Morgunblaðið - 11.01.1975, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1975
23
Guðbjörg Lilja
Túbals—Minning
Guðbjörg Lilja Túbals var fædd
í Múlakoti i Fljótshlíð 23. maí
1894, dóttir hjónanna Guðbjargar
A. Þorleifsdóttur og Karls Túbals
Magnússonar.
Guðbjörg Lilja ólst upp í Múla-
koti með foreldrum sinum, syst-
kinum og fóstursystkinum við bú-
skaparstörf, en tók fljótt þátt I
gestamóttöku og gestgjafastörf-
um foreldra sinna og fórst það svo
vel úr hendi að fáir gátu hugsað
sér Múlakot án hennar.
Ung að árum fór hún til Reykja-
víkur og lærði þar m.a. sauma-
skap. Arið 1927 fór hún til Sví-
þjóðar og dvaldi þar i eitt ár, en
útþráun var henni í blóð borin
eins og svo mörgum öðrum
íslenzkum sveitabörnum, þótt
heima yrðu að sitja.
Þegar Lilja kom heim frá Sví-
þjóð var kominn að Múlakoti
ungur og efnilegur vinnumaður,
Jón Guðjónsson, og felldu þau
hugi saman og giftust 10. janúar
1932.
Ungu hjónin byrjuðu svo bú-
skap að Svanavatni i Austur-
Landeyjum og bjuggu þar á
annan áratug. Árið 1947 fluttust
þau hjón til Reykjavikur, vegna
heilsuleysis Jóns, og áttu þar
heima siðan.
Guðbjörg Lilja var létt í lund og
hvers manns hugljúfi. Merk kona
i Rangárþingi sagði um hana að
aldrei væri svo svart myrkur inni,
að bærinn fylltist ekki af sólskini,
þegar Lilja kæmi.
Hún var tíguleg i framgöngu og
bar með sér reisn og fágæta per-
sónutöfra, enda ekki langt að
sækja, þar sem foreldrar hennar
og Múlakotsheimilið var.
Hún var trygglynd og átti sér
enga óvildarmenn, en þeir sem
kynntust henni bundust henni
sterkum vináttuböndum, enda
var hún gjafmild, gestrisin og
hjálpsöm. Hún var félagslynd og
tók mikinn þátt í ýmsum félags-
málastörfum sveitar sinnar. Allt
sitt líf var hún bundin Fljótshlið-
inni sterkum böndum, en þó fyrst
og fremst býlinu fagra, Múlakoti
og minningunum þaðan um glaða
æskudaga og gróandi vor.
Lilja varð þeirrar miklu gæfu
aðnjótandi að eignast góðan og
dugandi mann, sem bar hana á
örmum sér í blíðu sem striðu, og
nú siðast mörg, löng þjáningar- og
veikindaár.
Þeim hjónum varð ekki barna
auðið, en ólu upp kjördóttur sina,
— Valgerði, — en misstu hana
unga af slysförum frá ungri dótt-
ur, — Halldóru Lilju, — sem þau
ólu einnig upp.
öll sin búskaparár að Svana-
vatni tóku þau hjónin börn og
unglinga til sumardvalar, eða til
lengri tíma. Þau minnast öll veru
sinnar að Svanavatni með gleði og
þakklæti til Lilju og Jóns.
Guðbjörg Lilja andaðist eftir
stranga sjúkdómslegu á Landa-
kotsspitala 6. þ.m. og verður útför
hennar gerð í dag frá Hlíðarenda
kirkju í Fljótshlíð, og verður hún
jarðsett í heimagrafreit ættar-
innar að Múlakoti.
Blessuð sé minning hennar.
Jón I. Bjarnason.
Messur á
Dómkirkjan
Messa kl. 11 árd. Sr. Þórir
Stephensen. Barnasamkoma kl.
10.30 I Vesturbæjarskóla við
Öldugötu. Frú Hrefna Tynes
talar við börnin. Sr. Óskar J.
Þorláksson.
Asprestakall
Barnasamkoma kl. 11 árd. i
Laugarásbiói. Skátamessa að
Norðurbrún 1 kl. 2 síðd. Allir
eru velkomnir, yngri sem eldri.
Sr. Grímur Grimsson.
Dómkirkja Krists konungs
Landakoti
Ligmessa kl. 8.30 árd. Hámessa
kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2
siðd.
Laugarneskirkja
Messa kl. 2 siðd. Barnaguðs-
þjónusta kl. 10.30 árd. Sr.
Garðar Svavarsson.
Háteigskirkja
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Sr. Jón Þorvarðsson. Messa kl.
2 síðd. Sr. Arngrímur Jónsson.
Neskirkja
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Sr. Jóhann Hlíðar. Guðsþjón-
usta kl. 2 siðd. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Seltjarnarnes
Barnasamkoma í Félagsheimil-
inu kl. 10.30 árd. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Árbæjarprestakall
Barnasamkoma í Arbæjarskóla
kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta í
skólanum kl. 2 siðd. Æskulýðs-
félagsfundur kl. 8.30 síðd. á
sama stað. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
Bústaðakirkja
Barnasamkoma kl. 11 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Sr.
Einar Sigurbjörnsson dr. theol.,
Hálsi Fnjóskadal, prédikar.
„Opið hús“ hjá Æskulýðsfélag-
inu kl. 8.30 siðd. Sr. Ólafur
Skúlason.
Elliheimilið Grund
Guðsþjónusta kl. 10 árd. Sr.
Lárus Halldórsson prédikar.
Grensássókn
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðsþjóðnusta kl. 2 siðd. Sr.
Halldór S. Gröndal.
Borgarspítalinn.
