Morgunblaðið - 22.01.1975, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANUAR 1975
7
Þjóðhátíðarplattarnir frá
Bing & Gröndahl, lítið
mun nú vera eftir af
þeim á markaðnum.
Jóladiskurinn frá 1895
kostar nú 2100 dollara.
Arsldukkau 1974 hefur
sextánfaldast í verði
leiða smækkaðar eftirmyndir af
höggmyndum dansk islenzka
myndhöggvarans Bertels Thor-
valdsen. Þá voru erfiðir timar, og
þar sem bræðurnir tveir voru ekki
alveg vissir um, að tilraunin
mundi takast, byggðu þeir fyrsta
húsið sitt á ökrunum á Vesturbrú,
þannig úr garði gert, að þeir gætu
leigt það út, svo að þeir myndu
a.m.k. endurheimta eitthvert fé,
ef illa færi.
Fyrirtækið gekk þó framar öll-
um vonum. Höggmyndir Bertels
Thorvaldsen voru heimsfrægar, og
eftirmyndirnar, sem voru úr hvitu
postulíni án glerungs, hinu svo-
kallaða biscuit, seldust mjög vel.
Innan skamms var einnig farið
að framleiða matarstell. Á heims-
sýningunni í París 1889 vann
framleiðslan glæsilegan sigur, og
„Hegrastell" Pietro Krohns vakti
mikla aðdáun. Haldið var áfram
sömu stefnu á heimssýningunni í
Paris 1900, en þar var verksmiðj-
unni skipað I sess meðal helztu
postulínsverksmiðja í Evrópu
vegna þeirra verka, sem J.F.
Willumsen, hinn frægi liststjórn-
andi verksmiðjunnar hafði átt
hugmyndina að.
Aðrir þekktir listamenn fetuðu i
fótspor hans, eins og t.d. Kai
Nielsen og Jean René Gauguin, og
listakonan Fanny Garde skapaði
eitthvert frægasta matarstell
verksmiðjunnar, „Máfastellið",
sem var selt m.a. til Buckingham
Palace i London og vekur aðdáun
hjá húsmæðrum i mörgum lönd
um. ekki sizt á islandi.
Af öðrum þekktum matarstell
um má nefna „Haustlauf", serr
listamaðurinn Ebbe Sadolin hefui
teiknað, og hið dimmbláa stell
,,Jólarósina", og nú fyrir skömmu
hefur Henning Koppel, hinn
þekkti silfursmiður og teiknari
skapað mjög nýtizkulegt, alhvitt
postulínsstell, sem hefur hlotið
heiðursverðlaun i alþjóðasam-
keppni Faenzasafnsins fræga.
Það er dimmblái (kobolt) litur-
inn, sem hefur orðið sérkennandi
fyrir danska postulinið með undir
glerung, og þarf brennsluhitinn
fyrir þennan lit að vera u.þ.b.
1450° á Celcius. Aðra liti verður
að blanda með 24 karata gulli, ef
þeir eiga að þola þetta háa hita-
stig, og líkamslitirnir á hinum töfr-
andi barnastyttum eru málaðir
með skíru, bræddu gulli.
Við verksmiðjuna starfa nú
1200 manns, en af þeim eru rúm-
lega 300 listmálarar, og meðal
fastra viðskiptavina verksmiðj-
unnar, eru bæði dönsku og
sænsku konungsfjölskyldurnar.
Stytturnar eru einnig notaðar
meira og meira við borðskreyt-
ingu. og með blómum, og stuðla
að því að setja hátiðablæ á máltíð-
irnar alla daga vikunnar.
Frægur er einnig jóla
diskurinn, sem Harald heitinn
Bing, forstjóri, átti hugmyndina að
árið 1895 og nú er orðinn eftir-
sóttur safngrtpur, eins og fyrr seg-
Framhald á bls. 19.
