Morgunblaðið - 22.01.1975, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANUAR 1975
Minning:
Sigurður Björnsson
trésmíðameistari
F. 18. apríl 1903.
D. 12. janúar 1975.
£g veit'yðar hvfld, sem þrautum þjást
og þér skuluð til mfn leita.
Mfn bregðast ei kunna orð né ást
sem öllum ég náði'heita.
Svo talaði hann sem enn oss ann
sem enn er oss hjálp að veita.
Halldór Benediktsson.
SIGURÐUR Björnsson andaðist
12. þessa mánaðar á Landspítalan-
um eftir þunga legu. Hann verður
til moldar borinn miðvikudaginn
22. janúar kl. 3 frá Fossvogs-
kapellu. Hann var fæddur 18
apríl 1903 að Sléttuhlíð i
Fljótum. Foreldrar hans voru þau
hjónin Björn Pétursson og kona
hans Þórey Sigríður Sigurðar-
dóttir. Systkini Sigurðar voru
Agústinus, Guðbjörg og Maron,
allt dugnaðar fólk.
Sigurður fór snemma í fóstur til
vinafólks Björns og Þóreyjar,
Stefáns Benediktssonar og konu
hans Guðlaugar Sigriðar, er
bjuggu að Arnarstöðúm í Sléttu-
hlíð, er reyndust honum eins vel
og hann væri þeirra eigin sonur.
Enda bar Sigurður til þeirra
mikla hlýju og virðingu alla tíð.
Dóttir þeirra hjóna, Stefáns og
Guðlaugar, Jóhanna andaðist að
kveldi sama dags og Sigurður. Svo
stutt var á milli fóstursystkin-
anna, aðeins nokkrar klukku-
stundir.
Til Siglufjarðar fluttist Sig-
urður um vorið 1927 og hóf þar
fljótlega nám í trésmíði hjá Páli
Jónssyni trésmíðameistara, er
stóð þá í miklum byggingarfram-
kvæmdum á staðnum. Lauk hann
námi um vorið 1931. Um svipað
leyti kvæntist hann eftirlifandi
konu sinni Málfríði Halldórs-
dóttur, Benediktssonar frá
Seyðisfirði.
Börn þeirra Sigurðar og Mál-
fríðar eru fjögur. Reimar ókvænt-
ur, Ina Dóra, gift Jóni Sigurðs-
syni, Jónssonar frá Haukagili,
Rafn kvæntur Pálínu Öskars-
dóttur og Randí gift Berghreini
Þorsteinssyni flugvélavirkja.
Sigurður og Málfríður komu
hingað til Reykjavíkur snemma
árs 1939 og bjuggu hér á ýmsum
stöðum, lengst af á Njálsgötu 87,
þar til þau festu kaúp á Kárastig
7, og hafa búið þar siðan.
Kynni okkar Sigurðar og vin-
átta er orðin löng eða allt frá
árinu 1930, er ég kom til Siglu-
fjarðar, þá 14 ára að aldri. Sú
vinátta hefur vaxið með árunum,
svo mikils mat ég mannkosti og
hæfileika þessa góða manns. 1
t
Faðir okkar
STEINGRÍMUR JÓNSSON,
fyrrverandi rafmagnsstjóri,
andaðist á Borgarspítalanum að morgni 21. janúar.
Börn hins látna.
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar og sonar
ÞÓRIS TRYGGVASONAR,
GrænuhllS 10,
verður gerð frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 23. jan. kl. 3.
Bergþóra Viglundsdóttir, Snorri Þórisson,
Sólveig Þórisdóttir, Sólveig Hjartardóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför,
ELÍNAR SIGRÍÐAR BLÖNDAL,
Stigahlið 42.
SigriSur Þorvaldsdóttir, Kristinn Baldursson,
Inga og Magnús Blöndal.
mörg ár vann Sigurður hjá skipa-
smiðastöð Daníels Þorsteinssonar
ogCo.
Ávann hann sér allsstaðar trausts
og virðingu, því hann var mjög
samviskusamur og vandlátur með
það sem hann lét frá sér fara.
Einn vinnuveitandi hans, er Sig-
urður hafði unnið hjá um áratug,
sagði eitt sinn við mig, er hann
frétti að Sigurður væri mikið
veikur, að það væri maður er
hann myndi mikið sakna. Þessi
vinnuveitandi er sjálfur hafði
ekki gengið heill til skógar, and,
aðist skömmu síðar. Þegar Sig-
urður svo hringir til mín og segir
mér lát hans, veit ég að það er
meira en vinnuveitandi sem
látinn er, það er vinur og félagi er
mátu hvor annan mikils og sökn-
uðurinn var djúpur og einlægur.
