Morgunblaðið - 22.01.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANUAR 1975
3
0 A fimmtudagskvöldið, 23.
janúar, verður frumflutt á ls-
landi C-dúr messa Ludwigs 'van
Beethovens, sem samin var á
sfnum tíma fyrir Esterhazy
fursta og frumflutt f september
1807. Að flutningnum standa
Sinfónfuhljðmsveit Islands og
Söngsveitin Fflharmonía,
ásamt einsöngvurunum Elfsa-
betu Erlingsdóttur, sópran,
Solveigu M. Björling, alt,
Garðari Cortes, tenór, og Hall-
dóri Vilhelmssyni, bassa.
Karsten Andersen, aðalhljóm-
sveitarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar stjórnar hljóm-
leikunum, en Garðar Cortes
hefur æft söngsveitina.
0 Sem kunnugt er vann söng-
sveitin Fflharmonía undir
stjórn dr. Róberts A. Ottós-
sonar frá stofnun hennar
haustið 1959 og þar til hann féll
frá á sfðastliðnu ári. Undir
hans stjórn og ásamt Sinfóníu-
hljómsveitinni hefur hún um
Mynd þessi af Söngsveitinni Filharmoníu og Sinfóníuhljömsveit íslands var tekin á æfingu í Háskólabíói í
gærmorgun. (Ljósm. Mbl. Sv. Þormóösson).
C-dúr messa Beethovens frumflutt
árin flutt mörg helztu stórverk
kórbókmenntanna og þeir
hljómleikar jafnan verið meiri
háttar viðburður f fslenzku tón-
listarlffi.
0 Sfðastliðið haust var Garðar
Cortes ráðinn söngstjóri
Filharmonfu, en hann hafði
verið dr. Róbert til aðstoðar á
æfingum sfðustu árin og stjórn-
aði á sfnum tfma flutningi á
köflum úr Friði á jörðu eftir
Björgvin Guðmundsson.
Messan f C-dúr op. 86 verður
annað tveggja verkefna á þess-
um hljómleikum Sinfónfu-
hljómsveitarinnar, sem eru
hinir áttundu og sfðustu á fyrra
misseri starfsársins 1974—75.
Hitt verkefnið er Sinfónía nr. 7
í A-dúr op. 92, einnig eftir
Beethoven. Hljómleikarnir
verða endurteknir á föstudags-
kvöldið 24. janúar kl. 20.30.
Askrifendum að hljómleikum
Sinfónfuhljómsveitarinnar,
Þrír einsöngvaranna í C-dúr messu Beethovens, ásamt hljómsveitarstjóra og
framkv.stj. Sl. og stjórn Söngsveitarinnar Fílharmoníu. Talið frá vinstri,
sitjandi: Karsten Andersen aðalhljómsveitarstjóri, Solveig M. Björling,
sópran og Ilalldór Vilhelmsson, bassi, standandi: Jón Bjarman, Ingibjörg
Björnsdóttir, Garðar Cortes, tenór og söngstjóri, Helga Guðmundsdóttir, Bjarni
Kristmundsson og Gunnar Guðmundsson frkv. stj.
sem eru nú 6—700 talsins, skal
á það bent, að þeir þurfa að
endurnýja skírteini sfn hið
fyrsta.
1 söngsveitinni Fílharmonfu
eru nú rétt um hundrað manns.
Fjölmennust hefur hún verið
146 manns við flutning Oratorf-
unnar Messfas eftir Hándel í
nóv. 1973, en það var sfðasta
stórverkið, sem hún flutti
undir stjórn dr. Róberts A,-
Ottóssonar. Sveitin hefur til
þessa einungis tvisvar sungið
opinberlega án hans hand-
leiðslu, f fyrra skiptið við flutn-
ing verks Björgvins Guðmunds-
sonar, sem fyrr var getið og í
sfðara skiptið við frumflutning
Völuspár, eftir Jón Þórarins-
son, sem höfundur stjórnaði á
Arnarhóli á Þjóðhátfðinni í
Rcykjavík sl. sumar.
