Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 36
3H®r0nim!iJaí>ií>
nucivsmcnR
^v-^22480
3W«rgun!»Iat>il>
nUGIVSinGHR
íg.^22480
ÞRIÐJUDAGUR 7. JANUAR 1975
Björn Jónsson, forseti ASÍ
Samningarnir
vafalaust erfiðir
Frá miðstjórnarfundi Alþýðusambands lslands f gær, þar sem samningahorfur voru ræddar.
Smáslattar af loðnumjöli
seljast nú á 4,50 dollara
Perúmenn munu hafa selt tölu- I dollara proteineininguna. Að I um það hver þróun fiskimjöls-
vert magn til A-Þýzkalands á 4,60 | sögn kunnugra er enn allt á huldu | verðsins á heimsmarkaði verður.
950 þúsund krónur svikn-
ar út úr Pósti og síma
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands
tslands hélt í gær fund, þar sem
samningamálin voru rædd og
gerð var á fundinum grein fyrir
hvað liði umboði félaganna til
samninganefndarinnar f sam-
ræmi við ályktun sambands-
stjórnar ASÍ. Á fundinum kom
fram, að sögn Björns Jónssonar,
forseta ASÍ, að 100 verkalýðsfé-
lög með 25 þúsund félagsmönn-
um hefðu þegar gefið aðalsamn-
Ýsuflök lækka 1
Bandaríkjunum
UM MIÐJAN desember lækkuðu
ýsuflök á Bandaríkjamarkaði um
10 cent hvert pund og er það
prósentulækkun um 10,3%. Er
verðið á ýsuflökunum nú hið
sama og á þorskflökunum eða
c.i.f. 87 cent fyrir hvert pund.
Ysublokk hefur - undanfarnr
mánuði verið á sama verði og
þorskblokk á Bandaríkjamarkaði
eða í 58 centum hvert pund.
Þessi lækkun á verði ýsuflaka
samsvarar því að hvert kg af ýsu-
flökum hafi á Bandarikjamarkaði
lækkað um 26,23 krónur.
Friðsæll
þrettándi
ÞRETTÁNDINN fór friðsamlega
fram allstaðar þar sem Morgun-
blaðið hafði fréttir af í gærkvöldi.
I Hafnarfirði og Garðahreppi, þar
sem löngum hefur verið óspekta-
samt á þrettándakvöldi, var fátt
um skemmtanir en þar fór allt
friðsamiega fram svo að kvöldið
var að engu leyti frábrugðið
venjuiegu mánudagskvöldi.
1 Keflavík sóttu milli 3 og 4
þúsund manns álfagleði, og var
öll framkoma þátttaka til fyrir-
myndar að sögn lögreglunnar.
Geysilegt fjölmenni sótti einnig
áifabrennu á Akranesi og þar var
sömu söguna að segja. I Vest-
mannaeyjum stóð álfagleðin sem
hæst, þegar Morgunblaðið hafði
samband við lögregluna þar, og
var mikið fjölmenni við hana en
allt fór fram með miklum ágæt-
um.
inganefndinni umboð. 1 samband-
inu eru rösklega 40 þúsund
manns.
Björn Jónsson sagði að umboð
hefðu verið að berast alveg fram
á daginn í dag og enn eru umboð
ókomin. Miðstjórnarmenn ASI
töldu, að umboð frá félögunum
væri orðið það afgerandi, og því
væri ekki rétt að draga öllu leng-
ur að óska eftir viðræðum við
vinnuveitendur. Samninganefnd
ASÍ mun svo árdegis í dag koma
saman til fundar og ákveða nánar
um það atriði.
Björn sagði aðspurður að samn-
ingagerð nú yrði vafalaust erfið,
en að öðru leyti vildi hann engu
spá um samningagerðina og þá
einkum þegar ekki hefur verið
haldinn samningafundur.
MJÖG lítil hreyfing hefur verið á
fiskmjöli á heimsmarkaði og
engar meiriháttar sölur hafa
farið fram, enda þessi árstfmi
jafnan I daufara lagi í þeim efn-
um.
Þó hafa fáeinir seljendur hér-
'lendis verið að selja smáslatta nú
undanfarið. Þannig veit Morgun-
blaðið til þess, að dálítið magn af
þorskmjöli var selt á 2 dollara pr.
proteineining og smáslatti af
loðnumjöli var seldur á 4,50 doll
ara, og á að koma til afskipunar í
júní—júlí í sumar. Þessi verð-
skráning á loðnumjöli er þó eng-
an veginn einhlít um markaðs-
aðstæður um þessar mundir, þar
eð Danir hafa t.d. selt mjöl í sama
flokki á lægra verði til Þýzka-
lands eða í kringum 4,40 dollara.
Mikið er til af mjöli í heiminum
um þessar mundir, og engar sölur
fara fram. Perúmenn eru hættir
ansjósuveiðum sem stendur en
þeir eiga allmiklar birgðir eins og
flest önnur framleiðslulönd.
