Morgunblaðið - 22.01.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANUAR 1975
13
18 manna hljómsveit F.I.H. frumflutti jazzverk eftir Leif Þórarinsson. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.).
Nordjazz-ráðstefna í Reykjavík:
2 bækur eftir Ármann
Kr. Einarsson komn-
ar út á færeysku
Nemendur Tollskólans
Stóraukin samvinna norr-
ænna hljómlistarmanna
Ármann. — Það kom fram að ekki
er álitið að barnabókahöfundar
sitji við sama borð og þeir sem
skrifa fyrir fullorðna, þótt breyt-
ing til hins betra hefði á orðið. Ég
lagði m.a. fram tillögu á þinginu,
sem var samþykkt samhljóða, þar
sem ráðstefnan bendir á þann
sjálfsagða rétt barna- og unglinga-
bókahöfunda að fá greitt eftir
sama taxta og aðrir höfundar.
Sama máli gegni um efni fyrir
börn sem flutt er i fjölmiðlum.
Voru rithöfundafélögin á Norður-
löndunum hvött til að vinna að
þessu í sfnum löndum og styðja
hvert annað.
— Ég tel, sagði Ármann enn-
fremur, — að það hafi dregið úr
ýmsum ungum höfundum að
skrifa fyrir börn, að greiðsla
hefur verið lægri. Höfundar sem
eiga bækur á skólabókasöfnum,
sem mikið eru notuð, og uppi-
staðan þar er vitanlega barna- og
unglingabækur, fá ekkert greitt
fyrir útlán bóka sinna, þótt al-
menningsbókasöfnin séu nú farin
að greiða fyrir slfk bókaafnot.
Við spurðum Ármann hvort
hann teldi ávinning að ráðstefn-
um sem þessari:
— Ég tel að á slíkum fundum
komi margt athyglisvert fram og
þar takast persónuleg kynni höf-
unda í millum m.a. með það fyrir
augum að auðvelda að bækur
verði þýddar. Umræðuefni á ráð-
stefnunni og fyrirlestrar margir
voru mjög athyglisverðir og má
geta um erindi um færeyskar
barnabókmenntir, annað hét
„Vurdering av barnelitteratur-
en“, fjallað var um skólabókasöfn
og ég flutti þarna erindi sem ég
nefndi: „Bókmenntir í kennsl-
unni, ævintýri, görnul og ný“. Ég
er þeirrar skoðunar að þetta þing
geti orðið lyftistöng og áhuga-
vekjandi á allan hátt. Geta má
þess að Færeyingar eiga erfitt
uppdráttar vegna fámennis, hvað
útgáfustarfsemi snertir og koma
þar aðeins út örfáar barnabækur
fyrir hver jól og kom þegar fjör-
kippur f útgáfuna nú fyrir síðustu
jól. Annars held ég að þær
umræður sem hafa orðið á sfðustu
árum um barna- og unglingabóka-
útgáfu hafi orðið til að útgefend-
ur vandi meira val sitt en áður og
leggi kapp á betri þýðingar.
Barnabókahöfundar verða að
reyna að komast inn f hugarheim
barnsins og höfða til þess í skrif-
um sínum, hafa líf og hraða í
frásögninni. Margir eru áreiðan-
lega þeirrar skoðunar, að það
lestrarefni, sem barni er boðið
upp á í bernsku, móti það og hafi
áhrif á smekk þess síðar meir.
ÞESSI mynd var tekin nýlega af
nemendum í Tollskóla rikisins en
þar stendur nú yfir námskeið fyr-
ir tollverði. Skólanum er skipt f
tvo hluta, í 'fyrsta lagi eru 5 vikna
námskeið fyrir nýliða, og þegar
þeir hafa starfað f 1—2 ár setjast
þeir aftur á skólabekk á 3ja mán-
aða námskeið. Myndin er einmitt
af námskeiði þeirra sem lengra
eru komnir i starfi. Nemendurnir
læra tungumál, lög og reglur toll-
gæzlunnar og ýmislegt fleira.
