Morgunblaðið - 07.01.1975, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1975
15
Ung svissnesk
stúlka sigraði
LISE-MARIE Morerod frá
Sviss bar sigur úr býtum í svig-
keppni sem fram fór i
Garmisch-Partenkirchen í
Þýzkalandi á laugardaginn.
Keppni þessi var liður i heims-
bikarkeppninni i Alpagreinum,
og færði sigurinn Morerod upp
í tíunda sæti I stigakeppninni.
Þetta er fyrsti stórsigurinn sem
þessi 18 ára skólastúlka frá
Sviss vinnur og jafnframt fyrsti
sigurinn sem Svissnesk stúlka
vinnur í svigkeppni heimsbik-
arkeppninnar frá árinu 1968.
Brautin í Garmisch Parten-
kirchen reyndist flestum kepp-
endunum mjög erfið, og luku
aðeins 17 af 80 keppendum
keppni. I fyrri ferðinni var fall-
hæðin 180 metrar og hlið 54, en
í seinni ferðinni var fallhæðin
enn meiri og hlið 55.
Tími Morerod í keppninni
var 97,32 sek. önnur varð
Christa Zechmeister frá V-
Þýzkalandi á 98,26 sek. og
þriðja varð hin 16 ára norska
stúlka Toril Fjeldstad.
Anne Marie Pröll Moser, nú-
verandi heimsbikarhafi
kvenna, var meðal keppenda i
sviginu, en í fyrri ferðinni
sleppti hún hliði og var dæmd
úr leik.
Staðan í heimsbikarkeppni
kvenna eftir þessa keppni er
sú, að Anne Marie Pröll Moser
hefur forystu með 69 stig,
Cindy Nelsson frá Bandaríkj-
unum er í öðru sæti með 56 stig.
Jafnar í þriðja sæti eru Rosi
Mittermaier og Christa Zech-
meister frá V-Þýzkalandi með
46 stig, í fimmta sæti er
Wiltrud Drexel frá Austurríki
með 42 stig, sjötta er Fabienne
Serrat frá Frakklandi með 38
stig, sjöunda er Monika Kas-
erer frá Austurríki með 32 stig,
áttunda Danielle Debernard
frá Frakklandi með 29 stig, ní-
unda er Marie-Therese Nadig
frá Sviss með 28 stig og í tiunda
sæti er svo komin Lise-Marie
Norerod frá Sviss með 27 stig.
Töpuðu fyrir Dönum en unnu
samt körfuknattleikskeppnina
Frá Gylfa Kristjánssyni,
fréttamanni Mbl.
með íslenzka körfu-
knattleikslandsliðinu:
ISLENDINGAR fengu skell I
sfðasta leik sínum f kröfuknatt-
leiksmótinu á Danmörku, en þá
mættu þeir gestgjöfunum: Dön-
um. (Jrslit leiksins urðu 97:62 fyr-
ir Dani. Þrátt fyrir þetta tap sigr-
aði Island i mótinu, hiaut 4 stig.
Vestur-Þjóðverjar hlutu einnig 4
stig, Danir hlutu 2 og Luxem-
burgarar 2. Þar sem Island og
V-Þýzkaland urðu jöfn að stigum
gilda úrslit f innbyrðis leik
þeirra, en þann leik unnu tslend-
ingar með 13 stiga mun, eins og
áður hefur verið frá sagt.
Mót þetta hefur engan veginn
gengið hávaðalaust fyrir sig, og
fengu Islendingar á sig kæru eftir
leikinn við Luxemburg. Fram-
kvæmdanefnd mótsins dæmdi
þann leik tapaðan fyrir Island, en
Islendingar neituðu að taka þá
niðurstöðu til greina.
Málsatvik voru þau, að Islend-
ingar komu til móts þessa með 12
leikmenn. Hafði Dönum verið til-
Koibeinn Pálsson átti góða leiki i
vörn fslenzka liðsins.
kynnt það með löngum fyrirvara,
og þeir þá ekki gert neina athuga-
semd. Samkvæmt reglum FIBA
— Alþjóðasambands körfuknatt-
leiksmanna, má aðeins nota 10
leikmenn í mótum sem fram fara
á vegum sambandsins, en þetta
mót var á engan hátt tengt því, og
hefur það verið venja að á mótum
sem þessu hafa ekki verið neinar
reglur um leikmannafjölda.
