Morgunblaðið - 22.01.1975, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANUAR 1975
25
K Morö ö kvenréttindarööstefnu Kristjönsdöttirl
LU,,y- _______________þýddi ^
22
— Hvað eigið þér við, lögreglu-
foringi? Hún ... hún hefur þó
ekki... hún ...
Hann hefði þorað að sverja að
hræðsla hennar og undrun var
sönn. En hvers vegna ætti hún að
verða hrædd?
— Um hvað voru Louise Fager-
man og Betti Borg að rífast áður
en þær skildu i nótt?
— Rífast? Ég... veit ekki hvað
þér eruð að tala um.
— Ég er að tala um samræður
þær sem ég heyrði til ykkar fyrir
örstuttu, í þá sömu mund og þið
komuð út og þér sögðuð að Betti
hefði komið ófyrirgefanlega illa
fram og að.. .
— Wijk, leynilögreglumaður,
grípur Eva Gun yfirlætislega
fram í fyrir honum. — Ég hefði
haldið þér væruð yfir það hafinn
að liggja á hleri. Árangurinn er
Velvakandi svarar ! síma 10-100
kl. 1 0.30 — 11.30, frá mánudegi
til föstudags.
0 Strætisvagnar
Kópavogs
J. Ingimar Hannesson,
rekstrarverkfræðingur i Kópa-
vogi, skrifar eftirfarandi bréf:
„Kæri Velvakandi.
Þú birtir fyrir nokkru bréf frá
Jakobínu Stefánsdóttur, þar sem
hún gagnrýnir nýtt leiðakerfi
Strætisvagna Kópavogs.
Þar sem ég er einn af skipu-
leggjendum þessa kerfis, langar
mig til þess að biðja þig að birta
eftirfarandi línur. Astæðan er
ekki sú að ég hafi í hyggju aö
hefja ritdeilur við Jakobínu eða
aðra, sem óánægðir kunna að vera
með þetta kerfi, heldur sú, að ég
tel það mikinn misskilning hjá
Jakobínu, að markmið Strætis-
vagna Kópavogs eigi einungis að
vera það að flytja fólk úr Kópa-
vogi niður i Lækjargötu. Enn-
fremur finnst mér, að þeir mögu-
leikar, sem kerfið býður upp á
hafi verið lítið útskýrðir í fjöl-
miðlum og vil ég bæta úr þvi.“
£ Breytinga
var þörf
„Jakobína virðist telja, að
þróunin í Kópavogi og Reykjavík
hafi verið og verði svo hæg að hún
hafi engin áhrif á, hvernig réttast
sé að haga ferðum strætisvagna. í
þessu sambandi vil ég minna á
nokkrar afgerandi breytingar til
þess að sýna, að Strætisvagnar
Kópavogs þurfa nú að skapa far-
þegum sínum miklu fleiri valkosti
en þörf var á fyrir nokkrum árum
síðan.
Nú hefur öll opipber þjónusta i
Kópavogi safnast saman á einn
stað, þ.e. i Miðbæ Kópavogs. Hún
hefur svo aftur safnað i kringum
sig töluverðri verslun. Fyrr en
varir verður þessi þróun að
byltingu með tilkomu verslunar-
aðeins sá að maður heyrir brot úr
setningum, sem maður misskilur
gersamlega. ÉG hef ekkert heyrt
um neina sennu milli Louise og
Betti.
— Nú, nú, þótt einkennilegt
megi virðast þá eruð þér að ljúga
þessa stundina til að vernda þessa
hræðilegu vinkonu yðar, sem er
svo trygg og trú og einlæg. Eða er
það kannski lygi - - - - sögð til að
bjarga sjálfri yðar.
Christer hugsar meó sér: Þó
Camilla hefði ekki verið búin að
sannfæra mig um að eitthvað
væri bogið við þetta Betti Borg
mál myndi ég samt hafa verió
gripinn tortryggni, þegar ég verð
vitni af því hvað þær konur, sem
eiga hlut aó máli, eru fljótar að
draga sig inn í skel sína, þegar
komið er að vissum atriðum.
