Morgunblaðið - 09.01.1975, Page 32

Morgunblaðið - 09.01.1975, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1975 Draumar og spádómar Kaflar úr Laxdaelu þeir koma upp og leggjast til lands. Þá mælti bæjar- maðurinn: „Hver er þessi maður?“ Kjartan sagði nafn sitt. Bæjarmaður mælti: „Þú ert sundfær vel, eða ertu að öðrum íþróttum jafvel búinn sem að þessari?" Kjartan segir og heldur seint: „Það var orð á, þá er ég var í íslandi, að þar færu aðrar eftir; en nú er lítils um þessa vert.“ Bæjarmaður mælti: „Það skiptir nokkru, við hvern þú hefur átt; eða hví spyr þú mig einskis?" Kjartan mælti „Ekki hirði ég um nafn þitt.“ Bæjarmaður mælti: „Bæði er, að þú ert gervilegur maður, enda lætur þú allstórlega. En eigi að síður skaltu vita nafn mitt eða við hvern þú hefur sundið þreytt. Hér er Ólafur konungur Tryggva- son.“ Kjartan svarar engu og snýr þegar i brott skikkjulaus. Hann var í skarlatskyrtli rauðum. Kon- ungur var þá mjög klæddur; hann kallar á Kjartan og bað hann eigi svo skjótt fara. Kjartan víkur aftur og heldur seint. Þá tekur konungur af herðum sér skikkju góða og gaf Kjartani; kvað hann eigi skikkjulausan skyldi ganga til sinna manna. Kjartan þakkar konungi gjöfina og gengur til sinna manna. (Laxdæla, kap. 40). Heimför Um sumarið eftir sendi konungur þá Gissur hvíta og Hjalta Skeggjason til Islands að boða trú enn af nýju, en hann tók fjóra m.enn að gislum eftir, og var einn þeirra Kjartan Ólafsson. Bolli ræðst til farar með þeim Gissuri og Hjalta. Síðan gengur hann að hitta Kjartan frænda sinn og mælti: „Nú er ég búinn til farar, og mundi ég bíða þín enn næsta vetur, ef að sumri væri lauslegra um þína ferð en nú. En ég þykist hitt skilja, að konungur vill fyrir engan mun þig lausan láta. Enn hef ég það fyrir satt, að þú munir fátt það, er á íslandi er til skemmtunar, þá er þú situr á tali við Ingibjörgu konungssystur.“ Hún var þá með hirð Ólafs konungs og þeirra kvenna fríðust, er þá voru í landi. Kjartan svarar: „Haf ekki slíkt við, en bera skaltu frændum vorum kveðju mina og svo vinum.“ Eftir það skiljast þeir Kjartan og Bolli. Gissur og Hjalti sigla af Noregi og verða vel reiðfara. Fara þeir til alþingis og töldu trú fyrir mönnum, og tóku þá allir menn trú á íslandi. Bolli reið í Hjarðarholt af þingi með Ólafi frænda sínum; tók hann við honum með mikilli blíðu. Bolli reið til Lauga að skemmta sér, þá er hann hafði litla hríð verið heima; var honum þar vel fagnað. Guðrún spurði vandlega um ferðir hans, en því næst að Kjartani. Bollileysti úr því öllu, er Guðrún spurði; kvað allt tíðindalaust um ferðir sínar — „en það er kemur til Kjartans, þá er það með miklum ágætum að segja satt frá hans kosti, því að hann er í hirð Ólafs konungs og metinn þar umfram hvern mann. En ekki kemur mér að óvörum, þó að hans hafi hér í landi litlar nytjar hina næstu vetur.“ Guðrún spurði þá, hvort nokkuð héldi til þess annað en vinátta Sagan af Trygg Einu sinni átti ég hund. Hann var bæði gáfaður og fallegur, hann var svartur að lit. Þegar þessi hundur var á unga aldri, dó móðir hans svo að ég varð að gæta hans, og hændist hann þá mjög að mér. Ég skírði hann Trygg. Þá vissi ég ekki að hann átti eftir að bjarga mörgum mannslífum. Eitt sinn, er ég og Tryggur vorum uppi á f jöllum, ég var á skíðum, var veður vont, mikil hríð var og snjókoma. Sá þessi hundur hvar mikil snjóskriða féll, en ég sá það ekki af því að ég datt um staur, er lá í snjónum. Tryggur tók að gelta og hljóp aftur og fram og elti ég hann uns hann tók að grafa i snjónum. Sá ég hvar maður lá þar í snjónum og rankaði hann fljótt við sér og sagði að þeir hefðu verið þrír saman, og fundum við hina tvo. Þeir voru heilir á húfi og var það Trygg að þakka. Steinunn Guðbjartsdóttir, 10 ára. DRATTHAGI BLYANTURINN feroiimaimd oítjunkQffinu Áramót- unum seinkaði I erlendum blöðum má lesa að áramótunum hafi seinkað um eina sek- úndu, og því er bætt við að þar af leiðandi hafi verið skálað fyrir nýju ári of fljótt. — Það sem veldur þessu er að snúningshraði jarðar- nnar hafði ekki ver- ið eins mikill og ella. Um allan heim höfðu tækni- menn sem stjórna gangi hinna ráðandi úrverka nóg að starfa um áramót- in til þess að mæta þess- ari seinkun og stilla úrin rétt. . , »r> Aðra eins umferð hef ég ekki séó. Alla leiðina voru stuðarar bílanna hver á öðrum. Ég var sendur af starfsfólkinu til þess að óska forstjóranum góðs bata, en það samþykkti þetta með 7 atkvæðum gegn 5. Nú í lok fréttatímans má geta þess að frá því fréttatíminn hófst hefur dýrtíðin í landinu vaxið um 15 prósent.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.