Morgunblaðið - 22.01.1975, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANUAR 1975
5
Jarðvarmi
í Siglufirði
I Morgunblaðinu sl.
sunnudag var yfirlits-
frétt um hitaveitur og
hitaveitumöguleika í
landinu. Þar var m.a.
greint frá fyrirhugaðri
hitaveitu í Siglufirði.
Mynd þessi sýnir afstöð-
una frá borholunum í
Skútudal til kaupstaðar-
ins, en lengd aðveituæð-
ar er áætluð 4—5 km.
Hugmyndir um nýtingu
heits vatns í Siglufirði
eru ekki nýjar af nálinni
og rannsóknir og boranir
hafa staðið yfir í nær ára-
tug. Nú er áformað að
hitaveituframkvæmdir
hefjist á yfirstandandi
ári. Vonandi er, að ekki
dragist lengi úr þessu að
virkja það vatn, sem
myndin sýnir renna
óbeislað.
(Ljósm.: Jónas Ragnars-
son).
Tilvalin lausn á flutningaþörf flestra fyrirtækja
og einstaklinga. Léttur bíll og lipur í umferðinni
(beygjuradíus aðeins 5 m), en ber samt 1 tonn.
Vélin er 1600 rúmsentimetrar, aflmikil og
sparneytin í senn. Þægilegt stillanlegt sæti fyrir
2 farþega auk ökumanns.
S.4...Æ pii| „ Gerið samanburð á verði og gæðum og þér
munið sannfærast.
veró aóeins um 610 búsund krónur
BÍLABORG HF
HVERF/SGÖTU 76 SÍM/ 22680
Erlendar bækur
About a
Marriage
Eftir Giles Gordon
Í bókinni segir ungur eigin-
maður hjónabandssógu sína.
Hann berst hetjulega við að skilja
stúlkuna sem hann giftist, ólýsan-
lega þörf hennar til að eignast
börn, öfgafulla hamingju hennar
annað veifið og örvæntingu henn-
ar hina stundina. Hann reynir eftir
mætti að réttlæta trú sína á hjóna-
bandinu, löngu eftir að lesandinn
hefur sterklega á tilfinningunni,
að undirstöður þess séu brostnar.
Giles Gordon segir söguna ákaf-
lega trúverðuglega. Hún lýsir
kynnum ungu stúlkunnar og unga
mannsins og rekur slðan hvað ger-
ist og hvernig samband þeirra þró-
ast. Eiginmaðurinn telur að konan
hafi þroskast og sé orðin jákvæð-
ari og skemmtilegri persóna en
hún var, þegar hann kvæntist
henni. Aftur á móti er hann sjálfur
Villiöndin —
Rosmerholm—
Hedda Gabler
Um verk Ibsens
eftir Ingjald Nissen
HÖFUNDUR þessarar bókar
Ingjald Nissen hefur verið afkasta-
mikill höfundur. Hann er aukin
heldur einn þekktasti sálfræðing-
ur Noregs og hefur síðustu þrjátíu
árin, og rösklega það, unnið jafn-
hliða að vlsinda- og ritstörfum.
haldinn þeirri vanmetakennd, að
hann hafi nánast staðnað á þess-
um árum og i stað þess að varpa
sökinni á hjónabandið, eins og
nærtækt er, tekur hann þá skuld
álla á sig, og sem sagt, skilyrðis-
laust.
Þeim hjónum tekst loks að eign-
ast barn og stórkostlegur draumur
eiginkonunnar hefur þar með ver-
ið uppfylltur. Kannski á eigin-
maðurinn ekki barnið, kannski á
hann það. Og kannski skiptir það
engu máli, fyrst hún er hamingju-
söm. Síðar bætist við annað barn,
maðurinn er I raun og veru
gleymdur, móðursælan er svo
mikit, að lesandinn hefur grun um,
að upp frá þessu snúist hugsanir
konunnar svo mjög um þessi börn,
að maðurinn sé I hennar augum til
þess eins héðan af, að gera henni
börn.
Sagan er hispurslaus, án þess
að vera djörf eða ..dónaleg" á
neinn hátt og hún er skemmtileg
og Ijúf aflestrar. Hún dregur upp
raunsæja mynd af nútimahjóna-
bandi að mínum dómi.
Penguin gefur bókina út.
Fyrir allmörgum árum gaf hann út
bókina „Sjelelige kriser i
menneskets liv. Henrik Ibsen og
den moderne psykologi." í seinni
helmingi þeirrar bókar tekur hann
fyrir þau þrjú leikrit Ibsen, sem I
þessari útgáfu koma nú út I sér-
stakri bók. Hann fjallar þar um
„Villiöndina", „Rosmerholm" og
„Heddu Gabler", og vinnur þar
ákaflega merkt og athyglisvert
skilgreiningarverk á þessum leik-
ritum.
Ekki er vafi á því að mörgum
þeim, sem lesið hafa og séð verk
Henriks Ibsens, ætti að vera um-
talsverður akkur I að kynna sér
bók Nissens.
Aschehougs forlagið gefur bók-
ina út.
Frysti- kæliskápur
frá Bauknecht
tveir skápar í einum
Tekur ekki meira rúm en
venjulegir kæliskápar.
Alsjálfvirk affrysting i kæli-
rúmi.
Samband islenzkra samvinrtufélaga
VÉLADEILD
Ármúla 3 Reykjavík simi 38900
Hægri eda vinstri opnun eftir
vali.
Ódýr i rekstri.
3 stærðir fyrirliggjandi.
ÍBauknedit
veit hvers konan þarfnast