Morgunblaðið - 20.04.1975, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRlL 1975
V-Þýzkaland:
Lög, sem tryggja rétt
fréttamanna, samþykkt
ÞÝZKA blaðið The German Tri-
bune, sem gefið er út á ensku,
skýrði nýlega frá því að í febrúar-
lok hefðu verið samþykkt í þýzka
sambandsþinginu lög, sem gefa
fréttamönnum og öðrum, sem
starfa við útgáfu blaða og að frétt-
um I sjónvarpi og útvarpi, óskor-
aðan rétt til að neita að gefa upp
heimildir að fréttum fyrir rétti.
Einnig segir í lögunum, að ekki sé
hægt að gera upptæk prentuð eða
skrifuð skjöl, segulbandsspólur,
myndir og annað efni I fórum
fréttamanns, heima hjá honum
eða á vinnustað. Þá _ er einnig
kveðið á um, að ekki megi gera
tímarit upptæk nema skv. skrif-
legri skipun dómara.
Fella niður 1. bekk
vegna húsnæðisskorts
FJÖLMENNUR fundur garð-
yrkjumanna haldinn á Garð-
yrkjuskóla ríkisins á Reykjum, 6.
Námskeið fyrir
foreldra barna
með sérþarfir
FORELDRASAMTÖK barna með
sérþarfir og Námsflokkar
Reykjavíkur gangast fyrir nám-
skeiði í húsakynnum Foreldra-
samtakanna í Brautarholti 4 dag-
ana 21.—28. aprfl. Verður nám-
skeiðið á hverju kvöldi þessa
daga frá kl. 21—23.
Tekin verða fyrir þrjú svið, sem
snerta börn með sérþarfir: geð- og
greindarþroski, sjúkdómar og
líkamsþroski og kennslumál. Þá
verður hópvinna foreldra um
félagslegar þarfir þeirra og barna
þeirra og sameiginlegt umræðu-
kvöld fyrirlesara og þátttakenda.
Annað námskeið er fyrirhugað í
haust á vegum sömu aðiia og er
það hugsað í beinu framhaldi af
þessu námskeiði. A þessu fyrsta
námskeiði verða tekin fyrir
grundvallaratriði áður umræddra
sviða, sem helzt koma foreldrum
að gagni, og næsta námskeið mun
siðan byggja að einhverju leyti á
þessum grundvallarupplýsingum.
apríl 1975, beinir þeirri ein-
dregnu áskorun til stjórnvalda,
að hraðað verði uppbyggingu
Garðyrkjuskóla ríkisins, og að til-
raunir á sviði ylræktar og garð-
ræktar verði efldar, um leið og
fundurinn fagnar þeim tilraun-
um, sem nú þegar eru f gangi við
Garðyrkjuskólann.
I frétt frá skólanum segir, að
millibekkjaprófum hafi lokið rétt
fyrir páska, en garðyrkjunámið er
þriggja ára nám og nemendur
teknir inn í skólann annað hvort
ár.
Veturinn 1974 og 1975 var 2.
bekkur og í honum 28 nemendur,
11 i skrúðgarðyrkju og 17 í ylrækt
og matjurtaræktun. Aðsókn að
skólanum hefur aukizt mikið hin
síðari ár. Hefur orðið að fella 1.
bekk niður skólaveturinn
1975—76, þar eð ekki fékkst fjár-
veiting til þess að byggja þriðju
heimavistarálmuna við hið nýja
skólahús Garðyrkjuskólans, sem
hefur verið í byggingu allt frá
árinu 1961. 20 umsóknir hafa þeg-
ar borizt um skólavist í 1. bekk í
haust, og hefur orðið að vísa þeim
nemendum á aðra framhalds-
skóla, þar sem þeir geta bætt
undirbúning sinn, en síðan verð-
ur að láta þá taka inntökupróf i
þeim greinum, sem þeir hafa ekki
notið nægilegrar kennslu í að
mati skólans og taka þá svo beint i
2. bekk, eins og heimilað er í
reglugerð.
