Morgunblaðið - 07.01.1975, Page 34

Morgunblaðið - 07.01.1975, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANUAR 1975 Zulfikar Ali Bhutto forsætisráðherra Pakistans ræðir við siasað fólk eftir jarðskjálftann í síðustu viku. Hluti brezka herliðsins á N-írlandi kallaður heim? Jarðskjálftarnir 1 Pakistan: Nýir skjálftar skelfa flóttamenn London 6. jan. REUTER HAFT ER eftir áreiðanlegum heimildum i London í dag, að brezka stjórnin kunni að kaila heim frá Norður-Irlandi einhvern hluta brezka herliðsins, sem þar er, til þess að koma til móts við óskir írska lýðveldishersins, ef það mætti verða til að framlengja vopnahlé það, sem hann lýsti yfir fyrir jólin. Styrkleiki brezka herliðsins hefur jafnan farið eftir ofbeldis- ástandinu á Norður-lrlandi og frá 22. des. sl. hefur írski lýðveldis- herinn ekki hleypt þar af skoti né sprengt eina einustu sprengju, hvorki á N-írlandi né í Bretlandi. Talsmaður varnarmálaráðu- neytisins segir að vísu, ekki standi til að fækka frekar í herlið- inu, en aðrar trúverðugar heim- ildir herma, að ákvörðun þar að Saigon 6. janúar, REUTER—NTB. N-VIETNAMAR og skæruliðar Viet Cong héidu uppi látlausum stórskotaliðs- og skriðdrekaárás- um á vfgi stjórnarhersins í mið- biki héraðshöfuðborgarinnar Phuoc Binh um helgina, en tókst ekki að rjúfa virkið og ná þar með borginni endanlega á sitt vald. Hins vegar segja fréttastofu- fregnir að það sé aðeins spurning um tíma hvenær borgin falli. Segja heimildirnar, að aðeins séu um 100 stjórnarhermenn eftir i virkinu af 3000 manna herliði, sem þar var og að hermennirnir og allir 46000 ibúar borgarinnar séu annaðhvort fallnir eða flúnir. Skæruliðasveitirnar og hermenn N-Vietnam hafa nú nær alla borg- ina á sinu valdi að víginu undan- skildu og næsta nágrenni. N- Vietnamar óku um 40 sovézkum skriðdrekum og brynvörðum vögnum í allt að 50 metra fjar- lægð frá virkisveggjunum og skutu um 1000 fallbyssuskotum að virkinu, en það gaf sig ekki. Heiftarlegir bardagar hafa átt sér stað um borgina, sem er um 120 km fyrir sunnan Saigon, frá því að kommúnistar náðu annarri héraðsborg, Tanh Slanh, á sitt vald á jóladag. Það var 9. borgin, sem kommúnistar náðu á sitt vald frá því að voðnahléssamningur- inn var undirritaður í París fyrir. tveimur árum. lútandi verði tekin áður en vopna- hlé IRA er á enda. Merlyn Rees, ráðherra brezku stjórnarinnar, sem fjallar um málefni N-Irlands, lét nýlega á sér skiljast, að fækkað kynni að verða í herliðinu stig af stigi, ef endi yrði bundinn á ofbeldisverk IRA. Eftir að vopnahléð gekk í gildi hafði herliðið sig lítt í frammi og er talið, að það hafi verið að skipan Rees. Búizt er nú við, að hann tilkynni fljótlegaþau skilyrði, sem brezka stjórnin setur fyrir fækkun í herliðinu og því að draga úr fangelsunum án dóms og laga. Þó er tæplega búizt við að hún verði við því megin- skilyrði IRA fyrir friði, að lýsa því yfir, að hún ætli að kalla allt herlið á brott. Vitað er á hinn bóginn að Sinn Fein, hin pólitísku samtök, sem Þá bárust um helgina fregnir frá hörðum bardögum i Kambódíu, i námunda við höfuð- borgina Phnom Penh og áttu stjórnarhersveitir í bardögum við skæruliðasveitir i aðeins 11 km fjarlægð frá höfuðborginni. standa að baki IRA, hafa farið þess á leit við brezku stjórnina að Framhald á bls. 35 Rawalpindi, 6. jan. REUTER STERKUR jarðskjálfti fór um Karakoram-f jöll I Norður- Pakistan f dögun f morgun og olli þó nokkrum