Morgunblaðið - 22.01.1975, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANUAR 1975
Blak:
HK ogUBKfaUin
UNDANKEPPNI íslandsmótsins
í blaki var lialdió áfram eftir jóla-
hlé og hafa verið leiknir sex
leikir. Staðan i riðlinum er sú að
ÍS hefur sigrað en á þó eftir einn
leik en HK og Breiðablik komast
ekki áfram í úrslitakeppnina en
leika í staðínn í b-liðs móti siðar í
vetur. — Laugardaginn 11. fór
fram á Laugarvatni leikur milli
heimaliðanna þ.e. Laugdæla og
UMFB. Undanfarin tvö ár hafa
leikir Laugarvatnsliðanna verið
mjög tvísýnir er þau hafa leikið
innbyrðis. í þetta sinn var þvi
ekki að heilsa og sigruðu Laug-
dælir auðveldlega 2—0 (15—2,
15—4). Biskupstungnamenn voru
greinilega mjög taugaóstyrkjr og
náðu sér aldrei á strik og var fátt
um fina drætti i leik þeirra. Laug-
dælir þurftu því ekki mikið fyrir
sigrinum að hafa og með Anton í
broddi fylkingar sigruðu þeir sem
fyrr segir. Lið Tungnamanna lék
allt undir getu. Daginn eftir sóttu
svo Breiðabliksmenn Laugdæli
heim. Nokkuð var um forföll hjá
báðum liðum en engu að síður var
leikurinn fjörugur og komu fyrir
skemmtilegir leikkaflar. Laug-
dælir voru þó öllu sterkari enda á
heimavelli og sigruðu í fyrri hrin-
unni 15—9, en í siðari hrinunni
komust Breiðabl.menn í 5—2 og
gerðu nú úrslitatilraun til að kom-
ast i úrslitakeppnina, en til þess
þurftu þeir að sigra. Hrinan var
jöfn framanaf og skiptust liðin á
forystu en Laugdælir reyndust
sterkari á endasprettinum og sigr-
uðu 15—12.
— A miðvikudaginn 15. léku
Þróttur og Víkingur í iþróttahúsi
Vogaskólans. Víkingar, sem höfðu
átt fremur lélega leiki fyrir jól
sigruðu óvænt í leiknum 2—1. 1
fyrstu hrinunni var samt fátt um
fína drætti hjá Víkingum. Leik-
skipulag var í óreiðu og mikið fát
og fum á leikmönnum. Hávörn
liðanna var eins og svart og hvitt,
hún var nánast engin hjá Vik-
ingum en aftur á móti mjög góð
hjá Þrótti. Þróttur átti mjög
góðan leik og sigruðu þeir stórt
15—5. 1 annarri hrinu hresstust
Víkingar heldur og tóku strax for-
ystu 5—2 en síðar komst Þróttur'
yfir 8—6 en Víkingar jöfnuðu og
sigruðu örugglega 15—10. Það
var einn leikmaður öðrum fremur
sem dreif Víkinga áfram með bar-
áttu sinni, Kristján Aðalsteins-
son, sem átti stórgóðan leik.
Einnig átti Gestur Bárðarson fal-
lega skelli. Sigur Víkinga kom
Þrótturum greinilega á óvart og
höfðu þeir ekki áttað sig á því
fyrr en seint i þriðju hrinu en þá
var staðan 13—6 fyrir Viking. Þá
tóku þeir smá sprett en Víkingar
sigruðu örugglega 15—10. Hjá
Þrótti sýndi Valdimar einna
skástan leik og átti fallega skelli.
Þróttur var án fyrirliða síns
Gunnars Árnasonar og munar um
minna.
— Nú um síðustu helgi voru svo
leiknir þrir leikir i iþróttahúsi
Árbæjarskólans. Fyrst léku Vík-
ingar og UMFB og var sá hinn
skemmtilegasti og afar spenn-
andi. Víkingar sýndu mikið
öryggi i fyrstu hrinu og sigruðu
stórt, 15—5, eftir að Tungnamenn
höfðu tekið forystu 5—3. I
annarri hrinu komu þeir ákveðn-
ari til leiks en Víkingar að sama
skapi daufari. Tungnamenn sigr-
uðu 15—11 og var sigur þeirra
verðskuldaður. 1 úrslitahrinunni
leit út fyrir stórsigur Tungna-
manna því þeir komust í 9—0, en
þá fyrst fóru Víkingar að taka við
sér og skoruðu næstu fjögur stig.
Tungnamenn komust svo í 13—6
og höfðu bókaó sigur en einum of
sigurvissir þvi Víkingar gerðu sér
litið fyrir og unnu upp forskotið
og komust einu yfir 14—13.
Spennan var nú í hámarki er
Tungnamenn jöfnuðu 14—14 en
Vikingar unnu boltann og sigruðu
naumlega 16—14. Mcstu munaði
um uppgjafir Eliasar Nielssonar
sem sendi átta uppgjafir í röð sem
allar gdfu stig. Hjá Tungnamönn-
um átti Böóvar Helgi skástan leik.
