Morgunblaðið - 20.04.1975, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 20.04.1975, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRlL 1975 11 Sinfóníu- tónleikar Efnisskrá: □ Sergei Pro- kofjeff: þættir úr Rómeó og Júlíu □ Þorkell Sigur- björnsson: Konsert fyrir bassafiðlu □ P.I. Tsjai- kovský: Sinfónfa nr. 4 op. 36 □ Einleikari: Árni Egilsson □ Stjórnandi: Vladimír Ashkenazy. Þessir tónleikar voru fyrir margra hluta sakir svolítið sér- stakir. Frumflutningur á konsert fyrir bassafiðlu telst ekki til dag- legra tíðinda, þvi sfður að íslenzk- ur hljóðfæraleikari slái í gegn, og flutningur 4. sinfónfu Tsjai- kovskýs, sem tókst á köflum af- burða vel. Balletttónlist, sem er slitin úr samhengi þeirra atburða er tóntúlkunin byggist á, getur sakir ágætis síns staðið ein. Þó er mögulegt að sögulegt samhengi og samspil þess við tónræna hreyfingu og blæbrigði sé svo samofið einni mynd í huga manna, að aðskilin séu þau mark- laus, eða að minnsta kosti komi flestum litið við. Sagan af Rómeó og Júliu er menningarleg sam- Tðnllsl eftir JÓN ÁSGEIRSSON eign. Fyrst og fremst vegna þeirra tilfinninga, sem eru æðri allri illsku og hver og einn okkar vill trúa á. Hver veit nema skiln- ingur hljómleikagesta hefði orðið annar á þessu meistaraverki Pro- kofjeff, ef röðun þáttanna hefði verið tengd söguþræðinum, en ekki slitin úr öllu samhengi. Tón- hugsun þessa verks er ekki aðeins leikur að tónum, hún er mótuð af hugblæ sögunnar og verður þannig skilin, annað og meira en skemmtileg syrpa. Konsert fyrir bassafiðlu, eftir Þorkel Sigur- björnsson, var næst á dagskrá. Verk þetta er ekki óáheyrilegt, en fremur lítilfjörlegt að gerð. Stutt stef, endurtekin án furðulítilla breytinga, voru unnin eins og verið væri að byggja upp spennu, er ætti að blómstra í nýrri og sterkri tónhugsun. Þetta er svip- að því, að segja aðeins aðdrag- anda sögu. Svona vinnuaðferð að byggja upp tónverk á stuttum stefjum, sí endurteknum, I nærri þvi sömu mynd, mætti kalla músí- kalska þráhyggju og eins og hún kom fram i kontrabassakonsert Þorkels, var hún rúin allri tón- rænni þróun, aðeins endurtekn- ing mjög svo einfaldra og stuttra stefja. Arni Egilsson er frábær kontrabassaleikari og hann skap- aði verkinu svolítið sérstæðan blæ, tróð sér aldrei of mikið fram og lék það á mjög sannfærandi hátt. í eins konar „kadensu" sýndi Arni eitt af sínum „tón- trykkum" sem er fólgið í tón- breytingum, sem framkallaðar eru með því að færa bogann til, en ekki með breytilegri handstill- ingu. Síðast á efnisskránni var 4. sinfónían eftir Tsjaikovský. Glæsilegt og þrungið verk, er ger- ir mjög strangar kröfur, bæði hvað snertir tóntak og tækni. Undirritaður, sem hefur haldið því fram að Ashkenazy sé ekki hljómsveitarstjóri, mun með gleði éta ofan í sig fyrri ummæli, ef tónsprotinn verður honum eins tiltækur og nóturnar á píanóinu. Hvað svo sem finna má að stjórn- un hans var innlifun hans svo sterk og einlæg að allir hrifust með. Slík tilþrif í flutningi sýnir okkur hvað hljómsveitin okkar er í raun og veru góð og hvers hún er megnug. Trillubátur Vil kaupa 4ra—6 tonna bát, helzt dekkaðan. Góð útb. í góðum bát. Tilboð merkt „Trillubátur 8590" sendist Mbl. M-BENZ 280 SE 1975 Til sölu keyrður 3500 km. Gold metalick. Litað gler. Stereokassettu útvarp. Upplýsingar í síma 10430. Suðurnesjamenn 500 fm iðnaðarhúsnæði til sölu í Ytri-Njarðvík. Húsið er steinsteypt, einangrað og múrhúðað. Selst í einu eða tvennu lagi. Upplýsingar eftir kl. 7 á kvöldin í síma 1 753, Keflavík. Trésmíðavélar Trésmíðavélar, hjólsög, afréttari, þykktarhefill og fræsari óskast til kaups. Nýtt eða notað. Tilboð sendist Mbl. fyrir 25.4 merkt: „Trésmíðavélar — 6855". Rnnir þú til ferðalöngunar, þá er það vitneskian um vorið erlendis sem veldur 25% lækkun á fargjöldum til Evrópu á tímabilinu 1. apríl til 15. mai. flucfélac LOFTLEIDIR ÍSLAJVDS Félög sem sjá um föst tengsl við umheiminn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.