Morgunblaðið - 11.01.1975, Blaðsíða 4
4
n
i
® 22-0-22*
RAUOARÁRSTÍG 31
________________/
LOFTLEIÐIR
BfLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
LOFTLEIÐIR
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1975
STAKSTEINAR
Tvenn ósannindi
Mætur maður hafði það að
gamanmáli, að Þjóðviijinn
segði aldrei satt, utan stöku
sinnum óviljandi. Þetta eru að
vfsu ýkjur, en öllu gamni fylgir
nokkur alvara. 1 föstudagsbiaði
Þjóðviljans er birt þingræða
Kjartans Ölafssonar, ritstjóra
biaðsins, um breytta skipan á
kjörtfma útvarpsráðs. Þar tekst
ritstjóranum fimlega að koma
fyrir tvenns konar ósannindum
f örstuttu máii. Hann segir orð-
rétt:
„Svo er talað um að minni-
hlutahópar drottni f útvarpinu.
Og þá er vitnað til dagskrá
stúdenta 1. desember. Hver er
sannleikurinn um það? Við
skulum hugsa okkur þann
minnihlutahóp sem var ánægð-
ur með þá dagskrá. Hann er
sjálfsagt til en ég hygg hann
lftinn, ekki var ég ánægður. En
á að reka útvarpsráð fyrir að
banna ekki útvarp frá fundi
stúdenta 1. desember? Morgun-
blaðið krefst þess, og það gerði
hróp að útvarpsráði fyrir að
ritskoða ekki.“
Hér er þvf haldið fram: 1. Að
Morgunblaðið hafi krafist þess,
að ekki yrði útvarpað frá 1.
desember samkomu vinstri
stúdenta. 2. Þegar það fékkst
ekki fram, þá hafði blaðið
krafist þess, að útvarpsráð yrði
rekið. Hvorttveggja er rangt,
enda reynir þingmaðurinn ekki
að finna orðum sfnum stað með
tilvitnun f blaðið.
Hvað sagði
Morgunblaðið?
Morgunblaðið fjallaði um
þessi mál f leiðara, 4. desember
sl. Þar segir orðrétt:
„Rfkisútvarpið útvarpaði frá
samkomunni og þar með frá-
sagnarfölsunum svonefndra
hernámsandstæðinga, sem svið-
settu Iftilfjörlegan sjónleik á
Keflavfkurflugvelli f þvf skyni
að krydda samkomuna og út-
varpsdagskrána. f annan tfma
hefur rfkisútvarpið ekki jafn
rækilega afhjúpað þann hóp
manna, sem að þessum trúar-
söfnuði stendur. 1 raun réttri
væri mjög æskilegt að útvarpið
endurflytti þessa dagskrá svo
að ekki fari fram hjá neinum,
hvaða augum vinstri stúdentar
f Háskóla Islands Ifta fullveldi
og sjálfstæði þjóðarinnar."
Hér kveður við annan tón en
Þjóðviljaritstjórinn vill vera
láta. En það er f sjálfu sér
táknrænt og dulftið skemmti-
legt, að undanfari þessara tvö-
földu ósanninda Þjóðviljarit-
stjórans, þegar hann setur sam-
an ósannindavaðalinn, skuli
vera svohljóðandi setning:
„Hver er sannleikurinn um
það?“
Viðbrögð
almennings
Hitt er svo annað mál, að
viðbrögð almennings við þess-
um fádæma samsetningi
vinstri stúdenta á fullveldis-
daginn voru á ýmsa lund og
komu fram f fjölda lesenda-
bréfa f flestum dagblöðum
okkar. Og ekki ber á öðru en
jafnvel Þjóðviljaritstjórinn
taki undir með þeirri gagnrýni.
Hann segir: „við skulum hugsa
okkur þann minnihlutahóp,
sem var ánægður með þá dag-
skrá. Hann er sjálfsagt til en ég
hygg hann lftinn. Ekki var ég
ánægður.“ Bragð er að þá barn-
ið finnur. Og rétt er að vinstri
stúdentar við Háskóla Islands
taki þessa ádrepu lærimeistara
sfns til yfirvegunar.