Örlög og atvik eru með ýmsum
hætti, en falleg eru svona vina-
bönd. Ljúfmennska og hógværð
voru svo eðlilegir þættir í viðhorfi
hans til lífsins að þeir runnu
óþvingaðir og án fyrirhafnar til
þeirra er nutu vináttu hans.
Sigurður las talsvert og hafði
yndi af góðum bókum, enda vel
greindur og fróðleiksfús, en ekki
vissi ég fyrr en fyrir stuttu að
hann fengist líka við skáldskap. 1
mörg ár hafa birst öðru hverju í
dagblöðunum vísur eftir hann,
oftast nær í Vfsi, undir stöfunum
S.B. Ég var að vísu oft búinn að
taka eftir þeim og þótti þær
góðar, en að hann væri höfundur-
inn vissi ég ekki, svo dult fór
hann með það.
I hinum löngu og erfiðu veik-
indum sfnum, er hann bar með
mikilli karlmennsku og æðru-
leysi, sýndi hann best innri
rósemi og sálarstyrk. Nú kveðjum
við Sigurð Björnsson hinstu
kveðju og þökkum honum langa
vináttu, góð kynni og margar
gleði- og ánægjustundir er við
nutum með honum og fjölskyldu
hans.
Við vottum eftirlifandi eigin-
konu, börnum, barnabörnum og
tengdafólki innilega samúð og
biðjum algóðan guð að styrkja
þau og blessa.
Blessuð sé minning Sigurðar
Björnssonar.
Þorsteinn Halldórsson.
Stefán Aðalsteins-
son — Minningarorð
F. 9.8.1920
D. 13. 1. 1975
Stefán Aðalsteinsson var fædd-
ur og uppalinn á Akureyri, sonur
hjónanna Aðalsteins Júlíusar
Stefánssonar verkstjóra og konu
hans Þórdísar Ágústu Jónsdóttur.
Það er nú orðið nokkuð á fjórða
áratug síðan leiðir okkar Stefáns
lágu fyrst saman. Mun hann þá
hafa verið innan við tvitugt.
Kynni okkar voru ekki mjög náin
framan af, þó að ég væri um skeið
hálfgerður heimagangur á heimili
foreldra hans á Akureyri. Það fór
þó ekki framhjá mér að Stefán
var vel greindur og hafði snemma
mikinn áhuga á grúski og miklu
meiri, að því er mér virtist, en
daglaunavinnu þeirri sem hann
stundaði á meðan hann var á
Akureyri. Varð mér því oft
hugsað til þess, hve leitt það væri
að hann skyldi ekki ganga
menntaveginn lengra en til gagn-
fræðaprófs. Hugur hans hneigðist
einkum að ættfræði og sagnfræði
og var hann mjög víðlesinn. Eftir
hann liggja allumfangsmikil
handrit á fyrrnefnda sviðinu.
+
Utför
DANIELS JÓNASSONAR
viðskiptafræðings,
Kambsvegi 36.
hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum innilega auðsýnda sam-
úð og vináttu.
Esther Rosenberg Jónasson
Alfred Rosenberg Danielsson
Ásta Jónsdóttir
+ Þökkum hjartanlega öllum, sem sýndu okkur vinsemd og samúð + Útför
vegna fráfalls og jarðarfarar. HÉOINS FRIÐRIKSSONAR,
FINNS THORLACÍUS Goðatúni 12,
byggingameistara. fer fram frá Fossvogskirkju
Halldóra Thorlacius Jónas Jónasson fimmtudaginn 23. janúar kl
Steinunn Thorlacíus Páll Sveinsson 13:30. Þeir, sem vildu minnast
Edda Thorlacíus Sigurður ísaksson hans, láti líknarstofnanir njóta
Kristín Thorlacius þess
Soffia Thorlacius Ari Thorlacius Birna Kristjánsdóttir,
og barnabörn Jóhann Örn Héðinsson.
+
Þökkum innilega auðsýnda vináttu og hlýhug við fráfall föður okkar,
tengdaföður, afa og bróður,
STEFÁNS EYJÓLFSSONAR,
skósmiðs,
Vesturgötu 51, Akranesi.
Dúfa Stefánsdóttir, Vifill Búason,
Bára Stefánsdóttir, Guðleifur Guðmundsson,
Anna Stefánsdóttir, Maron Guðmundsson,
Jóhann Stefánsson, Guðmundur Stefánsson,
barnabörn og systkini.
