Morgunblaðið - 11.01.1975, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1975 15
Hótun dr. Kissingers
skýrð fyrir Aröbum
Kuwait, 10. jan. NTB. AP.
SENDIHERRA Bandarfkjanna f
Kuwait, William Stoitzfus,
gengur á morgun á fund Abah
Alahmed utanrfkisráðherra til að
útskýra hðtun Bandarfkjamanna
um að beita vopnavaldi gegn olfu-
rfkjum Araba ef gripið yrði til
neyðarúrræða.
Arabarfkin hafa harðlega gagn-
rýnt þau ummæli Henry Kiss-
ingers utanrfkisráðherra f blaða-
viðtali að svo geti farið að athug-
aðir verði möguleikar á þvf að
taka olfusvæðin f Miðausturlönd-
um með vopnavaldi ef hætta verði
á hruni efnahagslffs vestrænna
iðnaðarrfkja.
Anwar Sadat Egyptalandsfor-
seti sagði i gærkvöldi, að Arabar
mundu fremur sprengja olíu-
mannvirki sín í loft upp en láta
þau falla f hendur Bandarikja-
manna.
Fimm olíurfki — Saudi-Arabía,
Kuwait, Abu Dhabi, Iran og Vene-
zúela — hafa haft samráð sin í
milli til að samræma afstöðu sína
vegna ummæla Kissingers að
sögn arabfskra blaða.
EFASEMDIR
í New York sagði blaðið Wall
Street Journal i dag, að Arabar
þyrftu litlar áhyggjur að hafa af
hugsanlegri hernaðaríhlutun
Bandaríkjamanna, sem hefði ekki
tekizt að fá vilja sinum framgengt
í Vietnam og vildu ekki verja
jafnmiklu fé til kjarnorkuvíg-
búnaðar og Rússar jafnframt þvi
sem Evrópuríkin hefðu veikt
varnir sínar.
Blaðið segir, að olíurikin hafi
sýnt öflugasta herveldi heims
ótrúlega ögrun og mikla óskamm-
feilni með þvi að stofna iðnaði
Vesturlanda í hættu. Ef þetta sé
dæmi um nýja skipan alþjóða-
mála verði afleiðingin líklega al-
þjóðlegt öngþveiti og þvf muni
fylgja yfirdrottnun sem verði
harkalegri en fyrri yfirdrottnun
vestrænna ríkja.
Brezkir sjómenn reiðir
yfirgangi Sovétmanna
BREZKA ritið Fishing News
International skýrir frá því í
desemberhefti sinu, að fiski-
menn f vesturhluta Englands
krefjist nú æ harðar, að fisk-
veiðilögsaga landsins verði
færð út f 50 sjómílur og fengu
kröfur þeirra byr undir báða
vængi, er Charles Meek, yfir-
maður Whitefish Authority
hvatti til útfærslu í 200 milur.
Það, sem einkum hefur ýtt
undir kröfur fiskimannanna,
er, að i október sl. kom floti 1?0
sovézkra og pólskra togara á
miðin, rétt fyrtr utan 12 mílna
lögsöguna við Cornwall. Sjó-
menn segja, að ef ekki verði
þegar í stað tekið fyrir svo
gífurlega veiði afkastamikilla
erlendra skipa, svo skammt
undan landi, muni stórt skarð
höggvið í makrílsstofninn, sem
þeir sækja í á þessum miðum.
Sovézki og pólski flotinn i
október er hinn stærsti, sem
sótt hefur á þessi mið.
Thieu boðar
mótaðgerðir
Bandaríkin:
Verðbréf
féllu um 218
milljarði
dollara 1974
BANDARlSKA fréttablaðið US
News and World Report skýrir
frá þvf f áramótatölublaði sfnu,
að gffurlegt verðfall hafi orðið á
árinu á verðbréfamarkaðnum f
New York. Alls minnkaði verð-
gildi bréfa á pappfrnum um 218
milljarði bandarfskra dollara eða
úr 721 milljarði dollara f 503
milljarði. Af hluta- og verðbréf-
um helztu fyrirtækja f landinu
voru aðeins 3, sem hækkuðu f
verði á árinu, bréfin f Union
Carbide hækkuðu um 21% og
verðgildi þeirra hækkaði um 442
milljónir dollara. Hlutabréf US
Steel hækkuðu um 1% og hluta-
bréf í PPG Industries um 7%.
Langmesta tapið varð verð-
mætalega séð á bréfum IBM, sem
lækkuðu úr 2oC,75 dollurum
hvert bréf í 168 dollara og nemur
lækkunin 11,5 milljörðum
dollara. Prósentulækkunin er um
32%. Það voru hlutabréf
Poloroidfyrirtækisins, sem lækk-
uðu mest í prósentum eða um
73% og nam lækkunin alls 1,7
milljarði. 1 árslok var verðbréfa-
markaðurinn i 616 stigum, en var
1051 stig f júlf 1973, er hann var
hæstur.
BJÖRGUNARMENN f Hobart í
Tasmaniu náðu f dag öðrum bfl
og öðru lfki f Derwent-fljótinu
undir Tasmanbrúnni, sem 7000
lesta flutningaskip braut niður
fyrr f vikunni. Tala látinna er
nú komin upp f 12. Verkfræð-
ingar og tæknifræðingar hafa
nú lokið könnun á brúnni og
komizt að þeirri niðurstöðu, að
undirstöður brúarinnar hafi
ekki gefið sig frekar og ekki
hætta á að hún hrynji. Mikið
verk er nú framundan við að
gera við brúna, eins og sést á
myndunum, sem hér fylgja.
erfitt verði að finna og benda á að
skotfærabirgðir Suður-Víetnama
séu af skornum skammti þar sem
dregið hefur verið úr hernaðarað-
stoð Bandarfkjamanna.