<g
BÍLALEIGAN
51EYSIR
CAR RENTAL
i» 24460
28810
piOMŒEn
Útvarp og stereo, kasettutaeki
HVAÐ GAMALL
TEMUR UNGUR
! SAMVINNUBANKINN
ISI
FERÐABILAR h.f.
Bilaleiga, sími 81260.
Fólksbilar — stationbilar —
sendibilar — hópferðabílar.
Lausn
skipstjórans
Hentugasti dýplarmaelirinn fyrir
10—40 tonna báta, 8 skalar
niður á 720 m dýpi, skiptanleg
botnlína, er greinir fisk frá botni.
Dýpislina og venjuleg botnlina,
kasetta með 6" þurrpappir, sem
má tvínota.
SIMRAD
Braeðraborgarstig 1,
s. 14135 — 14340.
I
IHorgtmblaíití)
margíaidar
murksð gðor
FráBridgefélagi
Hagnarfjarðar
Lokið er árlegri sveitakeppni
félagsins og varð röð sveitanna
þessi:
Sveit:
Sævars Magnússonar 142
Kristjáns Andréssonar 136
Óla Kr. Björnssonar 133
Ö1 afs G ísl ason ar 98
Jóns Gislasonar 90
Sigurðar Lárussonar 86
Sverris Jónssonar 79
Gunnlaugs Sveinssonar 70
Einars Sigurðssonar 51
Sigurðar Sigurðssonar 13
1 sveit Sævars eru ásamt hon-
um Arna Þorvaldsson, Hörður
Þórarinsson, Halldór Bjarna-
son, Þorsteinn Þorsteinsson og
Einar Árnason.
Næstu verkefni félagsins eru
kynningarkvöld, sem haldið
verður f Skiphóli mánudaginn
13. janúar og hefst kl. 20.
Verður íþróttin kynnt þar ræki-
lega og eru allir áhugamenn
hvattir tii aö mæta. Félagar í
B.H. munu þá spila við hvern
þann sem þess æskir — en
einnig verður eitthvað til
skemmtunar.
Mánudaginn 20. janúar hefst
svo tvfmenningskeppni með
Barometerfyrirkomulagi.
öllum er heimil þátttaka. Allar
nánari upplýsingar gefur Jón
Gíslason í síma 51048.
XXX
Frá Bridgefélagi
Siglufjarðar
Þann 16. des. sl. lauk 4ra
kvölda hraðsveitakeppni um
Samvinnubikarinn og sigraði
sveit Boga Sigurbjörnssonar
með nokkrum yfirburðum og
hlaut 1.637 stig. 1 sveit Boga
eru auk hans þeir Anton og Jón
Sigurbjörnssynir og Hreinn
Steinsson. Röð sveitanna varð
þessi:
Sveit: stig
1. Boga Sigurbjörnssonar 1.637
2. Steingr. Magnúss. 1.518
3. Hinriks Aðalsteinssonarl.480
4. Sigurðar Hafliðasonar 1.380
5. Páis Pálssonar 1.359
6. Jóhannesar Hjálmarss. 1.251
Sunnudaginn 29. des. fór
fram hin árlega bæjarkeppni
milli norður- og suðurbæjar.
Suðui bæingar komu sigurvissir
til leiks að vanda, enda bikar-
hafar a.m.k. sl. 10 ár. Ekki vildi
þó betur til en svo að jafntefli
varð. Var þá ákveðið að endur-
taka keppnina sunnudaginn 5.
jan. ’75, Er ekki að orðlengja
það, að suðurbæingar fengu þá
herfilegustu útreið sem um
getur í þessari keppni og töp-
uðu með 60 stiga mun, eða 79
stigum gegn 19. Varð fyrirliða
suðurbæjar Valtý Jónassyni
svo mikið um þetta, að hann
lýsti þvf yfir, um leið og hann
afhenti bikarinn, að nú yrði
hann ekki lengur fyrirliði.
