Morgunblaðið - 11.01.1975, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.01.1975, Blaðsíða 1
32 SIÐUR 8. tbl. 62. árg. LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Evensen gegn „þorskastríði” Ösló, 10. jan. NTB. JENS Evensen Iandhelgisráð- herra sagði, að norska stjórnin ætlaði ekki að koma af stað „þorskastríði", þegar efri deild norska þingsins samþykkti f dag frumvarp stjórnarinnar um tog- veiðibann á svæðum utan land- helginnar með aðeins einu mótat- kvæði. Hann varaði eindregið við þvf að landhelgin yrði færð út ein- hliða og kallaði það „ævintýra- pólitfk“, sem engin ábyrg ríkis- stjórn gæti fylgt, allra sfzt á Barentshafi. Jafnframt sagði Evensen f lok umræðnanna um frumvarpið, að hin almenna samstaða um það hefði mikla þýðingu fyrir rfkis- stjórnina í þeim viðræðum sem fara fram á næstunni um tog- veiðibannið og einnig f fyrirhug- uðum viðræðum um útfærslu landhelginnar. Evensen og Evind Bolle sjávar- útvegsráðherra tóku fram að þeg- ar togveiðibanninu hefði verið komið á yrði næsta skrefið við- ræður um 50 milna landhelgi og jafnframt yrði stefnt að þvf að afla viðurkenningar á 200 mílna efnahagslögsögu og koma þvf til leiðar að þeirri reglu yrði fram- fylgt. Bolle lagði áherzlu á mikilvægi þess að dregið yrði úr miklum ágangi togara á Barentshafi með togveiðibanni. Samkvæmt lögun- um sem hafa verið samþykkt verða togveiðar bannaðar á fjór- um svæðum undan Vesterálen, Senja og strönd Finnmerkur í Norður-Noregi. Aðalmálgagn Miðflokksins, Nationen, segir i leiðara f dag að Norðmenn hafi flækzt inn í alltof r Iran kaupir Concorde London, 10. janúar. AP. IRAN ætlar að kaupa fjórar hljóð- fráar Concorde-þotur af Bretum og Frökkum og leigja þær banda- rfska flugfélaginu Pan American að því er BBC skýrði frá f kvöld. Kaupverðið er um 100 milljón pund. alvarlegar viðræður þar sem að- eins hafi verið ætlunin að skýra frá fyrirætlunum um togveiði- bannið. Blaðið segir að Bretar hafi haft ' í hótunum í þessu sambandi og telur að þeim verði að mótmæla kröftuglega og taka fram að ekk- ert mark verði tekið á þeim. Norð- menn séu í fullum rétti og hafi staðið við alþjóðlegar skuldbind- ingar með því að skýra hlutaðeig- andi ríkjum frá fyrirætlunum sín- um og hlýða á sjónarmið þeirra. Þá hvetur málgagn Verka- mannaflokksins í Tromsö, Nordlys, til þess I leiðara í dag að stjórnin láti útfærslu landhelg- innar ganga fyrir togveiðibann- ínu þar sem viðræður um þær hafi siglt í strand. Sigurvegari dönsku kosninganna, Poul Hartling forsætisráðherra, fyrir framan Amalienborgarhöll í gær er hann hafði skýrt Margréti drottningu frá úrslitunum. OVISSAN ENGU MINNI EFTIR KOSNINGARNAR Hartling í erfiðri aðstöðu Kaupmannahöfn, 10. janúar. Frá fréttaritara Mbl. Jörgen Harboe. og fréttaritara NTB, Hávard Narum. POUL Hartling forsætisráðherra og þrfr nánustu samstarfsmenn hans úr Vinstri flokknum hófu viðræður f dag við fulltrúa ann- arra þingflokka um myndun nýrr- ar stjórnar eftir kosningarnar sem virðast jafnvel hafa aukið ringulreiðina f danska þinginu og óvissuna f dönskum stjórnmálum, en Hartling virðíst staðráðinn f að sitja áfram. Flestir stjórnmálasérfræðingar benda á að nú geti verið að Hartl- ing neyðist til að velja á milli sósfaldemókrata og Framfara- flokks Mogens