Morgunblaðið - 22.01.1975, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANUAR 1975
Öldungadeildin
með CIA-nefnd?
Þetta er nýja landsstjórnin í Færeyjum sem mynduð var fyrir skömmu eftir
nokkurt þóf. Á myndinni eru frá vinstri Jákub Lindenskov, sem hefur átt sæti i
landsstjórn síðan 1968 fyrir Jafnaðarflokkinn, Finnbogi Isaksen, yngsti lands-
stjórnarmaður í Færeyjum hingað til, 31 árs, og situr fyrir Þjóöveldisflokkinn,
Demmus Hentze, fyrir Fólkaflokkinn, Atli Dam, lögmaður frá Jafnaðarflokknum,
Petur Reinert fyrir Þjóðveldisflokkinn og Dánjal Pauli Danielssen fyrir Fólka-
flokkinn.
írak tók loks við
skæruliðunum þrem
Hefur Orly-árásin áhrif á samband Araba og Frakka?
Washington, 21. jan. Reuter.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkja-
þings er nú f þann veginn að gera
gangskör að því að rannsaka
starfsemi bandarísku leyniþjón-
ustunnar CIA niður í kjölinn f
fyrsta skipti f 27 ára sögu CIA. A
þingmannafundi demókrata í öld-
ungadeildinni f gær var sam-
þykkt með 45 atkvæðum gegn 7 að
setja á stofn sérstaka nefnd öld-
ungadeildarinnar í þessu máli,
svipaða þeirri sem sett var á lagg-
Unnið við
björgun í
Himalaja
Nýju Delhi 21. janúar
AP.
ENN er verið að bjarga fórnar-
lömbum jarðskjálftans í
Himalajafjöllum á sunnudag, að
sögn flugmanna, sem flugu yfir
svæðið f dag. Er verið að draga
fólk úr rústum fjallaþorpa sem
hrundu í skjálftanum, sem mæld-
ist 7,2 stig á Richter-kvarða. Tala
látinna var í dag 49 en talið var að
hún ætti eftir að hækka þegar
ljóst væri um tjón í afskekktustu
byggðarlögunum. Unnið er af
kappi við flutning hjálpargagna
með flugvélum.
irnar til rannsóknar á Watergate-
málinu. Kveikja þessara við-
bragða eru fregnir um að CIA
hafi myrt útlendinga, auk þess
sem hún njósnaði um Bandaríkja-
menn.
Öldungadeildin í heild, þar sem
demókratar hafa 22 sæta meiri-
hluta, átti að ræða þessa ályktun
demókrataþingmannanna i dag og
samþykkir hana hugsanlega nú
eða síðar i vikunni. Þessi nefnd
myndi fá mjög víðtækt umboð til
að kanna málefni CIA, einkum er
varðar njósnir innanlands og
ásakanir um að leyniþjónustan
hafi myrt útlendinga og jafnvel
sína eigin njósnara. Einnig er
talið aó undirróðursstarfsemi
FBI, alríkislögreglunnar muni
koma til athugunar.
Nikósíu, Aþenu,
21. janúar — Reuter.
DR. HENRY Kissinger, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, hefur
hótað að draga Bandarfkin út úr
öllum samningaumleitunum f
Kýpurdeilunni f framtfðinni ef
ofbeldisaðgerðum gegn banda-
rfskum eignum á Kýpur verði
Beirut, Sameinuðu þjóðunum,
París, 21. jan. AP — Reuter.
ÞRtR arabfskir skæruliðar lentu
f Baghdad árla dags f dag f
frönsku farþegavélinni sem þeir
höfðu fengið til umráða f skiptum
fyrir líf 10 gfsla, sem þeir héldu í
heila nótt á Orly-flugvelli í Parfs,
en slepptu svo f gærmorgun.
ekki hætt, að því er skýrt var frá í
Nikósíu f gær. 1 orðsendingu
sinni segir Kissinger einnig að
hann kunni að kveðja heim alla
sendinefnd Bandaríkjanna á
eynni ef einhver nefndamanna
yrði særður. Þessar hótanir koma
f kjölfar árásar mótmælenda-
múgs á bandaríska sendiráðið sl.
laugardag, en þá varð að tæma
sendiráðsbygginguna um tfma.