Katarina Lönner vildi ekki tala
um hringinn, sem hvarf.. og
fannst aftur. Áse Stenius vildi
ekki tala um dánarvottorðið.
miðstöðva í stórhýsum þeim, sem
nú eru í byggingu, sem þó er ekki
nema 1. hluti miklu víðtækari
áætlana.
1 Kópavogi hefur ennfremur á
síðari árum risið upp töluverður
iðnaður, sem er í örum vexti. Það
var fyrirsjáanlegt að-Kópavogsbú-
ar mundu, i vaxandi mæli, verða
af auknum atvinnumöguleikum í
eigin bæjarfélagi vegna vöntunar
á almenningsvagnakerfi innan-
bæjar.
Strætisvagnar Reykjavfkur
hafa flutt aðalbækistöð sína frá
Lækjartorgi að Hlemmi. Eftir að
þetta gerðist hefur verslun og
önnur þjónusta aukist þar gífur-
lega. Nú má segja, að Austur-
stræti, Laugavegur og Suður-
landsbraut, allt austur að Grens-
ásvegi, sé ein samfelld verslunar-
gata. Enn er ótalinn fjöldi nýrra
iðnaðar- og ibúðaherfa i Reykja-
vik.“
0 Tíðari ferðir
— um fleira
að velja
„Hið nýja kerfi skapar eftir-
farandi valkosti, sem gamla
kerfið hafði ekki upp á að bjóða:
1. Ferðir innanbæjar í Kópavogi
sem skapa atvinnu- og þjónustu-
möguleika, sem bókstaflega ekki
voru fyrir hendi áður.
Margir hafa þegar notfært sé
bættar samgöngur við Miðbæ
Kópavogs, en mig grunar að þeir
séu fleiri sem enn hafa ekki áttað
sig á þessum möguleika.
2. Betri tengingu við leiðarkerfi
Strætisvagna Reykjavíkur og þar
af leiðandi meiri möguleika til
þess að sækja vinnu og fá
þjónustu hvar sem er í Reykjavík.
Nú mun vandfundinn sá staður i
Reykjavík eða á Seltjarnarnesi
sem ekki er hægt að komast til,
með strætisvagni, á einni klukku-
stund eða styttri tíma.
Miklu örari ferðir auðvelda
fólki að notfæra sér ofangreinda
valkosti. Kostir tíðra ferða eru
svo margir, að of langt mál yi'ði
upp að telja."
Og nú er röðin komin að Evu
Gun Nyren, sem stendur á fætur
og flýr spurningar hans. Þegar
hún snýst á hæli segir hann hik-
laust og ákveðið:
— Segið mér þá til dæmis við
hvern voruð þér að rífast í garð-
inum i gær? Það var bæði talað
um hneyksli og kænsku í
spilum... og einhver varaði við,
og einhver skyldi fá að iðrast...
Hún stirðnar upp og stendur
gersamlega hreifingarlaus og
hann skynjar að köld skelfing
hefur gagntekið hana.
Christer býst ekki við svari og
kærir sig heldur ékki um svar.
Hann horfir á eftir henni niður-
lútri og hann veit að nú verður
ekki aftur snúið.
Hann hef.ur hafið eltingarleik-
inn.... frá þeim punkti, sem er
eins slæmur og hægt er að hugsa
sér.
Hann leitar morðingja, þótt svo
• Eigin
reynsla
„Til þess að skýra mál mitt
nánar, ætla ég að segja dálitið frá
eigin reynslu:
Við hjónin fluttumst til Kópa-
vogs fyrir nokkrum árum og
búsettum okkur austarlega í
Austurbænum. Við áttum ekki
bifreið. Ég hafði tryggt mér vinnu
nálægt Lækjargötu og taldi mér
þessvegna vel borgið. En við
komumst fljótt að því að svo ein-
falt var málið ekki. Við þurftum
oft að reka erindi í Miðbæ Kópa-
vogs. Þar var bæjarskrifstofan,
fógetaskrifstofan, heimilislæknir-
inn, heilsuverndarstöðin, apo-
tekið og peningastofnunin sem
við skiptum við, svo eitthvað sé
nefnt. Það var, i hæsta lagi, hent-
ugt að fara aðra leiðina með
strætisvagni. Hina urðum við að
ganga, en það voru um 2 km.