Glistrups sem sam- starfsaðila ef stjórnin eigi að geta setið að völdum þegar þing kem- ur saman 23. janúar, en hann leggur áherzlu á að tryggja stuðn- ing sósfaldemókrata. Anker Jörgensen, foringi sósfaldemókrata, og leiðtogar hinna sósfalistfsku flokkanna skoruðu á Hartling að segja af sér f viðræðunum f dag svo að kanna mætti möguleika á myndun meirihlutastjórnar undir forystu sósfaldemókrata. Hartling vfsaði þessari áskorun á bug en kvaðst mundu fhuga hana f samræmi við ráðleggingar sem hann fengi frá öðrum flokk- um, Borgaraflokkarnir haf a beðið stjórn Hartlings að sitja áfram. Sjálfur hefur Hartling bent á þann mikla sigur Vinstri flokks- ins að bæta við sig 20 þingsætum. „Þegar flokkur vinnur svona mik- ÞINGAÐ UM OLIU Washington, 10. janúar. Reuter. SÉRFRÆÐINGAR helztu iðnað- arrfkja heims komu saman ti) fundar f Washington f dag um leiðir til að leysa erfiðleikana af völdum fimmfaldrar hækkunar verðs á olíu. Enginn fulltrúi mætti frá Vest- ur-Þýzkalandi og þvf mun dragast að rætt verði um ágreining Efna- hagsbandalagslandanna og Bandarfkjanna um flutning olfu- tekna frá olfurfkjunum til olfu- neyzlulandanna. Þó er talið að fulltrúar vestur- þýzka seðlabankans og fjármála- ráðuneytisins i Bonn mæti til fundarins á sunnudag og daginn eftir hefjast viðræður sérfræð- inga 10 helztu iðnaðarrikjanna fyrir alvöru. Á þriðjudaginn þinga fjármálaráðherrar land- anna. Vestur-Þjóðerjar hafa tekið dræmt í þá hugmynd Bandaríkja- manna að 23 aðildarríki OECD myndi sameiginlegan sjóð sem ríki er eiga I efnahagserfiðleikum geti fengið lánað úr. inn sigur væri það Iftilsvirðing við kjósendur að hún segði af sér,“ sagði hann þegar úrslitin lágu fyrir. Því er spáð að viðræður flokk- anna muni standa i 10 daga og takist ekki að ná samkomulagi er tryggi stjórninni vínnufrið með stuðning meirihluta þingsins að baki fyrir þingsetninguna 23. janúar bendir margt til þess að lögð verði fram tillaga um að stjórnin segi af sér, og Róttæki flokkurinn hótaði í dag að beita sér fyrir slikri vantrauststillögu. Nú má heita að það sé orðin hefð i dönskum stjórnmálum þegar ríkisstjórn hefur ekki öruggan þingmeirihluta að haga þannig seglum eftir vindi að hún fái aldrei meirihlutann á móti Framhald á bls. 18 Hvar er Brezhnev? Moskvu, 10. jan. AP. VESTRÆNIR diplómatar sögðu dag að þeir hefðu engar sannan fyrir því að Leonid Brezhnev væ alvarlega veikur og að völd hai væru í hættu. Síðan Brezhnev aflýsti fei sinni til Sýrlands og Egyptalam hafa verið fréttir um að han þjáist af hjartasjúkdómi eða hvi blæði og’ bollaleggingar eru haf ar um eftirmann hans. Hann sá síðast opinberlega á aðfangadag. 10 PÓLSKIR SJÓ- MENN FÓRUST Kaupmannahöfn 10. jan. NTB. 10 PÓLSKIR sjómenn fórust f höfninni f Hanstholm f Dan- mörku f gær, er skip þeirra, togarinn Brbra, kastaðist f fár- viðri upp að steinsteyptum brimgörðum og hvolfdi sfðan. Þyrlur björguðu 17 manns af áhöfninni, sem var 27 manns. Togarinn, sem var 650 lestir að stærð, hafði orðið fyrir stýris- bilun og var dráttarbátur með hann f togi á leið inn f höfnina, er slysið varð. Höfnin I Hanst- holm var byggð á algerri hafn- leysu; á sendinni strönd Jót- lands við Norðursjó. A mynd- inni sést flak togarans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.