Morgunblaðið - 09.01.1975, Síða 15

Morgunblaðið - 09.01.1975, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANUAR 1975 15 kaupfélaginu. Slík valdboðin at- vinnuskipting fær ekki samrýmzt því þjóðskipulagi, sem við búum við og viljum búa við. Einokunin úrelt byggðastefna Því miður hefur ekki enn verið mótuð nein heildarstefna i íslenzkum byggðamálum Ef slík stefna væri fyrir hendi, hefði sjálfsagt engum dottið í hug að grípa til svo handahófskenndra ráðstafana eins og einokunartil- burðanna við Húnaflóa. Ein- okunarstefnan gekk sér til húðar fyrir mörgum öidum sem íslenzk byggðastefna. Menn skyldu ekki gleyma, að það var ekki illvilji danskra stjórnvalda eða hags- munir einokunarkaupmanna, sem réðu þvi, að verzlunareinokunin var innleidd hér á landi. Henni var komið á til þess að tryggja aðdrætti á nauðsynjavörum til landsins, m.a. til þess að Islend- ingar flosnuðu ekki upp eða liðu hungursneyð, eða það vakti a.m.k. fyrir stjórnendunum. Hinir er- lendu kaupmenn töldu sig ekki geta lifað af íslandsverzluninni nema því aðeins, að þeir fengju einkaleyfi til viðskipta við lands- menn í tilteknum umdæmum. Auðvitað vildu stjórnendur lands- ins þá tryggja afkomuöryggi þjóð- arinnar og búsetu I landinu, en sáu ekki aðra leið færa til þess en þetta einokunarskipulag. Ein- okunin var því byggðastefna þess tíma, reist á skipulagshyggju. Hér er óþarft að útlista nánar afleið- ingar einokunarinnar, þær eru al- kunnar, og nú Ijúka víst allir upp einum munni um það, að hér varð læknisráðið verra en sjúkdómur- inn, sem lækna átti eins og oftast verður, þegar læknisráð í þjóð- félagsmálum er I þvf fólgið að hefta eðlilegt athafnafrelsi borg- aranna I atvinnumálefnum. Það er trú mln, að rækjuein- okunin mundi ekki verða þeim byggðalögum til neinna heilla, sem hún er nú sögð eiga að bjarga, frekar en verzlunarein- okunin reyndist íslenzku þjóðinni nokkurt bjargráð á sinum tima. Það er óheppilegt fyrir hvaða byggðalag sem er að verða um of háð einni atvinnugrein. Þó að rækjuveiði I Húnaflóa hafi gengið vel að undanförnu, getur hún brugðizt og gerir það trúlega öðru hvoru eins og annar sjávarafli, stundum vegna aflatregðu, stund- um vegna gæftaleysis. Tregt er alltaf öðru hvoru um sölu afurða á erlendum mörkuðum, og verð- lag sveiflast upp og niður, eins og á öðrum afurðum okkar. Þess vegna fer áreiðanlega bezt á þvi, þegar til lengdar lætur, að áhætt- unni af rækjuútgerð og rækju- vinnslu sé dreift með eðlilegum hætti, og þá jafnframt, að ágóð- inn dreifist, þegar vel 'arar og vel tekst til að öðru leyti. Fjölbreytni í stað forréttinda Þeir, sem nú vilja taka upp einokunarfyrirkomulag á rækju- veiðum og rækjuvinnslu á Húna- flóasvæðinu og annars staðar á landinu, vilja e.t.v. vel, en hafa ekki hugsað málið til enda. Til frambúðar mun það reynast bet- ur, að komið verði upp fjölþætt- ara atvinkulífi á Hólmavík, Drangsnesi, Hvammstanga og Skagaströnd, heldur en að fá þessum byggðarlögum nú forrétt- indi til einnar tegundar atvinnu- starfsemi. Slík ráðstöfun væri til þess fallin að slæva skilning íbúanna þar og ráðamanna þjóð- arinnar á þörfinni fyrir fjöl- breyttari