Morgunblaðið - 14.03.1975, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1975
31
| ii'Riimfiiínn; morcumbubsiws
Meistara-
gleðin
íslandsmótið 1. deild
Laugardalshöll 12. marz:
Urslit: Víkingur — Valur
13—11 (6—5)
Gangur leiksins.
Mín. Vfkingur Valur
8. Stefán (v) 1:0
12. 1:1 Gfsli
13. Stefán 2:1
16. Viggó 3:1
17. 3:2 Jón P.
21. Páll 4:2
22. Viggó 5:2
24. 5:3 Gfsli (v)
27. Viggó 6:3
28. 6:4 Guðjón
29. Hálfleikur 6:5 Stefán
31. 6:6 Gfsli
33. Einar 7:6
34. 7:7 Stefán
38. Viggú 8:7
42. Stefán (v) 9:7
47. Páll 10:7
48. 10:8 Gísli (v)
49. Einar 11:8
53. Einar 12:8
55. Skarphóóinn 13:8
55. 13:9 Ágúst
58. 13:10 Ólafur
60. 13:11 Jón P.
Mörk Vfkings: Viggó Sigurós-
son 4, Stefán Haildórsson 3, Einar
Magnússon 3, Páll Björgvinsson 2,
Skarphéðinn Óskarsson 1.
Mörk Vals: Gísli Blöndal 4,
Stefán Gunnarsson 2, Jón P. Jóns-
son 2, Guðjón Magnússon 1, Agúst
Ögmundsson 1, Ólafur H. Jónsson
1.
Brottvfsanir af velli: Magnús
Guðmundsson, Þorbergur Aðal-
steinsson og Skarphéðinn Óskars-
son, Víkingi, í 2 min.
Misheppnuð vftaköst: Engin.
Dómarar: Kristján Örn Ingi-
bergsson og Jón Friðsteinsson.
Þeir komust mjög vel frá erfiðum
leik. Það eina sem orkaði tvímasl-
is í dómum þeirra, var að aldrei
var dæmdur ruðningur, sem þó
var töluvert um í leiknum.
— stjl.
Myndir þessar tók Friðþjófur í
fyrrakvöld, er úrslit réóust f ts-
landsmeistaramótinu f hand-
knattleik. Efri myndin sýnir
Viggó Sigurðsson skora eitt
marka sinna f leiknum, en Viggó
stóð sig með miklum giæsibrag f
þessum leik. Valsmennirnir sem
eru til varnar eru Stefán Gunn-
arsson og Gfsli Blöndai. Neðri
myndin er svo tekin f búníngsher-
bergi Vfkings að leik loknum, og
sýnir kampakáta tslandsmeistara
Vfkings skála f kampavfni sem
velunnari féiagsins færði þeim
eftir leikinn. Frá vinstri: Þor-
bergur Aðalsteinsson, Stefán
Ilalldórsson, Skarphéðinn
Óskarsson, Rósmundur Jónsson,
Ólafur Friðriksson og Páll Björg-
vinsson.
Keppt í Alpagreinum
Reykjavfkurmeistaramótið f
Alpagreinum á skfðum fer fram
nú um helgina. Keppt verður í
Biáf jöllum og fer stórsvigskeppn-
in fram á laugardag, en svig-
keppnin á sunnudag. Keppt er
bæði f karla og kvennaflokkum
svo og f unglingaflokkum. Eru 28
skráðir til leiks f flokki fullorð-
inna, en hvorki fleiri né færri en
98 f unglíngaflokkunum.
Stórsvigskeppnin hefst kl. 13.00
á laugardag, en keppendur þurfa
Meistarakeppnin
„MEISTARAKEPPNIN" sem lið
þau er taka þátt f Evrópubikar-
keppninni næsta sumar taka þátt
f mun hefjast 5. aprfl n.k. með
leik tslandsmeistara Akraness og
bikarmeistara Vals á Akranesi.
Auk þessara tveggja liða taka
Keflvfkingar þátt f keppninni, en
þeir munu keppa í UEFA-
bikarkeppninni f ár. Leikdagarn-
ir hafa verið ákveðnir og verða
þeir sem hér segir:
5. apríl: lA — Valur
12. aprfl: tBK — ÍA
16. aprfl: Valur — IBK
24. aprfl: Valur — tA
26. aprfl: tA — tBK
1. maf:tBK — Valurt
Víkingur
AÐALFUNDUR Handknattleiks-
deildar Vfkings verður haidinn f
félagsheimilinu við Hæðargarð f
kvöid, föstudaginn 14. marz.
Hefst hann klukkan 20.
Risabingó
í Keflavík
tÞRÓTTABANDALAG Keflavík-
ur efnir til „risabingós" f Félags-
bíói í Keflavfk í kvöld. Sala að-
göngumiða hefst kl. 19.30, en hús-
ið verður opnað kl. 20.00. Byrjað
verður að spila kl. 21.00, og verða
spilaðar 18 umferðir. Mjög góðir
vinningar eru í bingói þessu, m.a.
þrjár utanlandsferðir, útvörp,
rafmagnstæki og f!.
að mæta til nafnakalls kl. 11 f.h.
Svigkeppnin hefst kl. 12.00 á
morgun, og þurfa keppendur að
mæta til nafnakalls kl. 11 f.h.
Búizt er við mikilli keppni f
flestum flokkum, og ber þátttak-
endafjöldinn glöggt vitni um þá
miklu grósku sem er nú f skfða-
íþróttinni á Reykjavfkursvæðinu.