Auðvitað áttum við að velja
okkur heimilislækni, gera öll inn-
kaup og kaupa alla þjónustu i
nánd við Lækjargötu. Fyrir okkur
hefði verið heppilegast að bæjar-
skrifstofur Kópavogs væru þar
lika. Ef við ætluðum að stunda
vinnu í Kópavogi var hentugast
að búa niðri í Lækjargötu.“
% Feröir
innanbæjar
„Ég vil benda Kópavogsbúum
á að þurfi þeir að skreppa i Mið-
bæ Kópavogs komast þeir, í flest-
um tilfellum, af með að greiða
fargjald aðra leiðina vegna skipti-
miðakerfisins.
Ég get ekki stillt mig um að
benda á, að allar bæjarstjórnir
sem setið hafa síðustu kjörtíma-
bil, hafa haft það sem höfuðmark-
mið að efla atvinnulífið í bænum.
Af þessum orsökum hafa risið
iðnaðarhverfi á ýmsum stöðum,
eins og áður er að vikið.
Er bæjarstjórn, sem hefur
þessa stefnu virkilega ætlandi að
reka, sem ákafast, strætisvagna-
fyrirtæki sem eingöngu er við það
miðað að flytja fólk út úr bæn-
um.“
virðist sem ekkert morð hafi verið
framið.
Hann er gestur hér og veit að
konurnar munu sætta sig illa við
návist hans.
Hann er að þreifa sig áfram í
dimmu völundarhúsi og finnst
sem löng reynsla hans i starfi
gagni honum ekkert nú. Hann
verður að finna leiðina út frá allt
öðrum forsendum. Hann verður
að álykta á allt annan hátt.
Hann verður að taka fyrst og
fremst tillit til taugaóstyrks
kvennanna. Þess sem gefið er í
skyn. Átta sig á brengluðum til-
finnungum.
Og hann finnur að nú hefði
komið sér betur að hann hefði
verið kvenmaður, þótt ekki væri
nema um skamma hrið.
Skriftafaðirinn
Þegar Louise Fagerman leitar
til hans klukkustund síðar, út-
grátin og ráðvillt og velur hann að
0 Erfitt aö
þóknast öllum
„Auðvitað er mikill galli að
þurfa að skipta oft um vagn. Það
er verðið, sem greitt er fyrir f jölg-
un valkosta og helmingi örari
ferðir.
Farmiða- og skiptimiða-
talningar benda til þess, að ná-
lægt 15% af farþegum eigi leið
niður á Lækjartorg. Þetta er auð-
vitað ekki lítill hluti farþeganna.
Tilfinnanlegast er þó, að hluti af
þessu fólki hefur aflað sér at-
vinnu þarna, vegna þess að ferðir
strætisvagnanna lágu vel við.
Hinsvegar var talið að flutningur
endastöðvar að Hlemmi væri að-
eins tímaspursmál. Hvort sem
þetta yrði gert fyrr eða seinna,
yrði það jafn erfitt fyrir þetta
fólk. Þetta sýnir einmitt hve
erfitt er að gera svo að öllum
henti.“
0 Ferðatíminn
„Ábendingar Jakobínu, um
leiðabókina, ber að þakka og taka
til athugunar við næstu prentun.