Að sögn stjórnarmanna
Filharmonfu hafa næstu verk-
efni þcgar verið ákveðin. Þau
eru Sálmasinfónfan eftir
Stravinsky, sem flutt verður 10.
aprfl og sfðan næsta haust
Carmina Burana éftir Carl
Orff, fyrsta verkið, sem sveitin
flutti opinberlega, árið 1960, þá
ásamt Þjóðleikhússkórnum.
Þar næst er fyrirhugað að
flytja Requiem eftir Verdi.
Stjórn söngsveitarinnar skipa
nú sr. Jón Bjarman formaður,
Helga Guðmundsdóttir, Bjarni
Kristmundsson, Ingibjörg
Bjarnadóttir og Reynir Þórðar-
son.
Hvassafell
strandaði
í Finnlandi
EITT AF skipum skipadeildar
SÍS, Hvassafell, strandaði
aðfararnótt mánudags rétt við
Kotka f Finnlandi, en þangað var
skipið að fara til þess að sækja
vörur. Var Hvassafell að koma frá
Tallin í Eistlandi.
Samkvæmt upplýsingum Hjart-
ar Hjartar, framkvæmdastjóra
skipadeildarinnar, var i gær verið
að skoða botn skipsins. Skýrsla
um skemmdir á skipinu var ekki
væntanleg fyrr en I morgun.
Hjörtur sagði, að ekkert hefði
borizt um aðdraganda og ástæður
þessa óhapps.
Spíra stolið úr
rakarastofum
BROTIST var inn í tvær
rakarastofur í fyrrinótt, í
Veltusundi og Þingholts-
stræti. I báðum tilfellunum
voru gestirnir í leit að rak-
spíra, væntanlega til
drykkjar.
Unnið að snjóruðningi fyrir norðan.
Sæmileg færð, en
spáð versnandi veðri
FÆRÐ á landinu var með bezta
móti f gær, nema á Austurlandi,
en þar var allt ófært f gærmorg-
un. Spáð var versnandi veðri,
þannig að verið getur, er þetta
eintak Mbl. berst f hendur les-
enda, að breyting sé á orðin.
Samkvæmt upplýsingum Vega-
gerðar ríkisins var Austurland
allt ófært í gærmorgun, en reynt
var í gær að moka snjó af veg-
inum um Fagradal. Ofært var i
Berufjörð, en mokstur stóð í gær
yfir á Lónsheiði. Frá Lónsheiði
var síðan fært um alla suður-
ströndina til Reykjavíkur, allt
vestur um Snæfellsnes, um Hey-
dal og vestur í Reykhólasveit.
A Vestfjörðum var fært frá
Patreksfirði á Barðaströnd og til
Bíldudals. Frá Isafirði var fært til
Súðavikur og Bolungarvíkur.
Fært var um Holtavörðuheiði
allt norður i Skagafjörð og Fljót.
Þó var ófært til Siglufjarðar. 1
gær var verið að moka Öxnadals-
heiði og Öxnadal. Fært var fyrir
Ólafsfjarðarmúla. Þá var og
unnið að snjómokstri í Dalsmynni
og var það mikið verk. þar sem
snjóflóð hafa fallið þar. Bentu
ekki líkur til þess að þvi verki
myndi ljúka i dag. Frá Húsavík
var í gær fært til Raufarhafnar.
Flugstöðvar-
bygging álitleg
framkvæmd
FRÖNSKU aðilarnir, sem
fengnir voru til þess að gera
umferðaráætlun um Kefla-
víkurflugvöll, hafa nú skilað
áliti og er álitsgerð þeirra til
athugunar í utanríkisráðu-
neytinu. Samkva'mt upplýs-
ingum Páls Asgeirs Tryggva-
sonar, deildarstjóra f varnar-
máladeild, telja Frakkarnir
byggingu nýrrar flugstöðvar
mjög álitlega framkvæmd og í
senn nauðsynlega, þar eð
innan fárra ára verði núver-
andi flugstöðvarbygging ónóg
og allt of Iftil.