Sagt frá Bing & Gröndahl í Danmörku
Nýlega lásum við frétt í erlendu
blaði, þar sem sagði frá þvi, að
jóladiskur hinnar frægu dönsku
postulinsverksmiðju Bing &
Gröndahl, sem gefinn var út 1895
og kostaði þá 2 kr. danskar seldist
nú i forngripaverzlunum i Banda-
rikjunum fyrir 2100 dollara, eða
um 250 þúsund isl. kr. Er þetta
aðeins eitt dæmi að sögn blaðsins,
um verðmæti hluta frá þessu fyrir-
tæki, en safnarar hafa löngum
lagt sig i lima við að eignast seriui
fyrirtækisins. Sem dæmi um þetta
má nefna, að á sl. ári framleiddi
fyrirtækið í fyrsta skipti „Árs-
klukkuna" og kostaði hún þá 125
kr. danskar út úr búð. j dag selzt
þessi sama klukka á 2000 kr.
danskar og nú nýlega kom Árs-
klukkan 1975 á markaðinn. 1969
kom fyrst út platti í seríunni
„Mors Dag" og siðan einn vegg-
skjöldur á ári og eru hinir fyrstu
gjörsamlega uppseldir og i miklu
verði.
Bing & Gröndahl framleiddu,
sem kunnugt er þjóðhátiðarplatta.
er komu á markaðinn hér á sl. ári,
teiknaðir af frú Sigrúnu Guðjóns-
dóttur og hafa verið seldir hér sem
sett, en plattarnir eru þrir. Karl K.
Karlsson stórkaupmaður, sem er
umboðsmaður Bing og Gröndahl
á íslandi tjáði okkur, að allt upp-
lag þjóðhátiðarplattanna hefði nú
verið afgreitt, en hann vissi til að
eitthvað litið magn væri eftir hiá
drpifingaraðiljunum tveimur, SIS
og O. Johnson og Kaaber. Sagði
Karl, að sérfræðingar í þessum
málum teldu liklegt að þessi seria
yrði siðar meir mjög verðmæt sem
safngripur, en upplagið var tak-
markað.
Upphafið að stofnun þessarar
frægu verksmiðju er nátengt ís-
landi; Þegar F.V. Gröndahl, mót-
ara, tókst að telja þá bræður M.H.
Bing og J.H. Bing á að stofna
postulinsverksmiðju árið 1853,
var það i þeim tilgangi að fram-
Kari K. Karisson með ársklukkuna 1974, sem hefur sextán-
faldast í verði á einu ári.
Til sölu vönduð 5 herb. íbúð í Æsufelli, glæsilegt útsýni. Skipti á íbúð, raðhúsi eða einbýlishúsi á ýmsu byggingarstigi koma til greina. Til- boð sendist Mbl. fyrir 1. febrúar merkt: A—7344. H úsbyggjendur Byggingaþjónusta Karls og Sturla s.f. símar 38781 og 17626. Nýbyggingar — bilskúrshurðir — gluggasmiði — loftklæðningar — milliveggir o.fl. Fagvinna — meistari.
íbúð óskast 4ra herb. íbúð óskast til leigu strax. Uppl. í síma 23050 eftir kl. 1 9 á kvöldin. SkattframtöS — reikningsskil Þórir Ólafsson, hagfr. s. 23017. Magnús Sigurðsson, löfr. s. 13440. Skrifstafa Öldugötu 25.
Skattframtöl Veiti aðstoð við skattframtöl. Pantið tima sem fyrst. Haukur Bjarnason hdl. Bankastræti 6. Simar 15528 og 26675. Vegabréf ca 264346 gefin út í Belgrad í Júgóslaviu auglýst úr gildi.
Foco krani Til sölu Foco bilkrani 2 tonna með skóflu. Uppl. i sima 36583. % Bronco Til sölu er Bronco árg. '66. Uppl. i sima 41 693.
Leiguibúð Rúmgóð 3ja herb. ibúð við Skip- holt til leigu nú þegar, helzt til langs tima. Allt sér. Tilboð sendist afgreiðslu Mbl. fyrir kl. 14 föstu- daginn 24. þ.m., merkt „Leiga — 7345" Hesthús Óska eftir að taka á leigu hesthús eða pláss fyrir 2 hesta. Kaup koma til greina. Upplýsingar í sima 71932. Eftir kl. 7.
IHorðiinblödib í^mBRCFBlDBR 1 mflRHflflVOBR Framtalsaðstoð Veitum aðstoð við gerð skattfram- tala fyrir einstaklinga og atvinnu- rekendur. Tö|v,s h f Hafnarstræti 1 8. sími 22477.
Kuldaúlpurnar með loðkantinum
Allar herrastærðir á
aðeins kr. 5.400,-
^Fataverzlun fjölskyldunnar
oflusturstræti