Morgunblaðið - 22.01.1975, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1975
Botnliðið vann
FH með 23:21
KLAKI liggur nú yfir allflestum niðurföllum i götum í
Reykjavík. Ef veður breytist og gerir vatnsveður
mætti búast við miklum flóóum. Starfsmenn hreins-
unardeildar Reykjavíkurborgar gera þó sitt bezta í því
að fyrirbyggja slíkt. Á myndinni er einn starfsmann-
anna að opna niðurfall í Reykjavík.
-----
Hafnarfj ar ðarbær
gaf 500 þús. kr.
Snjóflóðasöfnunin 24.2 millj. kr.
BOTNLIÐIÐ I fyrstu deild í
handknattleik, ÍR vann I gær-
kveldi óvæntan sigur yfir Islands-
meisturum FH f leik liðanna, sem
fram fór f Laugardalshöllinni.
Skoruðu iR-ingar 23 mörk gegn
21 marki FH-inga. I hálfleik var
staðan 13:10 fyrir IR. iR-ingar
skoruðu fyrsta mark leiksins og
höfðu forystu f leiknum allt til
þess að 7 mfnútur voru til leiks-
loka, en þá tókst FH að jafna á
tölunni 18:18. Mest höfðu IR-
ingar 5 mörk yfir, er staðan var
10:5, þegar langt var liðið á fyrri
hálfieikinn.
Gífurleg barátta var í leiknum
undir lokin, en FH-ingum tókst
aldrei að ná yfirhöndinni, oftast
munaði aðeins einu marki. Þegar
ein mínúta var til leiksloka var
staðan 22:20, en þá skoraði Ölafur
Einarsson 21. mark FH og fengu
FH-ingar tækifæri til að jafna, en
iR-ingar náðu þá knettinum og
Ásgeir Elíasson skoraði síðasta
mark leiksins.
GUÐMUNDUR Sigurjónsson sigr-
aði Ungverjann Vadasz auðveld-
lega f 7. umferð skákmótsins f
Wijk aan Zee f Hollandi f gær-
kvöldi og er nú f 3. til 5. sæti
ásamt Ligterink frá Hollandi og
Ciocaltea frá Rúmenfu með 4Vi
vinning.
Viðureign Guðmundar og
Vadasz stóð tæpa tvo klukkutfma.
Vadasz sást yfir gildru sem
Guðmundur lagði fyrir hann og
tapaði drottningu.
Rússinn Dvorecki er nú efstur í
meistaraflokki með 6 vinninga og
Enn ófært til
Siglufirði, 21. janúar.
BÆJARSTJÓRINN hér, bæjar-
verkfræðingurinn og tveir bíl-
stjórar fóru í dag á stórum jeppa
og komust í Hraunadal en þar var
ófært vegna snjóa. Hins vegar var
greiðfært vel í Hraunadal. Menn-
irnir könnuðu aðstæður og áætl-
uðu þeir að það tæki veghefil tvo
til tvo og hálfan tfma að ryðja
veginn.
En þrátt fyrir þetta erum við
Siglfirðingar lokaðir hér inni og
ekki er mokað af veginum. Næsti
veghefill mun vera á Sauðárkróki
og sem dæmi má nefna að þangað
eru á annað hundrað kílómetrar.
Hér er gott veður í dag.
— Fréttaritari.
Markahæstir iR-inga f leiknum
voru þeir Ásgeir Elíasson, sem
skoraði 6 mörk og Guðjón
Marteinsson, sem skoraði 4 mörk.
Brynjólfur Markússon, Agúst
Svavarsson og Þórarinn Tyrfings-
son skoruðu 3 mörk hver. Ólafur
Einarsson skoraði flest mörk FH-
inga, 9, og Þórarinn Ragnarsson
skoraði 7.
Víkingar
1 forystu
VÍKINGUR sigraði Ármann f
handknattleik f Laugardaishöll-
inni f gærkveldi með 21 marki
gegn 19. Staðan f hálfleik var
12:10 fyrir Ármann. Hafa Vík-
ingar þar með tekið forystu í
fyrstudeildarkeppni í handknatt-
leik.
Pólverjinn Schmidt annar með 5
vinninga. Vadasz er í 6. sæti með
4 vinninga, Portisch, Dieks og
Bukic í 7. til 9. sæti með 3'A vinn-
inga, Sznapik, Boehm og Wein-
stein í 10. til 12. sæti með 3 vinn-
inga, Martz og Enklaar í 13. til 14.
sæti með 2'A vinning, Ek í 15. sæti
með 2 vinninga og Timman neðst-
ur með 1 vinning.