Vatnslitamyndin, sem Ásgrfmssafni var gefin.
Gamalt Asgríms-málverk gefið Asgrímssafni
BLAÐIÐ hefur spurnir af þvf
að Asgrfmssafni hefði verið
gefin gömul og dýrmæt vatns-
litamynd eftir Asgrím. Er við
inntum frú Bjarnveigu Bjarna-
dóttur, forstöðumann safnsins,
eftir þessu svaraði hún:
— Já, það er rétt. Formaður
Kvennadeildar Slysavarna-
félagsins, frú Hulda Victors-
dóttir, og frú Guðrún Ólafsdótt-
ir heimsóttu Asgrímssafn ný-
lega og færðu þvf að gjöf fyrir
hönd Kvennadeildarinnar
undurfagra vatnslitamynd sem
Ásgrfmur Jónsson mun hafa
málað uppúr aldamótum
Þessi mynd á sér dálitla sögu.
Frú Margrét Halldórsdóttir,
Njálsgötu 31, sem var náfrænka
Ásgrfms, en þau voru systkina-
börn, og eiginmaður hennar,
Magnús Bergmann Friðriksson,
ákváðu að Kvennadeild Slysa-
varnafélagsins erfði eignir
þeirra að þeim látnum, en þau
voru barnlaus. Margrét var
mikill stuðningsmaður Kvenna-
deildarinnar og starfaði mikið
að slysavarnamálum. Eru þau
hjón látin fyrir nokkrum árum.
Húsið á Njálsgötu 31 varð því
eign Kvennadeildarinnar og
allir þeir munir sem f því voru,
meðal þeirra þessi gamla vatns-
litamynd, sem Asgrímur mun
hafa gefið frænku sinni.
Gjöf þessi til safnsins kom
mér reyndar ekki á óvart.
Skömmu áður en frú Gróa
Pétursdóttur andaðist, en hún
var eins og flestir vita formað-
ur og mikil driffjöður Kvenna-
deildar Slysavarnafélagsins,
hitti ég hana í hófi. Tjáði hún
mér frá myndinni, og að kon-
urnar hefðu ákveðið að gefa
hana Asgrímssafni. Þótti þeim
að hún ætti hvergi frekar
heima en á heimili Ásgríms og
safni hans. Og nú er þetta hug-
ljúfa listaverk þangað komið,
og er safnið afar þakklátt
Kvennadeildinni fyrir þann
mikla höfingsskap sem hún
sýnir með þessari ákvörðun
sinni.
Kammersveitin flyt-
ur nýtt verk Hafliða
Álandseyjafyrirlestrar
KAMMERSVEIT Reykjavfkur
heldur fjórðu og sfðustu reglu-
legu tónleika sfna á þessum vetri
í dag, sunnudag kl. 16 f sal
Menntaskólans við Hamrahlfð. Á
tónleikaskrá eru tvö 18. aldar tón-
verk og tvö 20. aldar tónverk.
Af hinum síðarnefndu má vekja
sérstaka athygli á því að frum-
flutt verður tónverkið Diverti-
mento fyrir sembal og strengja-
tríó eftir Hafliða Hallgrimsson en
hann samdi verkið í júní 1974
með hina nýstofnuðu Kammer-
sveit í huga. Þá verður leikið stutt
en fjörugt verk eftir rússneska
tónskáldið Serge Prokofieff, sem
hann byggir á söngvum Gyðinga
og er verk þetta fyrir klarinett,
strokkvartett og píanó. Fulltrúar
18. aldarinnar eru hins vegar þeir
Leopold Mozart og J.S. Bach.