Höfðu skæruliðarnir verið á meir
en sjö klukkustunda flugi í ár-
angurslausri Ieit að griðlandi.
□ Talsmaður Air France sagði að
skæruliðarnir hefðu gefið sig á
vald frakskra stjórnvalda strax
eftir lendingu, en ekki var vitað
hvert þeir yrðu fluttir, né hver
örlög þeirra yrðu. Talsmaðurinn
að þingbyggingunni i Aþenu og
afhenda ályktun þar sem skorað
er á rrikisstjórnina að taka harð-
ari afstöðu gegn Bretum og for-
dæma „hinar heimsvaldasinnuðu
fyrirætlanir um skiptingu eyjar-
innar“. Þeir ásaka Bandaríkin,
Breta og NATO um að reyna að
þvinga fram ákveðna lausn Kýp-
urdeilunnar.
sagði áhöfnina, sem skipuð var
þremur Frökkum, vera heila á
húfi. Hugsanlegt er talið að
franski sendiherrann f Baghdad
hafi átt þátt f þvf að stjórnvöld f
Irak leyfðu skæruliðunum að
lenda þar f landi.
Eftir að skæruliðarnir fengu
flugvélina til umráða í París varð
Baghdad fyrsti áfangastaður
þeirra. Þar tóku þeir eldsneyti, en
héldu síðan í árangurslausa ferð
um Miðausturlönd til að leita að
griðastað. Fengu þeir synjun um
að lenda í Jeddah, Kairó, og fleiri
borgum. Eftir að hafa einnig
fengið neitun í Aden hélt flugvél-
in aftur til Baghdad.
Aðgerðir skæruliðanna voru
fordæmdar m.a. af Frelsishreyf-
ingu Palestínuaraba, en í árás
þeirra á Orly-flugvelli særðust 20
manns, þar af átta alvarlega.
Hafði palestínska fréttastofan
WAFA m.a. eftir bréfi frá Yasser
Arafat til Giscards Frakklands-
forseta: „Við getum alls ekki var-
Framhald á bls. 27.
Kissinger hótar að bætta
þátttöku í Kýpurviðræðum
EBE greiði
sykurinn niður
Brússel, 21. janúar — Reuter.
EFNAIIAGSBANDALAG Evrópu
ákvað f dag formlega að kaupa
allt að 300,000 tonn af sykri á
alþjóðlega sykurmarkaðnum til
að selja sfðan á gífurlega niður-
greiddu vcrði, — á u.þ.b. einum
þriðja kostnaðarverðs, — til neyt-
enda, einkum í Bretlandi og á
Italíu. Ráð landbúnaðarráðherra
EBE-landanna samþykkti í gær-
kvöldi að kaupa sykurmagn frá
200,000 tonnum upp í 300,000
tonn á markaðsverði sem er um
400 sterlingspund tonnið, og selja
sfðan í áðurnefndum löndum, þar
sem óttazt er, að alvarlegur sykur-
skortur verði sfðar á árinu, og
yrði verðið um 160 sterlingspund
tonnið. Það verð er ríkjandi inn-
an EBE í samræmi við land-
búnaðarstefnu bandalagsins.
Utanríkisráðherrum EBE mið-
aði hins vegar litt áfram í gær við
undirbúning samræmdrar af-
stöðu fyrir fyrirhugaða ráðstefnu
olíuneyzlulanda og bensinútflutn-
ingslanda. Hættu ráðherrarnir
viðræðum sinum án þess að
komast að niðurstöðu.
Papadopoulosi
stungið 1 stein
Aþenu 21. janúar — Reuter.
FIMM helztu leiðtogar herfor-
ingjastjórnarinnar fyrrverandi
í Grikklandi, þ. á m. Georg
Papadoupoulos fyrrum forseti,
voru í dag fluttir f fangelsi í
hafnarborginni Píreus, þar sem
þeir munu bíða þess að réttar-
höld hefjist yfir þeim vegna
ákæra um landráð og uppreisn.
Fangclsunarheimildin var
gefin út af Georg Voltis, rann-
sóknardómara, sem í fyrri viku
heyrði fimmmenningana gera
grein fyrir vörn sinni.
Þeir voru fluttir til Píreus á
meginlandinu frá eyjunni Kea í
Eyjahafi með grísku herskipi.
Þeir höfðu dvalið á Kea um
skeið, en var vísað burt á þeim
forsendum, að þeir ógnuðu
öryggi borgaranna.