Strax á eftir léku stúdentar og
Laugdælir. Þeir fyrrnefndu hafa
ekki tapað leik í allan vetur og
sigruðu þeir auðveldlega lið
Laugdæla sem lék án tveggja
sinna beztu manna, Antons og
Páls Ólafss. Fyrri hrinan var al-
ger einstefna af hálfu IS og fengu
Laugdælir ekki stig. 1 síðari hrin-
unni hrökk eitthvað í baklás hjá
IS og Laugdælir komust í 10—2
öllum á óvart. Eftir að hafa tekið
leikhlé skoraði IS næstu þrettán
Knattspyrnuúrslit:
1. DEILD GRIKKLANDI:
AEK — Kastoria 4—0
Aris—Kalamata 2—0
Atromitos — Ethikos 2—1
Kavala — Olympiakos Volos 2—1
Larisa — Ealeo 1 — 0
Olympiakos P. — Panserraikos3—0
1 — 0
2—2
2—2
2—3
Panachaiki—Heraclis 1-
Paolk — Yannina
1. DEILD ITALÍU
Bologna — Napoli 1—0
Cagliari — Ascoli 2—O
Inter — Torino 1—O
Juventus — Fiorentina 0—O
Lazio—Milan 3—0
Sampdoria — Cesena O—0
Ternana — Roma 2—2
Varese — Vicenza 1 — 1
1 DEILD PORTÚGAL:
Sporting — Porto 2— 1
Olhanense — Benfica 0—1
Belenenses — Academico 1 — 3
Oriental — Guimaraes 2—0
Boavista — Tomar O—1
Leixoes—Farense 3—0
Esphíno — Atletico 2—3
CUF—Setubal 1 — 1
1. DEILD HOLLANDI:
Naastricht—Sparta 1 — 1
FC Haag — Excelsior 1—0
Ajax—Breda 5—1
Graafschap — Wageningen 1 — 0
AZ 67 — Telstar 2—2
Haarlem — FC Twente
FC Utrecht — Amsterdam
Go Ahead — Roda
Feyenoord — PSV
PSV Eindhoven hefur forystu I
keppninni með 29 stig. Feyenoord
er í öðru sæti með 26 stig, en síðan
koma Ajax með 26 stig, A2 67 með
22 stig og FC Twente með 21 stig.
1. DEILD BELGÍU:
Molenbeek — Waregem 3—1
CS Brugge — Anderlecht O—2
Antwerp — Lokeren 0—0
Lierse — Liegeois 4— 1
Ostend — Beerschot 0—1
Beringen — Charleroi 2—0
Standard — Malinois 1—O
Beveren — Winterslag 2—1
Berchem — Brugeois 1—0
Montignies — FC Diest 1 — 2
1. DEILD V ÞÝZKALANDI:
Fortuna Dusseldorf
— Kickers Offenbach 3—2
FC Köln — FC Kaiserslautern 2—0
Borussia Mönchengladbach —
Eintracht Braunswick 3—1
Leik þessum hafði verið frestað,
en vetrarhlé hefur að undanförnu
verið I 1. deildinni v-þýzku. Þar hefur
Hertha BSC frá Berlín forystuna. en
Hamburger SV er f öðru sæti og
Borussia Mönchengladbach i þriðja
sæti.
stig og sigraði. Urslitin urðu því
2—0 (15—0 og 15—10) fyrir ÍS
Á sunnudaginn léku svo Þrótt-
ur og HK. Þróttur sigraði auð-
veldlega i báðum hrinum, 15—3,
og 15—8. Þróttur komst í 11—0
áður en HK fékk stig í fyrri hrin-
unni, en síðari hrinunni léku
Þróttarar án sinna beztu manna
og héldu þá Kópavogsmenn i við
þá upp í 6—6 en sem fyrr segir
sigraði Þróttur 15—8. Leifur
Harðarson sýndi beztan leik
Þróttara en aðrir léku svipað.
Staðan í undankeppninni er nú
þessi: L U T Hrinur ■ Skor Slig
Is 5 5 0 10—0 151—53 10
UMKL « 4 2 .0—1 109—121 y
Þróltur 6 4 2 9—5 175—144 8
V’íkinj'ur 5 4 1 8—5 170—148 8
UMFB 5 1 4 3—9 101 — 164 2
UBK 5 0 5 2—10 116—169 0
HK 4 0 4 0—8 37—120 0
Næstu leikir verða á milli HK
og UMFB á Laugarvatni og HK og
UBK hér í Reykjavik. Síðasti
leikur undankeppninnar fer svo
fram um næstu helgi 25. jan. og
leika þá IS og Vikingur. Fyrsti
leikur úrslitakeppninnar fer svo
fram 8. febrúar.
Þróttur hefur nú tekið forystu I 2. deildar keppninni I handknatt-
leik, hefur hlotið 10 stig. Akureyrarliðið KA hefur einnig hlotið 10
stig, en markahlutfall Þróttaranna er betra. Mynd þessa tók Frið-
þjófur Helgason er Þróttur keppti við UBK í Iþróttahúsinu Asgarði
s.l. sunnudag. Trausti Þorgrímsson er kominn I skotstöðuna, en
UBK-leikmaðurinn Danfel Þórisson nær að hindra hann.