Samkvæmt þessum heimildum
hefur Gerald R. Ford forseti tekið
til vandlegrar fhugunar beiðni
Suður-Vfetnama um aukaaðstoð
að upphæð allt að 300 milljón
dollara.
David Jones hershöfðingi, for-
seti herráðs bandarfska flughers-
ins, ræðir á morgun við suður-
víetnamska ráðamenn f Saigon.
Talið er vist að þeir ræði sókn
Norður-Vietnama og Viet Cong,
getu suður-vfetnamska flughers-
ins og möguleika á viðbótaraðstoð
frá Bandaríkjunum.
Herstjórnin í Saigon segir að í
dag hafi verið ráðizt á stöðvar og
hernaðarmannvirki Norður-
Vietnama og Viet Cong hjá landa-
mærum Kambódíu fjórða daginn
í röð. Suður-Vietnamar eiga í
höggi við 6.000 manna lið sem er
skammt frá birgðastöðvum en að-
flutningsleiðir Suður-Vietnama
eru lengri.
I Pleiku á miðhálendinu eyði-
lögðust rúmlega fimm milljón lítr
ar af olíu og flugvélaeldsneyti
þegar Viet Cong réðst á olíumann-
virki hjá bænum í dag.
1 ræðu sinni i dag fór Thieu
forseti fram á alþjóðastuðning
gegn sókn Norður-Víetnama og
Viet Cong er hann kvað brjóta i
bága við Parísarsamninginn frá
1973.
Um 20.000 manns tóku þátt í
fjöldafundi í Saigon til að minn-
ast falls Phuoc Long og Phuoc
Binh.
Stærsta mööurskip pólska togaraflotans, Gryf^Pomorski, liggur við
ankeri aðcins 5 mflur undan ströndum Cornwall og tekur við
makrflafla pólsks togara.
Saigon, 10. janúar.
AP. Reuter.
NGUYEN Van Thieu forseti
boðaði harðnandi bardaga f sjón-
varpsávarpi f dag og kvaðst
mundu skipa stjórnarhersveitum
að ná aftur héraðinu Phuoc Long
sem hefur verið á valdi Norður-
Vfetnama sfðan þeir tóku höfuð-
staðinn Phuoc Binh á þriðjudag.
Kunnugir telja að til slfkra að-
gerða þurfi 10.000 menn sem
FRETTIR
CIA sakað
um iðnaðar-
njósnir
Washington 10. jan. AP.
BANDARtSKI öldungadeildar-
þingmaðurinn Richard S.
Schwaiker sakaði f dag banda-
rísku leyniþjónustuna CIA, um
að hafa stundað iðnaðarnjósnir
erlendis og krafðist þess, að sú
starfsemi yrði stöðvuð.
Sagði Schwaiker, að CIA hefði í
nóvember sl. beðið um tilboð i
rannsóknir á tækni í sambandi
við land- og loftflutningakerfi er-
lendra landa, sem gætu ógnað
samkeppnishæfni bandarísks
iðnaðar. Löndin, sem við sögu
komu, voru m.a. Japan, Kanada,
Frakkland, Bretland, V-
Þýzkaland og Sovétríkin.
Schwaiker sagðist skilja áhuga
bandarískra stjórnvalda á slíkum
tækniupplýsingum en sagði, að
það væri verkefni viðskiptaráðu-
neytisins að afla þeirra en ekki
leyniþjónustunnar eftir einhverj-
um miður aðlaðandi krókaleiðum.
Sem kunnugt er hefur Ford for-
seti skipað nefnd undir forsæti
Rockefellers varaforseta til að
kanna starfsemi CIA.
Ný stjórn
í f æðingu í
Færeyjum
Einkaskeyti frá Jögvan Arge
fréttaritara Morgunblaðsins f
Þórshöfn, Færeyjum.
VÆNTANLEGA lýkur f kvöid
eða fyrramálið viðræðum þriggja
stærstu stjórnmálaflokka Fær-
eyja, Jafnaðarflokksins, Þjóð-
veldisflokksins og Fólkaflokks-
ins, um myndun nýrrar land-
stjórnar f Færeyjum. Viðræður
þessar hafa staðið yfir frá þvf
fyrir jól og er búizt við niðurstöð-
um næstu daga, jafnvel á morg-
un, miðvikudag. Um helgina
unnu flokkarnir að gerð sam-
vinnu- og málefnasamnings. Drög
að honum verða lögð fyrir flokk-
ana f dag og f kvöld verða viðræð-
ur þeirra f milli á ný.
Samsteypustjórn þessara
þriggja flokka mun hafa að baki
sér 18 af 26 þingmönnum lög-
þings Færeyja. Gert er ráð fyrir
að sex menn skipi hina nýju
landsstjórn, tveir frá hverjum
flokkanna en skipan f embætti
hefur enn ekki verið rædd. Þó
virðist ljóst að Atli Dam úr
Jafnaðarflokknum verði lög-
maður áfram. Hann hefur skipað
þann sess síðustu fjögur árin f
samsteypustjórn Jafnaðarflokks-
ins, Sambandsflokksins og Sjálfs-
stjórnarflokksins.