afkomumöguleika. I öðrum löndum, þar sem byggða- stefna í atvinnumálum hefur verið mótuð af einhverju viti, er lögð á það áherzla að laða arðbær atvinnufyrirtæki til staða, þar sem skynsamlegt þykir að efla byggð og atvinnulíf. Þar hrópa ekki fyrirsvarsmenn byggðalag- anna hver í kapp við annan, að gróðasjónarmið og peningasjónar- mið megi hvergi komast að. Byggðastefna í atvinnumálum verður einmitt að byggjast á því, að atvinnufyrirtækin beri sig. Annars er byggðastefnan róman- tík. Atvinnufyrirtæki verður því ísjaki frá Borgarnesi til | i I Seltjarnarnesi. Báðar seinni Wa I f 1 Q T»TT Q T*TT PCC sýningarnar hefjast kl. 21.00 W I Cl/A lldl eins og hin fyrsta. Leikrit ** þetta hefur aðeins einu sinni að sjálfsögðu að byggja upp með það I huga fyrst og fremst, að þau skili hagnaði Þá fylgir með at- vinna, atvinnuöryggi, góð laun starfsmanna og velmegun. FarsæUi byggðastefna Svo að aftur sé stuttlega vikið að byggðamálunum við Húnaflóa sérstaklega vil ég benda á, að það væri farsælli þáttur í byggða- stefnu á þessu svæði af hálfu ríkisvaldsins, að leggja ríkari áherzlu en gert hefur verið á rannsókn annarra rækjumiða úti fyrir Norðurlandi, þ. á m. úti fyrir Húnaflóa, svo að allar verk- smiðjurnar, og jafnvel enn fleiri verksmiðjur, geti fengið rækju- afla til vinnslu lengri tíma úr árinu en nú er. Og vist væri það mennilegra af öllum þeim, sem hér eiga hagsmuna að gæta, bæði eigendum rækjuvinnslustöðva, útgerðaraðilum og sjómönnum, að taka höndum saman til leitar að nýjum rækjumiðum á nálæg- um slóðum við Húnaflóasvæðið heldur en að standa í innbyrðis striði og beina kröftum sinum að þvi einu að troða skóinn af náunganum. Reykjavík, 6. janúar 1975. Hörður Einarsson Ungmennafélagið Skalla- grímur í Borgarnesi heldur í leikferð um næstu helgi með leikritið „ísjakann" eftir Felix Lutzkendorf. Leikstjóri er Magnús Axelsson. Leikritið var frumsýnt á Borgarnesi 6. desember s.l. og hefur síðan verið sýnt þar 7 sinnum við afbragðs undirtektir áhorf- enda. Leikritið er létt ádeila á stríð og kvenréttindabaráttu og ætti því að falla í góðan jarðvegi á þessu nýbyrjaða kvennaári. Leikendur eru átta. Lagt verður af stað n.k. föstudag (10.1.75) og sýnt þá um kvöldið í Bíóhöllinni á Akranesi og hefst sýningin Myndin sýnir nokkra leik- endur í hlutverkum sinum. kl. 21.00. A laugardags- kvöld verður svo sýnt í Dala- búð i Búðardal og á sunnu- dagskvöld í félagsheimilinu á áður verið fært upp hér á landi, en það var í Mennta- skólanum v/Hamrahlíð á síðastliðnum vetri. Möeuleikar ® f F • þmir Nú fjölgar vinningum og heildarverömæti þeirra hækkar um rúmlega 55.5 milljónir króna, og til þess að gefa hugmynd um þá stórfelldu breytingu sem á sér stað, skal bent á að fjöldi 10 þúsund króna vinninga fjórfaldast, fjöldi 100 þúsund króna Ítrefaldast og fjöídi 200 þúsund króna vinninga tvö- aldast, og nú eru tveir milljón króna vinningar í stað eins áður. Teningunum er kastað. Nú er að vera með. Möguleikarnir eru miklir og miðinn kostar aðeins 300 krónur. Við drögum 10. janúar. Happdrœtti SÍBS Auknir möguleikar allra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.