+
Alúðarþakkir til allra þeirra, sem
auðsýndu vináttu og hlýhug við
fráfall og jarðarför
SIGRÍÐAR
HJÁLMARSDÓTTUR BJERG.
Sérstakar þakkir til lækna, hjúkr-
unarfólks og annarra á Elliheim-
ilinu Grund, sem önnuðust hana
I veikindum hennar.
Hjálmar Þorsteinsson
frá Hofi
og systkini.
Hefur hann unnið aó þeim í fri-
stundum sínum á mörgum undan-
förnum árum. Vonir standa til að
eitthvað eigi eftir að birtast eftir
hann á prenti þótt hann því miður
fái ekki sjálfur að sjá þann draum
sinn rætast.
Stefán fluttist til Reykjavíkur í
árslok 1957 þá 38 ára að aldri
Gerðist hann aðstoðarmaður hjá
mér við fiskirannsóknir á vegum
Atvinnudeildar Háskólans, siðar
Hafrannsóknastofnunarinnar og
höfum við unnið saman æ síðan.
Stefán var traustur starfsmaður
og leysti ætíð verk sín vel og
samviskusamlega af hendi og með
stakri snyrtimennsku, hvort sem
var á sjó eða landi og hélt röð og
reglu í gagnageymslu minni.
Hann sat langtímum viö smá-
sjána og ákvarðaði aldur á skar-
kola og grálúðu, en það er vanda-
samt og þreytandi starf.
Siðari árin háðu veikindi hans
honum allmikið, en þó vann hann
lengst af fullan vinnudag, en mig
grunar að hann hafi lítið sinnt
ættfræðinni þrjú til fjögur
siðustu árin. Hræddur er ég um
að einmanakennd hafi stundum
sótt að honum á meðan hann bjó
einn i íbúð sinni að Austurbrún 2
í Reykjavík. Fyrrihluta þessa
vetrar virtist mér oft venju frem-
ur létt yfir Stefáni, og þar kom að
hann trúði mér fyrir því, að hann
hygðist ganga að eiga eftirlifandi
konu sína Sesselju Jónsdóttur.
Þau giftu sig á nýafstöðnum jól
um. Þetta gladdi mig mjög þar
sem ég þóttist sjá að Stefán hefði
eignast góðan lifsförunaut. Enn
meir gladdist ég, þegar ég naut
gestrisni þeirra hjóna eftir ára-
mótin og sá hve snoturt og að-
laðandi heimili þeirra var, en
„allt er i heiminum hverfult" og
þetta hjónaband, sem virtist lofa
svo góðu, varð alltof stutt. Brúð-
guminn var skyndilega kallaður
burtu áður en þrjár vikur voru
liðnar frá hjónavigslunni. Eitt er
þó huggun i harmi, og það er, að
Stefáni leið sérlega vel og var
glaður og ánægður síðustu daga
lífsins. Hann var trúmaður mikill
og hefur það vafalaust gott hinu-
megin við landamæri lifs og
dauða.
Ég sakna vinar og starfsfélaga
þar sem Stefán var, en hvað er
minn söknuður í samanburði við
söknuð ekkjunnar, sem naut sam-
vista hans svo stutt? Ég er hins
vegar ekki annars megnugur en
votta henni einlæga samúð og
hluttekningu, sem ég einnig votta
öðrum vandamönnum Stefáns.
Aðalsteinn Sigurðsson.
5VAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Þér talið um afturhvarf — en talar Biblfan um það?
Já, hvað eftir annað segir Biblían, að menn eigi að
hverfa aftur til Guðs. „Að eg megi kenna afbrota-
mönnum vegu þína og syndarar megi hverfa aftur til
þín“ (Sálm. 51,15). Jesús segir í Matt. 18,3. „Sann-
lega segi eg yður: Nema þér Snúið við og verðið eins
og börnin, komizt þér alls ekki inn í himnaríki.“
Pétur predikaði á hvítasunnudag og sagði: „Gjörið
því iðrun og snúið yður, að syndir yðar verði afmáð-
ar“ (Post. 3,19).
Afturhvarf þýðir bókstaflega að snúa við. Maður
iðrast synda sinna. Þaó er hin neikvæða hlið. Hann
snýr sér til Krists. Það er hin jákvæða hlið. Hver sem
er getur horfið aftur til Guðs. Það er ekki
tilfinningareynsla heldur algjör undirgefni við
Krist.