Urslítaleikur Evrópumótsins í
LaugardalshöUinni 21. júní n.k.
— ÞETTA er mikið ævintýri og
auðvitað leggjum við f töluverða
áhættu. Við teljum hana samt
þess virði, og ef vel tekst til getur
þetta orðið borðtennisfþróttinni
tii framdráttar hériendis auk
þess sem það vekur athygli á
okkur erlendis, staðfestir að við
höfum hér góða aðstöðu og að
fþróttin er iðkuð hérlendis.
Þetta hafði Sveinn Áki Lúðviks-
son, formaður Borðtennissam-
bands tslands að segja, er hann
skýrði fréttamönnum frá því í
gær, að nú væri endanlega
ákveðið að úrslitaleikurinn í
Evrópubikarkeppninni í borð-
tennis færi fram hérlendis 21.
júní n.k.
— Við sendum Evrópusam-
bandinu tilboð um að halda úr-
slitaleikinn í Evrópumeistaramót-
inu i desember s.l., og vorum i
hópi 6 umsækjenda, þannig að
það kom okkur dálitið á óvart að
við urðum fyrir valinu, sagði
Sveinn Áki. Evrópusambandið
ákvað hvenær leikirnir færu
fram, og gaf samþykki fyrir
keppnisstaðnum sem verður
Laugardalshöllin.
Leikið verður á tveimur borð-
um og mun fyrirtækið JOOLA Co.
gefa borðin, ásamt kúlum, netum
og dómaraborðum.
Þar sem undankeppnin er nú
aðeins um það bil hálfnuð er ekki
vitað hvaða lið koma hingað, en
búast má þó við þvf að í hópi
þeirra er hingað koma verði beztu
borðtennismenn heimsins. Heims-
meistaramótið fór nýlega fram i
Kalkútta á Indlandi og þar varð
hlutur Evrópubúa stór. Ung-
'verjar sigruðu bæði í einliða- og
tvíliðaleik karla og Júgóslavi varð
i öðru sæti í einliðaleik karla. Er
Framhafd á bis. 18
Bikarkeppni Sund-
sambands Islands
Koina þossir ívoir kappar oa kcppa í l.aiiKarilaishiillinni 21. júnf? Istvan Jonyt-r, Unsvcrjinn
scm varú hcimsmcistari f ciilliúa* og tvfliúalcik á mótinu í Kalkútta og Anton Stipanic. sem
kcppti viú Jonyer til úrslita í cinliúalciknum.
BIKARKEPPNI Sundsambands
lslands fer að þessu sinni fram f
Sundhöll Reykjavíkur dagana
21., 22. og 23. marz. A móti þessu,
sem er aðalsundmót vetrarins
vérður keppt í samtais 26 grein-
um karla og kvenna, en þátttaka
er bundin við mest 2 þátttak-
endur í hverri sundgrein og eina
sveit i hverju boðsundi frá hverju
félagi. Félag má þó skrá fleiri
þátttakendur sem keppa án stiga
og þurfa þeir að hafa náð ákveðnu
lágmarki á löglegu móti til þess
að öðlast keppnisrétt. Hver ein-
staklingur má aðeins taka þátt í 4
greinum, auk boðsunda.
Atta fyrstu í hverri grein hljóta
stig. Sigurvegarinn fær níu stig,
en siðan eru stigin gefin 7 — 6 —
5 — 4 — 3 — 2 — 1. Gildir sama
sama regla fyrir boðsund.
Stighæsta félagið hlýtur titilinn
„bikarmeistari í sundi 1975“ og
bikar þann sem gefinn var af Bif-
reiðastöðinni Bæjarleiðum 1974.
Vinnst bikarinn til eignar ef sama
liðið vinnur þri*--vtjr i röð eða
fimm sinnum alls. Aðeins verða
veitt tvenn verðlaun: Fyrii bezta
afrek konu og fyrir bezta afrek
karls, samkvæmt gildandi stiga-
tölu.
Þátttökutilkynningum i bikar-
keppnina ber að skila á tíma-
varðakortum til stjórnar SSl fyrir
kl. 15.00, laugardaginn 15. marz
n.k.
vrr,
kr. 5.000.000
VIO KrnjMh’AHÓlA e I REVKJAVlK
Ibúð od verðmæti
"\
VV, verÍ mmik er kr n\
% , - v\
MUNIÐ
íbúöarhappdrætti H.S.Í.
2ja herb. ibúð að
verðmæti kr. 3.500.000.
Verð miða kr. 250.
í STUTTU MÁLI
LIÐ VtKINGS: Magnús Guðmundsson 3, Jón Sigurðsson 1, Einar
Magnússon 2, Skarphéðinn Óskarsson 2, Sigfús Guðmundsson 1,
Páll Björgvinsson 3, Stefán Halldórsson 3, Þorbergur Aðalsteins-
son 1, Viggó Sigurðsson 4, Sigurgeir Sigurðsson 4.
LIÐ VALS: Ólafur Benediktsson 1, Guðjón Magnússon 2, Gfsli
Blöndal 2, Jón Karlsson 2, Gunnsteinn Skúlason 2, Stefán
Gunnarsson 4, Agúst Ögmundsson 2, Ólafur H. Jónsson 2, Jón P.
Jónsson 2, Steindór Gunnarsson 1.