Enginn gerði athugasemd við
það að Islendingar voru með 12
leikmenn, fyrr en eftir sigurinn
yfir Vestur-Þjóðverjum, en þá
fóru Danir af stað, og höfðu í
frammi hótanir. Vitnuðu Islend-
ingarnir tii þess sem áður hefði
fram farið, og notuðu tvo leik-
menn í leiknum við Luxemburg,
sem ekki höfðu verið með í fyrsta
leiknum. Eftir að Islendingar
höfðu svo einnig unnið Luxem-
burgara umhverfðust Danir og
tókst að fá Luxemburgara í lið
með sér. Varð að ráði að nota i
leikinn gegn Dönum einungis þá
leikmenn sem verið höfðu með í
leiknum gegn Vestur-
Þjóðverjum. I þeim leik hafði
Þórir Magnússon setið hjá, vegna
agabrots og við þetta bættist svo
að Jón Sigurðsson varð að fara
fyrirvaralaust heim á sunnudags-
morguninn. Höfðu Islendingar
því aðeins 9 leikmenn í siðasta
leiknum, og gengu þeir til hans
með hangandi hendi og úr jafn-
vægi, eftir allar þær skammir sem
yfir þá hafði dunið í dönsRu blöð-
unum, þar sem þeir voru m.a.
kallaðir fákunnandi bjálfar.
En víkjum þá að leikjunum
tveimur gegn Luxemburg og Dan-
mörku.
Naumur sigur yfir Luxemburg
Til að byrja með var leikur
þessi mjög jafn. Þannig var stað-
an snemma i leiknum 8:8, en eftir
9 mínútna leik hafða Luxemburg
náð forystunni 17:10, og á 12.
minútu var staðan 24:17. Hafði
Luxemburg 5:8 stiga forystu i
hálfleiknum, og var staðan að
honum loknum 37:31, þeim í vil.
Hittni Islendinganna í þessum
hálfleik var algjörlega í lágmarki,
en vörnin hins vegar nokkuð góð,
þó ekki eins og í leiknum gegn
Þjóðverjum á föstudagskvöldið.
I seinni hálfleiknum lék
islenzka liðið mun betur. Þeir
Þórir Magnússon og Agnar
Friðriksson komust vel i gang, og
var þá ekki að sökum að spyrja.
Langskot þeirra höfnuðu í körfu
Þórir Magnússon — skoraði 18
stig gegn Luxemburgurum.
Luxemburgaranna, eitt af öðru.
Eftir fimm mínútur var munur-
inn aðeins eitt stig: 39:38 og eftir
9 mínútur hafði Island náð
forystu 50:46. Það sem eftir lifði
hálfleiksins var svo um hnifjafna
baráttu að ræða. Skömmu fyrir
leikslok var staðan 67:64 fyrir Is-
land, en þá skoruðu þeir tvær
körfur í röð og breyttu stöðunni i
68:67, sér i vil. Þegar aðeins 5
sekúndur voru til leiksloka tókst
Jóni Sigurðssyni að jafna úr víta-
kasti 68:68. Þurfti þvi framleng-
ingu og leit um tíma ekki gæfu-
lega út fyrir islenzka liðinu.
Luxemburgararnir skoruðu 6 stig
I röð og komust yfir í 75:70, þegar
tvær mínútur voru til leiksloka.
Jón Sigurðsson skoraði þá tvíveg-
is körfu og Kristinn bætti um
betur, þannig að aftur var um
íslenzka forystu að ræða 76:75. En
Adam var ekki lengi í Paradís.
Luxemburgararnir skoruðu þegar
15 sekúndur voru eftir 77:78 og
gerðu síðan örvæntingarfullar til-
raunir til þess að verjast. En Þór-
ir Magnússon sýndi þá hvers
hann er megnungur. Þegar tim-
inn var að renna út, tókst honum
að skora sigurkörfuna i leiknum,
og héngu þrír menn á honum
meðan hann var að skjóta.
Fyrir Island skoruðu í þessum
leik: Agnar Friðriksson 19, Þórir
Magnússon 18, Jón Sigurðsson 15,
Þorsteinn Hallgrimsson 8, Torfi
Magnússon 8, Kolbeinn Pálsson,
4, Kristinn Jörundsson 4 og Birgir
Guðbjörnsson 2.
Beztir Islendinganna i leiknum
voru þeir Kolbeinn, Agnar, Jón
og Þórir. Sérstaklega þeir Agnar
og Þórir sem stöðu sig mjög vel i
seinni hálfleiknum og hittu þá
vel.
Strax að loknum leik Islands og
Luxemburgar fór fram leikur
miili V-Þjóðverja og Dana og
unnu Þjóðverjarnir þar yfir-
burðasigur 85:68.
Slakur leikur
Um leik Islands og Danmerkur
er bezt að hafa sem fæst orð.
Hann var mjög illa leikinn af
hálfu Islendinga, og sigur Dan-
anna var fyiliiega sanngjarn ef
horft er til gangs leiksins. Það var
aðeins til að byrja með sem örlitill
baráttukraftur var i islenzka lið-
inu og var staðan t.d. 15:13 fyrir
Dani um miðjan fyrri hálfleikinn.
