Morgunblaðið - 09.01.1975, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1975
23
— Opið bréf
Framhald af hls. 21
skrárinnar skuli hljóöa svo sem
hér segir: „Forseti lýðveldisins
getur látið leggja fyrir Alþingi
frumvörp til laga og annarra sam-
þykkta.
Nú hefur einn af hundraði kjós-
enda undirritað yfirlýsingu, þar
sem þess er óskað, að tiltekið mál
verði lagt undir dóm þjóðarinnar
með þjóðaratkvæðagreiðslu. Er
þá forseta lýðveldisins skylt að
láta fara fram þjóðaratkvæða-
greiðslu um málið á næsta al-
mennum kjördegi. Ef óskað er
auka-kosninga um málið, þ.e.
kosninga, sem fram færu á öðrum
degi en almennum kjördegi, þarf
undirskrift 10 kjósenda af hundr-
aði, til þess að skylt sé að taka
málið fyrir. Kjósendum skal
leyft að velja, hvort þeir vilji
heldur að efnt veri til aukakosn-
inga um málið eða greitt verði
atkvæði um það á næsta almenn-
um kjördegi. Úrslit skulu vera
bindandi ef sextíu af hundraði
kjósenda eru málinu fylgjandi, en
ráðgefandi, ef fjörutiu af hundr-
aði kjósenda eru því hlynntir. Ut-
anríkismál skulu undanskilin
þessari löggjöf. Alþingi skal hafa
lögsögu yfir utanríkismálum, en
ráðgefandi skoðanakannanir
mega þó vera notaðar í sambandi
við utanríkismál.
Til þess að löggilda málefni sem
hefur fengið yfir sextíu af hundr-
aði fylgi kjósenda, með þjóðarat-
kvæðagreiðslu, þarf eigi að rjúfa
Alþingi, nema ef ríkisstjórn og
forseti lýðveldisins hafa neitað
samþykkt.
Ákvæi þetta útrýmir öllum mót-
sögnum þessu að lútandi.
2. gr.
Lög þessi ölast þegar gildi.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er flutt að
beiðni félagsskaparins Valfrelsi. I
mörg herrans ár hefur þjdð vorri
verið sagt með nefndarsamþykkt
um, umræðum og tilkynningum,
að verið væri að undirbúa lög-
gjöf um almenna þjóðaratkvæða-
greiðslu innan stjórnkerfis lands
vors. Meirihluti Valfrelsis álítur,
að nógu mikið hafi þegar verið
rætt og ritað um þetta mál og tími
til kominn að fá úr því skorið
hvort þjóðin vilji löggjöf setta um
almenna þjóðaratkvæðagreiðslu
eða ekki.
— Þeim var
ekki. . . .
Framhald af bls. 25
málvenjur enskrar tungu. Með
samanburði við frumritið, eftir
því, sem ég hefi aðstæður til, fæ
ég eigi betur séð, en að honum
hafi tekizt þýðingin prýðisvel.
Stuðlasetningu og öðru málskrúði
hefir hann einnig haldið, þar sem
honum fannst það við eiga. Tor-
skildum málsgreinum hefir hann
löngum leitazt við að snúa á sem
skiljanlegastan hátt, en þó stund-
um valið þá leið að láta lesandann
glima við túlkun þeirra.
Þýðingin er bæði vönduð og
snyrtileg að ytri búningi, en hún
er, eins og flest fyrri rit dr.
Schachs um íslenzk efni, gefin út
af University of Nebraska Press,
Lincoln, Nebraska, en við þann
merka rikisháskóla er dr. Schach
og hefir lengi verið prófessor I
germönskum tungumálum.
Umrædd þýðing er fimmta
meiri háttar verk, sem hann hefir
snúið úr íslenzku á enska tungu,
að meðtalinni Eyrbyggja sögu, er
hann þýddi I samvinnu við
prófessor Lee M. Hollander. Hin-
ar þýðingar hans taldi ég upp I
grein minni um þýðingu hans af
Á Njálsbúð, sem kom hér i blað-
inu 18. des. 1973, og sé þvi ekki
ástæðu til þess að endurtaka þá
upptalningu. Fleira athyglisvert
hefir hann einnig þýtt úr íslenzku
á ensku og ritað fjölda ritdóma
um íslenzk efni.
Af framantöldu er það auðsætt,
að vér tslendingar eigum hauk I
horni þar sem prófessor Paul
Schach er, og honum að sama
skapi ómælda þakkarskuld að
gjalda. Hann ber hátt I hópi hinna
afhafnasömustu unnenda fræða
vorra vestan hafs.