Hinn fyrrnefndi lifir aðallega í
sögunni sem faðir Wolfang
Amadeus Mozarts en hann var
einnig liðtækt tónskáld og eitt af
verkum hans sem lifir er konsert
f D-dúr fyrir clarino eða trompet
og hljómsveit. Lárus Sveinsson
leikur einleik á trompet en stjórn-
andi í verki þessu er Páll P. Páls-
son. Tónleikunum lýkur á
Brandenborgarkonsert nr. 5 í D-
dúr eftir J.S. Bach, en þar eru
einleikarar þau Jón H. Sigur-
björnsson flautuleikari, Guðný
Guðmundsdóttir, fiðluleikari, og
Helga Ingólfsdóttir, sembal.
Kammersveit Reykjavfkur er
að ljúka sínu fyrsta starfsári, og
segir í fréttatilkynningu frá
henni, að áhugi áheyrenda lofi
góðu um áframhaldið. Lokið er
við gerð tónleikaskrár fyrir næsta
vetur og mun sveitin þá halda
ferna reglulega tónleika með
svipuðu sniði og verið hefur. Auk
þess mun flutt tón- og leikverkið
„Sagan af dátanum" eftir
Stravinsky í samvinnu við Leik-
félag Reykjavíkur.
FYRSTI fyrirlestur Alandseyja-
viku Norræna hússins verður í
dag kl. 15, söguiegur fyrirlestur
um Álandseyjar, sem prófessor
Matts Dreijer, fyrrverandi þjóð-
minjavörður Alandseyja, heldur.
Á mánudag heldur Nils Edel-
man frá Abo-háskóla jarðfræði-
legan fyrirlestur um berggrunn
Álandseyja og er sá fyrirlestur á
vegum Háskóla Islands en hald-
inn i fundarsal Norræna hússins.
Með fyrirlestrinum, sem hefst kl.
20.30, verða sýndar litskyggnur.
Þriðjudagskvöld kl. 20.30 verð-
ur helgað bókmenntum Alands-
eyja og það flytur fil. dr. Jo-
hannes Salminen, bókmennta-
fræðingur, fyrirlestur um álenzk-
ar bókmenntir og álenzka skáldið
Karl-Erik Bergman les úr eigin
skáldskap og skáldskap annarra
Alendinga. Karl Erik Bergman er
fiskimaður og margt í skáldskap
hans er mótað af reynslu hans af
hafi og fiskveiðum. Þóroddur
Guðmundsson, skáld, hefur þýdd
nokkur ljóð eftir álenzk skáld og
mun hann lesa einhverjar þýð-
inga sinna.
Almennur fundur
um bindindis-
hreyfinguna
Þingstúka Reykjavíkur —
IOGT — og Islenzkir ungtemplar-
ar — IUT — boða til almenns
fundar um binaindishreyfinguna
á Islandi þriðjudaginn 22. þ.m. kl.
8.30 siðd í kjallara Templara-
hallarinnar við Eiríksgötu. Fram-
sögumenn verða frá Góðtemplara-
reglunni, ungtemplurum og AA-
samtökunum. Síðanverða frjálsar
umræður. Fundurinn er öllum
opinn.
Guðný Guðmundsdóttir, Helga Ingólfsdóttir, Graham Tagg og Pétur
Þorvaldsson (talið frá vinstri) frumflytja Divertimento fyrir sembal
og strengjatrfó eftir Hafliða Hallgrfmsson á tónleikum Kammer-
sveitar Reykjavfkur á sunnudaginn.
Selurinn aust-
ur í Arnes
LEIKFÉLAG Reykjavíkur
áformar að fara með leikrit '
Selurinn hefur mannsaugu eftir
Birgi Sigurðsson sem sýnt hefur
verið 25 sinnum í Iðnó, austur 1
Arnes í Gnúpverjahreppi og hafa
þar eina sýningu á verkinu fyrir
Hreppamenn sfðla maf maí-
mánaðar.
I frétt frá L.R. segir, að nú fari
hver að verða síðastur að sjá
þessa sýningu á fjölum Iðnó, þvi
að aðeins séu þar örfáar sýningar
eftir. A myndinni sést Jón Sigur-
björnsson i hlutverki Gamla.
Hann iðkar yoka, trúir á Maó og
verzlar með laxveiði.