Mánudaginn 13. jan. n.k.
hefst hin árlega fyrirtækja-
keppni félagsins.
A.G.R.
Athugasemd-
ir póstmanna
EFTIRFARANDI hefur Mbl. bor-
izt frá stjórn Póstmannafélags Is-
lands:
„Stjórn PFl óskar þess, að dag-
blað yðar birti eftirfarandi at-
hugasemdir vegna fréttatilkynn-
inga samgönguráðuneytisins frá
3. og 7. þ.m. og vegna frétta i
fjölmiðlum af fundi, sem stjórn
PFÍ hélt meö fréttamönnum
vegna setningar reglugerðar um
stjórn og skipulag póst- og síma-
mála.
1. Vegna fréttatilkynningar frá
samgönguráðuneytinu þann 7.
þ.m. óskar stjórn PFl að taka
fram, að samgönguráðherra hefur
ekki boðað stjórn félagsins á sinn
fund vegna nýtilkominnar reglu-
gerðar um stjórn og skipulag póst-
og símamála, heldur fékk stjórn-
in, eftir ítrekaðar tilraunir, fund
með ráðherra þrem dögum eftir
gildistöku umræddrar reglugerð-
ar.
2. 1 fréttatilkynningu frá sam-
gönguráðuneytinu þann 3. þ.m. er
sagt frá nefnd, sem þáv. sam-
gönguráðherra skipaði hinn 19.
mars 1973 til þess m.a. að gera
tillögur um breytingar á skipulagi
póst- og sfmamála. I erindisbréfi
til nefndarmanna segir m.a.: „I
störfum sínum skal nefndin
aðstoðar þeirra st"-'- '7*.
H „.cirsmannapósts
°5 *.uia, sem hlut eiga að máli, og
annarra sérfróðra aðila, eftir því
sem hún telur ástæðu til.“ Hafa
nefndarmenn virt framangreind
fyrirmæli ráðherra að vettugi,
þar eð ekkert samráð var haft við
starfsmenn þá, er hlut áttu að
máli.
4. Þá vill stjórn PFl taka fram
að gefnu tilefni, að auk þeirra
vinnubragða, sem hafa verið við-
höfð við undirbúning og setningu
reglugerðar um stjórn og skin-
lag póst- og sfmamá'" ’ ,
ósátt ví^ -■ —“a’ er ^un
. .v, ymis efnisatriði í nefndri
reglugerð.
Reykjavfk, 8. janúar 1975.
Stjórn PFI.
Símamenn ekki mót
maftltir sflmnÍM ívn
mnxig Ulll
MBL. hefur borizt eítirfarandi
fréttatilkynning frá Félagi ís-
lenzkra sfmamanna:
Vegna þeirra umræðna, sem
fram hafa farið um nýja reglu-
gerö UITl stjórn og skipulag póst-
og simamáia þykir Síjéfn Félags
íslenzkra sfmamanna rétt að eftir-
farandi komi fram.
Stjórn F.I.S. hefur rætt hina
nýju reglugerð og samS"1-1-' .
ekkí ' - ----að
... oc astæða til að mótmæla
henni, en að félagið leggi höfuð-
áherzlu á, að það verði haft með í
ráðum um þær skipulagsþreyting-
ar í stofnunínni, sem af setningu
reglugerðarinnar leiða. Stjórnin
lítur svo á, að reglugerðin sé
aðeins rammi um þær þreytingar,
sem eigi að gera og að það skipti
starfsfólkið mestu, hvernig fram-
kvæmdin verði í einstökum atrið-
um.
Málið hefur verið tekið fyrir í
Starfsmannaráði landssimans,
þar sem eiga sæti fulltrúar félags-
ins og forstöðumenn stofnunar-
innar. Kefur ráðið ákveðið, með
samþykkt ~~ Slmamála.
stjóra, að fjalla um væntanlegar
skipulagsbreytingar.
Stjórn F.I.S. væntir þess að
samstaða náist um þær breyt-
ingar, sem þegar er hafinn undir-
búningur að, bæði innan st£*“_
unarinnar og m"* samgönguráð-
herra.