RANNSÓKNARLÖGREGLAN f
Reykjavfk vinnur nú að rannsókn
mikils svikamáls, sem upp komst
seinni hluta árs 1974. Hafa ein-
hverjir bfræfnir þrjótar svikið
samtals 950 þúsund krónur út úr
Pósti og sfma með þvf að notfæra
sér veilur f þvf kerfi, sem stofn-
unin notar við að sfmsenda pen-
inga. Tókst þrjótunum að hafa
tvfvegis peninga út úr stofn-
uninni, 475 þúsund krónur í hvort
skipti. Svikin uppgötvuðust ekki
fyrr en löngu seinna þegar bók-
hald kom til endurskoðunar.
Málið er óupplýst.
I fyrra skiptið var hringt á sím-
stöðina í Reykjavík um mánaða-
mótin ágúst — sept. s.l. sumar, og
sagt, að hringt væri frá símstöð-
inni f Grindavík. Var stöðin I
Reykjavík beðin að taka við 5
símsendum ávísunum frá fyrir-
tæki í Grindavík, og voru þær
stílaðar á unga stúlku á Sel-
tjarnarnesi. Fjórar ávísananna
voru að upphæð 100 þúsund
krónur og ein að upphæð 75 þús-
und krónur, og var þess óskað, að
þær yrðu greiddar út í pósthúsinu
við Langholtsveg. Var það gert, og
á réttum tíma voru peningarnir
sóttir í pósthúsið og þeir greiddir
f einni ávísun, að upphæð 475
þúsund krónur og ávísunin leyst
út í banka fljótlega. Þessi svik
uppgötvuðust ekki fyrr en bók-
haldið kom til endurskoðunar í
október, og var málið þá þegar
kært til rannsóknarlögreglunnar.
Seinni hluta október eru enn
sviknir peningar út úr Pósti og
sfma og bendir flest til þess, að
þar hafi sömu aðilar verið á ferð.
Var farið eins að, hringt til sím-
stöðvarinnar í Reykjavík og sagt
að hringt væri frá símstöðinni I
Grindavík. Eins og í fyrra skiptið
var beðið um að teknir væru 5
símaávísanir, samtals að upphæð
475 þúsund krónur, f jórar að upp-
hæð 100 þúsund og ein að upphæð
75 þúsund krónur. Var þess
óskað, að þær yrðu greiddar út í
pósthúsinu í Umferðarmiðstöð-
inni. Notuð voru önnur nöfn en í
Framhald á bls. 35
Guðmundur
naði jotnu
gegn Úlfi
GUÐMUNDUR Sigurjónsson og
sænski stórmeistarinn Ulf
Andersson sömdu jafntefli f
biðskák sinni úr 8. umferö er þeir
héldu áfram taflinu f Hastings f
gær. 1 skeyti frá AP
fréttastofunni segir, að góð
taflmennska Guðmundar hafi
komið í veg fyrir, að Andersson
hafi getað notfært sér betri stöðu,
en hann hafði þrjú peð á móti
riddara Guðmundar. Sömdu þeir
Framhald á bls. 35
1000
Sjáandinn Croiset í samtali við MbL:
„Geirfinn er að finna 1800
metra f jarlægð frá heimili hans”
Þegar byrjað að kanna svæðið
MORGUNBLAÐIÐ átti í gær
símtal við hinn heimsþekkta
hollenzka sjáanda, Gerard
Croiset, á heimili hans f
Utrecht, en eins og fram hefur
komið í fréttum, sneri
lögreglan í Keflavík sér til
Croiset í von um, að hann gæti
upplýst hvarf Geirfinns
Einarssonar. Astæðan fyrir þvf,
að Mbl. hafði samband við
Croiset og birtir ummæli hans í
þessu viðkvæma máli er sú, að
lögreglan hefur opinberlega
skýrt frá því að hún hafi leitað
aðstoðar hans, og þótti því Mbl.
eðlilegt að hafa samband við
hinn hollenzka sjáanda. Það
kom fram f samtalinu við
Croiset, að hann telur að
Geirfinnur sé ekki lengur í tölu
lifenda. Taldi Croiset, að lík
hans lægi í sjó eða vatni f
800—1000 metra fjarlægð frá
heimili hans í Kcflavík, og alls
ekki lengra. Lægi það í
einhverju „tréverki", sem væri
hálft í kafi og hálft upp úr
vatninu. Væri um að ræða hús
eða skipsflak, en til greina
kæmi bryggja. Þegar Croiset
var spurður um aðdragandann
að hvarfi Geirfinns vildi hann
ekkert tjá sig um það, en
sagðist myndu á næstu dögum
gefa lögreglunni upplýsingar
um það mál.
I LJÓSI fyrrgreindra upplýs-
inga Croiset hafði Mbl. sam-
band við Hauk Guðmundsson
rannsóknarlögreglumann f
Keflavík f gærkvöldi. Hann
kvaðst myndu þegar gera ráð-
Framhaid á bls. 35
Gerard Croiset