Starfsmenn stofnunarinnar
annast kennslu að mestu leyti, en
einnig eru fengnir fyrirlesarar og
kennarar utan hennar. Skóla-
stjóri er Kristinn Ólafsson toll-
gæzlustjóri i Reykjavik.
15 nemendur sækja það nám-
skeið sem nú stendur yfir, 11 frá
Reykjavík, 4 frá Keflavíkurflug-
velli og einn frá Akureyri. Þeir
heita talið frá vinstri: Jón Þ.
Gíslason, Sigurður Albertsson,
Örn Geirsson, Arni Elisson,
Bjarni Sverrisson, Ævar Karl
Ölafsson, Sveinbjörn Guðmunds-
son, Gunnar Sæmundsson, Þórar-
inn S. Magnússon,, Eyþór Borg-
þórsson, Jón A. Eggertsson, Ólaf-
ur Sigurjónsson, Friðrik Georgs-
son, Ingimundur Erlendsson og
Jón Grétar Sigurðsson fulltrúi
tollgæzlustjóra. Á myndina vant-
ar Karl Hillers.
Neyðarblys — gabb
NEYÐARBLYS sást úr flugturn-
inuni á Reykjavfkurflugvelli, frá
Landakotsspftala og viðar að um
klukkan 15 f gær. Sveif blysið yfir
Gróttu og var ekki um að villast,
að um neyðarkall var að ræða.
Slysavarnafélag lslands gerði
þegar ráðstafanir og GNÁ flaug
margsinnis yfir allt svæðið við
Gróttu. Leit bar engan árangur.
Að sögn Hálfdans Henrýssonar
virðist hafa verið um gabb að
ræða. Er það næsta furðulegt, þar
eð slikur leikur kostar ntikla pen-
inga og fyrirhöfn. Gísli Johnsen
vár einnig sendur út á svæðið
utan við Gróttu svo og skip, sent
voru i Reykjavíkurhöín. Þaö er
ljótur leikur, að gabba björgunar-
sveitir með þessunt hætti og þótt
eitthvað kynni að vera eftir af
blysurn frá gamlárskvöldi, skal
tekið fram, að stranglega er
bannað að nota þau. Slikt veldur
aðeins óþægindum og leiðindum.
Engin veiði
VEGNA veðurs veiddist engin loðna
siðastliðinn sólarhring. I gær var
versta veður á miðunum, en þvi var
þó spáð að veðrið myndi ganga niður
með kvoldinu. Voru skipin farin að
hugsa sér til hreyfings i gærkveldi,
en Andrés Finnbogason hjá Loðnu-
nefnd gerði ekki ráð fyrir að afli færi
að berast fyrr en með morgninum.
Var og með morgninum spáð versn-
andi veðri á ný, svo að allt virðist
vera i óvissu um það, hvort afli berst
á land i umtalsverðum mæli
RÁÐSTEFNA norrænna jazz-
og poppmanna sem haldin var i
Reykjavfk um helgina heppn-
aðist vel að sögn þeirra fulltrúa
er hana sátu og lýstu þeir allir
ánægju sinni yfir þeim árangri
sem þar náðist. Á ráðstefnunni
voru teknar ýmsar ákvarðanir,
sem eru til að samræma nor-
rænar jazzáætlanir, skiptast á
upplýsingum, styðja norrænt
jazzframtak o.m.fl. sem miðar
að nánara samstarfi jazz- og
popphljómlistarmanna á
Norðurlöndum. 1 tengslum við
ráðstefnuna voru haldnir
hljómleikar i Átthagasal Hótel
Sögu á sunnudagskvöldið. Hús-
fyllir var og þóttu hljómleik-
arnir heppnast með miklum
ágætum. Heiðursgestir á hljóm-
leikunum voru forsetahjónin
og mcnntamálaráðherra ásamt
fulltrúum frændþjóða okkar á
Norðurlöndum.
