Morgunblaðið - 11.01.1975, Blaðsíða 11
MORGUNBLA-ÐI-Ð, LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1975
11
Friðrik Einarsson dr. med., yfirlæknir:
Ur grein höfundar um
krabbamein í þvagblöðru
Æxli í þvagblöðru hafa
mjög mikla þýðingu; af því
að langflest þeirra eru ill-
kynja, eða a.m.k. verða ill-
kynja, ef þau fá að vaxa þar
nógu lengi. Ekki er hægt að
segja, að krabbamein í þvag-
blöðru sé meðal tíðustu ill-
kynja æxla. í Bandaríkjunum
eru 3% þeirra, sem deyja úr
krabbameini, með æxli í
Friðrik Einarsson
þessu líffæri. Hér er þetta
líklega eitthvað svolitið hærri
tala. Það mun vera allt upp i
5% af krabbameinum á ís-
landi, sem eru í þvagblöðru,
að þvi er skráningin tjáði mér
fyrir nokkrum dögum.
Aldur:
Sem betur fer er krabba-
mein á þessum stað, eins og
víðast hvar annars staðar í
likamanum, aðallega sjúk-
dómur hjá fullorðnum og
eldri. Ég safnaði saman
krabbameinstilfellum, sem
ég náði til frá árunum 1954
til 1969. Það kom í Ijós, að
af 123 sjúklingum voru
aðeins 1 1 undir fimmtugs-
aldri. Langoftast eru þessi
æxli meðal fólks á aldrinum
frá 60—70 ára eða þar um
bil. Þó er þetta náttúrulega
ekki algild regla, þau geta
komið á hvaða aldri sem er,
en í þessum efniviðum min-
um var samt enginn undir 30
ára.
Kynskipting:
Krabbamein í þvagblöðru
hér á landi er um helmingi
tíðara hjá körlum en konum
og sums staðar í Banda-
ríkjunum er hlutfallið 4:1.
Orsakir:
Miklar bollalegginar hafa
verið uppi um það, hvað ylli
krabbameini í blöðru, en það
er nú eins og viðast hvar
annars staðar í líkamanum
oft á tíðum erfitt að segja til
um það. Þó er talið öruggt,
að ýmis efni í litariðnaði eða
þó kannski öllu heldur ýmis
efni, sem skyld eru olíum og
kolum séu krabbameinsvald-
ar í þessu líffæri.
Betonapthylamin er talið
valda krabbameini í blöðru, á
hvern hátt sem það gerist, og
talið öruggt að krabbameins-
valdurinn berist með þvag-
inu, en fari t.d. ekki blóðleið-
ina. Fram á þetta hefur verið
sýnt í dýratilraunum með því
að leiða þvagið fram hjá
blöðrunni og þótt dýrunum
sé gefið efnið, myndast þar
ekki krabbamein. Þá voru
þessar meinsemdir 4—5
sinnum algengari hjá fólki,
sem reykir, heldur en hinum,
sem ekki reykja. Annars er
margt á huldu með vöxt
þessa æxlis eins og flestra
annarra.
Greining:
Greining er eingöngu á
færi læknis, sem vanur er að
fást við þessa sjúkdóma og
eftir undangengnar þær
rannsóknir, sem hann álítur
nauðsynlegar.
Það gefur þvi auga leið, að
í þessu greinarkorni er
gagnslaust að nefna aðra
sjúkdóma, sem geta gefið
svipuð eða sömu einkenni.
Læknir verður að skera úr um
það í hverju einstöku tileflli.
Blóð i þvagi þarf heldur ekki
að eiga upptök sín í blöðr-
unni, en getur verið komið
frá öðrum hlutum þvagfær-
anna.
(Fréttabréf um heilbrigðismál)
M0B61JIIBL&SIB
fyrir 50 árum
í Hagtíðindum, desemberhefti f.á., er sundurliðuð áætlun yfir
byggingarkostnað hússí Reykjavikárið 1924ogtil samanburð
ar tekinn byggingarkostnaður árið 1914. Hefir húsameistari
rikisins gert áætlun þessa, sem miðast við steinsteypuhús,
8.5 X 7,2 metrar, 1 hæð, protbygt, krossreist, með geymslu-
kjallara, loft og gólf úr timbri og útveggir allir innan þiljaðir
með pappa á milli; húsið annars innan strigalagt og málað, en
án allra rörlagninga.
Byggingarkostnaður sllks húss var 1914 kr. 7288,00, en er
1924 kr. 24.144,00.
Nokkrir stærstu liðir byggingarkostnaðarins líta
út:
Trésmíði ......................... 866
Múrsmíði ......................... 319
Erfiðisvinna .................... 735
Timbur ......................... 2209
Hurðir og gluggar ............... 329
Sement .......................... 775
Sandur og möl .................... 395
288,00, en er
> líta þannig
1914 1924
kr. kr.