Þú færð meira fyrir krónuna 1
Kaupgarði,
því við bjóðum:
Dilkakjöt — saltkjöt — unnar kjötvörur — niðursoðna
ávexti —niðursoðið grænmeti — mjólkurvörur —
brauðvörur — hreinlætisvörur— og pappírsvörur.
Allar vörur á lægsta mögulega
Engin sparikort- engin afsláttarkort.
Opið: í dag 9 —12 &13—18.
Föstudag 9—12 &13—22.
Laugardag 9—12.
Suðurnesjamenn
Árshátíð sjálfstæðisfélaganna á Suðurnesjum verður' haldin i Festi í
Grindavík laugardaginn 1 1. janúar n.k. kl. 21.00. Hljómsveit Gizurar
Geirssonar leikur fyrir dansi. Halli og Laddi og Karl Einarsson
skemmta. MatthíasÁ. Mathiesen flyturávarp. Kórsöngur.
Miðapantanir eru hjá formönnum félaganna að viðkomandi stöðum.
Sjálfstæðisfélögih á Suðurnesjum.
Málfundafélagið Óðinn
heldur félagsfund fimmtudaginn 9. janúar kl. 20.30 i Miðbæ,
Háaleitisbraut 50—60.
Fundarefni:
1. Rætt um borgarmálefni.
Framsögumenn: Birgir Isl. Gunnarsson, borgarstjóri og Sveinn
B|örnsson,
verkfræðingur, stjórnarformaður S.V.R.
2. Önnur mál. Stjórnin.
Ólafsvík
Aðalfundur sjálfstæðisfélags Ólafsvikur og nágrennis sem fresta varð
vegna veikinda, verður haldinn í kaffistofu Hólavalla sunnudaginn 12.
janúar kl. 16.
'Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Rætt um hreppsmálin.
Félagar fjölmennið. Stjórnin.
Verkalýðsmálaráðstefna
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins og Málfundafélagið Óðinn, halda
Verkalýðsmálaráðstefnu, sunnudaginn 12. janúar að Hótel Loftleiðum,
Kristalssal og hefst kl. 10 f.h.
Dagskrá:
Kl. 10:00 Ráðstenan sett:
Gunnar Helgason, formaður Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins.
kl. 10:15 —12 Efnahagsmál:
Árni Vilhjálmsson, prófessor og G uðmundur Magnússon, prófessor.
Fundarstjóri: Pétur Hannesson, form. Óðins.
Kl. 1 3:30—1 5:00 Verkalýðs- kjara- og atvinnumál:
Ágúst Geirsson, form. Félags isl. simam., Guðmundur H. Garðarsson,
form. Verzlunarm.fél. Reykjavíkur, Pétur Sigurðsson, ritari Sjómanna-
fél. Reykjavikur.
Fundarstjóri: Hilmar Guðlaugsson, form. Múrarasambands ísl.
Kaffiveitingar.
Ávarp: Geir Hallgrimsson, formaður Sjálfstæðisflokksms.
Kl. 16:00—18:00 Staða atvinnuveganna:
Ágúst Einarsson, viðskiptafr. frá L.Í.Ú., Davið Sch. Thorsteinsson,
form. Félags isl. iðnrekenda. Gunnar Bjórnsson, form. Meistarasamb.
byggingarm., Þorvarður Eliasson, framkvæmdastjóri Verzlunarráðs ísl.
Fundarstjóri: Runólfur Pétursson, form. Iðju.
Allt Sjálfstæðisfólk velkomið á meðan húsrúm leyfir.
Áramótaspilakvöld
Áramótaspilakvöld Sjálfstæðisfélaganna i Reykjavík fimmtudaginn 9.
jénúar kl. 20.30 að Hótel Sögu Súlnasal.
Félagsvist: 7 glæsileg spilaverðlaun.
Formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir Hallgrims-
son forsætisráðherra, flytur ávarp.
Happdrætti: Vinningur utanlandsferð til
Mallorca með Ferðaskrifstofunni Úrval.
Nemendur úr dansskóla Hermanns Ragnars
sýna suður-ameríska dansa.
Karl Einarsson skemmtir með eftirhermum o.fl.
Dansað til kl. 1 e.m.
'HusiO opnað kl. 20.00
Miðar afhentir á skrifstofu Landsmálafélagsins Varðar að Galtafelli
Laufásveg 46, simi 15411.
Tryggið ykkur miða i tima. Skemmtinefndin.
UPP
SKAL ÞAÐ
Sjálfboðaliðc
vantar til ýmissa starfa,
laugardag kl. 1 3.00.
Betur má ef
duga skal