skriðuföllum. Ekki er vitað til þess, að hann hafi valdið manntjóni eða skemmd- um, en sem kunnugt er fórust að talið er hátt í 6 þúsundir manna f jarðskjálftum á þessum slóðum 28. desember sl. Síðan hafa mælzt um 1200 kippir á jarðskjálftamælum og nokkrir þeirra, einkum síðustu tvo dagana, verið svo harðir, að skriðuföllum hefur valdið. Hefur það enn aukið á skelfingu og hörmungar þeirra tugþúsunda manna, sem misstu heimili sin fyrir áramótin, en talið er, að um 70.000 manns séu nú heimilislaus- ir á þessum slóðum. Þeir, sem hafa hafzt við i hálfhrundum hús- um, hverfa nú sem óðast frá þeim og eftirspurn eftir tjöldum er miklu meiri en til þessa hefur verið unnt að anna. I dag slógust flóttamenn í Patan um þau tjöld, sem til voru, en opinberir starfs- menn reyndu að sannfæra þá um, að fleiri tjöld væru á leiðinni. Kalt er á þessum slóóum og rign- ingarúði. Björgunarstarfi er haldið áfram af fullum krafti eftir að lægði, en hvassviðri haml- aði þyrluflugi til einangraðra þorpa í marga daga i síðustu viku. 1 viðlagasjóðinn, sem stofnaður var eftir jarðskjálftana, hafa nú borizt um 20 milljónir dollara; stærstu gefendur eru Saudi- Arabia, sem lagði fram 10 milljón- ir dala og Sameinuðu arabísku furstadæmin, sem í dag gáfu i hann 8 milljónir dollara. Kissinger gagnrýndur Teheran, Bonn, Washingtoi], 6. jan. REUTER — AP. „ENGINN segir okkur fyrir verkum.... né sýnir okkur hnef- ann.“ Þessi orð eru höfð eftir Iranskeisara, og sagt, að þau séu viðbrögð hans við ummælum Henrys Kissingers, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, í viðtali þvf, sem tímaritið Business Week birti við hann f sfðustu viku og hefur valdið talsverðum úlfaþyt. Siðdegisblað i íran segir eftir keisaranum, að ekki sé ástæða til að taka viðvaranir Kissingers hátíðlega, þvi að valdbeiting af hálfu eins stórveldis muni óhjá- kvæmilega leiða til valdbeitingar annars og „Afleiðingarnar af því verða ekki annað en hörmungar fyrir mannkynið allt“, eins og blaðið hefur eftir keisaranum. Ummæli Kissingers voru á þá leið, aó hann gæti ekki útilokað þann möguleika, að þær kring- umstæður gætu komið upp að Bandaríkin íhuguðu valdbeitingu vegna olíukreppunnar, — en það yrði einungis gert ef til algers neyðarástands kæmi þannig að reynt yrði að taka iðnaðarríkin alvarlegu kverkataki. Sjálfur sagði hann i viðtali við blaðamenn fyrir helgina, að hann teldi þetta ástand alls ekki fyrir hendi nú, og áréttaði, að hann hefði einungis verið að ræða „hugsanlega mögu- leika“. Engu að síður hafa þessi ummæli mætt nokkurri gagnrýni bæði heima fyrir og erlendis. Tveir þingmenn demókrata gagn- rýndi hann fyrir ummælin í gær, sögðu þau óviturleg og óábyrg — og í Vestur-Þýzkalandi hafa hátt- settir embættismenn látið þau orð falla að fjarri V-Þjóðverjum sé að lenda í átökum við olíufram- leiðsluríkin, þvert á móti óski þeir sem beztrar samvinnu við þau. Einn V-Þjóðverjanna talaði um hernaðaríhlutun eins og þá er Kissinger hefði látið liggja að, sem úrelta fallbyssupólitik 19. aldarinnar.