Á Nordjazz-ráðstefnunni I
Reykjavík var m.a. fitjað upp á
þeirri nýjung að velja jazz-beat
hljómsveit í hverju landanna til
að leika á fjöl-listahátið í Stokk-
hólmi 17. til 22. marz i vor.
Fulltrúar íslands á þessari há-
tíð verða þeir félagar úr
kvintett Gunnars Þórðarsonar.
Hver hljómsveit fær sitt kynn-
ingarkvöld, en á daginn koma
allir tónlistarmennirnir saman
til að spila, eða „djamma" eins
og það er kallað á þeirra máli.
Með þessu er ætlunin að leggja
grundvöll að nýrri samnor-
rænni hljómsveit, sem á siðan
að leika á Porijazz-hátiðinni í
Finnlandi i júlí i sumar.
Fjöl-listahátiðin í Stokkhólmi
FBROYA LÆRARAFEIAG
Kápumynd af „Fjaldi
dýrgripurinn“ sem komin er út á
færeysku,
stuttu samtali við Mbl. í tilefni
útkomu bókanna að hann hefði i
sumar sótt þing norrænna barna-
og unglingabókahöfunda, ásamt
tólf öðrum íslenzkum fulltrúum
sem var haldið í Þórshöfn. Slík
þing eru haldin annað hvert ár og
verður það næst haldið í Osló árið
1976. Á ráðstefnunni í Þórshöfn
voru samankomnir 110 fulltrúar,
höfundar, þýðendur, bókaverðir
og fréttamenn. Flutt voru erindi á
ráðstefnunni og siðan voru um-
ræður um hvert erindi.
Höfuðviðfangsefni var „Barna-
bókmenntir og skólarnir", sagði
er haldin á sama tima og
evrópska sjónvarpssöngva-
keppnin Grand Prix, verð-
ur i Stokkhólmi en Nord-
jazz-fulltrúarnir drógu enga dul
á álit sitt á þeirri keppni, sem
þeir telja litt til þess fallna að
auka veg norrænnar tónlistar.
Er það von þeirra að á fjöl-
listahátíðinni komi i ljós, að til
er margskonar önnur og betri
tónlist en sú sem Grand Prix
keppnin eyðir svo miklu fé i. Á
þennan hátt er Nordjazz þátt-
takandi i að mótmæla fyrr-
nefndri tónlistarstefnu og sölu-
mennskutilhneigingum.
A sunnudag fóru Nordjazz-
fulltrúarnir í skoðunarferð um
Reykjavik og sátu siðan boð for-
seta íslands, dr. Kristjáns Eld-
járns, að Bessastöðum. Forseta-
hjónin ásamt menntamálaráð-
herra heiðruðu svo islenska
hljómlistarmenn með nærveru
sinni á Nordjazz-hljóm-
leikunum um kvöldið. Á
hljómleikunum komu fram
kvintett Gunnars Ormslev,
poppsveit Gunnars Þórðar-
sonar og 18 manna hljómsveit
F.I.H. sem m.a. frumflutli nýtt
jazzverk eftir Leif Þórarinsson.
Var verkið tileinkað hjónunum
Dýrleifu Árnadóttur og Ásgeiri
Péturssyni.
Forsetahjónin ásamt menntamálaráðherra heiðruðu samkomuna
með nærveru sinni.
FYRIR skömmu komu út f Fær-
eyjum tvær barnabóka Ármanns
Kr. Einarssonar I færeyskri þýð-
ingu Hönnu Lisberg. Þær heita á
færeyskunni „Fjaldi dýrgrip-
urin“ og „Tvey ævintýr" og er það
Föroya Lærarafelag sem gefur
bækurnar út. Kápumyndir gerði
Frits Johannesen.
Ármann Kr. Einarsson sagði I
Armann Kr. Einarsson
ÁRMANN KR. EINARSSON
FJALDI DÝRGRIPURIN