I stórmeistaraflokki er Lajos
Portisch i essinu sínu og hefur
unnið sex skákir af sjö. Kavalek
er með 5 vinninga, Smejkal með
4‘A vinning og eina biðskák,
Sosonko með 4V4 vinning, Browne
með 4 vinninga og eina biðskák,
Timman með 4 vinninga og Hort
með 3'A vinning og biðskák en
aðrir hafa færri vinninga, þar á
meðal Gligoric, Donner, Geller,
Hilbner og Popov.
Hlé verður á mótinu á morgun.
Mikilvægustu skákirnar á
fimmtudaginn f meistaraflokki
Framhald á bls. 27.
Akureyri, 21. janúar.
FJÁRHAGSÁÆTLUN Akureyrar
fyrir árið 1975 lá fyrir bæjar-
stjórnarfundi í dag, til fyrri um-
ræðu. Niðurstöðutala tekna og
gjalda er 714,1 miiljón króna.
Helztu tekjuiiðir eru útsvör 397
milljónir, skattar af fasteignum
114 milljónir, framlag úr jöfn-
SNJÓFLÓÐASÖFNUNIN er
nú orðin rösklega 24,2 milljónir
kr. og samkvæmt upplýsingum
söfnunarnefndar, en f henni
unarsjóði 84 milljónir og aðstöðu-
gjald 71 milljón króna. Hæstu
gjaldaliðir eru gatnagerð, skipu-
lag og byggingaeftirlit 173,5
milljónir, félagsmál 117 milljónir,
menntamál 90 milljónir, hrein-
lætismál 46 milljónir og framlag
til framkvæmdasjóðs 33 milljónir
króna. — Sv. P.
eru fulltrúar Rauða krossins,
Norðfirðingafélagsins í Reykja-
vík og Hjálparstofnunar kirkj-
unnar, eru stöðugt að berast
framlög, smá og stór, og hefur
stórri upphæð verið útdeilt
meðal þess fólks í Neskaupstað,
sem missti fyrirvinnur í snjó-
flóðinu þar 20. desember s.l.
Stærsta gjöfin f söfnunina,
sem borizt hefur síðustu daga,
eru kr. 500 þúsund, frá bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar, og þá
hafa Heiðmundur Sigmundsson
og kona hans, Höfðavegi 3,
Vestmannaeyjum gefið 100
þús. kr.
Ráðstefna um
jafnréttismál
Starfsstúlknafélagið Sókn, ASB,
félag afgreiðslustúlkna f brauð-
og mjólkurbúðum, Iðja, félag
verksmiðjufólks, Starfsmanna-
félag ríkisstofnana og Rauðsokka-
hreyfingin efna til sameigin-
legrar ráðstefnu um kjör lág-
launakvenna sunnudaginn 26.
janúar n.k. Ráðstefnan verður
haldin í Lindarbæ í Reykjavik og
hefst kl. 10 árdegis.
Konur úr ýmsum starfsgreinum
flytja stutt framsöguerindi, en
síðan verður unnið í starfshópum.
Markmiðið með ráðstefnu þessari
er fyrst og fremst að draga fram
sérstöðu láglaunakvenna í
atvinnulífinu og hvatning fyrir
þær til að kerfjast úrbóta. Ráð-
stefnan er fyrsta skipulagða að-
gerð kvenna í jafnréttisbarátt-
unni hér á landi á kvennaárinu.
Nýr snjóbíll
til Akureyrar
Akureyri, 21. janúar —
FLUGBJÖRGUNARSVEIT Ak-
ureyrar hefur fest kaup á nýj-
um snjóbfl, sem er útbúinn til
farþega- og sjúkraflutninga og
kom hann til Akureyrar með
Hercules-flugvél frá Varnarlið-
inu fyrir skemmstu.
Flugbjörgunarsveitin á fyrir
gamlan snjóbíl, sem farinn er
að ganga úr sér og var því orðin
brýn þörf á að endurnýja hann.
Fjár til kaupanna hefur Flug-
björgunarsveitin aflað með
happdrættum og hefur miða-
sölumönnum sveitarinnar jafn-
an verið tekið forkunnarvel af
bæjarbúum, sem einnig hafa
oft notið góðrar þjónustu, fyrir-
greiðslu og hjálpar sveitarinnar
í ýmsum tilvikum, oft við erfið-
ar aðstæður. Formaður Flug-
björgunarsveitarinnar er Gísli
Lorenzson, Vernharður Sigur-
steinsson varaformaður og
Tryggvi Gestsson gjaldkeri.
— Sv.P.
Athugasemd
frá Birni
Jónssyni
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
svohljóðandi athugasemd frá
Birni Jónssyni, forseta ASl:
„Herra ritstjóri.
I blaði yðar í gær er á áberandi
stað birt klausa um kjör fulltrúa
ASl i stjórn Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs og er frásögnin á þann
veg, að ég hlýt að gera við hana
litla athugasemd.