866 3897
319 1477
735 2900
2209 6653
329 1010
775 1829
395 1788
MATSEDILL
VIKUNNAR
Umsjon:
Hanna Guttormsdóttir
9
MÁNUDAGUR
Soðin ýsa,
hrátt salat,
júlfönnusúpa.
ÞRIÐJUDAGUR
Kjötbollur með osti og tómatsósu (sjá
uppskrift),
gul sagósúpa.
MIÐVIKUDAGUR
Fiskhringur með sftrónusósu,
sveskjugrautur.
FIMMTUDAGUR
Brúnkál með kjötdeigi (sjá uppskrift),
júgurð
FÖSTUDAGUR
Kartöflueggjakaka (sjá uppskrift),
appelsfnur með vaniljukremi.
LAUGARDAGUR
Nætursaltaður fiskur,
soðnar gulrófur,
makrónusúpa.
SUNNUDAGUR
Enskt buff (sjá uppskrift),
franskar kartöflur,
steiktir sveppir,
rjómaábætir með ávöxtum (sjá upp-
skrift).
KJÖTBOLLUR MEÐ OSTI OG
TÓMATSÓSU
ldl brauðmylsna
2 dl mjólk
400 g hakkað kjöt (kinda- kálfa- eða nauta-
kjöt)
1V4 tsk salt
pipar, múskat
200 g ostur
eggjahvíta
brauðmylsna
smjör
Bleytið i brauðmylsnunni með mjólkinni
og látið standa í 10 mín. Setjið síðan kjöt
og krydd saman við og hrærið vel. Skerið
ostinn í litla teninga og bætið honum í.
Mótið litlar bollur úr deginu, veltið þeim
upp úr eggjahvítu og brauðmylsnu og
gegnsteikið þær í smjöri. Berið spaghetti,
soðin hrísgrjón eða soðnar kartöflur með
ásamt tómatsósu.
bríinkAl með kjötdeigi
1/2 kg hvftkál
50 g smjörlfki
25 g sykur
1/2 kg kjötdeig
Brytjið hvítkálið smátt. Brúnið sykur og
smjörlíki saman á pönnu. Brúnið kálið þar
i. Látið kálið síðan í pott. Gerið holu niður
f kálið og látið kjötdeigið þar í. Setjið kál
yfir kjötdeigið. Hellið 3 msk af vatni yfir
og sjóðið við vægan hita í 20 mín. Gott er
að blanda öðru grænmeti saman við kálið
þegar búið er að brúna það, t.d. gulrótum,
blómkáli eða kartöflum.
KARTÖFLUEGGJAKAKA
1/2 kg soðnar kartöflur
1 laukur
1/2 tsk salt
pipar
50 g smjörlíki
3 egg
1 msk steinselja (söxuð)
Skerið kártöflur i ferhyrninga. Brúnið
smjörið á pönnu og setjið kartöflurnar þar
á ásamt lauk (smátt skornum). Stráið salti
og pipar yfir. Hrærið síðan eggin saman,
og hellið þeim yfir kartöflurnar á pönn-
unni. Stingið í með gaffli, þar til eggin eru
hlaupin saman. Sett á fat og saxarði stein-
selju stráð yfir. Borið fram með grænkáls-
jafningi og hrá salötum.
ENSKT BUFF
600 g nauta-, folalda- eða hvalkjöt (hrygg-
vöðvar)
1 tsk salt
1/4 tsk pipar
3 laukar
75 g smjörlíki
3/4 dl vatn
Matreiðið ekki enskt buff nema úr meyru
og safaríku kjöti. Hreinsið burt sinar og
himnur úr kjötinu. Skerið kjötið í 2 sm
þykkar sneiðar, og berjið þær lítið eitt.
Hitið pönnuna vel, og steikið buff-
sneiðarnar móbrúnar báðum megin á
þurri pönnunni. Takið sneiðarnar af, og
stráið salti og pipar yfir buffið. Skerið
laukana i sneiðar, og brúnið þá í helmingi
smjörlíkisins, og takið upp. Steikið síðan
buffsneiðarnar í afgangi smjörlikisins i
2—4 mín. á hvorri hlið. Raðið buff-
sneiðunum á fat, og leggið laukinn yfir.
Hellið vatninu á pönnuna, og látið sjóða í
nokkrar minútur. Berið soðsósuna með.
rjómaAbætir með Avöxt-.
UM
8 epla- eða peruhelmingar (soðnir)
4 dl rjómi
8 snjókökur eða makrónur
8 skrautber
rifið súkkulaði
Þeytið rjómann, myljið kökurnar, og
blandið þeim út i. Leggið rjómann á stórt
kringlótt fat. Raðið epla- eða peru-
helmingum i kring, og látið skrautber á
milli. Stráið rifnu súkkulaði yfir. Til-
breytni: Notið soðnar sveskjur, hálfar
sneiðar af ananas, hálfar ferskjur eða
appelsinusneiðar í staðinn fyrir epli eða
perur.
25 aura kosta bollapör hjá mjer f dag og á morgun. — Hannes Jónsson,
Laugaveg 28.