“ Filippseyingar bjóða 5 milljónir dollara 1 skákverðlaunasjóð ASSOCIATED Press frétta- stofan skýrir svo frá, að Filippseyingar hafi boðizt til að greiða fimm milljónir doll- ara f verðlaunasjóð fyrir heimsmeistarakeppnina I skák milli Bobby Fischers og Anatolys Karpovs, verði hún haldin á Filippseyjum. Hefur alþjóðaskáksambandið skýrt frá þessu svo og öðrum verðlaunatilboðum en frestur til að bjóða I keppnina rann út sl. þriðjudag. Auk Filippseyinga hafa ltalir og Mexikanar áhuga á að halda keppnina, Italir bjóða 400.000 dala verðlaunasjóð, ef keppnin verði haldin í Mflanó og Mexikanar 440.000 dali, fái þeir að hafa hana í Mixico City. Innifalið í tUboði Filippsey- inga er 150.000 dollara framlag til Alþjóðaskáksambandsins sjálfs og er ætlazt til að þeim peningum verði varið til að stuðla að útbreiðslu skákíþrótt- arinnar í vanþróuðum löndun- um. Florencio Campomanes, varaforseti FIDE og forseti skáksambands Filippseyinga hefur upplýst, að Ferdinand Marcos, forseti þeirra tryggi ofangreint tilboð. Það er undir þeim Fischer, Karpov og skáksamböndum landa þeirra komið hvaða tilboði veróur tekió en þeir hafa frest til 1. apríl til að svara. Burtséð frá þessu er svo óvissa um hvort nokkuð verður af heimsmeistarakeppni milli þeirra tveggja, því að enn ríkir ágreiningur milli Fischers og FIDE um reglur keppninnar. Qttazt að 20 hafi farizt 1 brúarslysinu í Tasmaniu: „Brúin er horfin ”, hrópaði konan og hálf bifreiðin hékk fram af Hobart, 6. jan. REUTER ÓTTAZT er, að allt að því tutt- ugu manns hafi farizt f gær- kveldi þegar hluti Tasman- brúarinnar mikiu yfir Derwent fljót f Tasmaniu hrundi eftir að 7.200 lesta flutningaskip hafði rekizt á hana. Fimm Ifk hafa þegar fundizt og voru þau af skipverjum af skipinu, sem bar nafnið Lake Illawarra. Vitað er, að tveir skipverjar til við- bótar stungust f fljótið eftir áreksturinn og sömuleiðis fjór- ar bifreiðar, sem voru að fara yfir brúna, þegar árcksturinn varð. Ekki er vitað hversu margir voru í bifreiðunum en f dag hefur verið unnið að þvf að slæða fljótið. Sveit kafara úr ástralska flotanum kom til Hobart frá Sydney til að að- stoða lögregluna. Fallið af brúnni ofan í fljótið er um 40 metrar, en brúin sjálf, sem voru fjórar akreinar, er rúm- lega hálfur annar kflómetri að lengd. Skipið var að flytja zinkefni, farmurinn talinn um 10.000 lestir, er það sigldi á fullri ferð á einn af brúarstöplunum með ofangreindum afleiðingum. Hluti brúarinnar féll ofan á skipið og sökk það þvi sem næst samstundis. Á skipinu var 42ja manna áhöfn og er enn saknað tveggja manna. Þrír eru á sjúkrahúsi, þar af einn lífshættulega slas- aður. Björgunaraðgerðir hófust þegar i gærkveldi og var þá unnið við flóðljós að því að leita að bifreiðunum fjórum, sem stungust í fljótið. 1 dögun komu kafararnir til aðstoðar en áttu i mestu erfiðleikum vegna þess hve straumþungt fljótið er. Hafði ekki tekizt að finna bíl- ana, þegar siðast fréttist. Ekki munaði nema hárs- breidd að fjölskylda Franks nokkurs Manleys færist í þessu slysi og segist honum svo frá: „Ég var að aka eftir brúnni, þegar Ijósin slökknuðu skyndi- lega, ég hélt að rafmagnið hefði bara farið og hélt áfram. Þegar við vorum komin yfir bogann sá ég bifreið framundan og sýnd- ist hún hafabilaðeða eitthvað þess háttg'r svo að ég hægði á feróinni. Skyndilega æpti kon- an mín: /,Brúin er horfin,“ og ósjálfrátt steig ég á bremsurn- ar, en heldur of seint framhluti bifreiðarinnar fór fram af, en hún stöðvaðist og það var okkur til lífs, við héngum þarna í lausu lofti.“ Konu Manleys, Silviu, og dóttur þeirra 16 ára, Sharon að nafni, tókst fljótlega að klifra út úr bifreiðinni en Manley var lengur að mjaka sér út, því að dyrnar að bilstjórasætinu opnuðust yfir hengifluginu. Urslitaorrustan um Phuoc Binh?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.