Aarhus KFUM tapaði
JUGÓSLAVNESKA liðið Banje
Luka sigraði Arhus KFUM i fyrri
leik liðanna í átta-liða úrslitum
Evrópubikarkeppninnar í hand-
knattleik meó 13 mörkum gegn
12, en leikið var á heimavelli
Árósarliðsins á sunnudaginn.
Staðan í hálfleik var 8—6 fyrir
Júgóslavana.
Leikmenn Banje Luka höfðu
komið til Danmerkur nokkrum
dögum fyrir leikinn og leikið æf-
ingaleiki við Helsingör og HG.
Fylgdust forráðamenn Árósaliðs-
ins með þeim leikjum, en þegar
júgóslavneska liðið mætti því svo,
breytti Luka algjörlega um leik-
aðferð, og komst i 7—1, þegar á
fyrstu 10 mínútunum. Eftir það
jafnaóist leikurinn mikið, og seint
í seinni hálfleik tókst Árósaliðinu
að jafna 11—11. Júgóslavarnir.
voru svo sterkari á endasprett-
inum.
Markhæstir í Árósaliðinu voru
þeir Jan Have með 4 mörk og
Hans Jörgen Tholstrup með 3
mörk. Karalic var markhæstur i
júgóslavneska liðinu með 7 mörk,
Selec skoraói 4 mörk og Radjeno-
vic 2.
Danska kvennaliðið FIF lék
einnig i Evrópubikarkeppninni
um helgina og mætti þá Loko-
motiva Zagreb. Leikurinn fór
fram i Danmörku og sigruðu
dönsku stúlkurnar 12—10, eftir
að staðan hafði verið 7—5 í hálf-
leik.
Magna boðið til Spánar
EINS OG frá hefur verið skýrt I
Mbl. hefur nokkrum knattspyrnu-
liðum verið boðið í keppnisferð
til Spánar um páskana. 1 frásögn
blaðsins af boði þcssu féll hins
vegar niður að nefna knatt-
spyrnulið Magna á Grenivík, en
því hefur einnig verið boðið í ferð
þessa. Eru þeir Magna-menn nú
að leita sér fyllri upplýsinga um
ferðina, en félagið á 60 ára af-
mæli á árinu og því möguleiki á
að halda veglega upp á afmælið
með Spánarferð.
GETRAUiMASEEILL NR 22 Leikir 25. janúar 1975 SUNDAY TIMES THE OBSERVER SUNDAY EXPRESS Q « O “a- tc & S C0 i SUNDAY TELEGRAPH M W e g « o z a M § > O M M Ph « < > a o CO VlSIR M M fil << PQ O a < 2 2 M 3 M > £j O A TlMINN SAMTALS
1 X 2
ASTON VILLA - SHEFF.UTD. 1 1 X X 1 1 í 1 X i í X 8 4 0
CARLISLE - W.B.A. X 1 X X 1 X í 1 1 i í 1 8 4 0
CHELSEA - BIRMINGHAM X 1 X 2 1 í í 1 X X í 1 7 4 1
C0VENTRY - ARSENAL 1 1 1 1 X í X X 1 2 í X 7 4 1
DERBY - BRISTOL ROVERS 1 1 1 1 1 i 1 1 1 1 í 1 12 0 0
IFSWICH - LIVERPOOL X 2 X X X X í í 1 1 2 1 5 5 2
LEEDS - WIMBLEDON 1 1 1 1 1 í 1 í 1 I 1 1 12 0 0 .
MIDDLESBRO - SUNDERLAND 1 2 X 1 1 X 1 X X X X X 4 7 1
PLYMOUTH - EVERT0N X 2 2 2 2 2 X X 1 X 2 X i 5 6
Q.P.R. - NOTTS COUNTY 1 1 - 1 - 1 1 1 1 1 1 1 10 O 0
WAISALL - NEWCASTLE 2 1 2 2 2 2 X 2 X 1 1 2 3 2 7
WEST HAM - SWINDON 1 1 1 1 I 1 1 1 1 1 X 1 11 1 0
LEIKIRNIR á 22. getraunaseðli eru f ensku bikarkeppninni auk ieikjanna, sem eru á getraunaseðlin-
um, leika Fulham og Notthingham Forest, Leatherhead og Leicester City, Stafford Rangers og
Peterborough á laugardaginn. Tvö þeirra blaða sem Morgunblaðið fær venjulega getraunaspá frá,
Sunday Mirror og Sunday People, komu ekki út s.l. laugardag og er birt spá The Observer og Sunday
Times f staðinn. Tvö ensku blaðanna spáðu ekki um leik Queens Park Rangers og Notts County, en
leikur þessi mun fara fram á föstudaginn, og verður þvf heldur ekki tekinn með hjá fslenzkum
getraunum.