Þegar rætt er um hve langan
tima tekur að fara til Reykjavíkur
fer það auðvitað eftir þvi, hver
ákvörðunarstaðurinn er i Reykja-
vik. Ferð að Hlemmi tekur nú
styttri tima en ferð ofan í Lækjar-
götu áður. Nú tekur ferð ofan í
Lækjargötu heldur lengri tíma en
áður. Ferðatíminn, sem Jakobína
talar um, er miðaður við að horft
sé á eftir vagni í Hafnarstræti og
á Hlemmi. Við sömu aðstæður, í
gamla kerfinu, þ.e. að misst sé af
vagninum í Lækjargötu, tók
ferðin tæpa klukkustund.
Það er misskilningur að hið
nýja ieiðakerfi sé einungis verk
einhverra sérfræðinga. Vitanlega
var leitað ráða hjá þeim sem
taldir voru hafa reynslu eða sér-
þekkingu í þessum efnum. Ég veit
samt ekki betur en að nokkrir
starfsmenn, skipulagsnefnd og
hinir kjörnu bæjarfulltrúar hafi
búið þetta leiðakerfi til. Mikið
samráð var og haft við strætis-
vagnastjóra.
J. Ingimar Hansson
verkfræðingur"
VELVAKAIMDI
S3? SIG6A V/öGA £ ‘í/LVt&AU
Ferðamála-
ráðstefna
Hótel
Loftleiðum
FERÐAMÁLARÁÐSTEFNA
stendur nú yfir á Hótel Loft-
leiðum, en hún hófst sl. föstudag.
Þátttakendur eru allir frá Banda-
rfkjunum og komu þeir með Loft-
leiðaþotu til landsins.
Þátttakendurnr eru alls 26 og
koma frá 5 háskólum vestra, frá
Cornell University, Sullivan
Community College, University
Massachusetts, Michiagan State
University og New York Comm-
unity College. Þetta er í annað
sinn, sem slíkt námskeið er haldið
á Hótel Loftleiðum, en þetta er
hluti af kennslu ofangreindra
skóla I ferðamálum. Auk þess að
hlýða á fyrirlestra og taka þátt í
umræðum, munu þátttakendur
fara til Hveragerðis, skoða
Reykjavík, heimsækja Akranes,
skoða söfn og heimsækja hitaveit-
una að Reykjum i Mosfellssveit.
Þá munu þátttakendur
heimsækja Norræna húsið og
eyða kvöldi í Súlnasal Hótel Sögu,
heimsækja Veitingaskóla íslands
o.fl. Að síðustu mun borgarstjór-
inn i Reykjavík afhenda gestum
skjal vegna þátttöku þeirra í
námskeiðinu.
JHorðiuiblatiili
nuGivsmcnR
^^22480
1
Felaaslif
□ GLITNIR 59751227 — 1
I.O.O.F. 7 = 1561228'/! = 9.0.
Helgafell 59751227 IV/V.—2.
I.O.O.F. 9= 1561228VÍ = Spk.
Fíladelfia Vakningarvikan heldur áfram í kvöld og næstu kvöld. Ræðu- maður Enok Karlsson frá Svíþjóð.
Kristniboðssambandið Samkoma verður i Kristniboðs- húsinu Betania, Laufásvegi 13 i kvöld kl. 20.30. Sigursteinn Hersveinsson talar. Allir eru velkomnir.
Hörgshiíð 12 Almenn samkoma. — Boðun fagnaðarerindisins i kvöld, mið- vikudag kl. 8.
Góðtemplarahúsið, Hafnarfirði Félagsvistin i kvöld miðvikudag 22. jan. Verið velkomin. Fjöl- mennið.
Æfingatimar hjá Knatt- spyrnudeild Fram. Meistara- og 1. flokkur: Miðvikudaga kl. 20.30— 22.10. 2. flokkur: Laugardaga kl. 1 6.00. 3. flokkur: Laugardaga kl. 15.10. 4 flokkur: Laugardaga kl. 14.20. 5 flokkur A og B: Sunnudaga kl. 14.40. 5 flokkur C og D: Sunnudaga kl. 1 5.30. Æfingatimarnir eru í leikfimis- húsi Álftamýrarskólans.