olafsson með
á Skákþingi Reykjavíkur
Fyrsta kvennaskákmótið hefst í vikunni
A SUNNUDAGINN var tefld 1.
umferð i Skákþingi Reykjavikur
og urðu úrslit sem hér segir i A
riðli meistaraflokks: Friðrik
Olafsson vann Braga Kristjáns-
son, Jóhann Örn Sigurjónson
vann Harald Haraldsson, Jón
Kristinsson vann Ómar Jónsson.
Skákum Björns Þorsteinssonar
og Gylfa Magnússonar og Björns
Jóhannessonar og Leifs Jósteins-
sonar lauk með jafntefli. Skák
Jóns Þorsteinssonar og Margeirs
Péturssonar var frestað sökum
þess, að sá siðarnefndi er enn
ekki kominn af alþjóða-
unglingamóti sem fer fram í
Halisberg í Svíþjóð, en er væntan-
legur bráðlega. I B riðli meistara-
flokks urðu úrslit þessi. Asgeir
Ásbjörnsson vann Jónas P.
Erlingsson, Torfi Stefánsson
vann Magnús Ölafsson, Jón Þor-
valdsson og Eyjólfur Bergþórsson
gerðu jafntefli. Aðrar skákir í
riðlinum fóru i bið.
Stjórn Taflfélags Reykjavíkur
hefur ákveðið að halda fyrsta op-
inbera skákmótið fyrir kvenfólk í
tilefni af alþjóðaári kvenna 1975.
Mun þetta vera fyrsta kvenna-
skákmót sem haldið hefur verið á
tslandi. Mótið hefst fimmtudag-
inn 9. janúar og skulu þátttökutil-
kynningar berast til félagsheimil-
is T.R. að Grensásvegi 44 eða í
sima 83540.
Það er orðið nokkuð langt siðan Friðrik Ólafsson hefur verið með
á skákmóti hér innanlands. Hér teflir hann við Braga Kristjáns-
son. Ljósm. EB.
Spinola lætur aft-
ur í sér heyra
Lissabon 4. janúar
— Reuter
ANTONIO de Spinola, fyrrum
forseti Portúgals, hefur nú aftur
látið frá sér heyra um
portúgölsk stjórnmál. I viðtali,
sem birtist í vikuritinu Expresso,
hvetur de Spinola til lýðræðis-
legs, sósíalísks þjóðskipulags i
Portúgal, frjálsrar samkeppni
milli stjórnmálaflokka og meiri
þátttöku alþýðunnar i stjórn
landsins. Þá lýsir de Spinola enn
ótta sínum um að landið kunni að
lenda í greipum vinstra einræðis.
Eru uppi vangaveltur um það í
Lissabon, að þetta viðtal kunni að
boða það, að de Spinola gefi kost á
sér í forsetakosningunum, sem
gert er ráð fyrir að verði í haust.
Hótuðu Rússar
samningsrofum?
Washington 4. janúar
— Reuter
SOVÉTSTJORNIN hefur tilkynnt
Bandaríkjastjórn, að hún muni
ógilda viðskiptasamning ríkjanna
tveggja frá árinu 1972 ef Banda-
ríkjamenn reyna að þvinga fram
ákvæðið um ferðafrelsi sovézkra
borgara í nýja viðskipta-
samningnum frá árinu 1974, að
því er blaðið Washington Post
segir i dag. Segir blaðið, að orð-
sending þessa efnis hafi verið af-
hent i síðasta mánuði. Washing-
ton Post segir opinberan emb-
ættismann i Washington hafa
neitað, að orðsendingin hafi verið
svona harðorð, og aðeins hafi ver-
ið rætt um endurskoðun
nokkurra atriða samkomulagsins
frá 1972.
Jflorjyimlilafcift
MARGFALDAR
H
■
X?
Prir eins
Happdrœtti SÍBS
Auknir möguleikar allra
Aukavinningurinn í ár er að venju sérstakur, Jsrír
Citroen Ami bílar allir eins, þeir verða dregntr út í
júní.
En það er ekki aðeins aukavinningurinn sem vekur
athygli, öll vinningaskrá okkar er gjörbreytt. Fjöldi
yeglegra vinninga hefur margfaldast og möguleik-
inn á að hreppa vinning sem munar um hefur
aldrei verið meiri.
Teningunum er kastatV
Nú er aú vera með. Viö drögum 10. janúar.