Það telst vafalaust til smáat-
riða, að ranglega er þar talið að
Alþingi kjósi 5 menn í stjórnina,
en þeir eru 4. 2 eru kjörnir af ASl
og 1 af Vinnuveitendasamband-
inu.
Hitt er öllu lakara, að orðalag
og blær greinarinnar er með þeim
hætti, að ekki verður betur séð en
ætlunin sé að kasta rýrð á Óskar
Hallgrímsson og gera honum upp
sérstakan áhuga á að verða kjör-
inn i stjórnina. Hið sanna er hins
vegar að Óskar Hallgrfmsson hef-
ur aldrei, að ég eða aðrir mið-
stjórnarmenn viti, sýnt af sér
neinn ákafa í þessa átt.
Þegar kosið var f stjórnina
gerði ég það strax að tillögu
minni, að fulltrúar ASl yrðu Ósk-
ar og Hermann Guðmundsson,
enda taldi ég, að þannig væri vel
séð fyrir hagsmunum og hags-
munagæzlu verkalýðssamtakanna
í sjóðsstjórninni. Önnur tillaga
kom siðan um mig og fékkst hún
ekki tekin til baka, þrátt fyrir
tilmæli mín. Skrifleg kosning
varð þvf að fara fram, þar sem
uppástungur voru um þrjá, og fór
hún á þann veg, að Hermann og
ég vorum kosnir.
Skilja má frásögn blaðs yðar
svo, að úrslitin hafi verið einhver
persónulegur ósigur fyrir Óskar
Hallgrímsson . Þessu fer auðvitað
víðs fjarri. Hafi einhver beðið
ósigur í þessari kosningu þá hlýt-
ur sá að hafa orðið ég einn, þar
sem tillaga mín hlaut ekki fyigi til
samþykktar. A.m.k. er víst, að
Framhald á bls. 27.
Þjóðarhneba
— segir BIL
STJÓRN Bandalags íslenzkra
listamanna fordæmir harðlega
þá smekkleysu borgarráðs að
ætla sér að taka ofan nýbyrjaða
sýningu á verkum Kjarvals f
sal þeim er kenndur er við
hann, og bjóða f hans stað
Jakobi Hafstein að sýna mynd-
ir sfnar þar. Byggja þannig
Kjarval sjálfum út af Kjarvais-
stöðum, og telur það þjóðar
hneisu.
Samþykkt gerð á fundi 21.
janúar 1975.
„LAUMNHÆKKA EFTIR
ÞVÍ SEM FÖTUM FÆKKAR”
Þcuinig var tilboð mannsins, sem bauð stúlkum nektarfyrirsœtustörf
UNDANFARIÐ hefur nokkuð
borið á þvf, að karlmaður hafi
hringt til ungra stúlka, sem
auglýst hafa eftir vinnu f blöð-
unum og boðið þeim vinnu sem
Ijósmyndafyrirsætur. Býður
maðurinn laun f samræmi við
fatamagn, og hækka launin
eftir þvf sem fötunum fækkar
hjá stúlkunum. Hefur maður-
inn boðað stúlkurnar f ákveðin
hús við Ránargötu í Reykjavfk
og hafa sumar farið þangað
fyrir forvitnissakir, en þá rekið
sig á, að um hreint gabb var að
ræða.
Maðurinn byrjaði þessa
miður þokkalegu iðju s.l. sumar
og fékk rannsóknarlögreglan
fljótlega kærur vegna málsins.
Nú um nokkurt skeið hefur
maðurinn haft frekar hljótt um
sig, þar til um daginn að hann
fór á kreik að nýju. Boðar hann
stúlkurnar til stefnumóta f tvö
ákveðin hús við Ránargötu, en
þegar þær hafa komið þangað,
er engan að finna með þvf
nafni, sem maðurinn gaf upg
Ibúar húsanna hafa orðið fyrir
töluverðum óþægindum vegna
tiltækis mannsins. Stúlkurnar,
sem kært hafa þennan mann,
segja, að hann bjóði þeim starf
sem ljósmyndafyrirsætur á
nektarmyndum og séu há laun f
boði fyrir þær sem vilja sitja
fyrir naktar. Talsmáti manns-
ins er óaðfinnanlegur og klám-
yrði notar hann ekki.
Það eru tilmæli rannsóknar-
lögreglunnar, að stúlkur sem
auglýsa eftir atvinnu f blöðum
séu á varðbergi og hafi strax
samband við lögregluna ef
maðurinn hringir, og umfram
allt, að þær láti manninn ekki
narra sig til fýluferða vestur á
Ránargötu.
Guðmundur
yann Vadasz
Fjárhagsáætlun Akureyrar:
Utsvör nema nær 100 millj.