Messa á fjórðu hæð spitalans
kl. 10 árd. Sr. Halldór S. Grön-
dal.
Langholtsprcstakall
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Sr. Árelíus Nielsson. Guðsþjón-
usta kl. 2 síðd. Elísabet Erlings-
dóttir syngur við messuna. Sr.
Arelius Nielsson. Óskastundin
kl. 4 siðd. Sr. Sigurður Haukur
Guðjónsson.
morgun
Hallgrimskirkja
Messa kl. 11 árd. Dómprófastur-
inn sr. Óskar J. Þorláksson
setur sr. Karl Sigurbjörnsson
inn í embætti. Guðsþjónusta kl.
4 síðd. Sr. Jón Dalbú Hróbjarts-
son skólaprestur messar. —
Altarisganga. Kirkjukaffi í
safnaðarheimilinu eftir messu í
umsjá Kristilegra skólasamtaka
og Kristilegs stúdentafélags.
Sóknarprestar.
Frikirkjan í Reykjavik
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2
siðd. Sr. Þorsteinn Björnsson.
Fíladelffa.
Safnaðarguðsþjónusta kl. 2
síðd. Almenn guðsþjónusta kl.
8 síðd. Einar Gislason.
Breiðholtsprestakall
Fjölskyldumessa í Breiðholts-
skóla kl. 2 síðd. Sunnudagaskóli
kl. 10.30. Sr. Lárus Halldórsson.
— Mynt
Framhald af bls. 10
in frá hinu þekkta sænska fyrir-
tæki Sporrong. Nokkur merkj-
anna, einkum frá slökkviliSunum,
eru gerð í Bandarikjunum.
Að því hefir verið vikið áður hér
i þættinum, að það er mörgu að
safna tengdu Islandi i mynt,
merkjum og minnispeningum.
Otto Christensen hefir riðið á vað-
ið með þvi að safna merkjum og
er það áreiðanlega jafn heillandi
söfnun og hver önnur. Það er þvi
einstakt tækifæri sem gefst i dag
að hlusta á hann segja frá þvi
hvernig hann fer að þvi að ná
saman merkjunum og að sjá hið
ágæta safn hans. Ef til vill verður
þetta til þess að fleiri fara að
halda saman þessum gripum og er
þá vel farið, þvi áreiðanlega hafa
margir góðir hlutir glatazt á und-
anförnum árum vegna þess að
menn gerðu sér ekki grein fyrir
sögulegri þýðingu þeirra. Þeir sem
gætu gefið Otto Christensen upp-
lýsingar um merki geta náð i
hann i sima 22886 i Reykjavik
eða skrifað Morgunblaðinu bréf,
merkt „SAFNARINN".
Samstarf Norræna hússins og
Myntsafnarafélagsins hefir verið
með ágætum undanfarið enda hef-
ir stjórn hússins sýnt einstaka vel-
vild. Otto Christensen er þriðji
fyrirlesarinn sem kemur fram á
vegum Myntsafnarafélagsins.
Hinir voru hinn þekkti danski
myntfræðingur og myntsali Johan
Chr. Holm og frú Elsa Lindberger
Digranesprestakall
Barnasamkoma kl. 11 árd. i Vig-
hólaskóla. Guðsþjónusta kl. 2
siðd. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
Kársnessókn
Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd. í
Kársnesskóla. Messa í Kópa-
vogskirkju kl. 11 árd. Sr. Arni
Pálsson.
Garðasókn
Barnasamkoma I skólasalnum
kl. 11 árd. Sr. Bragi Friðriks-
son.
Hafnarfjarðarkirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd.
Sr. Garðar Þorsteinsson
Frfkirkjan Hafnarfirði
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 siðd. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson
Keflavíkurkirkja
Messa kl. 2 síðd. Sr. Björn
Jónsson.
Kirkja Óháða safnaðarins
Messa kl. 2 siðd. Sr. Emil
Björnsson.
sænskur myntfræðingur. Að fyrir-
lestri sínum loknum mun Otto
Christensen svara fyrirspurnum
og leiðbeina um söfnun merkja, ef
óskað er.
Það hefir vonandi ekki farið
fram hjá neinum, að prentvillu-
púkinn striddi okkur dálltið i sein-
asta þætti. Bent var á að taka
medaliur þjóðhátiðarnefndar
Reykjavikur i listann „islenzkar
myntir" á næsta ári til viðbótar
við hinar fallegu medaliur þjóð-
hátiðarnefndar 1974.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á I
miðvikudagsblaði, að berast f
sfðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera f sendibréfs-
formi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
mcðgóðu Ifnubili.
Félagsheimilið,
Seltjarnarnesi
Skallagrímur sýnir leikritið „ísjakann" eftir Felix
Lutzkendorf annað kvöld kl. 21 .
Leikstjóri Magnús Axelsson.
Miðasala í Félagsheimilinu frá kl. 1 6 á morgun.
Skallagrímur, Borgarnesi.
Judo
Judo
Innritun er hafin. Getum bætt við byrjendum í
alla flokka. Þeir byrjendur sem voru skráðir á
biðlista vinsamlegast hafið samband við skrif-
stofuna strax. Væntanlegur er 16. þ.m. pró-
fessor N. Yamamoto . Dan. Ekki er þörf að
kynna hann nánar því hann er öllum júdómönn-
um af góðu kunnur frá fyrri árum. Hann mun
kenna hjá félaginu næstu 2 til 3 mánuði.
Nánari uppl. í síma 83295.
Júdodeild Ármanns, Ármúla 32.
PELICAN
HVOLL
Stórdansleikur í kvöld
Pelican í síðasta skipti austan fjalls til vors.
Sætaferðir frá B.S.Í.
UMF Selfoss.