• Fimmmenningarnir voru
síðan fluttir til sjóliðsforingja-
skóla nálægt Píreus í gær-
kvöldi, en þar biðu mörg
hundruð manns sem usu yfir þá
svívirðingum. Síðan fóru þeir i
fangelsi í morgun.
Papadoupoulos — úr forseta-
stól í fangelsi.
Pravda talar
um samstjórn
Tilkynningin um þessa orðsend-
ingu Bandarikjamannanna var
gefin út i Nikósfu eftir að
Makaríos forseti hafði sjálfur
gengizt fyrir því að kveða niður
mótmælaaðgerðirnar á götum
borgarinnar í gær, en mótmæl-
endurnir voru grískir Kýpurbúar,
sem gagnrýna vildu stefnu
brezkra og bandariskra stjórn-
valda í málefnum eyjarinnar.
Nokkur hundruð stúdentar
héldu enn í dag uppi umsátri um
brezka sendiráðið í'Aþenu til að
mótmæla stefnu Breta á Kýpur.
Mikill lögreglustyrkur stóð vörð
um bygginguna. Stúdentarnir
reyndu i gærkvöldi að taka sendi-
ráðið með áhlaupi, en það mis-
tókst. 1 dag ætluðu þeir að ganga
Morð á Maf-
íuforingja
Locri, Italíu 21. janúar — AP
ANTONIO Macri, sem talinn er
yfirmaður kalabrísku Maffunnar,
var skotinn til bana af tvcimur
flugumönnum, sem sátu fyrir
honum í þorpinu Locri í Suður-
llalfu, að því lögreglan skýrði frá
f dag. Velta lögregluyfirvöld
þeim mögulcika fyrir sér að um
sé að ræða innbyrðis valdabaráttu
maffuhópa. Aður hafði Maeri
orðið fyrir morðtilræði í ágúst s.l.
Moskvu, 21. jan. Reuter. AP.
Pravda, málgagn sovézka
kommúnistaflokksins, ftrekaði f
dag kosti samvirkrar forystu eða
samstjórnar og gaf f skyn að
flokkurinn yrði að treysta skipu-
lag sitt.
1 fræðiiegri grein eftir Pyotr
Rodinov, varaforstjóra stofnunar
marxisma og lenínisma, segir að
samvirk forysta sé styrkur flokks-
ins og tryggi einingu og framtaks-
semi foringja flokksins og
óbreyttra flokksmanna.
Greinin birtist á 51 árs dánar-
afmæli Leníns, á sama tíma og
aðalforingi flokksins, Leonid
Brezhnev, hefur ekki sézt opin-
berlega í tæpan mánuð. Sovézk
yíirvöld hafa neitað að staðfesta
eða bera til baka þrálátan orðróm
um að hann sé veikur.
Þó að aðeins sé ítrekað í grein-
inni að samvirk forysta fari með
völdin í Sovétríkjunum hefur
Brezhnev verið talinn „æðstur
meðal jafningja" í hinni sam-
virku forystu á undanförnum
árum og talsmaður hennar.
Vitnað er í Brezhnev i grein-
inni, en aðeins einu sinni og
greinin er 3.800 orð. Tilvitnunin
er í formála greinarinnar og er
þess efnis að þjóðin verði að
temja sér ný vinnubrögð.
Greininni er meðal annars talið
beint gegn flokksstarfsmönnum
er hafi misnotað aðstöðu sina,
neitað að taka gagnrýni til greina
og brotið gegn „sósialísku lýð-
ræði“.
Arið 1967 samdi Rodinov mikil-
væga kennslubók fyrir starfs-
menn flokksins og hélt því þar
fram að með brottvikningu Nikita
Krússjeffs 1964 hefði aftur verið
komið á samvirkri forystu.
Enn eru fréttaritarar i Moskvu
þeirrar skoðunar að ólíklegt sé að
Brezhnev hafi beðið álitshnekki
þótt stefna hans um að bæta sam-
búðina við vestræn ríki hafi orðið
íyrir áföllum.
Þeir vísa á bug fréttum frá
Varsjá um að Brezhnev hafi
fengið hjartaáfall 19. desember.
Þeir benda á að hann hafi sótt
þingfund 20. desember og annan
fund 24. desember.