Þegar svo halla tók undan fæti
virtist áhugaleysið magnast og þvi
fylgdu kæruleysisleg skot, sem
Agnar Friðriksson átti góða ieiki
í mótinu I Danmörku og skoraði
mikið með fallegum langskotum.
auðvitað mistókust. Eftir 15
minútna leik var staðan orðin
34:16 fyrir Dani, og úrslit leiksins
raunverulega ráðin. I hálfleik
munaði 24 stigum: 50:26 og mun-
urinn var síðan 30 stig, er staðan
var 70:40. Var alls ekki hægt að
tala um að það væri sama lið sem
lék þennan leik fyrir Isiand og
það sem vann Þjóðverjana á
föstudaginn, þótt það væri skipað
sömu mönnunum. Vörnin var sein
i hreyfingum og skotanýting með
afbrigðum slæm, t.d. aðeins um
25% í fyrri hálfleiknum. Unnu
Danir þarna einn stærsta sigur
sem þeir hafa unnið yfir Isiend-
ingum í körfuknattleikslandsleik
97:62.
Stig Islands í þessum leik skor-
uðu: Agnar Friðriksson 22 stig,
Þorsteinn Hallgrímsson 10 stig,
Kristinn Jörundsson 9 stig, Kol-
beinn Pálsson 9 stig, Birgir Guð-
björnsson 6 stig og Torfi Magnús-
son 4 stig.
Varla er ástæða til þess að
hrósa neinum fyrir frammistöðu
sína í leiknum. Helzt var það
Agnar sem stóð upp úr, — hann
var raunar eini maðurinn sem
hitti sæmilega úr skotum sinum.
Þjóðverjar
sigruðu
Vestur-Þjóðverjar sigruðu Svía
f iandsleik f handknattleik sem
fram fór f Minden f V-
Þýzkalandi á laugardaginn með
fimmtán mörkum gegn tólf.
Staðan f hálfleik var tfu mörk
gegn átta, Vestur-Þjóðverjum í
vil.
Islenzku piltarnir áttu síðasta orðið
ISLENZKA unglingalandsiiðið f
körfuknattleik tók þátt f Norður-
landameistaramótinu, sem fram
fór í Svíþjóð um sfðustu helgi. Er
orðið langt sfðan að fslenzkt ungl-
ingalið hefur leikið landsleiki í
körfuknattleik, og piltarnir því
allir nýliðar á þessum vettvangi.
Reynsluleysi háði þeim þvf mjög
f keppninni og fyrirfram var ekki
búizt við þvf að þeir veittu and-
stæðingum sfnum mikla keppni.
En raunin varð hins vegar önnur.
Þeir töpuðu reyndar fyrir Norð-
mönnum, Finnum og Svfum með
töluverðum mun, en sýndu mjög
góðan leik á móti Dönum og sigr-
uðu 96:83. Má þvf segja að pilt-
arnir hafi hefnt fyrir tap fslenzka
karlalandsliðsins f leiknum við
Dani á sunnudaginn.
Fyrsti leikur piltanna var við
Norðmenn, en helzt var áiitið að
þeir gætu staðið í þeim. En Is-
lendingarnir náðu aldrei að sýna
sitt bezta í þessum leik. Báru of
mikla virðingu fyrir andstæðing-
um sínum og voru of ragir. Lauk
leiknum með sigri Norðmanna
93:67. Stighæsti islenzki pilturinn
i þessum leik var Armenningur-
inn Símon Ölafsson sem skoraði
17 stig.
Næst var svo leikið við Svia og
var þar um að ræða leik kattarins
að músinni. Sænsku piltarnir eru
mjög hávaxnir og vel samæfðir,
og þurfti engan að undra þótt
meira en helmingsmunur væri á
skoruðum stigum liðanna í leikn-
um: 128: 59. Stighæstur í íslenzka
liðinu i leik þessum var Sigur-
bergur Bjarnason sem skoraði 20
stig.
Hið sama má segja um leikinn
við Finna og leikinn við Svía.
Finnarnir voru mörgum gæða-
flokkum fyrir ofan Islendingana
og sigruðu 110:68. I þessum leik
var það Símon sem skoraði flest
stig íslenzku piltanna 23 talsins.
En Islendingarnir áttu svo eftir
að segja sitt siðasta orð í mótinu.
Þeir voru til muna betri aðilinn i
leiknum við Dani og sigurinn var
aldrei i hættu. Urslitin urðu
96:83. Simon Ölafsson skoraði
flest stig í þessum leik, 20, en Þeir
Árngrimur Thorlacius og Pétur
Guðmundsson skoruðu 17 stig